Morgunblaðið - 05.10.1990, Síða 31

Morgunblaðið - 05.10.1990, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990 31 Kópavogskirkja. Hátíðar- messa í Kópa- vogskirkju SÉRSTÖK hátíðarmessa verður haldin í Kópavogskirkju, sunnu- daginn 7. október, í tilefni þess að þá verður lokið uppsetningu altaristöflu í kirkjunni. Á safnaðarfundi Kópavogs- prestakalls árið 1971 var samþykkt að koma upp altaristöflu í Kópa- vogskirkju. Þannig að málefnið á sér nokkuð langan aðdraganda. Að undangenginni samkeppni sem lauk 15. febrúar sl. var Stein- unn Þórarinsdóttir, myndlistarmað- ur, ráðin til að gera altaristöfluna og er hún gerð af steini og gleri. Við hátíðarmessuna prédikar biskup íslands hr. Ólafur Skúlason og sérstakir listamenn koma fram í söng og hljóðfæraleik. Þess er vænst að Kópavogsbúar fjölmenni til kirkju sinnar við þetta tækifæri og allir eru velkomnir. (Fróttatilkynning) Leiðréttíng Vegna fréttar í Morgunblaðinu 28.9. um umboð Flugleiða á Suður- eyri, skal tekið fram að Gísli Jóns- son verður áfram umboðsmaður Flugleiða þar. FESTINGAJÁRN FYRIR BURÐARVIRKI FLESTAR GERÐIRTIL Á LAGER. GETUM AFGREITT SÉRPANTANIR MEÐ STUTTUM FYRIRVARA. Þ.ÞORGRÍMSSON&CO ÁRMÚLA29, SÍMI 38640 ...er líti5 og handhægt tækl, sem gefur þér skilaboð, Jiurfi einhver að ná sambandi við þig. Símboðinn pípir og símanumerið sem þú átt ao hringja í birtist á skjá hans. Verb abeins 16.990,-eí»a Dagnr frímerkisins 1990 og ný frímerki Frímerki NORDJUNEX 90 5.-7.10.1990 fnMERKEUISTlUJNG Jón Aðalsteinn Jónsson Dagur frímerkisins verður hér á landi 9. þ.m. Samtímis verður hann haldinn hátíðlegur um önnur Norð- urlönd, einkum þó að ég ætla með norskum og sænskum frímerkja- söfnurum. Jafnframt eru í þessum löndum oft haldnar smásýningar og í sambandi við þær flutt fræðsluerindi um frímerkjasöfnun. Ekki verður sagt, að íslenzkir frímerkjasafnarar feti í fótspor „kollega" sinna á Norðurlöndum,' því að segja verður eins og er — því miður -, að hvorki Landssam- band ísl. frímerkjasafnara né önnur samtök innan Sambandsins sýna þessum degi þann sóma, sem hann á skilið. í fyrra var Félag frímerkja- safnara raunar með nokkra sýning- arramma í Kringlunni. Skýrðu fé- lagsmenn það efni, sem sýnt var, og kynntu um ieið frímerkjasöfnun almennt. Að þessu sinni mun verða opið hús þriðjudaginn 9. okt. hjá FF í Síðumúla 17 kl. 20—22. Þar verða m.a. sýndir stimplar frá Degi frímerkisins hér á landi, en um leið verður starf félagsins kynnt. Er þess að vænta, að margir leggi leið sína þangað þetta kvöld. Þá mun ætlunin að koma einhveiju kynningarefni um frímerkjasöfnun upp á pósthúsum borgarinnar. Vonandi vekur þetta framtak ein- hverja athygli, enda er hér ekki síður þörf en víða annars staðar að minna almenning og þá alveg sérstaklega unglinga á þessa skemmtilegu og hollu tómstunda- iðju, frímerkjasöfnun. Ekki gerist þess síður þörf, þar sem alls konar annað afþreyingarefni (og ekki.allt hollt) sækir mjög á æsku landsins. Á Degi frímerkisins er boðuð útgáfa annarrar smáarkar í tilefni frímerkjasýningarinnar NORDIU 91, sem haldin verður hér í Reykjavík dagana 27.—30. júní 1991. Ráunar á hún ekkert skylt við sjálfan daginn sem slíkan, eins og þeir vita bezt, sem fylgjast með þessum málum. Myndefnið er sem áður hluti af því fræga landabréfi af Norðurlöndum (Carta Marina) eftir sænska kirkjuhöfðingjann og erkibiskupinn Olaus Magnus. Á þessari örk sést syðsti hluti Skand- inavíu og suður á Danmörku og svo allt austur á Eystrasaltslöndin. Höfundur koitsins kallar það sjó- kort, en það er samt einkum landa- kort. Nær það yfir svæðið allt frá Bretlandseyjum og suðurströnd Eystrasalts og norður að heim- skauti. Úr vestri nær það frá Græn- landi og svo austur á sléttur Rúss- lands. Kortið er skreytt fjölda prýðilegra mynda, en það kom út í Feneyjum 1539. I þessari smáörk eru þijú frímerki, hvert að verðgildi 40 kr. Hins vegar er söluverð arkarinnar 170 kr. Mismunurinn, 50 kr., renn- ur í sjóð til styrktar NORDIU 91, svo sem var með yfirverð arkarinn- ar í fyrra, en það var 40 kr. Þröst- ur Magnússon hefur teiknað eða hannað þessa nýju örk sem og hina fýrri og Czeslaw Slania grafið hana í stálstungu. Prentuð er örkin hjá Joh. Enschedé en Zonen í HQllandi bæði með stálstungu- og offset- aðferð. Rétt þykir mér að endurtaka hér þá ábendingu, sem ég gaf frímerkjasöfnurum og öðrum les- endum þessara þátta, þegar fyrsta NORDIU-örkin kom út. Þar gat ég þess, að söfnurum og öðrum við- skiptavinum póstþjónustunnar hefði aldrei verið bent nægilega á það af póstyfirvöldum, að nota megi frímerki þessara arka ein sér eða saman á póstsendingar til burð- argjalds. Auðvitað borga menn 50 kr. til viðbótar, en sú fjárhæð fer til styrktar góðu málefni. Reyndin mun samt oftast verða sú, að frímerkjasafnarar og — kaupmenn kaupa mest af þessum örkum fyrir sjáifa sig til skipta og sölu á erlend- um vettvangi. Þá vil ég enn benda á, að umslög með þessum frímerkj- um á geta orðið skemmtilegir og góðir safngripir, en þó einungis, ef þess er gætt að burðargjaldið sé í samræmi við taxta póststjómar- innar. í fyrra var nafnverð frímerkjanna 30 kr., en því miður hentaði það ekki undir neinn ákveð- inn taxta. Að þessu sinni er nafn- verðið 40 kr., og það má t.d. nota eitt sér undir almennt bréf til Ameríku fram að 1. nóv. nk. — eða í tæpan mánuð. Þess vegna geta slík umslög orðið eftirsótt, þegar fram líða stundir. NORDIA 91 Eins og fram hefur komið hér á undan, verður næsta samnorræna frímerkjasýningin haldin hér á landi dagana 27.—30. júní 1991. Nefnist hún NORDIA 91. Allur undirbúningur undir þessa sýningu hefur farið fremur hljótt, en ekki efa ég, að jafnötulir menn og beita sér fyrir henni núna, vinni stöðugt að framgangi hennar. Vissulega bera margir engu að síður nokkurn ugg í bijósti, því að tíminn líður óðfluga og ekki eru nema rúmir níu mánuðir, þar til sýningin verður opnuð almenningi fimmtudaginn 27. júní 1991 í Laugardalshöllinni. Ekki neita ég því heldur, að mér fmnst einhvem veginn, að ekki sé nú sami samstarfsvilji milli safnara og var 1984, þegar NORDIA 84 var haldin hér í Reykjavík. Undar- legt má það t.d. þykja, hversu spör sýningarnefndin er á að tilkynna óbreyttum söfnurum og eins þeim, sem skrifa um frímerki í blöðin, hvað verið sé að gera hverju sinni. Eins þykir mörgum sem fyrr hefði mátt auglýsa sýninguna og betur, bæði hérlendis sem erlendis. Ég hef t. d. frétt á spýtum, að sérstak- ur maður hafi verið valinn til að kynna sýninguna á NORÐIU 90 í Lundi snemma í ágúst. Mun hann hafa haft með sér Kynningarrit NORDIU nr. 2 til dreifingar þar ásamt nokkrum öðrum upplýsing- um. En hvað veldur því svo, að félagar innan Landssambandsins fá ekki þetta rit í hendur fýrr en í lok september? Slíkt seinlæti e.r engan veginn afsakanlegt. NORDJUNEX 90 Haldin verður norræn unglinga- sýning í Ósló 5.-7. þ. m. í tengsl- um við Dag frímerkisins þar í landi. Tveir ísl. unglingar sýna þar mót- ífsöfn sín. Haraldur Guðnason safn um flugvélar og Jón Einar Jónsson safn um fugla á norðlægum slóð- um. Þarna verður einnig spurning- arkeppni milli unglinga frá öllum Norðurlöndum og spurt um íþróttir á Norðurlandafrímerkjum. Fyrir íslands hönd keppa Sveinn Brynj- ólfsson frá Dalvík og Jón Einar Jónsson og Magnús Helgason frá FF í Reykjavík. Liðsstjóri er Kjart- an Þórðarson. Umboðsmaður sýn- ingarinnarerGuðni F. Gunnarsson. ef tilkynnt er um innlausn með 60 daga fyrirvara. Kaupþing hefur enn á ný komið til móts við sparifjáreigendur sem velja örugga ávöxtun í Eininga- bréfum 1, 2 og 3. Innlausnargjáld af Einingabréfum 1 og 3 lækkar niður í 1,8% og af Einingabréfum 2 niður í 0,5% sé tilkynnt um innlausn með engum fyrirt'ara. Innlausnargjald af Einingabréfum 1 og 3 lækkar niður í 0,9% ef tilkynnt er um innlausn með 30 daga fyrirvara. Innlausnargjald af Einingabréfum 1, 2 og 3 er felll niður ineð öllu ef tilkynnt er um innlausn með 60 daga fyrirvara. KAUPÞING HF Kringlunnt 5, stmi 91-689080 Kaupþmg hf er í eigu Búnabarbankans, níu sparisjóða og Lánastofnunar sparisjóðanna hf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.