Morgunblaðið - 22.07.1990, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 22.07.1990, Blaðsíða 10
U'Ji. .iiS ÍIUOAd'-lK'/.'Jg dídAJU'/I'JOaOM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚLI HEILRÆÐIHANDA TIL VONANDILAXVEIÐIMÖNNUM ÞEIR sem rennt hafa fyrir lax eru flestir á einu máli um að þar sé á ferðinni íþrótt sem ekki er unnt að slíta sig frá, ganga jafhvel svo langt að segja að það eina sem haldi þeim á lífi yfir vetur- inn sé tilhlökkunin að komast í lax á sumrin. Fyrir þá sem ekki hafa tekið bakteríuna kann þetta að virðast skrýtið. Ein leið til að bæta úr því er að kynna sér málið betur og gefa lesendum innsýn í fúrðuheim þennan. Það er nefiiilega alls ekki eins erfitt að komast inn í hóp laxveiðiunn- enda og margur kann að halda. Meira um það síðar. eftir Guðmund Löve jmmm■ íslandi eru 117 lax- veiðiár samkvæmt skýrslum Veiðimál- astofnunar. Veiði- rétt eiga þeir deigendur sem land eiga að hverri á, og er hlutur hvers og eins reiknaður út eftir lengd bakkans með tilliti til annarra at- riða, svo sem uppeldis- og veiði- stöðva físksins. Samkvæmt lands- lögum er skylt að stofna veiðifélög um allar laxveiðiámar og eru 58 þessara félaga innan vébanda Landssambands veiðifélaga. Félög þessi leigja svo oftast ána til stang- veiðifélaga eða einkaaðila, sem svo aftur sjá um að selja einstaklingum veiðileyfí í ámar. Margar af helstu laxveiðiám landsins, svo sem Laxá í Kjós, Þverá í Borgarfirði, Grímsá, Haffjarðará, Laxá í Dölum, Hauka- dalsá, Vatnsdalsá og Víðidalsá eru í leigu ýmissa athafnamanna sem oft leigja þær aðeins útvöldum ein- staklingum. Sumar ár eru einnig þéttsetnar erlendum laxveiðimönn- um, og má þar til dæmis nefna að Laxá í Kjós, sem í fyrra skiiaðí flest- um fískum á land, er leigð af útlend- ingum svo til allan veiðitímann. Laxveiðitímabilið stendur yfír frá 20. maí til 20. september, en á þessum fjórum mánuðum má í hverri á veiða í 92 daga. Á hverjum degi má veiða í 12 klukkustundir alls, og er deginum skipt í tvennt, gjarnan frá kl. 7 til kl. 13 og frá kl. 15 til kl. 21. Með þessu móti fær fiskurinn möguleika til að ganga óáreittur upp ána hálfan sólarhring- inn. í hverri á er Ieyfður ákveðinn fjölda stanga sem samþykktur er af Veiðimálastofnun. Til hliðsjónar er haft að áin skili að meðaltali einum fiski á stöng á dag, en veiði- vonin er að sjálfsögðu mjög mis- munandi eftir tíma og veiðistað fyrir utan alla duttlunga náttúrunn- ar. Veiðileyfin Laxveiðileyfið er oftast selt fyrir einn eða fleiri daga í senn. Mismun- andi reglur gilda um þetta fyrir hverja á. Stundum eru alíar stangir í á seldar saman í einn eða fleiri daga, en oft er hægt að fá t.d. eina stöng í hálfan dag. í flestum ám er Ieyfílegt að vera tveir um stöhg, og má þá að sjálfögðu aðeins annar veiða í einu. Verð á veiðileyfum er bæði mismunandi milli áa og milli tímabila. Venjulega eru leyfin dýr- ust á miðju tímabilinu þegar veiði- vonin er mest, en ódýrust í byrjun þess og enda. Svo dæmi séu tekin kostar dagurinn í Elliðaánum nú um helgina kr. 12.500, í Norðurá kr. 29.000 (þar er þetta dýrasta helgin á sumrinu) og í Laxá í Leirár- sveit kr. 46.000 (síðustu dagana í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.