Morgunblaðið - 09.09.1990, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.09.1990, Blaðsíða 18
18 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1990 Ulpor Rúíltckragabolir Buxtir Skór frá kr. 3.995 frá kr. frá kr. 2L4S5 *frá kr. U Brids Námskeið í sjálfsstyrkingu fyrir konur Aðalmarkmið námskeiðsins er að efla sjálfstraust og jákvætt sjálfsmat og gera þátttakendum kleift að njóta sín til fulls í félagsskap annarra. Lögð er áhersla á að gera þátt- takendum grein fyrir hvaða rétt þeir og aðrir eiga í mann- legum samskiptum og hvemig þeir geta komið fram málum sínum af festu og kurteisi, án þess að láta slá sig út af laginu með óþægilegum athugasemdum. Fjallað verður um atriði sem auðvelda fólki að svara fyrir sig og halda uppi samræðum og leiðir til að auka almenna lífsgleði. Ennfremur er rætt um hvemig hafa megi hemil á kvíða og sektarkennd með breyttum hugsunarhætti og taka gagnrýni þannig að maður læri af henni - en haldi jafnframt reisn sinni. Upplýsingar og innritun í síma 61 22 24 sunnudag og mánudag og í síma 123 03 aðra daga. . Anna Valdimarsdóttir, sálfræðingur, Bræðraborgarstíg 7. . i p'í IFOTSPOR PÍLAGRÍMANNA Frá París til Santiago de Compostella, 3-17. október. Ferð okkar hefst eins og hjá pílagrímunum forðum íParís og við fylgjum yfír 1000 ára gamalli leið yfír Pyreneafjöllin til hinnar helgu borgar Santiago de Compostella í Gallesíu á norðvestur Spáni. Santiago de Compostella er ein af þremur helgum borgum kristninnar ásamt Róm og Jerúsalem. Borgin er ein af perlum Spánar með undurfagra dómkirkju og byggingar. Ferðalag okkar í fótspor pílagrímanna liggur um fallegar borgir - þorp og sveitir. Gist verður á Paradornum sem eru vönduð ríkisrekin hótel, staðsett á fallegum stöðum og yfirleitt í merkum gömlum byggingum t.d. klaustrum eða kastölum. í Santiago de Compostella verður gist á Paradornum Los Reyes Católicos í þrjár nætur en hann var upphaflega byggður sem gististaður fyrir pílagríma á 16. öld af konungshjónunum katólsku, ísabellu og Ferdinand. í dag er Los Reyes Católicos glæsilegt 5 stjörnu hótel. Fararstjóri er Steingrímur Gunnarsson. Hægt er að framlengja dvölina í París. LANDjaCLSAGA Amór Ragnarsson Bridsfélag Kópavogs Sl. fimmtudag hófst vetrarstarfið, spilaður var eins kvölds tvímenningur í einum 16 para riðli. Úrslit: Sævjn Bjarnason — Magnús Torfason 264 Trausti Finnbogason — Jón Ingi Ragnarsson 261 Ingólfur Böðvarsson — Bernharður Guðmundsson 240 Jón Steinar Ingólfsson — Loftur Pétursson 233 Meðatskor 210 Næsta fimmtudag verður aftur spil- aður eins kvölds tvímenningur en síðan verður byqað á hausttvímenningnum. Bridsdeild Skagfírðinga Hauststarfsemi deildarinnar hefst þriðjudaginn kemur, 11. september. Spilaður verður eins kvölds tvímenning- ur. Þriðjudaginn 18. september verður einnig einskvölds tvímenningskeppni, en fyrirhugað er að hefja haustbaromet- er þriðjudaginn 25. september. Spilað er í Drangey v/Síðumúla 35, 2. hæð. Allt spilaáhugafólk velkomið. Keppnisstjóri er Ólafur Lárusson, sem einnig veitir allar nánari upplýsingar í s. 16538. Spilamennska hefst kl. 19.30. Bridsfélag Reykjavíkur Aðalfundur Bridsfélags Reykjavíkur verður haldinn miðvikudaginn 12. sept- ember kl. 19 í Sigtúni 9. Kaffiveitingar og spilamennska á eftir. Félagar eru hvattir til að mæta. Bridsdeild Barðstrend- ingafélagsins Vetrarstarf deildarinnar hefst mánu- daginn 24. september nk. með aukatv- ímenningi eitt kvöld. Mánudaginn 1. okt. nk. hefst aðaltvímenningskeppnin. Fimm kvölda keppni. Spilað verður í sal Meistarasambands byggingarmanna í Skipholti 70. Keppni hefst stundvíslega kl. 19.30. Spilastjóri í vetur verður Sigurður Vilhjálmsson. Upplýsingar gefur Ólafur í síma 71374. FULLORÐINSFRfEÐSLAN liefjasl vHaina 24.-3Ú. september ★ 12 vikur - einu sinni í viku ★ Hómorksfjöldi í hóp: 10 ★ Engo undirbúningsmenntun þarf ★ Öllum tekst sem vilja ★ Engin oldurstokmörk Veljið vikudag og tíma Stundaskrá: • ENSKA: Byrium frá byrjun I: Dogor: Món., þri., mið., fimmt. Tími: 18.00-19.30 eöo 20.00-21.30 • ENSKA: Byrjum frá byrjun II: Loug. kl. 15.00-16.30 Sun. kl. 15.00-16.30 • ENSKft: ftfram I: Sun. kl. 17.00-18.30 • SŒNSKfi: Grunnnámskeið: Föst. kl. 17.45-19.15 Loug. kl. 17.00-18.30 ★ Einko- eðo stuðningskennsla ★ Helstu efni grunn- og framholds- skólo ★ Tími: Mónud. - fimmtud. kl. 9.00-18.00 föst.-sun. kl. 9.00-17.00 Innriton í fullum gangi s. 71155 alla daga kl. 9.00-21.00 FllLLORBINSFRÆflSLAÍn Hábergi 7 s. 71155

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.