Morgunblaðið - 09.09.1990, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.09.1990, Blaðsíða 22
22 C MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1990 M YNDLIST/i/vernig er listaverkakaupum háttabf Listaverkaeign safnanna 1 Jón Gunnar Árnason: Ego, 1969. Gifs og stál- hnífar. Keypt til Listasafns íslands 1989. Nokkur síðustu ár hefur Listasafnið leitast við að bæta fyrir þessi mistök með því að kaupa verk frá þessu tímabili. FYRIR viku var í pistli um myndlist fjallað um uppbygg- ingu nokkurra safna, einkum þeirra sem eruí vörslu ríkis- ins. Listasafni Islands er ætlað sérstaklega veigamikið hiut- verk í lögum, og óvíst að stofn- un með fámennu starfsliði fái valdið öllum þeim þáttum, sem þar voru nefndir. Mikilvægasti þáttur starfins er hins vegar ótvírætt að safnið eignist svo fullkomið safn af islenskri myndlist sem mögulegt er, enda er það helsta hlutverk list- asafna í augum almennings. Samkvæmt 8._grein laganna um Listasafn Islands skal sér stök innkaupanefnd annast kaup listaverka til safnsins. Þar sem þessi nefnd hefur ein það hlutverk að ákvarða kaup listaverka til þessa þjóðar- safns íslendinga (þó forstöðu- maður safnsins gegni þar einnig e|tir sérstöku hlut- Þorióksson verki) hlýtur skipun hennar að vera mjög mikilvæg. Samkvæmt fyrrnefndri grein laganna gegna listamenn hér lykilhlutverki, þar sem nefndin er skipuð aðeins þremur aðilum; forstöðumanni og tveimur fulltrúum listamanna í safnráði. í innkaupanefnd ræður meirihluti atkvæða úrslitum, þó hægt sé að skjóta ágreiningi til safnráðs, og því ljóst að fulltrúar listamanna hafa þama mikið vald um hvaða verk eru keypt til safnsins. Það er því miður reynsla fyrir því að þessu valdi hafi verið mis- beitt. I tíð fyrri forstöðumanns keypti innkaupanefnd lítið eftir listamenn sem komu fram á sjón- arsviðið allt frá miðjum sjöunda áratugnum og langt fram yfír 1980; þeim mun meira var keypt af verkum þeirra afstraktlista- manna sem bar hæst í íslenskri myndlist á sjötta og sjöunda ára- tugnum, og var jafnvel talað um bandalag þeirra og Listasafnsins til að halda nýjum liststraumum í skefjum. Þetta hafði þau áhrif að listaverkaeign safnsins var orð- in nokkuð misvísandi um listþróun í landinu, og var það m.a. ein af orsökunum fyrir því að Nýlistasaf- nið var stofnað á sínum tíma til að halda í verk listamanna, sem Listasafnið hafði í engu sinnt. Nokkur síðustu ár hefur Lista- safnið leitast við að bæta fyrir þessi mistök með því að kaupa verk frá þessu tímabili, og hefur forstöðumanni og innkaupanefnd að nokkru tekist að bæta skað- ann, þó slíkt verði aldrei hægt til fullnustu. Hins vegar er stundum skemmtilegt að fylgjast með því, að það eru oft þessi innkaup á tuttugu ára gömlum verkum sem verða til þess að lesendadálkar fýllast af bréfum hneykslaðra áhorfenda, og má segja að það sé ánægjulegt til þess að vita að þessi verk ná enn að hreyfa við fólki; sérstaklega þegar haft er í huga, að við öll innkaup á verkum til safnsins ber innkaupanefnd að „fara eftir listrænu gildi þeirra og hafa í huga hvað safnið á eftir sama höfund". í lögunum um Listasafn íslands er 10. greinin ein sú skemmtileg- asta, vegna þess að þar er gert ráð fyrir að mistök kunni að eiga sér stað við innkaup listaverka, og safnið eignist eitthvað sem því er ekki boðlegt; slíkt þurfí að leið- rétta. En leiðréttingunni er snið- inn þröngur stakkur: „Heimilt er að selja myndir úr eigu safnsins I því skyni að kaupa annað verk eftir sama listamann er æskilegra þykir fyrir safnið. Sala er þó því aðeins heimil að meiri hluti safnr- áðs og höfundur, sé hann á lífí, séu um það sammála." Það þarf ekki að búast við því að þessi heimild verði oft notuð, þar sem hún nær einungis til að kaupa annað verk eftir sama aðila — og þeir eru varla margir listamenn- imir sem munu samþykkja að verk þeirra verði seld úr listasafni þjóðarinnar! En söfn eignast ekki einungis listaverk með innkaupum, heldur einnig með því að þiggja gjafir. Eins og áður hefur verið bent á eiga mörg söfn í landinu upphaf sitt í gjöfum listamanna eða lista- verkasafnara, sem hafa viljað að þjóðin í heild fengi notið ver- kanna; nú stendur yfír í Hafnar- fírði sýning á einni slíkri lista- verkagjöf. Þetta er gott og blessað svo langt sem það nær, og það er ætíð merkisatburður í íslensku myndlistarlífi þegar listasöfnum berast góðar gjafir. En þar sem söfn eru flest hver bundin skilyrð- um í þá átt að þar eigi aðeins að varðveita það besta í myndlist- inni, verða þau oft að fara varlega þegar þeim bjóðast listaverkagjaf- ir. Það er ekki sjálfgefið að slíkt skuli ætíð þegið, þar sem í stöku tilfelli getur tilgangurinn með gjöfínni m.a. verið sá að koma slökum verkum á safn, eða gera verk viðkomandi listamanns áber- andi á annan hátt. Því er skýrt ákvæði um gjafír í lögunum um Listasafnið, þar sem m.a. segir: „Safnráð Qallar um gjafír sem safninu eru boðnar og metur hvort þær skuli þegnar. Þótt safn- ið veiti listaverki viðtöku sem gjöf má það eigi takast á hendur skuld- bindingar um aðra meðferð þess en annarra listaverka safnsins." Það er því ljóst að þó gjafir séu auðvitað vel þegnar. þá verði þær aðeins hluti af Lis isafni íslands án skilyrða, og samkvæmt list- rænu mati safnráðs. Þetta ákvæði er væntanlega sett til að tryggja að safnið verði ekki að ruslakistu fyrir annars flokks listaverk, sem fólk telur ranglega, oftast vegna persónulegra tengsla við viðkom- andi listafólk eða myndefni, að eigi heima í Listasafni Islands. Því hafa lögin um Listasafn íslands verið tekin fyrir hér, að þar er að fínna einna skýrast markaða opinbera stefnu um myndlist hér á landi. Til saman- burðar gefa t.d. samþykktir um starfsemi Kjarvalsstaða og menn- ingarmálanefnd Reykj avíkurborgar til kynna litla stefn- umótun fyrir mynd- listarsöfn borgar- innar, en ijalla fyrst og fremst um stjórnunarþætti. Þetta þýðir síðan í raun að innkaup á listaverkum og skip- ulag sýninga er að mestu komið undir vilja meirihluta menningarmála- nefndar hvetju sinni, sem aftur byggir á undirbún- ingi forstöðumanna safna borgarinnar og almennum áhuga nefndarmanna. Ekkert kemur held- ur í veg fyrir að fleiri aðilar 1 hafi þama hönd í bagga, t.d. borgarstjórnin sjálf. Slíkt fyrir- komulag veitir meiri sveigjanleika fyrir stjómendur, en það er um leið veikleiki, þar sem önnur við- horf en listræn geta augljóslega haft áhrif á ákvarðanir. Hlutverk safna hafa ef til vill meira að segja um hvernig þau eru mynduð en flest annað. Lista- verkaeign Listasafns Reykjavíkur er ekki jafn markvisst uppbyggð og hjá Listasafni Islands, enda hlutverk þess gjörólíkt; á meðan hlutverk Listasafnsins er bundið í lög, er listaverkaeign Reykjavík- ur það ekki, enda ekki síður ætluð til að prýða borgina, stofnanir hennar og opinberar byggingar (Kjarvalssafn sem slíkt er auðvit- að hluti af Listasafni Reykjavík- ur, sem til eru skýrari reglur um). Og önnur söfn hafa önnur hlutverk, sem hvert markast af upphafí sínu. Áður hefur verið bent á söfn tileinkuð einstökum listamönnum, en svipað gildir um fleiri, _eins og t.d. Listasafn Há- skóla íslands og Nýlistasafnið. BLÚS/Gcta Svíarspilad blús? 1UNSE Sértímar Tjútt, Rock, Boogie og Bugý, fyriralla aldurshópa, fyrir byrjendur og framhald yngst 8 ára. Ath: Nýir barnadansar fyrir 3ja - 5 ára. Barna og samkvæmisdansar fyrir 6-9 ára. Ath: NÝTT-NÝTT fyriryngstu kynslóðina tjáningardansar. NÝTT-NÝTT „Soca-Dance“ fyrirbörn, unglinga og hjón. Fimm tíma námskeið Kennsla hefst 12. september. Kennt í 14 vikur og jólaball í lokin. Kennslustaðir K.R. heimilið við Frostaskjól, Félagsmiðstöðin Bústöðum (í kjallara Bústaðakirkju). Upplýsingar í síma 679590 frá kl. 17-21 alla daga. Kennum alla samkvæmisdansa, suður-ameríska, standard og gömlu dansana, fyrir hjón, einstaklinga og hópa. NÝTT-NÝTT Vouge-Freestyle, Hip-Hop - Funk disko jazz Allt nýir dansar 8-10 ára -11 -12 ára -13-15 ára - 16ára og eldri Ath: Stepp fyrir alla D.S.I E ; Raðgreiðslur. Chicago-hraðlestin BLÚSHEFÐ á Norðurlöndunum hefur alla tíð verið mest í Svíþjóð. Þar hafa haldið tónleika flestir helstu biústónlistarmenn sögunnar aukinheldur sem sænskar sveitir hafa ieikið blús í Qölda ára. Fremsta blússveit Svíþjóðar um þessar mundir er Chicago Ex- pressen, sem hinn snjalli söngvari Sven Zetterberg leiðir, og fyrir stuttu sendi sveitin frá sér sína fyrstu breiðskífu. Chicago-hrað- lestin var stofnuð snemma á þessum áratug, en sveitar- meðlimir höfðu þá Íverið að leika blús — og soul-tónlist frá eftir Arno því snemma á sjö- Motthíasson unda áratugnum. Framanaf var sveitin einskonar tóm- stundagaman, því flestir höfðu með- limir hennar nóg að dunda með öðr- um sveitum. Með tímanum jukust vinsældir sveitar- innar og fyrir tveimur árum helg- uðu sveitarmeðlim- ir sig eingöngu blúsnum og Chicago-hraðlest- inni. Sven Zetterberg, sem leiðir sveitina, er af mörgum tal- inn einn fremsti blús- og soulsöngv- ari Norðurland- anna, en hann þyk- ir einnig snjall munnhörpuleikari Ljósmynd/Janne Rosenqvist Sven Zetterberg Fremsti blús- og liðtækur gítar- söngvari Norðurlanda? leikari. Dtjúgur hluti tónleikadag- skrár sveitarinnar er frumsamdir blúsar, flestir eftir Sven. Hann hreifst af blúsnum tólf ára og 1965 var hann byijaður að æfa sig á munnhörpu. Síðar bættist við gítar, en með tímanum varð söngurinn stærri þáttur í blúsmenntinni. Aðrir í Chicago-hraðlestinni eru Janne Sjöström munnhörpuleikari, Hank Jansson gítarleikari, Janne Paltman hljómborðsleikari, Berra Pettersson bassaleikari og trymbill- inn Stoffe Sundlöf. Allir hafa þeir fengist við blús frá því snemma á sjöunda áratugnum, eins og áður sagði, og koma með áhrif hver úr sinni áttinni; einn hlustar á jassblús, annar á Louisianablús, þriðji á rytmablús o.sv.frv. Chicago hrað- lestin hefur verið iðin við tónleika- hald í Svíþjóð og Norðinenn hafa einnig tekið sveit- inni vel. Sam- kvæmt heimildum frá Svíþjóð hefur sveitin lýst áhuga á að koma til íslands til tónleikahalds og er hér lýst eftir ein- hveijum sem vill taka skipulag slíkrar ferðar að

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.