Morgunblaðið - 19.09.1990, Page 35

Morgunblaðið - 19.09.1990, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 1990 35 BÍÓHÖLL SÍMI 78900 - ÁLFABAKKA 8 - BREIÐHOLTI FRUMSÝNIR TOPPMYNDINA: HIN GEYSTVINSÆLA TOPPMYND DICK TRACY ER NÚNA FRUMSÝND Á ÍSLANDI EN MYNDIN HEFUR ALDELLIS SLEGIÐ í GEGN í BANDA- RÍKJUNUM í SUMAR OG ER HÚN NÚNA FRUM- SÝND VÍÐSVEGAR UM EVRÓPU. DICK TRACY ER EIN FRÆGASTA MYND SEM GERÐ HEFUR VERIÐ, ENDA ER VEL TIL HENNAR VANDAÐ. DICK TRACY - EIN STÆRSTA SUMARMYNDIN í ÁR! Aðalhlutverk: Warren Beatty, Madonna, A1 Pacino, Dustin Hoffman, Charlie Korsmo, Henry Silva. Handrit: Jim Cash og Jack Epps Jr. Tónlist: Danny Elfman. — Leikstj: Warren Beatty. Sýnd kl. 4.50,7,9 og 11.10. Aldurstakmark 10 ára. HREKKJALOMARNIR 2 „DÁGÓÐ SKEMMTUN" SV.MBL QREMUNS2 THE NEW BATCH Sýnd kl. 5,7,9 og 11.10. - Aldurstakmark 10 ára. A TÆPASTA VAÐI2 ★ ★ ★ MBL. - ★ ★ ★ DV. Sýnd kl. 4,45,6.50,9,11.05. - Bönnuð innan 16 ára. ÞRIR BRÆÐUR STORKOSTLEG FULLKOMINB OGBÍLL STÚLKA HUGUR Sýnd 5,7,9,11.10. Sýnd5og9. Sýnd kl. 7.05 og 11.10. BönnuA innan 16 ára. Bíóborgin frumsýnir í dag myndina DICKTRACY meðWARRENBEATTYog MADONNU. Bíóhöllin frumsýnir í dag myndina DICKTRACY með WARREN BEA TTY og MAD0NNU. LAUGARÁSBÍÓ Sími 32075 FRUMSÝNIR SPENNU-GRÍNMYNDINA: Einstök spennu-grínmynd með stórstjörnunum Mel Gibson (Lethal Weapon og Mad Max) og Goldie Hawn (Overboard og Foul Play) í aðalhlutverkum. Gibson hefur borið vitni gegn fíkniefnasmyglurum, en þegar þeir losna úr fangelsi hugsa þeir honum þegjandi þörfina. Goldie er gömul kærasta sem hélt hann dáinn. Sýnd í A-sal kl. 5, 7, 9 og 11.10 Bönnuð innan 12 ára. — Ath.: Númeruð sæti kl. 9. AFTURTIL FRAMTÍÐARIII Verið velkomin á martröð haustsins! „...og nú fær Clive Barker loksins að sýna hvers hann er megnugur..." „Náttfararnir eru stórkostlegir og undirfagrar verur, og leggjast þar á eitt frjótt ímynd- unarafl Barkers, færni hrellumanna og frábær per- sónusköpun..." — ★ ★ ★ GE. DV. „Þeir sem hafa gaman af hrollvekjum eiga örugglega góðan dag..." — ★ ★★ FI. BÍÓLÍNAN. „Nightbreed" - sannkölluð „gæsahúðarmynd" AðalhL: Craig Sheffer, David Cronenberg og Anne Bobby. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. - Bönnuð innan 16 ára. UPPHAF 007 Sýnd í C-sal kl. 5,7,9 og 11. Bönnuðinnan12 ára. Tveir fuglar í skógi Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Á bláþræði („Bird on a Wire“). Sýnd í Laugarás- bíói. Leikstjóri: John Bad- ham. Aðalhlutverk: Mel Gib- son, Goldie Hawn. Mel Gibson og Goldie Hawn leika gamalt kærustupar sem sífellt er að nagga hvort í öðru á hröðum flótta undan spilltri FBI-löggu og bófum sem vilja þau dauð. Spreng- ingum, skotbardögum, bílaelt- ingaleikjum og öðru sem til- heyrir grínspennumynd dags- ins er raðað upp með jöfnu millibili af hasarleikstjóranum John Badham, skipulega að vísu og kunnáttusamlega en líflaust og algerlega fyrirsjá- anlega þar til menn drífa sig í hápunktinn undir lokin, sem í þetta sinn er fundinn staður í dýragarði, til að binda slaufu á eltingaleikinn og púff, allt er búið. Það þarf kannski ekki að taka það fram að grínspennu- myndin Á bláþræði er enn ein formúlumyndin þar sem ekk- ert kemur lengur á óvart og er engu líkara en hafí bókstaf- lega verið upphugsuð og fram- kvæmd með það í huga að víkja ekki frá klisjunni á hveiju sem gengi. Hún er lýs- andi dæmi um færibandavinn- una í Hollywood; það er ekki til í henni frumleg hugsun og enda þótt hún sé ekki fram- haldsmynd er hún óbeint framhald hverrar einustu grínspennumyndar undanfar- ins áratugs. Spennan er hverf- andi ef nokkur og eina grínið er að hún lætur eins og hún sé eitthvað alveg giænýtt. Formúlumyndir geta svo- sem boðið uppá dágóða skemmtun en þá þarf eitthvað meira á beinin en hér er sett fyrir mann. Söguþráðurinn er nánast enginn. Gibson missir dulargerfi sitt sem vitni lög- reglunnar og hittir um leið stelpuna sem hann var með fyrir mörgum árum, þau leggja á flótta saman þegar bófarnir, sem Gibson sendi í fangelsi, koma á eftir honum og flóttanum lýkur í lokaupp- gjörinu í dýragarðinum. Þessi bláþráður er einhvern veginn teygður yfir alla myndina kryddaður tilheyrandi látum með vissu millibili og ástar- hatursambandi Gibsons og Hawn, sem orðið er gamalt um leið og það byrjar. Gibson sýnir það kannski best í þessari mynd hvað hann er orðinn takmarkaður leikari eftir allar hasarmyndirnar í Hollywood þar sem hann er mest á hlaupum og er klipptur á sjö sekúndna fresti en hefur sjaldnast þurft að reyna veru- lega á hæfileikana og síst hér. Hawn er við sama hey- garðshornið, eitruð í kjaftin- um og að eilífu pirruð á kring- umstæðunum hverjar sem þær eru. Hvað þau varðar og myndina í heild eru betri tveir fuglar í skógi en einn í hendi. ÍSLÆMUM FÉLAGSSKAP TÍMAFLAKK Það má segja Tímaflakki til hróss^ð atburðarásin er hröð ★ ★ ★ SV. MBL. ★ ★ ★ HIi DV. ★ ♦ ★ÞJÓÐV. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára. og skemmtileg ... ★ ★ '/, HK DV. Topp framtíðarþriller fyrir alla aldurshópa. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. LUKKU LAKIOG DALTON-BRÆÐURNIR NUNNURA FLÓTTA Sýnd kl. 5,7,9 og 11. REFSARINN Sýnd kl.7,9,11. Bönnuö innan 16 ára. Skjótari en skugginn j Lukku Láki („Lucky ! Luke“). Sýnd í Regnbogan- um. Frönsk/bandarísk teiknimynd gerð eftir teiknimyndapersónum Morris og Goscinnys. Regnboginn hefur byijað sýningar á franskri/banda- rískri teiknimynd fyrir börn um hinn knáa kappa villta vestursins, Lukku Láka. Fjöldi bóka hefur komið út ■ á Islandi með æfintýrum hans í skemmtilegri þýðingu Þorsteins Thorarensens en myndin, sem er frá 1983 og unnin af Hanna Barbera fyr- irtækinu í Hoilywood, er ein- göngu bundin við viðureign Lukku Láka og hinna al- ræmdu Daldónbræðra, ógn og skelfingu vestursins — eða hitt þó heldur. Höfundar Láka, Morris og Goscinny, byggðu sögur sínar á ameríska vestranum eins og hann birtist í Holly- woodmyndunum en þeir tóku hann ekki sérlega alvarlega. Fyrsta sagan sem þeir sömdu saman birtist árið 1955 og þar sem þeir voru báðir vel að sér í vestraþjóðsögunum gátu þeir skopstælt þær svo hver maður gat hlegið að og brátt urðu sögurnar mjög vinsælar en aðalpersónan, Lukku Láki, var þeirra út- gáfa af ódrepandi hetjum vestursins, einfarinn sem ríður í bæinn til hjálpar og hverfur svo í sólarlagið í sögulok. Teiknimyndin um Lukku Laka heldur alveg kímni bó- kanna en er full hæg í frá- sögn og einstefnuleg í húmor þar sem mest áherslan er lögð á síendurtekin asnastrik Daldónana en hún er bæri- legasta skemmtun þeim krökkum sem sjá vilja teikni- myndir bókanna vakna til lífsins á tjaldinu. Hann hét ekki Lukku Láki útaf engu eins og ljóslega kemur fram í teiknimyndinni og það veitir ekki af að hann er skjótari en skugginn að skjóta þegar kemur að þvi að eiga við Daldónana, þótt vitlausir séu. Með í sögunni er svo einhver alruglaðasta skepna veraldarsögunnar, lögregluhundurinn Rattati, skopútgáfan af Lassí og öðr- um dáindishundum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.