Morgunblaðið - 24.10.1990, Page 1
56 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
241. tbl. 78. árg.
MIÐVIKUDAGUR 24. OKTOBER 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kosið í Pakistan:
Líkur á að Bhutto
haldi sínum hlut
Islamabad, Lahore. Reuter.
GHULAM Ishaq Khan, forseti Pakistans, réðst harkalega á Benazir
Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, í gær og sagði hana
hafa brot.ið reglur lýðræðisins. Forsetinn sagði þá ákvörðun sína að
reka Bhutto úr embætti í ágúst eftir 20 mánaða stjórnartíma hafa
verið í samræmi við vilja „margra milljóna manna“ sem ekki hefðu
möguleika á að koma skoðunum sínum á framfæri. Kosið er til þings
í dag og telja flestir stjórnmálaskýrendur að Bhutto muni halda sínum
hlut.
Khan, er nýtur stuðnings leiðtoga
hersins, sagði ríkið þurfa á sterkri,
þjóðhollri forystu að halda í heimi
þar sem afdrifaríkar breytingar
ættu sér nú stað. Andstæðingar
Bhutto segja að hún hafi ekki verið
EFT A-ráðherrar:
Undanþágum
verði fækkað
Genf. Reuter.
Utanríkisráðherrar ríkja
Fríverslunarsamtaka Evrópu
(EFTA) iýstu því yfir í gær að
þeir gerðu sér grein fyrir nauð-
syn þess að fækka undanþágum
þeim sem ríkin vilja fá frá regl-
um Evrópubandalagsins (EB) við
framkvæmd samnings um Evr-
ópskt efnahagssvæði (EES). Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkis-
ráðherra sat síðari dag fundarins
sem haldinn var í Genf.
Ráðherramir sögðu ennfremur í
yfirlýsingu sinni sem gefin var út
í fundarlok að EB yrði í staðinn
fyrir tilslakanir EFTA að fallast á
að ákvarðanir sem vörðuðu efna-
hagssvæðið allt yrðu teknar sam-
eiginlega. EFTA-ráðherrarnir sögð-
ust hafa lagt að samningamönnum
ríkja sinna að herða róðurinn og
undirbúa' pólitíska lausn í samn-
ingaviðræðunum fyrir lok ársins.
nægilega skelegg auk þess sem
gífurleg spilling hafi einkennt
stjórnarfarið. Þijár alþjóðlegar
nefndir fylgjast með því hvort kosn-
ingarnar fara lýðræðislega fram.
Bhutto lauk kosningabaráttunni
í borginni Lahore á mánudagskvöld
með íjöldafundi og sögðu talsmenn
Þjóðarflokks hennar að þátttakend-
ur hefðu verið um 500.000. Borgin
er eitt af helstu vígjum aðaland-
stæðings Bhutto, Nawas Sharif,
leiðtoga íslömsku lýðræðisfylking-
arinnar.
Sjá frétt á bls. 22-23.
Reuter
Bandarískir hermenn við skotpall fyrir Hawke-loftvarnaeldflaugar í eyðimörk Saudi-Arabíu. Dick Che-
ney, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, skýrði frá því í gær að Irakar hefði klófest nokkrar flaugar
af þessu tagi í Kúvæt. Fregnin hefur valdið verulegum áhyggjum hjá yfirstjórn bandaríska liðsins við
Persaflóa. Cheney sagði óljóst hvort írakar kynnu að meðhöndla flaugarnar en þær eru mjög fullkomnar. ■
Edward Heath á heimleið með 38 breska gísla frá Irak:
Iraska þingið samþykkir að
sleppa 330 frönskum gíslum
Líklegt að 700 Búlgarar fái einnig fararleyfi
Bagdad. Reuter.
ÍRASKA þingið samþykkti í gær-
kvöldi þá tillögu Saddams Huss-
eins forseta að sleppa öllum
frönskum gíslum sem eru í haldi
í írak og Kúvæt, alls 330 manns.
Eru þeir meðal þúsunda vest-
rænna manna sem írösk stjórn-
völd hafa haldið sem gíslum frá
því írakar réðust inn í Kúvæt 2.
ágúst sl. Saddam sagðist í gær-
kvöldi vilja að þingmenn ræddu
möguleikann á að veita um 700
Búlgörum í írak fararleyfi. 14
bandarískum gíslum var leyft að
fara til Amman í Jórdaníu í gær.
Edward Heath, fyrrverandi for-
sætisráðherra Bretlands, hélt í
gærkvöldi til Amman og þaðan
Hálf milljón Jemena hrakin frá Saudi-Arabíu:
„Allali er mikill — Ilann gaf
mér son - Þau devja í Jemen“
Sanaa í Jemen. Frá Jóhönnu Kristjónsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsins.
„FERÐIN var erfið og við þurftum að bíða í 35 stiga hita Saudi-
Arabíumegin í tvo daga og fengum ekkert vatn. Margir eru að-
framkomnir," sagði Fuad, einn af tíu til fimmtán þúsund Jemen-
um sem fara daglega yfir til Jemens um landamærastöðina í
Haradh. Fuad reyndist hafa lög að mæla, margir voru aðfram-
komnir og sumir Iifðu ferðalagið í steikjandi eyðimerkurhitanum
ekki af eins og ég átti eftir að verða vitni að.
Saudi-Arabar hafa rekið um til Haradh með tveimur jemensk-
háifa milljón Jemena úr landi fyr-
ir þær sakir að þeim þykir stjórn-
in í Jemen of höjl undir Saddam
Hussein, forseta Iraks. Enn er um
ein milljón Jemena í Saudi-Arabíu
og sagði Fuad að hinir efnameiri
reyndu að fá leyfi til að flytjast
annað en til Jemens en þeirra
hagur færi að þrengjast því flest
Arabaríki hefðu nóg með sig og
sitt.
Ég kom eldsnemma morguns
um starfsbræðrum. Halarófan af
sveittu, þreyttu og æstu fólki virt-
ist lengjast stöðugt þó jemenskir
starfsmenn stöðvarinnar á óljós-
um mörkum landanna kepptust
við að ljúka formsatriðum. Flestir
komu án þess að hafa annað
meðferðis en í mesta lagi smá
fatapinkil og fæstir höfðu fengið
laun sín greidd síðustu tvo mánuð-
ina.
Haradh er í qyðimörkinni tæp-
lega 200 kílómetra norðvestur af
höfuðborg Jemens, Sanaa. Það
var rok og steikjandi hiti og sand-
urinn þyrlaðist víða upp í háa
stróka. Flestir Jemenanna höfðu
komið á vörubílum langar leiðir
að og langferðabílar, sumir harla
hrörlegir að sjá biðu þeirra Jemen-
megin. Víða var ringulreið og
háreysti þegar fjölskyldur voru
að kalla sig saman.
Nokkur hópur kvenna var að
stumra yfir kornungri stúlku
spottakorn í burtu. Eg gekk þang-
að og sá að hún var að fæða barn.
Ein kvennanna kom hlaupandi til
mín og spurði hvort ég væri lækn-
ir. „Mikið blóð. Hjálpaðu henni.
Barnið er dáið.“
Þó ég hristi höfuðið dró hún
mig nauðugá viljuga til stúlkunn-
ar. Ég horfði skelfingu lostin á
helbláa eftirlíkingu af barni milli
blóðugra læra stúlkunnar og blóð-
ið rann viðstöðulaust niður af
henni. Augun æpandi af sársauka
og ótta. Maðurinn hennar sat
skammt frá, reri fram í gráðið
og tuldraði bænir fyrir munni sér.
„Allah er mikill. Hann gaf mér
son. Þau deyja í Jemen. Mikill er
Allah."
Konurnar ráku upp hljóð. Ég
leit sem snöggvast á dáin augu
stúlkunnar og síðan á manninn
hennar sem var enn að ákalla guð
sinn en það var komin illska i
bænarhróp hans. Ég lagðist á
hnén í sandinum og fór að gráta.
til London með 33 aldraða og
sjúka Breta frá Irak.
Fimmtugur Breti, Jim Thomson,
sagði fréttamönnum rétt fyrir brott-
förina frá Bagdad að hann hefði
verið í hópi gísla sem haldið var
föngnum við vopnaverksmiðju. Þeir
hefðu gert uppreisn vegna lélegs
og lítils matar auk slæmrar með-
ferðar af hálfu varða sem haldnir
væru kvalalosta. Sumir varðanna
hefðu gert sér leik að því að berja
gísla. „Við rifum niður girðingar,
brutum rúður í öllum gluggunum
og máluðum slagorð gegn Saddam
á veggina," sagði Thomson. Verðir
ráku mennina aftur inn í herbergi
þeirra og enginn slasaðist.
Sendiherra Saudi-Arabíu í
Bandaríkjunum vísaði í gær á bug
fregnum þess efnis að Saudar væru
reiðubúnir að fallast á kröfur íraka
um að þeir fengju að halda hluta
af kúvæsku landssvæði gegn því
að hverfa með innrásarheri sína frá
Kúvæt. Hann sagði það ófrávíkjan-
lega kröfu yfíi'valda í Ryadh að ír-
akar drægju heri sína skilyrðislaust
til baka. George Bush Bandaríkja-
forseti ítrekaði einnig í gær að ekki
kæmi til greina að semja um neina
málamiðlun við íraka. Líkti hann
innrás þeirra í Kúvæt við innrás
heija Adolfs Hitlers í Pólland í
síðari heimsstyijöld.
Talsmaður frönsku stjórnarinnar
sgaði að engin breyting yrði á af-
stöðu hénnar þó svo írakar slepptu
frönskum gíslum. Lýsti hann
ákvörðun íraska þingsins sem nýrri
tilraun Saddams til að reka fleyg í
samstöðu vestrænna ríkja vegna
innrásarinnar í Kúvæt.