Morgunblaðið - 24.10.1990, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 24.10.1990, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1990 3 „Við sjáumst betur í myrkrinu þegar við erum með endurskinsmerki," segja þessir 8 ára drengir í Æfingaskólanum, frá vinstri á myndinni eru Bergur, Oskar, Grétar, Magnús, Skarphéðinn og Sigurgeir. Brýnt fyrir gangandi vegfarendur að nota endurskinsmerki: Fólk sést fyrr og það er bilið sem skilið getur á milli lífs og dauða - segir Óli H. Þórðarson framkvæmdastjóri Umferðarráðs Morgunblaðið/Árni Sæberg „Krakkar á okkar aldri nota ekki endurskinsmerki," segja félag- arnir Jónas, Krislján og Jón Ari. „HAUSTIÐ er sá tími sem einna brýnast er fyrir fólk að nota endurskinsmerki, þegar snjór- inn er ekki kominn er hvað mest myrkur og því eru end- urskinsmerkin lífsnauðsynleg hjálpartæki fyrir gangandi vegfarendur, þannig að öku- menn átti sig fyrr á því hvar fólkið er,“ segir Óli H. Þórðar- son framkvæmdastjóri Umferð- arráðs. Þeir sem nota endurskinsmerki á réttan hátt sjást fimm sinnum fyrr heldur en þeir sem ekki nota slík merki. Óli sagði að þeir sem gangi um án endurskinsmerkis sjá- ist í u.þ.b. 30 metra fjarlægð frá lágum ljósum bifreiðar, en aftur á móti sjáist þeir sem noti endur- skinsmerki í allt að 150 metra fjar- lægð. „Þetta er bilið sem skilið getur á milli lífs og dauða,“ sagði Oli. Unglingamir erfiðastir Best er fyrir fullorðna að næla í sig tvö endurskinsmerki, sitt á hvorri hlið og hafa þau hangandi í um 60 metra hæð frá jörðu, en aftur á móti er heppilegra fyrir þá sem yngri eru að líma eða sauma merkin í flíkur. „Það er viss aldurs- hópur sem við eigum í erfiðleikum með að fá til að ganga með endur- skinsmerki, en það eru unglingarn- ir. Það er eins og þeim þyki skömm að því að vera varkár," sagði Óli. Þá sagði hann einnig útbreiddan misskilning, að hengja aftan á bak eitt endurskinsmerki, í 88% tilvika þar sem ekið er á gangandi vegfar- endur er ekið á þá frá hlið og því gagnaðist lítt af hafa endurskin á bakinu. Endurskinsmerki á hross Theodór Kr. Þórðarson lögreglu- maður í Borgarnesi benti á mikil- vægi þess að hengja endurskins- merki í hross, en lögreglan þar gerði fyrir nokkrum árum átak í því að hengja endurskinsmerki á útigönguhross þar sem þau sköp- uðu hættu í umferðinni. Theodór sagði að þetta hefði verið gert til að vekja athygli á því vandamáli sem lausaganga hrossa væri. Menn voru hvattir til að leggja bann við lausagöngu og tóku æ fleiri hrepp- ar upp slíkt bann. Til eru sérstök endurskinsmerki sem smellt er um fætur hrossanna, einnig á ístöð og þá er æskilegt að reiðmenn setji einnig á sig merki. „Þó ástand hafi batnað og ekið sé á færri skepnur hér en áður var, þá er vandamálið enn til stað- ar og brýnt að vekja menn til umhugsunar um gildi endurskins- merkja," sagði Theodór. „Krakkar á okkar aldri nota ekki endurskinsmerki“ „Við notum ekki endurskins- merki, ætli það sé ekki út af því að við erum svo varkárir," sögðu þeir Jónas, Kristján og Jón Ari, en þeir eru 14 ára gamlir og eru í Æfingaskóla Kennaraháskóla ís- lands. Þeir félagar sögðust ekki eiga endurskinsmerki og ekki hafa átt síðan þeir voru smápollar. „Við vorum alltaf með endurskinsmerki fyrir nokkrum árum,“ sögðu þeir og viðurkenndu að merkin væru nauðsynleg. „Það bara notar engin í okkar bekk og á okkar aldri svona merki, kannski halda krakkarnir að þeir séu vaxnir upp úr því að nota endurskinsmerki." Þeir Jónas, Kristján og Jón Ari kváðust þó mundu hugsa málið og aldrei væri að vita nema þeir fengju sér end- urskinsmerki. Bæta á sig endurskinsmerkjum þegar dagurinn styttist „Ég er með endurskinsmerki á skólatöskunni minni og á gömlu úlpunni," sagði Magnús, 8 ára nemi í Æfingaskóla Kennaraháskóla ís- lands. Félagar hans, þeir Bergur, Óskar, Grétar, Skarphéðinn og Sig- urgeir, sögðust einnig allir nota endurskinsmerki. „Það nota eigin- lega allir endurskinsmerki, enda sjáumst við miklum betur í myrkr- inu þegar við erum með svona merki. „Ég er bara með endursk- insmerki á úlpunni minni og á skólatöskunni, en þegar dagurinn styttist meira þá set ég kannski á mig fleiri merki,“ sagði Skarphéð- inn. Skólabræðurnir sögðust nota endurskinsmerki sem límd væru á flíkurnar, „því það þýðir ekkert að vera með merki sem eru næld í mann, þau eru bara slitin í burtu“. Hluthafafundur í Flugleiðum: SAS: Ferðum fjölg- að og beint flug frá Ósló og Stokkhólmi SAS-flugfélagið hefur ákveðið að 'fjölga áætlunarferðum sínum til Islands næsta sumar frá Kaup- mannahöfn og er ráðgert að halda þeirri tíðni á veturna einn- ig ef fjölgun ferða á sumrin mælist vel fyrir. Einnig er hugs- anlegt að SAS hefji beint flug til Islands frá Stokkhólmi og Osló eftir tvö til þrjú ár. Félagið ráð- gerir að hafa um 400 milljónir íslenskra kr. í hagnað á næsta ári af flugi til íslands. Þetta kom fram í máli Sven Heid- ing, aðstoðarforstjóra SAS, á fundi með íslenskum blaðamönnum í höf- uðstöðvum félagsins í Frösundavik. „Við ráðgerum að halda uppi sömu flugtíðni til íslands að vetri og sumri að því tilskildu að eftirspurn í ferðir á sumrin aukist. Til að halda úti góðri þjónustu, sem fyrst og fremst er sniðin að þörfum við- skiptamanna, teljum við nauðsyn- legt að sú þjónusta verði allan árs- ins hring,“ sagði Heiding. Félagið hyggst nota MD-80 flugvélar til íslandsflugsins. Hann sagði ennfremur að ráð- gert væri að hefja beint flug frá Stokkhólmi og Ósló til Reykjavíkur ef fjölgun ferða á Kaupmannahafn- arleiðinni kæmi vel út. Líklega yrði um eina til tvær ferðir í viku að ræða í fyrstu frá hvorum stað. „Ég tel óhætt að fullyrða að starfsemi okkar á íslandi hafi átt þátt í því að kynna þandið á alþjóða- vettvangi þar sem íslands er getið í öllum okkar kynningum á erlend- •um mörkuðum," sagði Sven Heid- ing. A síðasta ári ferðuðust um 15 þúsund manns á vegum SAS frá Islandi, um 60% þeirra voru íslensk- ir ríkisborgarar. Verðlagsráð: Gjaldskrá sérleyfis- bíla hækkar Á FUNDI verðlagsráðs á mánu- dag var samþykkt að heimila 4,8% hækkun á gjaldskrá sér- leyfis- og hópferðabifreiða, 2,7% hækkun á gjaldskrá leigu- bifreiða og 2% hækkun á gjald- skrá sendibifreiða. Hækkana- beiðnir frá ofangreindum aðil- um bárust í kjölfar hækkunar á olíuverði um síðustu mánaða- mót. Hlutafj áraukning samþykkt Tillaga um fulla þátttöku Eimskipafélagsins lögð fyrir stjórn þess í vikunni HLUTHAFAFUNDUR í Flugleiðum hf. samþykkti í gær heimild til sljórnar félagsins að auka hlutafé þess um 331 milljón króna með sölu nýrra hluta til núverandi hluthafa eða nýrra hluthafa, fáist ekki áskrift hjá núverandi eigendum fyrir allri aukningunni. Þá samþykkti fundurinn tillögu um breytingu á 5. grein félagsins þess efnis að arður skuli greiddur innan þriggja mánaða frá ákvörðun aðalfundar um arðgreiðslur. Á fund- inum sagði Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskipafélagsins sem er stærsti hluthafi Flugleiða, að tillaga um fulla þátttöku Eimskipafélagsins í hlutafjáraukningunni yrði líklega lögð fyrir stjórn þess í þessari viku. Kom fram í máli hans að hann ætti von á að hún yrði samþykkt. Hluthafar, Flugleiða hafa for- kaupsrétt að hlutafénu fram til 7. i nóvember en þá verður óselt hlutafé selt á almennum markaði í umsjá Verðbréfamarkaðar Islandsbanka. Sigurður Helgason, stjórnarformað- ur Flugleiða, kvaðst eiga von á að tækist að selja allt hlutaféð á þessu ári. I máli Sigurðar Helgasonar, for- stjóra félagsins, kom fram að hann teldi að umtalsvert hlutafé yrði til sölu á almennum markaði og hluthöf- um þess muni því fjölga. Kvaðst- hann gera ráð fyrir að viðbótarhluta- féð seldist á um 730-750 milljónir króna þar sem markaðsverð hluta- bréfa í eigu Flugleiða væri talsvert hærra en nafnverð. Fram kom að eigið fé Flugleiða nemur nú 3,3 milljörðum króna en vegna mikilla skulda, sem rekja má til kaupa á nýjum millilandaflugflota á síðustu 18 mánuðum, væri mikils- vert að efla eiginijárstöðuna enn frekar. Félagið hefur sett sér það markmið að hlutfall eiginfjár af heildareignum félagsins verði komið í 25% innan tveggja ára. Sigurður Helgason, stjórnarform- aður, tók fram í ræðu sinni að þó hann hefði kannað möguleika á sölu hlutabréfa sinna í félaginu að und- anfömu hefði engin ákvörðun verið tekin um sölu. „Ég hef trú á framtíð Flugleiða. Félagið stendur vel og hefur sterka stöðu í vaxandi sam- keppni. Ég mæli því með að þessar tillögur verði samþykktar," sagði hann. Forstjóri félagsins kynnti skýrslu á hluthafafundinum um endurskoðuð reikningsskil fyrir fyrstu 7 mánuði ársins. Þar kemur fram að afkoma Flugleiða á þessu ári er betri en í fyrra. Heildarhagnaður þetta tímabil varð 322 milljónir króna. Rekstrar- hagnaður, án fjármunatekna og fjár- magnsgjalda, varð 81 milljón, en að þeim liðum frádregnum er hagnaður- inn 12 milljónir. Bókfært verð heild- areigna félagsins var 19.381 milljón kr. í lok júlí en heildarskuldir 16.100 milljónir. Eigið fé félagsins í lok júlí er því jákvætt um 3.271 milljón. Flugleiðir gera ráð fyrir vaxandi erlendri samkeppni á næstunni og óvissuþættir, s.s. hækkun olíuverðs vegna innrásar íraka í Kúvæt, gera nauðsynlegt, að mati Flugleiða- manna, að efla eiginfjárstöðuna og draga úr áhættu sem felst í að fjár- magna eignir með lánum. Verðlagsráði hafði einnig borist beiðnir frá Eimskip og skipadeild Sambandsins um 6% hækkun á farmgjöldum. Afgreiðslu á þeim var frestað á fundi verðlagsráðs á mánudag, og verða þær væntan- lega teknar fyrir á næsta fundi ráðsins sem verður í næstu viku. Launavísi- talanlækkar HAGSTOFAN hefur reiknað launavísitölu fyrir októbermán- uð 1990, miðað við meðallaun í september. Er vísitalan 116,6 stig, eða 0,3% lægri en í fyrra mánuði. Samsvarandi launavísitala, sem gildir við útreikning greiðslumarks fasteignaveðlána, tekur sömu lækkun og er því 2.552 stig í nóv- ember 1990.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.