Morgunblaðið - 24.10.1990, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 24.10.1990, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTOBER 1990 Þjónar íslands- banki alþýðunni? eftir Arnþór Helgason Um margra ára skeið hefur ís- lendinga dreymt um að fækka bönkum. Menn hafa séð ofsjónum yfir þeim fjölda fólks sem hefur atvinnu af bankastarfsemi og þeim fjölda bankaútibúa sem sprottið hefur upp, einkum í Reykjavík. Þá hafa bankarnir einnig verið gagn- rýndir fyrir hið mikla vald sem bankastjórar öðlast yfir lífi og lim- um fólks, atvinnu þess og fyrirtækj- um. Samt fá bankastjórarnir ekki reist rönd við öllum fyrirtækjum og kollsteypast þá bankarnir, en bankastjórarnir og bankaráðin sitja eftir með ósárt enni og mannorðið bíður ekki einu sinni hnekki. Það er eini munurinn á þeim og einokun- arkaupmönnum fyrri tíma. Odd- steinn Friðriksson úr Vestmanna- eyjum kunni enda rétta orðið yfir þá og riefndi þá þar „soðningar- íhald“. Svo var það um síðustu áramót að nokkrir bankar keyptu Útvegs- bankann hf. se_m stofnaður hafði verið á rústum Útvegsbankans sem stofnaður var á sínum tíma á rústum íslandsbanka sem varð gjaldþrota í upphafi kreppunnar. Þar með var ákveðíð að fækka bönkum og skyldi nú stofnaður nýr og sterkur banki úr litlu bönkunum og Útvegsbankanum og hlaut hann nafnið íslandsbanki! Ýmsir fögnuðu þessum tíðindum og horfðu fram á hagkvæmni í rekstri og betri þjónustu við við- skiptavinina. Þeir voru einnig til sem misstu spón úr aski sínum því að störfum fækkaði við sameiningu bankanna. Eins brauð er annars dauði. Fyrir skömmu bárust þau tíðindi að útibú Islandsbanka við Stigahlíð yrði flutt í Hús verslunarinnar. Bankaútibúið þjónaði Hlíðahverfinu og hafði gert árum saman. Svo vill til að í þessu hverfi býr margt aldur- hniginna borgara og einnig eru þar aðalstöðvar Blindrafélagsins. Þessir aldurhnignu borgarar, íbúar A MYNDBANDALEIGUR ÍDAG §§■3 HASKOLABIO B^iMrÍidSÍMI 611212 Blindraheimilisins í Hamrahlíð 17 og starfsmenn þeirra stofnana sem eru í húsi Blindrafélagsins, áttu viðskipti við þetta útibú. Starfs- menn þeirra voru þjónustuglaðir og veittu blindum og öldruðum við- skiptavinum góða þjónustu og leit- uðust við að uppfylla þarfir hvers og eins. Þegar ákveðið var að flytja úti- búið í Hús verslunarinnar buðust stjórnendur bankans til að skipu- leggja ferðir einu sinni í viku fyrir þá íbúa í Hamrahlíð 17 sem þurftu á slíkri þjónustu að halda. Hér er um einstaka hugulsemi að ræða en hún er dálítið lítillækkandi. Margir þeir sem sækja þjónustu að Hamra- hlíð 17, húsi Blindrafélagsins, eða starfa þar og eru blindir höfðu feng- ið sérstaka þjálfun í að fara í þetta litla bankaútibú með aðstoð hvíta stafsins. Útibúið var svo gamaldags að hinir blindu vissu nokkurn veg- Arnþór Helgason „Með ^essu tiltæki sínu hefur Islandsbanki svipt nokkra einstakl- inga í Reykjavík fjár- hagslegu sjálfstæði og athafnafrelsi.“ inn hvar allt var. Nú hefur útibúinu hins vegar verið komið fyrir í rúm- góðu húsnæði með stóru anddyri þar sem erfitt er að rata og finna það sem hina bliridu vanhagar um. Þá er Kringlumýrarbrautin sá far- artálmi að hætta stafar jafnt blind- um sem sjáandi af umferð þar. Með þessu tiltæki sínu hefur ís- landsbanki svipt nokkra einstakl- inga í Reykjavík fjárhagslegu sjálf- stæði og athafnafrelsi. Hann hefur flutt þjónustuna frá fólkinu og hag- kvæmnin verður hinum almenna. viðskiptamanni bankans til óhag- ræðis. Þetta er þeim mun sárgræti- legra þar sem mikill hluti þessa fólks er komið af besta skeiði og flestir stóreigendur spariljár í landinu eru nú af léttasta skeiði. En sem betur fer kunna starfs- menn bankans góð ráð við þessari óhagkvæmni fyrir hinn almenna viðskiptavin og_ sækja þá til fornra atvinnuhátta íslendinga. Nú er blindu fólki smalað saman í Hamrahlíð 17 eins og ljárhópi í dilk og það síðan flutt á áfanga- stað. Þannig er nú verr komið fyrir þessu fólki en íbúum Raufarhafnar, Kópaskers og Þórshafnar sem hafa bankaútibúið á næstu grösum. Harma ber þetta tiltæki og ástæða er til að skora á einhvern af hinum bönkunum eða Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis að þeir athugi hvort ekki sé til þess vinn- andi að stofnsetja lítið útibú i Hlíðunum til hagsbóta fyrir íbúana þar. Iíöfundur er formaður Öryrkjabandalags Islands. Hin árlega Amnesty-vika El Salvador: Erick Romero Canales Þann 18. nóvember 1989 var hinn 17 ára gamli Erick Romero Canales tekinn af óeinkennis- klæddum her- mönnum. Fjöldi vitna var að at- burðinum. Fyrstu nóttina var hann hafði í haldi í herbúðum nálægt heimili sínu o g fékk móðir hans að heimsækja hann og færa honum mat. Frétti hún að hann væri ákærður fyrir að tilheyra sveitum stjórnarandstæðinga; FMLN. Hún varð síðan vitni að því daginn eftir að hann var færður á brott í herjeppa, með bundið fyrir augun og bundinn á höndum. Síðan þá hefur hann „horfið“. Móðir Ericks hóf leit sína að syni sínum í stöðvum herflokksins og hélt leitinni síðan áfram á lögreglu- stöðvum. Allstaðar var neitað allri vitneskju um málið. Moðirin hefur gefið upp að liðsforinginn, sem handtók Eric Romero, hafi síðar játað að hann hafi fengið skipun um að skjóta hann. Liðsforinginn hafði þá beðið drengnum griða hjá yfirmanni sínum, þar sém menn hefðu enga vissu fyrir að hann væri félagi í FMLN. Frú Canales hefur haldið áfram eftirgrennslunum sínum „til að fá fullvissu", þrátt fyrir að herforingi hafi hótað henni lífláti. Stjórnvöld staðhæfa að málið sé í rannsókn, en engar niðurstöður hafa verið lagðar fram. Mál þetta er aðeins eitt af hundr- uðum slíkra hin síðari ár, þar sem fangelsað fólk hefur „horfið" eftir að nafnlausar ábendingar hafa leitt til töku þess. Borgaraleg stjórnvöld hafa ekki getað eða viljað komast til botns í þessum málum. Vinsamlegast skrifið kurteisleg bréf og farið fram á að hlutlaus rannsókn fari fram á hvarfi Ericks Romeros og þeir sem sekir eru látn- ir sæta ábyrgð. Skrifið til: Inocente Orlando Montano Vice Ministro de Defensa y de Seguridad Pública Ministerio de Defensa y de Seguridad Pública Km. 5 carretera a Santa Telca San Salvador, E1 Salvador. Lýbýa Rashid ’Abdul-Hamid al-Urfia, Dr. ’Umran ’Umar al-Turbi og Muhammad Bashir al-Majrisi eru meðal hundruða pólitískra fanga sem hafðir eru í haldi án dóms og laga í Lýbíu. Rashid ’Abdul-Hamid al-Urfia er 31 árs gamall lögfræðingur og var við störf í stórmarkaði þegar hann var handtekinn í febrúar 1982. Hann er talinn tilheyra trúarhópi sem er gagnrýninn á stjórnvöld. Hann var handtekinn ásamt 20 öðrurri, sem allir fengu sakarupp- gjöf 1988. Dr. ’Umran ’Umran al-Turbi er 40 ára tannlæknir sem var handtek- inn í janúar 1984. I ijögur ár voru engar heimsóknir leyfðar til hans í fangelsið. Hann er kvæntur og á tvö börn. Þegar hann var handtek- inn var hann yfirmaður tannlækna- stofu í Benghazi. Hann er grunaður um að tilheyra hópi stjórnarand- stæðinga. Muhammed Basir al-Majrisi er 34 ára verkfræðingur sem handtek- inn var í janúar 1989. Hann hefur síðan þá verið í einangrun og veit enginn hvar hann er hafður í haldi. Hann var handtekinn ásamt stórum hópi manna sem handteknir voru vegna trúarskoðana sinna. Hann er sjálfur ekki þekktur fyrir að til- heyra pólitískt eða trúarlega virkum hópi. Engar sakir eru þekktar á hendur honum. Enginn þessara þriggja manna hefur fengið formlega ákæru eða verið leiddur fyrir rétt. Þeir hafa auk þess enga möguleika haft á lögfræðiaðstoð. Engar skýringar hafa verið gefnar fyrir því hvers vegna þeir tveir fyrstnefndu fengu ekki sakaruppgjöf við ijöldasakar- uppgjöfina 1988. Vinsamlegast skrifið kurteisleg bréf og farið fram á að þeir verði tafarlaust og skilyrðislaust látnir lausir. Skrifið til: His Excellency Colonel Mu’ammar al-Gaddafi Leader of the Revolution Tripoli Great Socialist People’s Lib- yan Arab Jamahiriya, (Lýbía). ÖRYGGI GOODfYEAR fju HEKLA A ÍS Laugavegi 170 -174 Sir HF Simi695500

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.