Morgunblaðið - 05.10.1990, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5J OKTÓBER 1990
25
Skortur og lögleysa ein-
kenna daglegt líf í Kúvæt
Saddam Hussein heimsækir innrásarliðið í fyrsta sinn
Nikósíu, New York, London. Reuter.
ÍRASKA sjónvarpið sýndi á mið-
vikudag myndir frá fyrstu heim-
sókn Saddams Husseins forseta
til Kúvæts eftir innrásina 2.
ágúst. Forsetinn, sem var í ein-
kennisklæðum, heimsótti liðs-
menn í vélbyssuhreiðrum og
sagði við hermenn er grófu skot-
grafir: „Guð blessi ykkur, haldið
áfram að grafa.“ Hann heilsaði
hermönnum með handabandi en
þeir hétu að láta líf sitt fyrir
forsetann kæmi til átaka. Opin-
bera fréttastofan INA sagði að
Kúvæt, sem nú hefur verið gert
að 19. fylki íraks, virtist
„blómstra eftir að hafa verið
sameinað móðurlandinu." Sjón-
varpið í Bagdad sýndi Saddam
á ferð um götur Kúvæt-borgar
er virtist gjörsamlega yfirgefin,
hvorki bílar á breiðgötum henn-
ar né fólk á gangstéttum.
Alþjóðlegu mannréttindasam-
tökin Amnesty International hafa
sakað íraska herinn um gróf mann-
Ævintýralegur flótti:
Komust frá Irak
á björgunarbáti
Dhahran. Reuter.
ÞRÍR breskir verkfræðingar flúðu frá írak á tíu feta löngum björgunar-
báti ásamt tveim frönskum starfsbræðrum sínum á mánudag og kom-
ust til Saudi-Arabíu. Ferðin tók 25 stundir og ölduhæð var allt að þrír
metrar. Bretarnir sögðu að tekið hefði einn dag að skipuleggja flót-
tann en mánuð að öðlast nægilegt hugrekki til að hrinda hugmyndinni
í framkvæmd.
þegar varðbáturinn varð var við
farkostinn. Að sögn Barkworths
voru birgðirnar einkum viskí og
bjór og gekk hið fýrrnefnda fljótt
til þurrðar.
Mennirnir rákust á varðbát frá
Saudi-Arabíu um 40 km undan
strönd landsins og voru fiuttir til
landamæraborgarinnar Khafji en
síðar til Dharhan. Þar ræddu Bret-
amir; Keith Barkworth, Mike Tees-
dale og Ivan Manning, á aldrinum
36 ára til 44 ára, við fréttamenn
eftir að hafa gefið breskum stjórn-
arerindrekum skýrslu um ferðina.
Frakkarnir tveir, Amedee Mercier
Du Paty og Janel de Buriane,
ákváðu að tjá sig ekki við ijölmiðla.
Bretarnir sögðu að aðbúnaður
þeirra hefði verið ágætur í írak,
nægur matur, en þeir hefðu óttast
um sinn hag ef til átaka kæmi. „Ég
treysti ekki mörgum írökum," sagði
Teesdale. Mennirnir sögðust hafa
haft samskipti við Iraka en þeir
hefðu lítið viljað ræða við útlending-
ana. Aðrir vestrænir starfsmenn á
staðnum vildu ekki taka áhættuna,
fannst þrátt fyrir allt öruggara að
halda kyrru fyrir.
Fimmmenningarnir lögðu af stað
á helgidegi, fæðingardegi Múha-
meðs spámanns, og sigldu niður
Shatt-al Arab vatnaleiðina, „krus-
uðu“ eins og það er kallað. Þeir
hugðust reyna að finna saudi-
arabískan dráttarbát á hafsvæðinu
sunnan við vatnaleiðina. Sú áætlun
brást enda siglingatækin aðeins
áttaviti. „Stefnumörkunin byggðist
á eintómri tilviljun og við vorum
snarvilltir. Við vorum með gömul
kort og ýmis mannvirki voru ekki
sýnd á þeim,“ sagði Manning. Hann
sagði þá hafa verið „himinlifandi“
fyrir almenning þar sem saga
Þýskalands er reifuð í máli og
myndum.
í dag flyst þing sameinaðs
Þýskalands svo til Bonn þar sem
verður aðsetur þess um sinn að
minnsta kosti. Þingið á enn eftir
að ákveða hvort það flyst til
Berlínar, sem er höfuðborg Þýska-
lands frá og með 3. október. Þrátt
fyrir óvissuna hafa embættismenn
í Bonn eytt miklum fjármunum í
að búa þingmönnum Austur-
Þýskalands, 144 að tölu, sæmilega
skrifstofhaðstöðu. Sjálfir verða
þingmennirnir að borga íbúðar-
húsnæði. Mikill húsnæðiskortur er
í Bonn og hafa verið pöntuð hótel-
herbergi fyrir þingmennina.
Austur-þýsku þingmennirnir
hækka verulega í launum við sam-
eininguna; þeir fá nú 9.700 mörk
á mánuði (350.000 ÍSK) og 5.400
mörk (195.000 ÍSK) í dagpeninga
í stað 5.900 marka (214.000 ÍSK)
í heildarlaun á mánuði áður. Þar
við bætast ókeypis flug- og lestar-
miðar. Þrengsli í þinghúsinu í
Bonn valda því að ekki geta allir
nýju þingmennirnir sest innan um
519 vestur-þýska þingmenn. 100
þingmenn verða að koma sér fyrir
í áhorfendastúkunni.
Síðast þegar Bonn-búar þurftu
að grípa til sérstakra ráðstafana
vegna óvæntrar „innrásar þing-
manna“ var árið 1949 þegar Sam-
bandslýðveldið var stofnað. Að-
búnaður var þá öllu fábrotnari en
nú. Fyrstu fundir sambandsþings-
ins voru haldnir í menntaskóla og
leigðu þingmenn sér herbergi á
einkaheimilum. Árið áður, í sept-
ember 1948, kom stjórnarskrárráð
hins tilvonandi Vestur-Þýskalands
saman í einu byggingunni sem
þótti nógu virðuleg af þeim sem
uppi stóðu, náttúrugripasafni
borgarinnar. Þar voru grundvall-
arlög ríkisins samin undir ströngu
eftirliti uppstoppaðra fíla, gíraffa
og nashyrninga!
réttindabrot í Kúvæt. Segir í
skýrslu samtakanna að írakar steli
persónulegum eigum fólks auk op-
inberra verðmæta, fólk sé fangels-
að án dóms og laga og pyntað;
allmargir óbreyttir borgarar hafi
verið drepnir.
Bandarískar sjónvarpsstöðin
CBS fékk einnig í hendur bréf sem
smyglað hafði verið frá Kúvæt en
ekki var upplýst með hvaða hætti.
Þar kvað við annan tón en hjá írök-
um. „Á hveijum degi heyrum við
að svo og svo margir hafi verið
drepnir . .. skotnir fyrir framan
foreldra sína, við húsdyrnar. Við
þekktum flest þetta fólk og ætt-
ingja þess. Reykjarbólstrar sjást
um alla borgina. Stórmarkaðir og
aðrar verslanir eru úr sögunni,
búið er að bijóta allt og bramla.
.. Ég er búinn að fara fjórum
sinnum síðan í gær með börnunum
mínum í bakarí til að reyna að
kaupa brauð en það er alltaf lokað.
Það er búið að fjarlægja öll tæki
úr bakaríinu, stela þeim. Vörubílar,
hlaðnir alls konar varningi, halda
til Iraks og koma aftur til að ná í
meira.“ í bréfinu er sagt að and-
spyrnuhreyfing Kúvæta reyni að
gera írökum ýmsar skráveifur en
liðsmenn hennar séu illa búnir
vopnum.
Reuter
Saddam Hussein íraksforseti (annar frá hægri) heilsar íröskum her-
manni í Kúvæt á miðvikudag.
Macintosh fyrir byrjendur
©
<%>
Works - ritvinn'sla, gagnasöfnun, töflureiknir og stýrikerfi á ,
15 klst námskeiöi fyrir byrjendur! Fáiö senda námsskrá.
<%>
%
Tölvu- og verkfrœöiþjónustan
Grensásvegi 16 - fjögur ár í forystu
*
Irakai' una sér
vel í breskum
herklæðum
London. Reuter.
BRESKIR hermenn við Persaf-
lóa verða að sætta sig við að
klæðast þungum felubúningum
í eyðimerkursvækjunni en írösk-
um andstæðingum þeirra líður
mun betur — þeir eru í léttum
eyðimerkurbúningum sem
saumaðir voru í Bretlandi.
Bretar seldu Irökum allar birgðir
sínar af eyðimerkurbúningum her-
manna fyrir fjórum árum, að sögn
varnarmálaráðuneytisins í London.
„Sala búninganna var hefðbundin
aðgerð til að minnka birgðir," sagði
talsmaður ráðuneytisins. „Enginn
sá fyrir að hermenn yrðu sendir til
Persaflóa.“ Verið er að framleiða
nýja búninga handa breska liðinu.
Einnig bætir úr skák að nú fer
vetur í hönd og verður þá veðurfar
við Persaflóa svipað og á góðum
sumardegi sunnarlega í Vestur-
Evrópu en ekki 40 - 50 gráðu hiti
á celsius í skugganum eins og ver-
ið hefur undanfarna mánuði.
Nýkommr anstwrrískar húfur frá
Otalmargir litir
Kr. 2.900r
Kr. 2.600
Kr. 2.400,-
Kr. 2.700,-
Kr. 2.600,-
Kr. 2.700,-
HKIH útiuf: SffllTI
Glæsibæ - Sími 82922