Morgunblaðið - 05.10.1990, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990
29
Siglufjörður:
Endurskipulagning fjár-
mála og rekstrar bæjarins
Siglufirði.
NÚ STENDUR yfir endurskoðun
á rekstri og fjármálum hjá Siglu-
fjarðarbæ, en sem kunnugt er
er skuldastaða bæjarins erfið
jafnframt því sem bæjarsjóður
hefur verið rekinn með tapi und-
anfarin ár. Að sögn Björns Valdi-
marssonar bæjarsljóra er í þess-
um áfanga lögð áhersla á að
skuldbreyta erfiðustu lánunum
til að lækka fjármagnskostnað
og að stórherða innheimtu bæj-
arsjóðs og fyrirtæþja hans, en
útistandandi skammtímakröfur
þeirra námu um kr. 70-80 millj.
um síðustu áramót. Flestallar
framkvæmdir á vegum bæjarins
hafa verið stöðvaðar og aðrar
fjárfestingar eru í lágmarki.
Bæjarstjórn samþykkti nýlega
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
4. október.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 99,00 73,00 89,38 8,881 793.820
Þorskur(st.) 83,00 83,00 83,00 0,194 16.102
Smáþorskur 64,00 64,00 64,00 2,028 129.792
Ýsa 98,00 84,00 91,69 2,505 229.682
Karfi 46,00 33,00 35,74 0,109 3.913
Ufsi 36,00 33,00 34,42 1,373 47.270
Steinbítur 61,00 61,00 61,00 1,027 62.678
Langa 70,00 70,00 70,00 2,268 158.829
Lúða 360,00 285,00 307,14 0,096 29.639
Koli 47,00 35,00 45,64 0,971 44.317
Keila 25,00 15,00 20,84 0,616 12.840
Keila (ósl.) 15,00 15,00 15,00 1,673 25.105
Lifur 17,00 17,00 17,00 0,054 918
Gellur 310,00 310,00 310,00 0,034 10.540
Samtals 71,70 21,832 1.565.445
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 99,00 70,00 87,02 31,284 2.722.794
Þorskur(ósL) 60,00 60,00 60,00 00,188 11.280
Ýsa 108,00 50,00 92,69 31,631 2.931.920
Ýsa (ósl.) 70,00 68,00 69,72 0,646 45.042
Karfi 43,00 34,00 36,10 6,273 226.452
Háfur 60,00 60,00 60,00 0,094 5.640
Steinbítur 67,00 53,00 60,32 05,417 326.748
Langa 64,00 20,00 43,90 1,077 47.280
Ufsi 43,00 29,00 34,08 3,451 117.626
Lúða 340,00 180,00 * 261,06 1,329 346.950
Skarkoli 70,00 29,00 50,99 15,177 773.958
Keila 37,00 36,00 36,90 1,245 45.942
Skata 175,00 115,00 167,10 0,630 105.270
Lýsa 28,00 28,00 28,00 0,116 3.248
Kinnar ' 270,00 270,00 270,00 0,015 4.050
Gellur 330,00 330,00 330,00 0,015 4.950
Blandað 20,00 20,00 20,00 0,273 5.460
Samtals 340,00 20,00 77,94 99,976 7.792.084
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 88,00 83,00 • 84,24 6,723 566.330
Ýsa 92,00 75,00 88,14 3,302 291.030
Karfi 70,00 49,00 51,28 7,990 409.760
Ufsi 45,00 30,00 42,59 0,641 -27.555
Steinbítur 59,00 59,00 59,00 0,080 4.720
Blá & langa 70,00 69,00 69,70 0,510 35.547
Langa 65,00 47,00 64,54 0,975 62.923
Lúða 410,00 400,00 400,50 0,020 8.010
Háfur 10,00 10,00 10,00 0,126 1.260
Keila 43,00 28,00 33,00 4,365 144.063
Grálúða 20,00 20,00 20,00 0,006 120
Skata 100,00 100,00 100,00 0,001 100
Gellur 293,00 293,00 293,00 0,015 4.395
Samtals 62,85 24,754 1.555.819
Selt var m.a. af Búrfelli 13 kör, Reyni GK 18 kör af karfa. Á morgun verður
selt af Sveini Jónssyni 15-20 tonn af karfa og af Hauki GK u.þ.b. 50 tonn,
mest þorskur.
Olíuverð á Rotterdam-markaði
1. ág. - 3. okt., dollarar hvert tonn
samhljóða tillögur sem miða að því
að fækka störfum við stjórnun og
á skrifstofu um 3 til 4 ársverk. Að
sögn Björns liggja nú þegar fyrir
nokkrar uppsagnir frá starfsmönn-
um á bæjarskrifstofu, m.a. vegna
aldurs og veikinda og þarf því ekki
að koma til mikilla uppsagna vegna
þessara breytinga. Aætluð iækkun
launakostnaðar í þessum fyrsta
áfanga er um kr.. 4 millj. Einnig
er verið að vinna að tillögum að
nýju stjórnskipulagi þar sem stefnt
er að því að auka virkni stjórnkerf-
isins og lækka rekstrarkostnað
bæjarins enn frekar. í framhaldi
af því munu bæjaryfirvöld síðan
leita allra hugsanlegra leiða til að
lækka skuldir bæjarsjóðs og fyrir-
tækja hans og kemur sala á eignum
þar sterklega til greina.
MJ
Ráðstefna um
landnám Islands
VÍSINDAFÉLAG íslendinga
gengst fyrir ráðstefnu laugar-
daginn 6. október næstkomandi
í Norræna húsinu um landnám
Islands.
Á ráðstefnunni, sem hefst kl. 9,
verður ijallað um ritaðar heimildir
um landnám og um þá þekkingu
sem fornleifafræði veitir um fyrstu
byggingu landsins. Þá ve
nútímatækni sem er beitt við að
tímasetja landnámið og leifar elstu
mannvista í landinu.
í öðru lagi verður fjallað um
uppruna þjóðarinnar, hvað ritaðar
heimildir segja um það efni, og um
mál og menningu, erfðamörk og
mannfræðileg einkenni. í þriðja lagi
verður fjallað um ásýnd landsins
við landnám, nýtingu landsins og
áhrif búsetunnar. Að iokum verður
rætt um viðhorf íslendinga til land-
námsins.
Inferno 5 á tónleikum.
■ FÉLAGSSKAPURINN In-
ferno 5 mun í dag, föstudaginn 5.
október, standa fyrir tónleikum
hljómsveitarinnar Inferno 5 í
Kjallara Keisarans við Hlenim-
torg. Þeir munu meðal annars
frumflytja tónverkið: „Herskarar
himnanna bíða ósigur", sem er til-
einkað þeim Anatole France og
Anton Lavey.
Hljómsveitin Inferno 5 hefur ekki
flutt tónlist sína opinberlega síðan
í sumar. Á undan leik Inferno 5,
mun trúbadorinn GG Gunn flytja
nokkur lög.
Tónleikarnir hefjast kl. 23.00.
Bryndís Jónsdóttir
■ Nú fer í hönd síðasta sýningar-
helgi á leir- og postulínsverkum
Bryndísar Jónsdóttur í FÍM-saln-
uin, Garðastræti 6.
Þetta er fyrsta einkasýning
Bryndísar, en hún hefur tekið þátt
í nokkrum samsýningum og eigið
verkstæði hefur hún rekið síðan
1986. Sýningunni lýkur þriðjudag-
inn 9. október og er opin alla daga
frá kl. 14—18.
Torfærukeppni
í Jósepsdal
Torfærukeppni Bílabúðar
Benna og Jeppaklúbbs
Reykjavíkur verður haldinn laug-
ardaginn 6. október klukkan 13
í mynnni Jósepsdals við Litlu
kaffistofuna. Þetta verður síðasta
torfærukeppni ársins sem gefur
stig i keppninni um íslandsmeist-
aratitilinn. Er þetta þriðja og
síðasta keppni Jeppaklúbbs
Reykjavíkur á þessu ári í tor-
færuakstri.
Tuttugu og sex keppendur eru
skráðir til ieiks og hafa þeir aldrei
verið fleiri.
Keppt verður í tveimur flokkum,
flokki sérútbúinna bíla og flokki
götubíla.Ýmsar nýjungar verða á
keppnisfyrirkomulagi s .s. tíma-
þrautabraut.
Verðlaunaafhending fer fram í
skemmtistaðnum Hollywood um
kvöldið klukkan 23.
Um 50—60 manns ætla að fara
frá Flateyri og er það hátt hlutfall
íbúa hér. - Magnea
Sigurður Björnsson.
■ ÖNFIRÐINGAR og gestir
þeirra munu hittast á morgun, laug-
ardaginn 6. október, og endurvekja
gömlu bítlastemmninguna að vest-
an. Bítlavakan verður haldin að
sveitasetrinu Efstalandi í Ölfusi,
sem breytt hefur verið í skemmti-
stað. Síðan munu þeir sem vilja
gista í sumarhúsum í Ölfusborgum.
Hljómsveitirnar Grétar á Gröf-
unni og Æfing, báðar frá Flat-
eyri, skemmta. Þá hafa Sara Vil-
bergsdóttir og börn hennar tekið
lagið á skemmtunum, Sigurður
Björnsson, trúbador og Jóhannes
Kristjánsson, frá Brekku, kitlar
hláturtaugarnar.
Að sögn Guðbjartar Jónssonar,
eiganda gistinga- og veitinga-
staðarins Vagninn á Flateyri er
búist við að um 150 manns muni
saman koma þarna.
Eitt. verka Ásgeirs Lárussonar.
■ ASGEIR Lárusson opnar sýn-
ingu í Gallerí Einneinn á Skóla-
vörðustíg laugardaginn 6. október
kl. 15.00 og sýnir þar rúmlega tutt-
ugu verk, flest unnin í olíu. Þetta
er tíunda einkasýning Ásgeirs, en
hann hefur m.a. sýnt í Gallerí
SÚM, Suðurgötu 7, Gallerí Gijót,
Ásmundarsal og Mokkakaffi. Þá
hefur Ásgeir einnig tekið þátt í
mörgum samsýningum, m.a. þrem-
ur FIM-sýningum og um ’83. Opið
verður alla daga kl. 13.00-18.00.
Sýningu lýkur fimmtudaginn 18.
okt.
■ BÚAST má við töluverðri
hrossaverslun um helgiiia þar sem
tvær stóðréttir verða á laugardag.
Réttað verður í Víðidalstungurétt
í Vestur-Húnavatnssýslu og
Laufaskálarétt í Skagafirði. Mik-
ill fjöldi hestamanna hefur sótt
þessar réttir undanfarin ár og þá
sérstaklega Laufskálarétt.
Byijað verður að rétta um hádeg-
isbilið og verða veitingar seldar á
staðnum og réttarball verður
haldið í Miðgarði um kvöldið.
Færst hefur í vöxt að hrossa-
bændur á Suðurlandi reki hross sín
saman um helgar og gefi almenn-
ingi kost á að skoða og versla. Um
helgina safnar Jón Karlsson bóndi
í Hala í Djúpárhreppi sínum
hrossum saman og býður fólki að
skoða bæði laugardag og sunnudag.
Sagðist Jón vera að langmestu leyti
með folöld og trippi undan stóðhest-
inum Þokka 1048 frá Garði. Ekki
kvað Jón tilganginn með þessu endi-
lega vera að selja heldur gefa fólki
kost á að líta á stóðið og sérstak-
lega ungviðið.
■ GRÍMUR Marinó Steindórs-
son opnaði sýningu í Hafnarborg,
menningar- og listastofnun Hafnar-
fjarðar,_ laugardaginn 22. septem-
ber sl. Á sýningunni er fjöldi verka
unnin úr ýmsum málmum, bæði
veggmyndir og skúlptúrar. Einnig
sýnir hann nú í fyrsta sinn klippi-
myndir sem unnar eru á síðustu
árum. Sýningin er opin frá kl.
14—19 og stendur til 7. október nk.
Bíóhöllin sýnir kvikmyndina„Blaze“
BÍÓHÖLLIN hefur tekið til sýn-
inga myndina „Blaze“. Með aðal-
hlutverk fara Paul Newman og
Lolita Davidovich. Leiksljóri er
Ron Shelton.
Earl K. Long er alvanur voiki
stjórnmálanna þegar á vegi hans
verður ung kona og glæsileg -
Blaze Starr sem er dansmær. Það
vekur fljótlega hneykslun þegar
fylkisstjórinn, roskinn maður,
stofnar til sambands við hana.
Atriði úr niyndinni „Blaze“ sem
Bióhöllin hefur tekið til sýninga.