Morgunblaðið - 24.10.1990, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1990
Sameining Þýskalands:
Sprenging í emb-
ættismamiakerfinu
Trier. Frá Steingrími Sigurgeirssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
SAMEINING þýsku ríkjanna virðist ætla að verða þýskum embætt-
ismönnum hin mesta búbót. Þrátt fyrir að fjárveitinganefnd þýska
þingsins hafi nýlega skorið tillögu Theodors Waigels, fjármálaráð-
herra, um fjölgun starfsmanna ríkisins, niður um þúsund stöðu-
gildi, virðist ekkert lát vera á útþenslu ráðuneytanna í Bonn. All-
ar tilraunir stjórnvalda til að hemja útþensluna hafa hingað til
dugað skammt. Undir því yfirskini að í kjölfar sameiningarinnar
þurfi að sinna ótal nýjum verkefnum hefur stöðugildum fjölgað
hömlulaust.
Fyrst ber auðvitað að nefna að
samhliða sameiningunni var ákveð-
ið að fimmtíu þúsund fyrrum emb-
ættismenn Austur-Þýskalands
myndu fá störf sem embættismenn
í Þýska sambandslýðveldinu. Flestir
hafa þeir fengið stöður mjög neðar-
lega í kerfinu sem sjálfkrafa hefur
orðið til þess að fjölga hefur þurft
stöðum ofar í kerfinu. Þær stöður
hafa þó í nánast öllum tilvikum
fyrrum vestur-þýskir embættis-
menn hlotið sem margir hveijir
hafa loksins fengið uppfylltan lang-
þráðan draum um stöðu- og kaup-
hækkun. Er talið að mörg hundruð
nýjar stöður allra efst í embættis-
mannakerfínu, þar sem mánaðar-
kaupið getur verið 400-600 þ'úsund
íslenskar krónur, hafi orðið til að
undanförnu.
Allar þessar stöðuhækkanir hafa
síðan sjálfkrafa orðið til þess ráða
hefur þurft fjölda nýrra embættis-
manna. Þegar til dæmis skrifstofu-
stjóri í einhveiju ráðneytinu var
settur í hærri nýtilbúna stöðu varð
deildarstjórinn að skrifstofustjóra
sem leiddi til þess að embættismað-
ur neðar í kerfinu varð að deildar-
stjóra og síðan koll af kolli þangað
til neðst í kerfinu varð að ráða
nýjan starfskraft. í íjármálaráðu-
neytinu í Bonn einu og sér er talið
að 119 háttsettir embættismenn
geti reiknað með stöðuhækkun.
í þýsku utanríkisþjónustunni má
einnig reikna með verulegri þenslu
vegna þess að íbúar þýska sam-
bandslýðveldisins eru nú 79 milljón-
ir í stað rúmlega 60 milljóna fyrir
skömmu þrátt fyrir að hún þurfí
ekki að sinna mörgum nýjum verk-'
efnum. Hefur utanríkisráðuneytið
farið fram á hátt á annað hundrað
nýjar stöður ofarlega í kerfinu.
Fyrrum starfsmenn austur-þýsku
utanríkisþjónustunnar eiga þó ekki
miklar framavonir. í nýlegu bréfi •
til Hans-Dietrichs Genschers, ut-
anríkisráðherra, mótmæltu þeir því
sem þeir kölluðu „pólitíska nif-
teindasprengju“ ráðherrans. Hann
tæki vissulega yfir húseignir
austur-þýsku utanríkisþjónustunn-
ar en enga starfsmenn í hærri stöð-
um en bflstjóra og dulmálssérfræð-
inga.
Enn er óvíst nákvæmlega hversu
mikil útþenslan í ráðuneytunum í
Bonn verður og hve mikið hún mun
kosta. Stjómmálamenn flestra
flokka virðast sammála um að hún
sé varasöm en engar leiðir virðast
vera til að stöðva hana. Peter
Struck, einn talsmanna Jafnaðar-
mannaflokksins (SPD) í ijármálum
ríksins, hefur til dæmis sagt að það
sé ljóst að öll ráðuneyti hafa misnot-
að sameininguna til að komast að
kjötkötlunum. Sams konar ummæli
hafa einnig komið frá talsmönnum
stjórnarflokkanna sem þar að auki
benda á að gert sé ráð fyrir að all-
ar nýju stöðurnar verið teknar til
endurskoðunar næsta vor. Það er
þó ekki talið líklegt að slíkar að-
gerðir muni sporna við einu eða
neinu. Eftir að fjárlögin hafa verið
samþykkt eru stöðurnar skipaðar
æviráðnum embættismönnum og
ekki verður hægt að hrófla við þeim
fyrr en þeir falla frá eða fara á
eftirlaun.
Bandaríkin:
Sérsveitir í sérþjálfun
Reuter
Liðsmenn sérsveita sovéska hersins, speznas, við karate-þjálfun. Myndin var tekin á æfingu í borginni
Weimar í Þýskalandi í vikunni og er þetta í fyrsta sinn sem fjölmiðlum er leyft að fylgjast með æfingum
þessara sveita Rauða hersins.
Bush segir kynþáttakvóta ekki
verða til að bæta kjör svertingja
Kennedy sakar stjórnina um að vera á móti borgaralegum réttindum
Washington. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti beitti á mánudag neitunarvaldi gegn
lagafrumvarpi sem miðar að því að auka möguleika þeldökkra og
kvenna á vinnumarkaði. Bush segir að frumvarpið í núverandi mynd
knýi vinnuveitendur til að taka upp kvóta við ráðningu starfsfólks og
því sé hann andvígur. Líklegt þykir að með þessari ákvörðun baki
Bush sér reiði kvenréttindasamtaka og baráttumanna fyrir réttindum
blökkumanna.
Yrði frumvarpið að lögum hefði
það sennilega rík áhrif á bandarískan
vinnumarkað. Hæstiréttur Banda-
ríkjanna hefur dæmt á þann veg að
launþegar sem verða fyrir mismunun
vinnuveitanda sökum kynferðis eða
kynþáttar eigi rétt á tryggingabót-
um. Samkvæmt frumvarpinu ættu
þeir rétt á skaðabótum að_auki og
greiðslu tapaðra launa. Einnig
myndu ákvæði frumvarpsins torvelda
vinnuveitendum að veija ákvarðanir
sem auka launamun milli kynjanna
eða ólíkra kynþátta.
Bush sagðist harma að þurfa að
beita neitunarvaldinu því margt gott
væri í frumvarpinu. Hann sagði að
það væri ætíð mikil freisting fyrir
stjómmálamann að styðja frumvarp
sem kennt væri við borgaraleg rétt-
indi en samviska sín byði sér að beita
neitunarvaldinu. „Þegar vel meint
viðleitni okkar leiðir til þess að tekn-
ir verða upp kvótar þá stuðlar það
síst að jafnrétti," sagði forsetinn.
Edward Kennedy, öldungadeildar-
þingmaður demókrata, er einn helsti
flutningsmaður frumvarpsins. Hann
gagnrýndi Bush harðlega og sagði
það óforsvaranlegt bragð að höfða
til fordóma og kenna frumvarpið við
kvóta. Þegar öllu væri á botninn
hvolft væri ríkisstjórnin „á móti
borgaralegum réttindum".
John Conyers, þeldökkur öldunga-
deildarþingmaður demókrata, tók í
sama streng og sagði að með þess-
ari ákvörðun hefði forsetinn í raun
treyst böndin milil blökkumanna og
Demókrataflokksins. Líklegt er talið
að frumvarpið verði hitamál í þing-
kosningunum 6. nóvember næstkom-
andi.
Þetta er í fimmtánda skipti sem
Bush beitir neitunarvaldi gegn frum-
vörpum þingsins. Þingið getur
hnekkt neitunarvaldinu með því að
samþykkja frumvörp á ný með tveim-
ur þriðju hlutum atkvæða en til þess
hefur ekki komið í forsetatíð Bush.
Yfirmaður KGB:
Gordíjevskíj ekki refs-
að snúi hann heim
Moskvu. Daily Telegraph.
VLADÍMÍR Krjútsjkov, yfirmaður sovésku Ieyniþjónustunnar, KGB,
segir að njósnarinn Oleg Gordíjevskjj verði ekki dreginn fyrir rétt
og honum refsað snúi hann til Sovétríkjanna.
Kijútsjkov sagði á blaðamanna-
fundi í Moskvu á mánudag að
Gordíjevskíj væri fijálst að snúa til
Sovétríkjanna. „Honum stendur til
boða að sameinast ijölskyldu sinni,
búa sem fijáls maður í Moskvu og
stunda þar atvinnu,“ sagði yfírmað-
ur KGB. Talið er að burtséð frá
þessum loforðum hafí KGB áhuga
á að fá Gordíjevskíj í heimsókn til
höfuðstöðva sinna í Ljúbjanka-
fangelsinu til að rifja upp fyrri tíma.
Gordíjevskíj er æðsti maður so-
vésku leyniþjónustunnar sem flúið
hefur til Vesturlanda. Hann var á
sínum tíma yfirmaður KGB í Bret-
landi en tók þá ákvörðun að flýja
1985 þegar honum varð ljóst að
KGB væri komin á slóð hans.
Gordíjevskíj var bresk „moldvarpa“,
hafði verið á mála hjá bresku leyni-
þjónustunni og veitt henni mikil-
vægarí upplýsingar síðustu 11 árin
sem hann starfaði fyrir KGB.
Þingkosningar í Pakistan:
Þungum áróðri beint
gegn Benazir Bhutto
Quetta í Pakistan. Frá Davíð Ólafssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
MIKILL áhugi er hér í Pakistan á þingkosningunum sem fram fara
í dag, miðvikudag, að öllu óbreyttu. Hvað sem kosningunum líður
verður ekki sagt að Pakistan sé lýðræðisríki; forsetinn, Gulam Ishaq
Khan, og hernaðaryfirvöld stjórna þessu landi. Blaðamenn og ritstjór-
ar, sem fréttaritari hefur rætt við eru allir á sama máli; meirihluti
þjóðarinnar styður Benazir Bhutto, sem rekin var úr embætti forsæt-
isráðherra í byijun ágúst, sökuð um spillingu, og flokk hennar, Þjóð-
arflokkinn. En þungum áróðri er beint gegn henni.
Benazir Bhutto berst fyrir þyí
að velferðarþjóðfélagi að vestrænni
fyrirmynd verði komið á í Pakistan.
Hún höfðar einkum til bænda og
lágstéttanna í þjóðfélaginu. En
kerfið er að sönnu furðulegt. Hér
borgar enginn tekjuskatt og þeir
sem eiga að greiða skatta koma sér
undan því. Velferðarþjóðfélag kall-
ar á skattakerfi en nú eru aðeins
greiddir skattar af bifreiðum og
munaðarvarningi allt að 100%. Sagt
er að herinn taki allt að 60 prósent
af þjóðartekjunum, eitt prósent fari
til menntamála og eitt prósent í
heilbrigðiskerfið. Þessi forgangs-
röðun hefur vitanlega sín áhrif enda
er barnadauði um 20%.
Heróínsmygl til Vesturlanda
í þessu landi er ekkert skipulagt
nema herinn. Hermennirnir eru vel
menntaðir og kjósa að halda
ástandinu óbreyttu. En þessi mála-
flokkur er fjárfrekur og það er á
allra vörum hér að herinn stundi
gífurlegt heróínsmygl til Vestur-
landa. Einn helsti styrkur heraflans
er forsetaembættið og um það hef-
ur hann alltaf staðið vörð. Fullyrt
er að yfirmenn heraflans reyni að
skapa sundrungu í þjóðfélaginu til
að tryggja eigin völd. Sýnt þykir
að á meðan herinn er þetta sterkur
muni Benazir Bhutto aldrei ná
markmiðum sínum fram.
Að undanförnu hefur-mjög verið
um það rætt að kosningunum verði
frestað. Þar með tækist að skapa
sundrungu og hleypa af stað óeirð-
um og upplausn sem eru kjörlendi
herafla Pakistans. Ráðamenn innan
hersins og eiturlyfjamafían beijast
af öllum mætti gegn Benazir
Bhutto. Ákærur þær sem beint var
gegn henni mætti heimfæra upp á
flesta ef ekki alla í stjórnkerfi lands-
ins. Herinn reynir einnig að höfða
til ómenntaðara múslima og því er
haldið fram að samkvæmt íslamskri
trú geti konur ekki gegnt embætti
forsætisráðherra. Bhutto hefur sem
kunnugt er barist fyrir auknum
áhrifum og frelsi kvenna í Pakistan
og hún setti einnig á stofn ráðu-
neyti til höfuðs eiturlyfjamafíunni.
Kosningasvik og sigurvissa
Viðmælendur Morgunblaðsins
voru á einu máli um að stórfelld
kosningasvik færu jafnan fram hér
í landi, fé væri borið á menn til að
tryggja að þeir kysu rétt og eftir-
lit, t.a.m. af hálfu Sameinuðu þjóð-