Morgunblaðið - 24.10.1990, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 24.10.1990, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1990 KNATTSPYRNA / 2. DEILD ÍSLENSKI HANDBOLTINN 8. UMFERÐ Miðvikudagur 24.10. KR-KA Kl. 20:00 Laugardalshöll Miðvikudagur 24.10. ÍR- Selfoss Kl. 20:00 Seljaskóli Miðvikudagur 24.10. Haukar-Fram Kl. 20:00 Strandgata, Hafn. Miðvikudagur 24.10. ÍBV-Stjarnan Kl. 20:00 Vestmannaeyjar Þorsteinn til Gríndavflair Þorsteinn Bjarnason leikur með Grindavík næsta sumar. orsteinn Bjarnason, fyrrum landsliðamarkvörður í knatt- spyrnu, hefur gengið til liðs við Grindavíkur og leikur með liðinu í 2. deild næsta sumar. Þorsteinn, sem iék með FH í fyrrihluta sumars- ins, á að baki 180 leiki í 1. deild með ÍBK og 28 landsleiki. Auk þess að leika með liðinu mun hann þjálfa alla markverði félagsins í yngri flokkum. Bjarni Jóhannsson hefur verið ráðinn þjálfari liðsins og tekur við af Hauk Hafsteinssyni. „Það er gífurlega mikilvægt fyrir félagið að fá mann með svo mikla reynslu og við vonum að hann auki breiddina í liðinu. Skúli Jónsson stóð sig vel í sumar og við vonumst til að hann verði áfram og gerum ráð fyrir að halda nær sama liði,“ sagði Gunnar Vilbergsson, formað- ur knattspyrnudeildar Grindavíkur. Líklegt er að Grindvíkingar missi tvo leikmenn, Gunnlaug Einarsson aftur í Val og Einar Ásbjörn Ólason sem ætlar að hætta. „Markmiðið er fyrst og fremst að festa sig í sessi í 2. deild. En við erum með góðan hóp og ætlum að gera betur en í sumar,“ sagði Gunnar. KNATTSPYRNA / ENGLAND Arsenal sektar þjálfára og leikmenn George Graham, þjálfari Arse- nal, var í gær gert að greiða félagrnu sekt sem samsvarar tveggja vikna launum vegna fram- komu leikmanna í viðureign gegn Manchester United um helgina. Þetta er í fyrsta sinn, sem þjálfari í Englandi er sektaður af eigin fé- lagi vegna óláta leikmanna, en talið er að sektin nemi um 900.000 ÍSK. Arsenal sektaði einnig leikmennina Anders Limpar, Nigel Winterburn, Michael Thomas, David Rocastle og Paul Davis og þurfa þeir sömu- leiðis að greiða félaginu tveggja vikna laun — um 500.000 ÍSK hver. „Atburðurinn hefur flekkað nafn Arsenal og við hörmum það,“ sagði Peter Hill-Wood, formaður félags- ins. „Ábyrgðin er þjálfarans og hann og leikmennimir gera sér grein fyrir hve alvarlegt mál þetta er.“ „Ég er ekki hreykinn af þessu og við verðum að gera allt, sem hægt er, til að atvik, sem þetta, endurtaki sig ekki,“ sagði George Graham. Manchester United sektaði leik- mennina Brian McClair og Denis Irwin og gerði þeim að greiða viku laun, en bæði félögin eiga sekt yfir höfði sér frá enska knattspyrnu- sambandinu og hugsanlega geta stig verið dæmd af þeim. Arsenal lenti í ámóta máli á síðasta keppn- istímabili eftir leik gegn Norwich pg þurfti þá að greiða um 2 millj. ÍSK. í sekt. í kvöld HANDBOLTI 1. deild karla: Höll, KR-KA.................20 Seljaskóli, ÍR-Selfoss......20 Seltj.nes, Grótta-FH.....20:15 Strandgata, Haukar-Fram.....20 Vestm., ÍBV-Stjaman.........20 2. deild karla: Digranes, UBK-UMFN.......20:15 BLAK 1. deild karla: Hagaskóli, ÍS-Þróttur R.....20 1. deild kvenna: Húsavík, Völsungur-KA.......19 Hagaskóli, ÍS-UBK........21:15 ÚRSUT KNATTSPYRNA Fyrri leikir í 2. umferð Evrópumótanna: Evrópukeppni meistaraliða: B. Miinchen (Þýskal.)- CFKA (Búig.) ...4:0 Stefan Reuter (3., 62. vsp.), Roland Wohlfarth (28.), Klaus Augenthaler (54.) Áhorfendur: 12.000 Evrópukeppni bikarhafa: Man. Utd. (Engl.)-Wrcxham (Wales)....3:0 Brian McClair (42.), Steve Bruce (vsp. 44th.), Gary Pallister (59.) Áhorífendur: 29,405 Evrópukeppni félagsliða: Magdehurg (Þýs.) - Bordeaux (Fra.) ....0:1 ^Jean-Marc Ferreri (vsp. 45.). Áhorfendur: 8.000 ÍÞRÚmR FOLK ■ STEINAR Guðgeirsson fór út af meiddur í síðari hálfleik í leiknum gegn Barcelona í gærkvöldi. í fyrstu var talið að hann væri við- beinsbrotinn, en eftir skoðun og myndatökur í gærkvöldi kom í ljós að hann hafði tognað í vöðva. „Læknirinn sagði að ég þyrfti að vera með aðra höndina í fatla í tvær til þtjár vikur, en ég er ákveðinn í því að leika síðari leikinn í Barcel- ona eftir hálfan mánuð,“ sagði Steinar. ■ BRASILÍSKI landsliðsmaður- inn Silas hefur gert árs samning við ítalska liðið Cesena. Þar með eru þrír erlendir leikmenn hjá félag- inu, en fyrir voru landi hans Amar- ildo og Júgóslavinn Davor Jozic. ■ PHILIP GYAU, miðherji bandaríska landsliðsins í knatt- spyrnu, gerði árs samning við belgíska félagið Genk í gær. Hann er áttundi landsliðsmaður Banda- ríkjanna, sem gerist atvinnumaður í Evrópu á árinu. ■ SUÐUR-KÓREA vann Norð- ur-Kóreu 1:0 í Seoul í gær að við- stöddum 70.000 áhorfendum. Knattspyrnulandsliðin léku í Py- ongyang 11. október og þá unnu heimamenn 2:1. Lið frá ríkjunum hafa ekki mæst í höfuðborgunum síðan 1950 vegna stjörnmála- ástandsins, en þetta eru nefndir friðarleikir. Miðvikudagur 24.10. Grótta-FH Kl. 20:15 Seltjarnarnes Fimmtudagur 25.10. Víkingur-Valur Kl. 20:00 Laugardalshöll VÁTRYGGIIVGAFÉLAG ÍSIANDS HF KORFUKNATTLEIKUR KR - Haukar 87:82 Laugardalshöllin, úrvalsdeildin í körfuknattleik, þriðjudaginn 23. október 1990. Gangur leiksins: 0:2, 4:9, 8:16, 13:18, 22:32, 30:37, 34:38, 46:51, 57:56, 62:62, 70:64, 72:72, 74:74, 77:74, 77:76, 83:76, 83:79, 85:79, 85:81, 87:82. Stig KR: Guðni Guðnason 19, Páll Kolbeinsson 17, Matthías Einarsson 15, Axel Nikulás- son 15, Jonathan Bow 13, Gauti Gunnarsson 5, Björn Steffensen 3. Stig Hauka: Jón Arnar Ingvarsson 28, Pálmar Sigurðsson 17, Ivar Ásgrísson 15, Mike Noblet 12, Reynir Kristjánsson 4, Henning Henningsson 4, Pétur Ingvarsson 2. Dómarar: Kristinn Óskarsson og Bergur Steingrímsson. Áhorfendur: 114. KR-ingar á toppnum KR-Haukar 30:34 Hagaskóli, íslandsmótið í körfuknattleik - 1. deild kvenna, mánudaginn 22. október 1990. Stig KR: Anna Gunnarsdóttir 12, Jónína Kristinsdóttir 8, Helga Árnadóttir 6, Hrund Lárusdóttir 3 og María Guðmundsdóttir 1. Stig Hauka: Herdís Gunnarsdóttir 8, Eva Havcicova 8, Guðbjörg Norðfjörð 6, Sigrún Skarphéðinsdóttir 5, Hafdís Hafberg 4 og Sólveig Pálsdóttir 3. KR-ingar sigi'uðu Hauka í gærkvöldi, 87:82, í baráttuleik. Sigurinn var naumur og þurfti framlengingu til að knýja fram úrslit. Haukarn- ir léku betur framan af og þá sérstaklega Jón Árnar en í síðari hálfleik hafði Matthías sérstakar gætur á honum. KR-ingar komust í fyrsta sinn ^^■■■H yfír um miðbik síðari hálfleik þegar þrír af lykilmönnum Skúli Unnar Hauka voru á bekknum á sama tíma. Eftir að þeir komu Sveinsson jnná aftur náðu Haukar að komast yfir á ný en KR-ingar sknfar jöfnuðu og fengu reyndar tækifæri til að gera útum leik- inn en Björn hitti ekki úr vítaskoti á síðustu sekúndunum. í framlenginunni voru KR-ingar sterkari og tiyggðu sér sigur. Leikurinn var kaflaskiptur. Haukarnir léku mun betur í fyrri hátfleik á meðan sóknarleikur KR var fálmkenndur og ómarkviss. I síðari hálfleik snerist dæmið við, KR-ingar, sem eru trúlega með bestu vörn deildarinn- ar, bættu sóknarleikinn til muna. Haukar léku undir getu Leikur KR og Hauka var frekar slakur. Haukastúlkur léku und- ir getu, en KR lék góða vörn. Tékk- neska stúlkan, Eva Havcicova, var besti leikmaður Vanda Hauka en Anna Sigurgeirsdóttir Gunnarsdóttir stóð skrifar uppúr í Vesturbæj- arliðinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.