Morgunblaðið - 05.10.1990, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990
settar rúmlega 90 þúsund plöntur
í reitinn.
Á hveiju vori í 40 ár hafa ferðafé-
lagsmenn vitjað spildu sinnar á
Heiðmörk til gróðursetningar, grisj-
unar og áburðargjafar. Þessi rækt-
arsemi hefur borið þann árangur,
að vorið 1985 veitti skógræktarfé-
lagið ferðafélaginu sérstaka viður-
kenningu fyrir fegursta reit Heið-
merkur.
Starf ferðafélagsins á Heiðmörk
hefur fyrst og fremst verið leitt af
tveimur mönnum. Jóhannes Kol-
beinsson, trésmiður, stjórnaði land-
græðslunni í 26 ár eða til 1976.
Sinnti hann skógræktinni með
slíkum ágætum, að Skógræktarfé-
lag íslands veitti honum sérstaka
viðurkenningu árið 1960. Jóhannes
sat í 35 ár í stjórn ferðafélagsins
og^var heiðursfélagi þess.
I göngunni á sunnudaginn mun
eirplata með nafni Jóhannesar Kol-
beinssonar verða fest á stein á
Heiðmörkinni. Félagið vill með
þessum hætti þakka handtök hans
við þennan skógarreit.
Við forystu af Jóhánnesi tók
Sveinn Ólafsson, myndskeri. Hann
á nú þegar 14 ára farsælan verk-
stjórnarferil að baki.
Með ferðum sínum í Heiðmörk'
vill ferðafélagið vekja athygli á því
ágæta útivistarsvæði sem er við
bæjardyr meirihluta íslendinga. Það
er hægt að fara á Heiðmörk á hvaða
tíma árs sem er og nánast hvernig
sem viðrar. Þeir göngustígar, sem
lagðir hafa verið um svæðið, eru í
skjóli trjáa svo nepjan þarf ekki að
hijá göngumanninn. Þarna spretta
grös og blóm úr jörðu á vori, þarna
er litskrúðugt sumarland og þarna
er land beija og sveppa á haustin.
Að vetrarlagi festist snjór á
göngustígana svo skíðagöngumað-
urinn á þarna brautir þótt jörð sé
auð annars staðar.
Það var happ þeirra er yndi hafa
af útiveru, að borgarstjórn
Reykjavíkur skyldi gera Heiðmörk
að ffiðlandi. Það var farsæl ákvörð-
un að fela Skógræktarfélagi
Reykjavíkur að stýra því land-
græðsluátaki, sem þarna hefur ver-
ið unnið sameiginlega af fjölda fé-
laga og einstaklinga. Ferðafélag
ísland hefur sérstaka ástæðu til að
þakka Skógræktarfélagi íslands og
starfsmönnum þess fyrir leiðsögn
og samstarf í 40 ár.
nýtt símamOmer
auglýsingadbldn^
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
EFNIR TIL EFTIRFARANDI
NÁMSKEIÐA FYRIR
EINSTAKLINGA OG HÓPA
HAUSTIÐ 1990
— Skyndihjálp
— Aðhlynning aldraðra og sjúkra
- Starfslok
- Rauðakrossstarf og Rauði kross íslands
— Leiðbeinendanámskeið í skyndihjálp
— Endurmenntun fyrir leiðbeinendur í skyndihjálp
— Slys á börnum - forvarnir
— Námskeið fyrir foreldra ungra barna
- Sjúkraflutninganámskeið
- Alnæmi - ólíkt fólk — ólík viðbrögð
- Grunnnámskeið fyrir Rauðakrossfélaga
— Húshópur — námskeið fyrir húshóp
Rauðakrosshússins
Á næstu dögum sendir Fræðslumiðstöð RKÍ út bækling til ýmissa
stofnana og fyrirtækja með frekari upplýsingum um námskeiðin, efni
þeirra og tímasetningu.
Einnig liggur bæklingurinn frammi á aðalskrifstofu RKÍ og hjá
Rk-deildum, þar sem allar frekari upplýsingar eru góðfúslega veittar.
Forráðamenn fyrirtækja og stofnana athugið: Fræðslumiðstöð RKÍ
aðstoðar við að útvega leiðbeinendur og námsgögn m.a. fyrir námskeið
í skyndihjálp.
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ
RAUÐA KROSS ÍSLANDS
Rauðarárstíg 18 - Reykjavík - sími: 91-26722
NÝR DAGUR SÍA