Morgunblaðið - 09.09.1990, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 09.09.1990, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1990 C 35 Slökkviliðið dældi sjó á hliðar Hærings til kælingar. Vegna reykjakófs mótar ekki fyrir Hæringi en utan á honum sést Súðin sem er með slagsíðu og norsk- ur hvalveiðibátur og togarinn Helgafell frá Vestmánnaeyjum. Til vinstri er breskt eftirlitsskip sem hér var statt. Myndin er tekin frá Miðbakka ekki Qarri núverandi skrifstofu tollstjóra. SÍMTALIÐ... ER VIÐ HILMAR SNORRASON, SKIPSTJÓRA Fyríreinhæfa dellukarla... 36119 Góðan dag, er Hilmar Snorra- son við? Bíddu augnablik ... Já, halló. - Sæll Hilmar, Kristján Þor- valdsson heiti ég, blaðamaður á Morgunblaðinu. Mér datt í hug að forvitnast um áhuga þinn á skipasögu íslendinga. Þú hefur nýlokið við sögu Skipaútgerðar ríkisins og í fyrra kom út eftir þig skipasaga Eimskip. Hvað kemur til að ungur skipstjóri fer að skrifa sögu skipanna? Ég hef áhuga á skipum. Upp- haflega hafði ég hugsað mér að skrifa sögu allra kaupskipa sem verið hafa í eigu Islendinga. Svo fréttu þeir af þessu hjá Eimskip og báðu mig um að skrifa skipa- sögu sína á sjötíu og fimm ára afmælinu sínu. Þetta spann síðan upp á sig og Skipaútgerð ríkisins bað mig um að skrifa sina sögu í tilefni afmælis útgerðarinnar. Þessar tvær bækur eru nánast úrdrag úr heildarverkinu sem ég hef verið að vinna að. - Hvenær kviknaði áhuginn? Frá fæðingu hefur líf mitt snú- ist um sjómennsku. Ég hef nánast hvergi unnið annars staðar en á sjó. - Þú hefur sem sagt verið far- inn að viða að þér upplýsingum löngu áður en þú fórst að velta fyrir þér að skrifa bók? Já. Ég byijaði að viða að mér gögnum árið 1976. Finnst þér sem fræðimenn hafi sniðgengið skipa- söguna? Þetta er nú erfið spurning. Ætli það sé ekki frekar, að málið henti betur einhæfum dellukörl- um, en sagnfræð- ingum. - Þetta er greini- lega orðið meira en della hjá þér. Losn- arðu nokkurn tímann við þetta? Nei, aldrei. Svo lengi sem skip fljóta á- hafinu, losna ég ekki frá þessu. - Hvert er þitt uppáhaldsskip? Sem sjómaður hlýt ég að halda mest upp á það skip sem ég er á hveiju sinni. Uppáhaldsskipið mitt í dag er því Askjan, þar sem ég er nú skipstjóri. En það er mjög erfitt fyrir mig að taka eitt skip fram yfir annað í skipasögunni. - Mörg þeirra eru náttúrulega á hafsbotni... Jú, stór hluti er farinn í brota- járn eða hvílir á hafsbotni. Nokk- ur eru þó ennþá á fioti, meira segja skip sem voru hér um alda- mót. Skip sem hét ísafold hefur líklega verið hvað þrautseigast á heimshöfunum af þeim sem Is- lendingar hafa eignast. Það var smíðað fyrir aldamót og er ennþá í notkun í Tyrklandi, þó að vísu hafa verið gerðar á því miklar breytingar. - Væri eitthvað vit því að reyna eignast þetta skip? Nei, síður en svo. - Hvenær hófst saga Skipaút- gerðar ríkisins, sem þú laukst við nú síðast? Hún hófst árið 1930, þegar útgerðin var stofnuð. En ég skrifa líka um skip landsstjórnarinnar. Eftir að Eimskip gat ekki haldið uppi strandferðum árið 1916, eft- ir að Goðafoss fórst, keypti lands- stjórnin þijú skip á árinu 1917. Eimskip sá reyndar um rekstur þeirrar strandþjónustu. - Er saga Ríkisskips búin að vera erfiðleikasaga frá upphafi? I okkar siglinga- sögu var mikið blómaskeið í stríðinu og reyndar má segja að siglingasagan sé í heildina farsæl. - Jæja, Hilmar ég þakka þér fyrir spjallið og vona að enn miði þér áfram við ritun skipasögu. Ég þakka þér sömuleiðis, vertu blessaður. Blessaður. Barna- og ungiingaskóli í Vestmanna- Runar eymgurmn eyjum. Helgason ArniJohn- sen vill slökkva eldinn. „Með aðstoð kennaranna við skólann rannsakaði eg 3 efstu bekki skólans 12. febrúar siðastliðinn, og kom þá í ljós sem fæsta mun hafa grunað, að 64% af börnum þessum höfðu gert sig sek í að reykja — reykja þennan tóbaks- óþverra sem fæst í vindlingum ... Sé miðað við efstu bekkina 3, sem nokkurnveginn áreiðan- leg rannsókn eftir atvikum fór fram í, hafa sem næst 41% stúlkna og 87% pilta átt meiri eða minni þátt í að reykja.“ Mcrrgunblaðið leitaði álits Ás- geirs Rúnars Helgasonar fræðslu- og upplýsingafulltrúi Krabbameinsfélagsins á þessari frétt Steins Sigurðssonar kennara í Skólablaðinu: „Þetta eru ugg- vænlegar tölur, — en athyglis- verðar. Þegar svona reyksprengj- ur springa í skólum er það megin- reglan að það séu stelpurnar sem séu að fikta við að reykja. Hvar er þessi skóli?" Gáfnasljó Eyjabörn „Hér í „Eyjum“ (Vestmanna- eyjum) er ástandið því miður ekki sem glæsilegast. Eg var oft búinn að verða þess var að, að sum skólabörnin voru farin að leggjast í reykingar," sagði Steinn Sig- urðsson í 6. tbl. skólablaðsins sem kom út í júní 1912. Skólablaðið var tímarit um uppeldis- og kennslumál styrkt eða gefið út af Hinu íslenzka Kennarafjelagi. Steinn vildi fá eitthvað staðbetra FRÉTTALIÓS ÚR FORTÍÐ Reyk- sprengja - segir Ásgeir Rúnar Helgason upplýsinga- fulltrúi Krabbameins- félagsins á að byggja en lauslegar ágiskan- ir og komst að þeim niðurstöðum sem frá var greint. Greinarhöf- undur taldi áhrif tóbaks „ill og skaðvænleg" og þeim mun geig- vænlegri þegar börn ættu í hlut. Nikótín safnast fyrir í líkamanum, „þangað til svo getur farið að ein- kenni eitrunarinnar gjósi upp alt í einu: skjálfti, svimi, taugaverk- ur, hjartsláttur, meltingaróregla og lystarleysi, og stundum veiklun skilvita, einkum sjónar og og heyrnar. (Dr. Flöystrup). Ofnautn tóbaks getur haft mjög margt ilt í för með sér, svefnleysi, drunga og skerpuleysi, minnisbilun og sljóleik til andlegra starfa.“ Steinn sagði vel gerða unglinga hafa orðið að láta af námi, svo mjög hafí gáfurnar sljpvgast. „Og það er ekki fátítt að þeir hafi leiðst út á drykkjuskaparbrautina á eftir, og þaðan út á ýmsa aðra háska- lega glapstigu." Steinn Sigurðs- son hvatti til þess að löggjafar- valdið fyrirbyði með lögum að selja börnum og unglingum tóbak. Alþingismennirnir Sigurður Sigurðsson, Benedikt Sveinsson og Matthías Ólafsson brugðust við herhvöt Steins. Árið eftir lögðu þeir fram frumvarp til laga í neðri deild, um sölubann á tóbaki til barna og unglinga yngri en 16 ára. Á Alþingi reyndust skiptar skoðanir, sumir töldu málið þarft og fulls stuðnings vert en aðrir töldu erfitt að framfylgja sölu- banni og svo gæti jafnvel fariðað „forboðnir ávextir", þ.e.a.s. tóbak, freistuðu unglinga og barna enn frekar en ella. Að lok- um var skipuð fimm manna nefnd til að kanna málið. 8. september samþykkti deildin að skora á land- stjórnina að afla sér upplýsinga og tillagna til úrbóta hjá fræðslu- málastjórninni. Málið kom þó ekki til umræðu á næstu þingum. Eldur í Eyjum Tóbaksneytendur, — jafnt ung- ir sem aldnir — telja sig hafa orð- ið vara við aukinn áhuga uppal- enda á tóbaksvörnum hin síðari ár. Árið 1984 var með lögum — auk annarra takmarkana og skyldugrar fræðslu um tóbak- svarnir — bannað að selja ein- staklingum undir 16. ára aldri tóbak. Þess verður að geta að Vestmanneyingurinn Ámi John- sen hefur átt umtalsverðan þátt í að framfylgja lögum þessum en hann var formaður tóbaksvarnar- nefndar árin 1984-88. Undanfarin 14-15 ár hefur stórlega dregið úr tóbaksreyking- um íslenskra barna og unglinga. 1974 reyktu 54-55% 16 ára ungl- inga en í dag er talið að um fjórð- ungur íslenskra unglinga neyti reyktóbaks. Könnun á reykingum bama og unglinga í Vestmannaeyjum í vor leiddi í ljós dregið hefur úr barna- reykingum í Eyjum; einungis 18 af 547 börnum á aldrinum 9—16 ára reyktu. Á aldursbilinu 12—14 ára reyktu 5,2% nemenenda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.