Morgunblaðið - 24.10.1990, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1990
RAÐGREIÐSLUR
RÍJMIÐ
GRENSÁSVEGI 12, SÍMI 678840
Burt með öll álver — Vernd-
um lífríki náttúrunnar
eftirHuldu
Bjarnadóttur
Þegar núverandi ríkisstjórn tók
við völdum lýsti Steingrímur Her-
mannsson, forsætisráðherra, því
yfir í fjölmiðlum með mörgum og
fögrum orðum að stjórnin ætlaði
að láta náttúruverndarmálin til sín
taka svo um munaðrog þau yrðu
sett á oddinn.
Illu heilli fékk iðnaðarráðherra
þá flugu í höfuðið að eiturspúandi
verksmiðja væri eina bjargráð ís-
lendinga og hefur lagt til að risa-
stórt álver verði reist hér á landi
og hefur síðan barist fyrir þessari
draumsýn sinni með hnúum og
hnefum. En viti menn, iðnaðarráð-
herra var ekki fyrr búinn að koma
þessari hugljóman sinni á framfæri
en karlveldið í landinu rauk upp til
handa og fóta, nú skyldi gæsin
gripin, hver og einn vildi fá álverið
í sitt byggðarlag og síðan hafa þeir
barist um hvar báknið eigi að
standa. Skítt með alla mengun.
Enda þótt því hafi verið lýst yfir
að svo gæti farið að um 50 blómleg
býli við Eyjafjörð myndu líða undir
lok af völdum mengunar frá álver-
inu og verða eyðingu að bráð virð-
ast Eyfírðingar vera tilbúnir að
færa svo dýra fórn fyrir eiturspú-
andi álver, sem hefur þó ekki upp
á meira að bjóða en sex hundruð
stöðugildi.
Skylt er þó að taka fram, að
ekki eru allir Eyfírðingar þessari
sök seldir, því frammámenn í sveit-
arstjórn og félagsmálum í öllum
sveitarfélögum Eyjafjarðarsýslu ut-
an Grímseyjarhrepps, auk tveggja
hreppa í Þingeyjarsýslu, alls á
íjórða tug manna, hafa sent forsæt-
isráðherra bréf, þar sem áiverinu
er hafnað.
Og nú rembist iðnaðarráðherra
eins og ijúpan við staurinn að koma
þessu álveri sínu á lappirnar, og
bíður í ofvæni eftir álfurstunum til
að stika út landið.
Islenskum stjórnmáiamönnum er
annað betur gefið en að semja við
erlendar þjóðir og hættir til að
semja af sér eins og dæmin sanna
í gegnum árin. Fáránlegt er að við
skulum enn vera að selja álverinu
í Straumsvík raforku til að menga
landið okkar og kominn tími til að
við losum okkur við þennan klafa
og segjum upp öllum samningum
við fyrirtækið svo það geti horfið
af landi brott hið bráðasta. Álveríð
hefur verið ljótur blettur á landinu,
fyrir nú utan mengunina sem af
því hefur stafað.
En stjómmálamennirnir hafa
ekkert lært og eru enn við sama
heygarðshornið. Furðulegt er að
þeir skuli iáta sér detta í hug að
reisa þetta margumtalaða álver
með öllum þeim kostnaði sem það
hefur í för með sér, og ætla svo í
ofanálag að gera áratuga langa
samninga við erlenda aðila án þess
að vita neitt um hvað framtíðin ber
í skauti sér. Þetta er glæfraspil, sem
engu tali tekur. Ég held að karlveld-
ið í landinu sé búið að tapa glórunni.
Sýknt og heilagt sér maður í
sjónvarpinu starfsmenn álversins
að verki og manni hrýs hugur við.
Þetta er starf sem er hættulegt
heilsu þeirra, sem við það fást og
ekki mönnum bjóðandi.
Nær væri að leggja þá peninga
Hulda Bjarnadóttir
„Ég held að karlveldið
í landinu sé búið að tapa
glórunni.“
til landbúnaðarins, sem ætlaðir eru
álverinu, því landbúnaðinn verður
að efla eins og kostur er. ísland
hefur brauðfætt okkur íslendinga
hingað til, bæði til lands og sjávar.
Við eigum bestu fískimið í heimi
og við eigum besta kindakjöt í
heimi, ef það er rétt meðhöndlað
og ekki haft of feitt og yrði vanda-
laust að selja það til útflutnings
rétt eins og fískinn okkar, ef rétt
er á haldið. Verði landbúnaðurinn
lagður í rúst hefur ísland misst
ásjónu sína.
Heimurinn er að farast vegna
mengunar af eiturspúandi verk-
smiðjum hvarvetna í heiminum. í
lífríki náttúrunnar fækkar tegund-
unum jafnt ogþétt. Heilu landflæm-
in þorna upp og skógamir skrælna
og eyðast og allt er þetta af manna-
völdum. Mennirnir hafa brotið lög-
mál náttúrunnar, og enginn veit
hver endalokin verða. Vísindamenn-
irriir hafa ekki kunnað sér hóf með
öllu brambolti sínu og geimflauga-
skotum út í geiminn, án þess að
vita hvaða dularöfl þeir kunna að
hafa leyst úr læðingi með þessu
háttalagi sínu. Kannski eru afleið-
ingarnar að koma í ljós, ef marka
má nýjustu fréttir um hættuiegt
„rusl“ sem fundist hefur í himin-
hvplfínu.
ísland hefur fengið orð á sig fyr-
ir að vera ómengað land og ef það
fær haldið því áliti í augum heims-
ins mun Islendinga ekki skoila
verkefni. Hvað er það, sem við ís-
lendingar getum stært okkur af?
Það er hreint vatn og tært loft. Við
skulum ekki vanmeta það. Við höf-
um séð á skjánum skolpið, sem fólk-
ið í vanþróuðu löndunum verður að
leggja sér til munns og okkur hryll-
ir við. Hvorki menn, dýr né gróður -
fá lifað án vatns. Allan heiminn
þyrstir í vatn; hreint vatn, lífsins
vatn, en það eigum við. Við eigum
auðlind sem gæti bjargað lífheimin-
um og það er hreina vatnið okkar,
og ef við höfum vit á að nýta okk-
ur það til útflutnings erum við á
grænni grein, því ekki myndi skorta
eftirspurnina. Það yrði slegist um
vatnið okkar, einnig fískinn og kjöt-
ið því heiminn vantar mengunarlaus
matvæli. Atvinnuvegir landsmanna
myndu blómstra frá fjalli til fjöru.
Látum alla áldrauma lönd og leið
og snúum okkur að raunhæfari
verkefnum og ábatasamari.
Við kjósum ekki þá menn til Al-
þingis, sem ætla sér að gera Island
að mengunarsvínastíu með stóriðju-
draumum sínum.
Hefjumst handa!
Við getum gert ísland að gósen-
landi, ef við höfum vit til.
Höfundur hefur um árabil skrifað
um baráttumál kvenna.
Aðalfundur Barnaheilla í dag
FYRSTI aðalfundur samtakanna
Barnaheilla verður haldinn 24.
október á degi Sameinuðu þjóð-
anna í Lágmúla 5, 4. hæð, kl.
20.30. Samtökin voru stofnuð
fyrir réttu ári til að vinna að
öllum hagsmuna- og réttindamál-
um barna.
Að loknum hefðbundnum aðal-
fundastörfum mun Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
greina frá leiðtogafundi Sameinuðu
þjóðanna um málefni barna og
Arthur Morthens varaformaður
Barnaheilla mun segja frá ferð á
aðalfund Red Barnet í Danmörku.
Samtökin héldu fyrstu ráðstefnu
sína 27. apríl sl. þar sem vakin var
sérstaklega athygli á því að íslend-
ingar legðu meiri ábyrgð á ung
börn en heppilegt er fyrir þroska
þeirra og öryggi. Innan tíðar verða
haldnar ráðstefnur um réttindi
barna, vegalaus börn og barnaslys.
Hollenska söngkonan Elly Amel-
ing og undirleikari hennar Dalton
Baldwin halda jólatónleika til
styrktar samtökunum í Háskólabíói
16. desember nk. Einnig mun
barnakór Öldutúnsskóla syngja á
tónleikunum. Á dagskrá verða ýmis _
lög eftir Schubert og Brahms svo
og jólalög frá Þýskalandi, Spáni og
fleiri stöðum.
Ný sending af glæsilegum9
þýskum rúmum frá LIPARI
..*.. ■ WMTW.'B'l.a !