Morgunblaðið - 19.09.1990, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 1990
5
Nýr stjómandi
fíkniefnadeild-
ar lögreglu
BJÖRN Halldórsson hefur verið
skipaður lögreg'lufulltrúi vð fíkni-
efnadeild lögreglunnar í
Reykjavík. Hann tekur við starfi
Arnars Jenssonar sem fer til
starfa í forvarnadeild lögreglunn-
ar og sinnir þar meðal annars
vímuvörnum.
Björn Halldórsson var skipaður
úr hópi fimm umsækjenda að tillögu
lögreglustjóra. Hann var áður rann-
sóknarlögreglumaður við fíkniefna-
deildina, við Rannsóknarlögreglu
ríkisins og þar áður eftirmaður Arn-
ars Jenssonar sem varðstjóri lögregl-
unnar á Egilsstöðum.
Smásöluálagning lyfla lækk-
ar um sex til sjö prósent
Lyfjaverðlagsnefnd:
LYFJAVERÐLAGSNEFND hefur samþykkt lækkun á smásöluá-
lagningu lyfja, þannig að áætluð meðalálagning verður nú á bilinu
58-59% í stað 65% álagningar áður. Eftirleiðis fer smásöluálagning-
in stiglækkandi eftir því sem heildsöluverð lyfjanna er hærra, en
áður var um sömu álagningu á öll lyf að ræða. Þá hefur lyfjaverð-
lagsnefnd samþykkt að auka þann afslátt sem apótek veita Trygg-
ingastofnun ríkisins um 50%, og er áætlað að það þýði hátt í 200
milljóna króna útgjaldalækkun hins opinbera vegna lyíjakaupa.
Að sögn Guðmundar Sigurðs-
sonar, formanns lyfjaverðlags-
nefndar, verður eftirleiðis 63%
smásöluálagning á lyf, sem kosta
800 kr. eða minna í heildsölu. Á
lyf sem kosta á bilinu 801 kr. til
3.000 kr. í heildsölu verður álagn-
ingin 57% að viðbættum 48 kr. til
jöfnunar, á lyf sem kosta á bilinu
3.001 kr. til 5.000 kr verður 50%
álagning að viðbættum 258 kr., á
lyf sem kosta á bilinu 5.001 kr.
til 15.000 kr. verður álagningin
40% að viðbættum 758 kr., og á
lyf sem kosta yfir 15.000 kr. í
heildsölu verður smásöluálagning-
in 30% að viðbættum 2.258 kr. til
jöfnunar. Sagði Guðmundur að
miðað við ákveðnar forsendur væri
áætlað að meðalsmásöluálagning
lyfja samkvæmt þessu verði á bil-
inu 58-59%. Samkvæmt fyrri
samþykkt lyfjaverðlagsnefndar
hafa apótek veitt tryggingastofnun
ríkisins afslátt af reikningum
sínum það sem af er þessu ári, og
hefur nefndin nú samþykkt að sá
afsláttur verði framvegis 50%
meiri en hann hefur verið hingað
til. Að sögn Guðmundar er gert
ráð fyrir að þetta þýði hátt í 200
milljóna króna lækkun á kostnaði
hins opinbera vegna lyijakaupa.
Þá var samþykkt í lyfjaverðlags-
nefnd með 4 atkvæðum gegn 1
að lækka heildsöluálagningu lyfja
úr 15,5% í 13,5%, en þar sem ekki
var um samhljóða samþykkt í
nefndinni að ræða mun heilbrigðis-
ráðherra skera úr um það hvort
heildsöluálagningin verður lækkuð
eða ekki.
Sjálfstæðismenn í Reykjavík:
Akvörðun um próf-
kj ör tekin í kvöld
FULLTRÚARÁÐ sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík kemur saman til
fundar í kvöld kl. 20.30. Fyrir fundinum liggur tillaga frá sljórn
fulltrúaráðsins um að prófkjör verði haldið vegna komandi alþingis-
kosninga.
Um 1.400 manns hafa rétt til
að sækja fundinn, sem haldinn verð-
ur í Súlnasal Hótels Sögu. Verði
tillaga stjórnarinnar samþykkt
óbreytt, verður prófkjörið haldið
dagana 26.-27. október næstkom-
andi. Rétt til þáttöku í því munu
eiga allir flokksbundnir sjálfstæðis-
menn í borginni og þeir, sem skrá
sig í flokkinn prófkjörsdagana.
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, flytur ræðu á
fundinum. Fundarstjóri verður Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfull-
trúi.
HYUNDAI
TÖLVUR
FRAMTIÐARINNAR !!
ENGINN
BÝÐUR
BETUR!
Við þurfum ekki að bjóða HYUNDAI
tölvurnar á sérstökum tilboðs- eða af-
sláttarverðum, því vegna sérstakra
samninga við HYUNDAI um magninn-
kaup á þessu ári getum við boðið mun
lægri verð en gerast á öðrum tölvum
í sambærilegum gæðaflokki.
Dæmi:
Gerð 16 TE (PC) Vinnsluminni 640 KB vinnsluhraði 10 Mhz Verð frá kr. 55.455 eðakr. 49.900«
Gerð 286 E (AT) Vinnsluminni 1 MB vinnsluhraði 12 Mhz Verð frá kr. 80.122 eðakr. 72.110«
Gerð 386 SX Vinnsluminni 1 MB vinnsluhraði 16 Mhz Verð frá kr. 130.900 eða kr.11 7.81 0«
Gerð 386 C Vinnsluminni 2 MB vinnsluhraði 20 Mhz Verð frá kr. 186.010 eða kr.168.010«
Gerð 386 N Meö CACHE minni Vinnsluminni 2 MB vinnsluhraði 25 Mhz Verð frá kr. 235.678 eSakr212.110,
ATHUGID: HYUNDAI tölvurnar eru til
á lager og til afgreiðslu STRAX, ekki
eftir 4 eða 6 vikur!
Tæknival er rótgróið, öflugt fyrirtæki með 25
manna starfslið, sem leggur metnað sinn ( 1.
flokks þjónustu. Þú ert því í góðum höndum
hjá okkur!
HSTÆKNIVAL
SKEIFAN 17 108 REYKJAVlK SÍMI91 681665
Söluaðilar: Tölvutæki/Bókval, Akureyri
Vfkurhugbúnaður, Keflavík