Morgunblaðið - 19.09.1990, Page 4

Morgunblaðið - 19.09.1990, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 1990 Kvennadeild Landspítalans fær brezka viðurkenningu: Ástralskur læknir stundar sérfræðinám við deildina KONUNGLEGA fæðingar- og kvensjúkdómalæknastofnunin í Bret- landi (Royal College of Obstetricians and Gynaecologists) hefur ný- lega veitt kvennadeild Landspítalans viðurkenningu, sem felur í sér að deildin telst hæf til að útskrifa sérfræðinga í fæðingar- og kven- sjúkdómalækningum. Stephen O’Callaghan, ástralskur læknir i fram- haldsnámi, er fyrstur erlendra lækna til að stunda sérfræðinám við kvennadeildina. Sigmundur Guðbjarnason, rektor Háskóla íslands, segir að þetta séu mjög ánægjuleg tiðindi og alþjóðleg viðurkenning á starfi kvennadeildarinnar og læknadeildar Háskólans. Gunnlaugur Snædal prófessor, yfirlæknir kvennadeildar Landspít- alans, sagði í samtali við Morgun- blaðið að viðurkenning frá RCOG gilti um allt brezka samveldið, og því gæti kvennadeildin tekið þátt í menntun sérfræðinga frá hvaða samveldislandi sem væri. Bæði væri deildin talin nógu stór, og einn- ig hefði hún á að skipa mjög hæfu starfsfólki. „Viðurkenningin þýðir að deildin er nú fullur þátttakandi í að sérmennta fólk í fæðingar- og kvensjúkdómalækningum,“ sagði Gunnlaugur. „Okkur þykir vænt um að hafa fengið þessa viðurkenn- ingu. Hún sýnir að deildin er vel metin á erlendum vettvangi." Gunnlaugur sagði að þótt deildin hefði alla burði til að útskrifa sér- fræðinga, vildu menn að íslenzkir sérfræðingar tækju áfram síðari hluta sémáms síns við viðurkenndar erlendar stofnanir. Stephen O’Callaghan frá Sydney í Ástralíu er fyrsti læknirinn frá brezku samveldislöndunum til að nýta sér tækifærið og taka hluta sérfræðináms síns hjá kvennadeild Landspítalans. Hann sagði í sam- tali við Morgunblaðið að háskóli sinn í Ástralíu gerði kröfur um sjö ára starfsreynslu á kvennadeildum áður en hann gæti útskrifazt sem sérfræðingur. Fjögur ár hefði hann verið í Bretlandi, og hefði viljað koma til íslands til að kynnast nýj- um aðferðum. O’Callaghan mun dvelja hér í hálft ár og fer svo aft- ur til Ástralíu að ljúka sérfræðinámi sínu. Hann sagðist lítið hafa vitað um kvennadeildina áður en hann kom, en hann hefði komizt að raun um að þar væri veitt þjónusta í sér- flokki og starfsfólkið væri mjög gott. Aðspurður sagðist hann ekki hafa lent í neinum vandræðum vegna tungumálaerfiðleika, flestir töluðu ensku og annar læknir væri ávallt nálægur til að túlka eða út- skýra. VEÐURHORFUR í DAG, 19. SEPTEMBER YFIRLIT í GÆR: Gert er ráð fyrir stormi á suðvesturmiðum, Vest- fjarða-, norðvestur-, norðaustur-, austur-, Austfjarða- og suðaustur- míðum. Um 200 km suður af Hornafirði er 965 mb lægð á hreyf- ingu austur. Veður fer kólnandi. SFÁ: Á morgun verður norðvestanátt á iandinu, stinningskaldi eða alihvasst austast en kaldi vestan til. Dáiítil él víða norðaustan- lands, en þurrt í öðrum landshlutum. Sunnanlands verður víða létt- skýjað. Svait í veöri. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Norðlæg étt og fremur kait í veðri. Dálítil él norðaniands, en víðast léttskýjaö sunnanlands. TAKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað ■CAx xL' j a Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r / Rigning r r r * r * r * r * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða 9 , 5 Súld OO Mistur —Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær ad ísl. tíma hltl veftur Akureyri 1 slydda Reykjavtk 3 rigning Bergen 10 alekýiaö Helsinki 12 skýjaft Kaupmannahöfn vantar Narssarssuaq 3 helftskírt Nuuk 1 slydda Óstó 13 hálfskýjað Stokkhólnriur 14 skýjað Þóshöfn 8 alskýjaft Algarve 28 skýjaft Amsterdam vantar Barcetona 26 téttskýjað Berlln 13 rlgnlng Chicago 11 skýjaft Feneyjar 22 þokumöða Frankfurt 10 skýjað Qlasgow 15 rigníng Hamborg 1B skýjað Las Palmas 26 léttskýjað London 17 skýjað Los Angetes 19 skýjaft Uixemborg 16 hélfskýjaft Madrid 26 iéttskýjað Malaga 26 alskýjað Mallorca 29 léttskýjað Montreal 6 skýjaft NewYork 9 heiftskirt Orlando 24 þokumóða Parr's 18 léttskýjað Róm 26 skýjaft Vin 13 alskýjaft Washington 11 léttskýjað Winnipeg 14 alskýjað Stephen O’Callaghan og Gunnlaugur Snædal. Morgunblaðið/Emilía Breytingar á lögum um stjórn fískveiða: Óheimilt að flytja veiði- heimildir til næsta árs ÓHEIMILT er að veiða 5% umfram úthlutað aflamark þessa árs og draga þann umframafla frá aflaheimildum næsta árs, eins og leyft hefur verið undanfarin tvö ár. Jafnframt er óheimilt að flytja veiðiheimildir þessa árs til ársins 1991. Þetta stafar af því, að núgildandi lög um stjórn fiskveiða falla úr gildi um áramótin. Sjávarútvegsráðuneytið hefur sent frá sér frétt, þar sem vakin er athygli á því að lög um stjórn fiskveiða falli úr gildi um áramót- in. Þar kemur meðal annars fram, að af þessum sökum sé óheimilt að veiða 5% umfram úthlutað afla- mark eða aflahámark ársins í ár og draga þann umframafla frá aflaheimildum næsta árs, eins og gilt hafi síðustu tvö ár. Jafnframt sé óheimilt að flytja veiðiheimildir þessa árs til ársins 1991. í frétt ráðuneytisins eru út- gerðaraðilar minntir á að stöðva veiðar þegar úthlutuðum aflaheim- ildum sé náð, þannig að ekki komi til sviptingar veiðileyfa og upptöku afla. Jafnframt er áréttað, að flutn- ingur aflamarks milli skipa taki ekki gildi fyrr en ráðuneytið hafi staðfest móttöku tilkynningar um flutning. Þar af leiðandi verði allar tilkynningar um flutning afla- marks að hafa borist ráðuneytinu áður en veiðar hefjast og tilkynn- ingar sem berist eftir þann tíma verði ekki teknar til greina. NATO: Formaður hermála- nefndar í heimsókn FORMAÐUR hermálanefndar Atlantshafsbandalagsins, Vigleik Eide hershöfðingi, kom í gær i heimsókn til Islands ásamt eigin- konu sinni í boði Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráð- herra. Eide mun eiga viðræður við ut- anríkisráðherra, heimsækja varnar- stöð Atlantshafsbandalagsins á Keflavíkurflugvelli og fara í skoð- unarferð til Þingvalla, Gullfoss og Geysis. Heimsókninni lýkur 21. septem- ber. Vont veður á Snæfellsnesi Borg I Miklholtshreppi. HÉR hefur verið mikið hvass- viðri í allan dag og snjókoma til fjalla. Fjallvegir voru fljótlega erfiðir umferðar. Litlir bílar sem ætluðu um Kerlingarskarð og voru ekki með keðjur sneru við vegna sleipu. Áætlunarrútan sem átti að fara til Ólafsvíkur um Fróðárheiði. varð að fá annan bíl til aðstoðar með fram- drifi. I Staðarsveit var fárviðri og varla keyrandi þar. Þegar þetta er skrifað er veður heldur farið að lægja, þó mikill stormur sé ennþá, en úrkom- an minni. Páll Ólöf Þórarinsdóttir Framkvæmda- stjóri Islenska dansflokksins ÓLÖF Þórarinsdóttir hefur ver- ið ráðin framkvæmdastjóri ís- lenska dansflokksins til eins árs frá fyrsta september vegna íjar- veru Salvarar Nordal. í ágúst sl. lauk Ólöf meistaragráðu í stjórnsýslufræðum á sviði sljórnunar opinberra stofnana og stofnana sem ekki eru reknar í ljárgróðaskyni frá Washing- ton-háskóla í Seattle í Banda- ríkjunum. í fréttatilkynningu frá Þjóðleik- húsinu segir, að í námi sínu innan þessa sviðs hafi Ólöf lagt sérstaka áherslu á rekstur listastofnana og lokaverkefni hennar sé nú notað sem kennsluefni í stjórnun lista- stofnana á meistarastigi við Wash- ington-háskóla. Verkefnið fjallar uum hinar ýmsu hugsanlegu leiðir innan þess opinbera jafnt sem einkageirans til fjármögnunar nýs konsertshúss fyrir Seattle-borg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.