Morgunblaðið - 24.10.1990, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 24.10.1990, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1990 t Móðir okkar, KATHARÍIMA SYBILLA MAGNÚSSON, lést í Borgarsjúkrahúsinu 20. otkóber. Fyrir hönd tengdabarna, barnabarna og langömmubarna, Steinunn H. Ársælsdóttir, Magnús E. Ársælsson. + JAKOB HELGASON, Skjólbraut 1A, Kópavogi, lést í Borgarspítalanum 22. október. Jarðarförin auglýst síðar. Vandamenn. t Okkar hjartkæra GUÐBJÖRG VIGFÚSDÓTTIR Hrafnistu, Reykjavík, lést 23. október. Dóra Sigurjónsdóttir, Hólmfríður Sigurjónsdóttir, Vigfús Þór Jónsson, Ólöf Karlsdóttir, Guðrún Valgarðsdóttir, . Hjalti Örnólfsson og fjölskyldur. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, sr. BERGUR BJÖRNSSON, Háaleitisbraut 50, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 25. október kl. 13.30. Guðbjörg Pálsdóttir, Ragnar Bergsson, Guðmundur Bergsson, Gerður Daníelsdóttir, Berglind Guðmundsdóttir, Björn Guðmundsson, Guðbjörg Guðmundsdóttir. t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, STEFÁN KARL ÞORLÁKSSON, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 26. október kl. 13.30. Jón Marteinn Stef- ánsson - Minning Mig langar að kveðja föðurbróður minn, Martein Stefánsson, sem and- aðist 17. þ.m., með þessu fallega ljóði eftir föður hans, Stefán frá Hvítadal, og þakka honum fyrir allt og allt. Ég vil burt og halda á höf, hirða ei neitt um boðaköf, láta storminn teygja tröf, tuskast við mín jakkalöf. Betra er, en draumadöf, dáðlaust líf og stundartöf, að sigla fleyi' á feigðamöf, flytja bú í vota gröf. Ég hefi Iengi í þrautum þráð það, sem yrði hjálparráð, en aldrei marki nokkru náð; nú er að leita þess með dáð. Þótt ég verði bylgju að bráð, bíður mín þar fagurt láð, fyrir handan græðis gráð, gullið land og sólu fáð. Yfír djúpin breið og blá báti litlum sigli’ eg á. Mörg er bylgjan fleyi flá, fækka engu segli má. Austur vil ég sigla’ um sjá, svala minni dýpstu þrá. Mig dreymdi, að ég í sænum sá sólskinsland þar austur frá. Elsku Gréta, Erla, Stefán og Anna, megi góður guð vera með ykkur á þessari sorgarstundu. Dallas, Texas, Soffía Erla Stefánsdóttir Jón Marteinn Stefánsson fæddist 7. janúar, árið 1936. Hann var son- ur Stefáns frá Hvítadal, skáldsins ástsæla, og konu hans, Sigríðar Guðbjargar Jónsdóttur. Hann lauk prófi í múraraiðn frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1970 og starfaði lengi sem slíkur. Frá því í maí 1977 vann hann hinsvegar í Landsbanka íslands, allt til dauðadags. Marteinn var kvæntur Margréti Lund Hansen og eiga þau tvö börn, Stefán Bersa, fæddan 1967, og Erlu Maríu, sem er fædd 1969. Bjó hún þeim öllum einstaklega gott heimili og hlýtt. Það mun hafa verið fyrir um það bil 35 árum síðan, að leiðir okkar Marteins lágu fyrst saman. Vafa- laust hefir það verið eftir messu í Kristskirkju í Landakoti, en þá var oft farið í kaffisopa á eftir og rætt um mörg mál. Ég minnist þess enn hvað mér fannst Marteinn ákveðinn í skoðunum og skoðanafastur, því við vorum alls ekki alltaf sammála. Ekki slitnaði samt kunningsskapur- inn, þótt við jafnvel værum á önd- verðum meiði. Stundum lá jafnvel við að við rifumst. Þrátt fyrir þetta héldum við kunningsskap og höfð- um ef til vill lúmskt gaman af því að kappræða. Þróaðist þessi kunn- ingsskapur gegnum árin svo að við hjónin kynntumst systkinum hans flestum og voru þau kynni öll góð. Störfuðum við meira og minna sam- an í 'ýmsum félagsskap innan safn- aðarins á næstu árum. Man ég sér- stakiega eftir skemmtilegum ferð- um er við fórum saman, bæði í Stykkishólm og víðar. Þar sneri hann sér við til að tala við ein- hvern, þegar ég tók mynd af hópn- um og sagði svo þegar ég sýndi honum myndina. „Nei, þetta er ekki ég.“ Einnig vorum við saman í ferð þegar fyrsta kaþólska messan eftir siðaskipti var lesin í Fjóshellin- um á Ægissíðu, og margt fleira tókum við okkur fyrir hendur. Stundum liðu svo upp í tvö ár að við ekki hittumst. En alltaf var hann sami félaginn þegar við sáumst næst. Það fór aldrei á milli mála, að undir skelinni var Mar- teinn alltaf sami góði strákurinn, sem til dæmis mátti ekkert aumt sjá, en lét heldur aldrei á sér sjá neina eymd. Þrátt fyrir alla þá bar- áttu, sem hann átti í við sjúkdóm þann er dró hann til dauða, kvart- aði hann ekki. Þegar ég svo hitti hann síðast fyrir um mánuði sagði hann þó: „Sigurður minn, biddu fyrir mér. Auðvitað veit ég að þú hefir gert það.“ Það var einstaklegá ánægjulegt Kveðja: Lydia Þorláksson, Stefán Niclas Stefánsson, Sigríður Magnúsdóttir, Ellen Svava Stefánsdóttir, Sigurður Einarsson, Hulda Stefánsdóttir, Sólveig Bára Stefánsdóttir, Erlingur Eyjólfsson og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, sonur, tengdasonur og bróðjr, MAGNÚS arnar SIGTRYGGSSON, Rjúpufelli 35, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 25. október kl. 13.30. Þeir, sem vilja minnast hans, vinsam- legast láti íþróttafélag fatlaðra, Hátúni 14, njóta þess. Louise Biering, Sigríður E. Magnúsdóttir, Kjartan Haraldsson, Sigtryggur A. Magnússon, Magnea K. Ólafsdóttir, Thelma Magnúsdóttir, Styrmir Magnússon, Guðbjörg Sigurpálsdóttir, Sigríður Biering og systkini. t Móðir okkar, amma og langamma, SNJÓFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, Kirkjuvegi 4, Vík í Mýrdal, sem lést 15. október, verður jarðsungin frá Víkurkirkju laugardag- inn 27. október kl. 13.00. Þeim, sem vildu mionast hennar, er góðfúslega bent á Víkurkirkju. Sígurbjörg Björnsdóttir, Jóna Björnsdóttir, Birna F. Björnsdóttir, Guðmundur Þorsteinsson, Helga E. Hermannsdóttir, Sigurður Æ. Harðarsson, Þórunn Ólafsdóttir, Ragnar Ólafsson, Steinunn Sigvaldadóttir og barnabarnabörn. Pálína Björnsdóttir Fædd 12. maí 1918 Dáin 4. júní 1990 Nú þegar ég er farin af landi brott, búin að kveðja alla mína vini, á ég enn eftir að kveðja eina góða konu. Pála mín er farin. Það er sárt að fá ekki lengur tækifæri til að sýna henni hversu vænt mér þótti um hana. Tækifæri til að launa henni allt það sem hún gerði fyrir mig. og móður mína. Söknuður og falleg minningin um hana mun fylgja mér alla ævi. Við tengdumst slíkum böndum að erfitt var að slíta. Vegir okkar Pálu lágu saman er ég var aðeins fjögurra ára gömul. Þeir skildust fjórum árum síðar. Þetta er ekki langur tími, en þeir atburðir sem við gengum í gegnum urðu til þess að tengja ókkur sterk- um tilfínningaböndum. Alltaf var jafn mikið tilhlökkun- arefni að fara til Eyja og vera hjá Pálu og Inga. Tekið var á móti mér opnum örmum og óendanleg hlýja streymdi frá þeim báðum. Hún vafði mig elsku sinni og kærleika. Hjá henni fann ég öryggi enda leið mér aldrei betur en þegar ég var úti í Eyjum. Pála lagði mikið upp úr matar- gerð og var snillingur á því sviði. Eg man enn hvað maturinn var góður hjá henni. Hún lagði oft á sig mikla vinnu í því sambandi og hafði gaman af. Hún saumaði mik- ið og ófá sjciptin kom ég heim með fullar töskur af nýsaumuðum fötum og prjónaðar peysur bæði á mig og móður mína. Pála mín hafði mikla þörf fyrir að hjálpa og gleðja annað fólk, þannig var hún stöðugt veit- andi. Jafnvel þegar hún átti sjálf um sárt að binda, reyndi hún að hugga og gleðja vini sína. Níu dögum fyrir andlát Pálu, í júnímánuði síðastliðnum, kom ég í heimsókn til hennar. Þá voru liðin fimm ár frá því við sáumst síðast. Við ræddum um erfiða hluti sem við höfðum aldrei rætt áður. Ég er sannfærð um að Guð leiddi mig til t Bróðir okkar, SIGURÐUR ÞÓRÐUR GUNNARSSON frá Brettingsstöðum á Flateyjardal, Holtsgötu 12, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 25. október kl. 13.30. Systkini hins látna. að hafa þau hjónin í heimsókn hér fyrir vestan, er 100 ára afmælis föður hans var minnst á Hólmavík. Þrátt fýrir að heilsu hans væri þá farið að hraka, lagði hann í þessa ferð ásamt systrum sínum og eigin- konu. Enn á ný hélt hann til Hólma- víkur í sumar, er minnisvarði um föður hans var afhjúpaður þar á 100 ára afmæli kauptúnsins. Þá var hann að vísu orðinn þjáður, en það varð undan að láta. Stundum nefndi hann við mig: „Ætli ég fái nú að lifa það að sjá þennan minnis- varða?“ Það tókst og Marteinn var rórri á eftir. Þegar ég svo kom til hans síðast virtist honum líða nokk- uð þolanlega, miðað við aðstæður. En kallið kemur. Einasta öryggið sem eigum, er í þennan heim fæð- umst, er gamli málshátturinn: „Eitt sinn skal hver deyja.“ Þá átti ég góða stund á heimili hans, eins og oft áður. Anna systir hans var hjá honum og margt var spjallað Þá datt mér vart í hug að þetta yrði kveðjustund okkar er ég varpaði kveðju á þau systkin. Eiginkonu, börnum og systrum, sendum við Torfhildur einlægar samúðarkveðjur. í huganum geym- um við minninguna um drenginn Martein, sem hét eftir fyrsta kaþ- ólska biskupnum á íslandi, eftir sið- askipti, því að drengur var hann góður. Hann hvíli í friði. Sigurður H. Þorsteinsson hennar þennan dag. Hann gaf okk- ur þá stund sem ég hafði beðið eftir í 13 ár og ef til vill hún líka. Ekki hvarflaði að mér þegar ég kvaddi hana að þetta væri mín síðasta kveðja til hennar. Við höfðum meira að segja ráðgert að ég kæmi til þeirra síðar um sumarið og myndi dvelja hjá henni og Inga, eins og forðum. Ég bið góðan Guð að blessa og varðveita elsku Pálu mína og gefa ástvinum hennar styrk til að lifa. áfram. Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér, hvert andartak er tafðir þú hjá mér var sólskinsstund og sæludraumur hár minn sáttmáli við Guð um þúsund ár. (Haildór Laxness.) Sigurbjörg Ó. Áskelsdóttir (Grein þessi er endurbirt vegna mistaka við vinnslu hennar.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.