Morgunblaðið - 05.10.1990, Síða 17
CIRKEL
KAFFI
3 TEG. SANTOS • KÓLOMBÍA - KÓLOMBÍA/XENÝA
FEDERAL
SKOT
TEPPAÞURRHREINSUN
SKÚFUR notar þurrhreinsikerfiö HOST, sem yfir 100
teppaframleiðendur mæla sérstaklega með.
HOST leysir upp, dregur og þerrar öll óhreinindi,
alveg niður í botn teppisins.
ÞAÐ RAUNVERULEGA DJÚPHREINSAR! Engin
bleyta, teppið er tilbúið til notkunar strax að lokinni
hreinsun. HOST-kerfið er sérlega hentugt þegar
vandmeðfarin ullarteppi skulu h'reinsuð, þ.a.m.
austurlenskar mottur.
, jfe REYNIÐ
SKÖFUR Sími: 678812 VIÐSKIPTIN
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 5. OKTOBER 1990
VERSLUNARDEILD
SAMBANDSÍNS
HÝTT SÍMANÖNAER
. r-N. K K C/nOPinSLU *•
Sameining um etit hraðbankanet
Allir bankar ög sparisjóðir hafa nú samein-
ast um einn Hraðbanka, eitt net sem tekur
við af tveimur. Afgreiðsiustaðimir verða 25
talsins og standa þér alltaf opnir.
Þú þarft ekki að keppa við tímann; þú getur
sinnt öllum algengustu bankaerindum í
Hraðbankanum, þegar þér hentar best.
Hraðbankinn býður þér:
• að taka út reiðufé, allt að 15-000 kr. á dag
• að leggja inn peninga/tékka
• að millifæra af sparireikningi á tékka-
reikning eða öfugt
• að greiöa gíróseðla með peningum/tékk-
um eða millifærslu af eigin reikningi
• að fa upplýsingar um stöðu eigin reikninga.
Hraðbankinn
er stilltur fyrir þig
- allan sólarhringinn
Bankakort Búnaðarbanka,
Landsbanka, Samvinnubanka
og sparisjóðanna gilda
í Hraðbankann, svo og Tölvu-
bankakort íslandsbanka, sem gefin
hafa verið út á árinu 1990. Ef þú átt
ekki kort, færðu nýtt Hraðbankakort
í útibúinu þínu.
Kynntu þér möguleikana vel - láttu
Hraðbankann þjóna þér!
Vih Hrabbankinn
-ÞJÓNUSTA NÓTT SEM NÝTAN DAG!
Alþýðuflokkurinn:
►
>
Ákveðið að
efna til
prófkjörs á
Reykjanesi
KJÖRDÆMISÞING Alþýðu-
flokksins á Reykjanesi ákvað á
fundi, sem haldinn var í Keflavík
á laugardag, að halda prófkjör
eigi síðar en í nóvembermánuði.
Á fundi kjördæmisþingsins _bar
stjóm kjördæmisráðsins upp eftir-
farandi tillögu sem samþykkt var
með þorra atkvæða: „Kjördæmis-
þing Alþýðuflokksins í Reykjanes-
kjördæmi, haldið 29. september
1990, samþykkir að fram skuli fara
prófkjör um skipan í fimm efstu
sæti A-listans í Reykjaneskjör-
dæmi. Prófkjörið skal vera opið öll-
um félögum Alþýðuflokksins sextán
ára og eldri og öðrum stuðnings-
mönnum hans sem öðlast hafa
kosningarétt á kjördegi. Prófkjörið
skal fara fram eigi síðar en í nóv-
embermánuði 1990. Frambjóðendur
í prófkjörinu skulu gefa kost á sér
í öll þau sæti sem kosið er um.
Stjórn kjördæmisráðsins er falið að
ganga frá endanlegri tímasetningu
prófkjörsins og undibúa og sjá um
alla framkvæmd þess.“
Hörður Zóphaníasson, formaður
kjördæmisráðsins, segir að Karl
Steinar Guðnason, sem nú skipar
fyrsta sæti lista Alþýðuflokksins á
Reykjanesi, hafí lýst því yfír á fund-
inum að hann myndi gefa kost á
sér og stefna að því að halda fyrsta
sætinu. Einnig hafí Rannveig Guð-
mundsdóttir, annar þingmaður
flokksins í kjördæminu, lýst því
yfír að hún hefði hug á að halda
sínu sæti. Frekari yfirlýsingar sagði
Hörður ekki hafa verið gefnar á
fundinum.
Guðmundur Ámi Stefánsson,
bæjarstjóri í Hafnarfírði segist ekki
hafa tekið ákvörðun um það ennþá
hvort að hann gefí kost á sér. Geri
hann það muni hann hins vegar
stefna á fyrsta sætið. „Ég tel það
ekki óeðlilegt með það í huga að
Hafnarfjörður er sterkasta vígi
flokksins í kjördæminu. Fyrst og
síðast var ég aftur á móti kosinn
bæjarstjóri og ég er að vega og
meta hvemig aukin þátttaka í
landsmálum geti farið saman við
það,“ sagði Guðmundur Ámi.