Morgunblaðið - 05.10.1990, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990
Ráðstefna um atvinnu- og byggðamál;
Rætt um framþróun í
norðlensku atvinnulífí
Landssamband iðnaðarmanna og Svæðisskrifstofa iðnaðarins á
Norðurlandi efna til ráðstefnu um atvinnu- og byggðamál á Akur-
eyri laugardaginn 20. október næstkomandi.
Á ráðstefnunni verður farið ofan
i saumana á norðlensku atvinn-
ulífi, hugsanlega framtíðarþróun
og kosti þess og galla að reka fyrir-
tæki á landsbyggðinni. Er fjar-
lægðin frá Reykjavík kostur eða
hindrun?, er meðal þess sem rætt
verður um auk möguleika á auknu
samstarfi fyrirtækja, eða fyrir-
tækjaneti, menntun stjórnenda og
möguleika á auknu samstarfi iðn-
aðar og sjávarútvegs við þróun
véla og tæknibúnaðar.
Ráðstefnan verður haldinn í Al-
þýðuhúsinu og ber að tilkynna
þátttöku til Landssambandsins eða
svæðisskrifstofunnar.
Ólafsfjarðarmúlagöng opnuð umferð í desember:
Gerð ganganna kostar
1,1 -1,2 milljarðakr.
Áætlaður kostnaður við Vestfjarða-
göng þrír til fjórir milljarðar
Heildarkostnaður við jarð-
göng í Ólafsfjarðarmúla er
1,100-1,200 milljónir króna, að
sögn Hreins Haraldssonar hjá
Vegagerð ríkisins.
Hreinn segir að kostnaður við
-^göngin sé svipaður og áætlað var.
„Kostnaðurinn er innan þeirra
fjárveitinga, sem hafa verið ætlað-
ar til þessa verks. Vatnsleki í
göngunum er mun meiri en reikn-
að var með og það hefur þýtt tölu-
vert mikinn aukakostnað, sem
hefur étið upp þann gróða, sem
við héldum að fengist af hagstæðu
tilboði."
tilbúnir á næstu vikum,“ segir
Hreinn Haraldsson, hjá Vegagerð
ríkisins.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
MeðAuðhumlu og mjaltastúlkunni
Börnin á dagheimilinu Flúðum brugðu sér af bæ
í gær og héldu í kynnisför um Mjólkursamlag
KEA. Þar voru þau leidd í allan sannleik um fer-
il mjólkurinnar og til að svala þorsta sínum bergðu
þau á Blöndu. Að lokum brugðu þau á leik við
höggmyndina af Auðhumlu og mjaltastúlkunni
sem prýðir lóð samlagsins.
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hvetur atvinnumálanefiid til aðgerða í ferðaþjónustu:
Settar fram hugmyndir um
ráðstefnu- og heilsumiðstöð
Yrði að mestu fjármagnað af útlendingum, segir Þorleifur Þór Jónsson ferðamálafulltrúi
ÞORLEIFUR Þór Jónsson ferðamálafulltrúi Iðnþróunarfélags
Eyjafjarðar hefur sent atvinnumálanefnd erindi er varðar stór-
verkefni í ferðaþjónustu og segir hann í minnisblaði sínu til nefnd-
arinnar að nú ætti að vera lag að ná fram aðstoð frá ríkisvaldinu
við könnun og útfærslu hugmynda um að reist verði á Akureyri
eða nágrenni annars vegar stór ráðstefnumiðstöð og hins vegar
heilsumiðstöð. í báðum tilfellum er um að ræða verkefni sem eru
af þeirri stærðargráðu að þau yrðu að Iangmestu leyti fjármögn-
uð af útlendingum.
Hreinn Haraldsson segir að
göngin í Olafsfjarðarmúla verði
opnuð fyrir almennri umferð í
síðari hluta nóvember eða desem-
ber næstkomandi.
Hann segir að nú sé verið að
vinna við hönnun á Vestfjarða-
göngum. „Reiknað er með að forv-
alsgögn verði send út í lok þessa
mánaðar og göngin verði boðin
út eftir áramótin en framkvæmdir
eiga að hefjast næsta sumar,“
segir Hreinn Haraldsson. Hann
upplýsir að áætlaður kostnaður við
Vestfjarðagöngin sé 3-4 milljarðar
króna. Stefnt er að því að fram-
kvæmdum við þau þau verði lokið
í árslok 1995.
„Þá erum við að vinna að nýjum
arðsemisútreikningum vegna
Hvalfjarðarganga og þeir verða
Hvað fyrri hugmyndina varðar,
segir að þeir aðilar sem unnið hafi
að þessum málum vilji meina að á
íslandi vanti stóra ráðstefnuaðstöðu
sem gæti verið sjálfstæð eining. Þar
þyrftu að vera öll aðstaða og tæki
til að halda fjölþjóðlegar ráðstefnur
fyrir 3-500 þátttakendur. Slík að-
staða sé ekki fyrir hendi á íslandi
og dæmi þess að aðilar sem halda
vilja svo stórar ráðstefnur hafi þurft
að taka með sér tækjabúnað fyrir
tugmilljónir. Þorleifur segir að í
hugmynd sinni sé lögð áhersla á
ráðstefnuaðstöðuna og í tengslum
við hana yrði byggt u.þ.b. 300 her-
bergja hótel, sem að öllu leyti yrði
sjálfstæð eining.
Um hina hugmyndina, byggingu
heilsumiðstöðvar, segir í minnis-
blaði Þorleifs, að í tengslum við
jarðvarma væri góður möguleiki á
að setja upp aðstöðu þar sem tekið
yrði á móti gestum hvaðanæva úr
heiminum. Umfangið yrði um 2-300
gestir í einu og yrði læknisfræðileg
þjónusta í hæsta gæðaflokki í
tengslum við ákveðna sjúkrameð-
ferð, t.d. vegna gigtar. Til afþrey-
ingar yrði boðið upp á ferðir um
nágrennið. Mikinn fjölda menntaðs
fólks þyrfti til annast heilbriðgis-
hliðina.
Um framkvæmdina segir Þorleif-
ur að útfæri þyrfti hugmyndina
heima í héraði, en eftir að línur
hafa verið lagðar þyrfti ríkisvaldið,
t.d. iðnaðarráðuneytið að taka mál-
ið upp og fjármagna gerð „sölu-
pakka“ þar sem hugmyndin yrði
sett fram á aðgengilegan og seljan-
legan hátt. Þegar slíkur pakki lægi
fyrir þyrfti að leita rekstraraðila
bæði í Bandaríkjunum og Evrópu.
Þorleifur segir að góðar líkur séu
á að aðili sé til staðar sem tilbúinn
væri að fara út í þetta, en kynna
þurfi málið á faglegan hátt.
Fyrsta skrefið yrði að sannfæra
stjómvöld og afla málinu fylgis.
Reynist fyrir því áhugi væri eðlilegt
að sett yrði á fót eins konar „stór-
iðjunefnd“ í ferðamálum og henni
fengið nægjanlegt fjármagn til að
hinda verkinu í framkvæmd. í hérð-
aði þurfi að vera fyrir hendi sam-
hugur og vilji til að leggja fram fé
og vinnu til að vinna málinu braut-
argengi.
„Ég geri mér fulla grein fyrir að
hugmyndin er stórhuga, en menn
verða að horfa hátt því annars ná
þeir aldrei flugi," sagði Þorleifur
Þór.
Fundað um sameiningu líf-
eyrissj*óða á Norðurlandi
ÞRÍR fundir verða á næstunni um stofnun sameiginlegs lífeyris-
sjóðs fyrir Norðurland auk ráðstefnu um sama málefni. Stefnt
er að því að stofna slíkan lífeyrissjóð á þingi Alþýðusambands
Norðurlands næsta haust og miðað við að hann taki til starfa
1. janúar 1992.
Kári Arnór Kárason formaður
undirbúningsnefndar vegna sam-
einingar lífeyrissjóða á Norður-
landi sagði að málið væri hugsað
þannig, að allir þeir launþegar
sem samning gerðu við ASÍ mynd-
uðu með sér sameiginlegan lífeyr-
issjóð, en hugmyndin væri einnig
að bjóða öðrum, t.d. bæjarstarfs-
mönnum að vera aðilar að sjóðn-
um.
Verið er að kynna málið og í
því skyni hefur verið boðað til
þriggja funda. Sá fyrsti verður
haldinn á Kópaskeri 14. október,
síðan verður fundað á Blönduósi
20. og á Akureyri 21. Þá verður
haldinn ráðstefna á Akureyri 3.
október um sameiningu lífeyris-
sjóðanna þar sem m.a. verður
kynnt skýsla um ýmsa þætti er
málið varða og sagði Kári að þar
með teldi undirbúningsnefnd að
hún hefði fullkynnt þetta mál.
Stefnt er að því að stofna hinn
sameiginlega lífeyrissjóð á næsta
þingi Alþýðusambands Norður-
lands sem haldið verður haustið
1991 og að hann taki til starfa
1. janúar 1992. Mikið var fjallað
um málefni lífeyrissjóða á síðasta
þingi AN í fyrrahaust og þar var
stofnað til áðurnefndrar undir-
búningsnefndar, en fram kom á
þinginu að lífeyrisgreiðslur laun-
þega á Norðurlandi sem flyttust
beint suður til Reykjavíkur næmu
um einum milljarði króna.
Hljómsveitin Gal í Leó.
■ Á FÖSTUDAG og laugardag
5. og 6. október mun hljómsveitin
Gal í Leó skemmta í Sjallanum,
Akureyri. Hljómsveitin hefur getið
sér gott orð að undanförnu á pöbb-
um og samkomuhúsum Reykjavík-
ur. Hljómsveitina skipa; Rafn Jóns-
son, Hjörtur Howser, Örn Hjálm-
arsson, Baldvin Sigurðarson og
Sævar Sverrisson.
(Fréttatilkynning)