Morgunblaðið - 05.10.1990, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990
49
Þessir hringdu
Borgin kaupi
kartöflugeymslurnar
Kona hringdi:
„Ég vil koma á framfæri áskor-
un frá áhugakartöfluræktendum
í Reykjavík um að borgin kaupi
jarðhúsin við Elliðaár og gætu þar
verið kartöflugeymslur fyrir
áhugafólk til frambúðar. Þetta eru
falleg hús með bústabæjarstíl, þau
eru miðsvæðis og ólíkt þægilegra
fyrir Reykvíkinga að geyma kart-
öflur þar en á Korpúlfsstöðum.
Vel mætti gera geymslurnar upp
og myndi áhugafólk um kartöflur-
ægt áreiðanlega vilja leggja sitt
af mörkum við það verk. Kartöflu-
rækt er fjölskylduíþrótt hjá mörg-
um, holl andlega sem líkamlega -
og ólíkt öðrum íþróttum sparar
hún fjölskyldunum stó fé.“
Úr
Armbandsúr fannst á Frakk-
astíg nýlega. Einnig fundust þrír
lyklar á bandi á Smiðjustíg. Sím-
inn er 22496.
Kven silflurúr fannst á Snorra-
braut sl. þriðjudag. Upplýsingar
í síma 36233.
Föt
Fyrir páskana 1989 tapaðist
poki með vönduðum kven- og
barnafatnaði á Umferðarmiðstöð-
inni. Vinsamlegast hringið í
Bryndísi í síma 19822 ef hann
hefur einhvers staðar komið fram.
Hvolpur
Tveggja mánaða gamall hvolp-
ur fór að heiman fyrir tveimur
dögum. Vinsamlegast hringið í
síma 18227 ef hann hefur ein-
hvers staðar komið fram.
Næla
Silfurnæla tapaðist, líklega við
Laugaveg eða Hlemmtorg sl.
þriðjudag. Finnandi er vinsamlega
beðinn að hringja í símá 42836.
Toppmennirnir eiga að spila
Til Velvakanda.
Nokkur orð um landsliðið okkar
í knattspymu. Það hefur leikið tvo
leiki í Evrópukeppninni, á móti
Frökkum og Tékkum, og tapað
báðum. Nú eru ákveðin blöð farin
að tala um að stillt verði upp sama
liðinu gegn Spánveijum. Það er eins
og þetta sé orðin æviráðning hjá
landsliðsmönnunum.
Það sem skipir máli er að topp-
mennir spili. Það á ekki að skipa
menn í liðið eftir fomri frægð. Það
er allt í lagi að gefa mönnum tæki-
færi en það verður að skipa út ef
þeir sýna ekki árangur. Mín tillaga
er sú að skipa helmingnum út. Ef
eitthvað rótækt verður ekki gert í
þessu máli fara fleirí að spyija eins
og einn kunning minn: Er erfiðara
að komast úr landsliðinu en í það?
Borgari.
ELSKAIMEGRA AIM ÞESS AÐ ÞREYTAST
W LOVE To NBCrKO
WlTHOuT TlFZBÞ
& LAUGARÁSBÍÓ
Sími 32075
Nýstárleg, kanadísk-frönsk mynd, Aðalhlutverk: Roberto Bizeau, Maka
sakir efnis, leikenda og söguþráðs. Kotto og Myriam Cyr. Leikstjóri:
Jacques W. Benoit (aðstoðarleikstjóri
Myndin gerist í Montreal meðan á Decline of the American Empire).
hitabylgju stendur. Við slíkar aðstæð-
ur þreytist fólk við flest er það tekur Sýnd í A-sal kl. 5-7-9 og 11.
sér fyrir hendur. Bönnuð innan 12 ára.
HERRASKÓR
Litir:.Svart og vínrautt
Stærðir: 40-46
Póstsendum samdægurs.
5% staðgreiðsluafsláttur.
KR. 995,-
Royal
-fjölbreyttur
skyndibúðingur
Glæsilegur haustfatnaður frá
Hagstætt verð.
v/Laugalæk s. 33755