Morgunblaðið - 24.10.1990, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1990
15
Látum ekki silja við orðin tóm!
eftir Karl Ormsson
Segja má að sjálfstæðisfólk
hafi beðið í 15-20 ár eftir að
Björn Bjarnason gæfi kost á sér
til starfa í forystusvejt sjálfstæðis-
manna á Alþingi. Ég sem aðrir
sjálfstæðismenn fagna því mjög
að fá svo mikilhæfan mann til að
styrkja enn betur þinglið flokks-
ins. Þótt Sjálfstæðisflokkurinn
hafi oftast gétað verið stoltur af
þingliði sínu er gott til þess að
vita að Björn Bjarnason komi nú
í fremstu víglínu á Alþingi ásamt
þeim sem fyrir eru. Til þess að
svo verði þurfum við að veita hon-
um stuðning í prófkjörinu á föstu-
dag og laugardag. Yfirskrift orða
minna er hvatning til þess fólks
er tekur þátt í prófkjöri flokksins
um að kjósa Björn Bjarnason, sem
fetar nú í fótspor föður síns, hins
mikilhæfa stjórnmálamanns
Bjarna heitins Benediktssonar.
Geir heitinn Hallgrímsson lá
eitt sinn undir ámæli fyrir að
hann tæki helst ekki mikilvægar
ákvarðanir án þess að ráðgast
fyrst við Matthías Johannessen,
Styrmi Gunnarsson, Eyjólf Konr-
áð Jónsson og Björn Bjarnason.
Betur að satt væri, sagði Geir,
ef ég gæti alltaf snúið mér til
slíkra ráðgjafa væri ég vel stadd-
ur.
Sjálfstæðisflokkurinn ætti nú
að geta bætt við sig nokkrum
þingsætum og er gott til þess að
vita að nóg er af góðu fólki í boði
í prófkjörinu. Ég er persónulega
andvígur opnura eða hálf-opnum
prófkjörum, og læt þá skoðun í
ljós, þótt mér sé fullkomlega
kunnugt um að þar tala ég ekki
í anda þess fijálslyndis sem er
grundvöllur sjálfstæðisstefnunn-
ar. Þar til annað og betra form
finnst til að velja frambjóðendur
tel ég alrangt að aðrir en þeir sem
sannanlega eru flokksbundnir
sjálfstæðismenn ráði hvaða fólk
skipar framboðslista þeirra. Þessi
skoðun mín byggist. að mestu á
sorglegum dæmum um að próf-
kjör hafa verið misnotuð herfi-
lega.
I prófkjörum er hætta á að
nöfn hæfra manna gleymist. Við
val á fulltrúum þarf að tryggja
hæfilega endurnýjun um leið og
hugað er að hlut kvenna og ungs
fólks.
Vil ég skora á alla sem taka
þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins að styðja Björn Bjarnason ein-
dregið.
Höfundur er raftækjavörður.
Karl Ormsson
Friðrik Sophusson
1. þingmaður Reykvíkinga
Ég hvet allt sjálfstæðisfólk í Reykjavík til að
taka þátt í prófkjörinu á föstudag og
laugardag. Látum prófkjörið verða upphaf
að öflugri sókn til sigurs í komandi
Alþingiskosningum.
Vestmannaeyjar:
Leiklest-
ur Helgu
og Helg*a
Vestmannaeyjum.
HJÓNIN Helga Bachman og
Helgi Skúlason voru með Ieik-
lestur í Eyjum fyrir skömmu.
Leiklestur þessi var á vegum
menningarmálanefndar Vest-
mannaeyjabæjar og Bókasafns
Vestmannaeyja og mæltist þetta
framtak mjög vel fyrir.
Leikararnir lásu úr Fjallkirkju
Gunnars Gunnarssonar, á Hraun-
búðum, dvalarheimili aldraðra, en
síðan lásu þau úr Brekkukotsannál
Halldórs Laxness í Bæjarleikhús-
inu.
Heimilisfólk á Hraunbúðum var
himinlifandi yfir heimsókninni og
þeir 60 gestir sem mættu í Bæjar-
leikhúsið rómuðu lestur leikaranna,
sem tókst á áhrifamikinn hátt að
glæða persónur sagnanna lífi.
Menningarmálanefnd bæjarins
fékk á síðustu ijárhagsáætlun 300
þúsund til að auka fjölbreytni í
menningarlífi Eyjamanna. Hluti
þeirrar fjárveitingar var notaður til
að fjármagna þessa heimsókn leik-
aranna en menningarmálanefnd
ráðgerir fleiri slíkar uppákomur á
næstunni.
Grímur
Suðureyri:
Skólabörn-
um gefin
endur-
skinsbelti
Suðureyri.
ÖLLUM börnum á Suðureyri á
skólaaldri ásamt bömum á leik-
skólaaldri hafa nú verið gefin
endurskinsskábelti.
Það var Björgunarsveitin Björg
á Suðureyri sem að stóð fyrir þessu
þarfa framtaki. Að sögn Jóhanns
Bjarnasonar formanns björgunar-
sveitarinnar varð þessi hugmynd til
hjá umferðarmálanefnd Slysavarn-
afélagsins á svæði 4, en sú nefnd
var skipuð fyrir tveimur árum og
sitja í henni fulltrúar af svæði fjög-
ur. Eitt verkefna hennar er að
vinna að umferðarfræðslu og auknu
umferðaröryggi. Þar var fulltrúi
björgunarsveitarinnar sem fór í
skólana og afhenti börnunum borð-
ana og flutti þeim jafnframt stutt
ágrip af sögu Slysavarnafélagsins.
- Sturla Páll.