Morgunblaðið - 24.10.1990, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 24.10.1990, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1990 35 Byggðastefna — helstefna íslensku þjóðarinnar eftir Steinþór Olafsson í allri umræðunni um byggða- stefnu hefur spurningunni um, hvort „byggðastefnan" sé rétt og skynsamleg aldrei verið svarað. Það- er ekki sjálfgefið að dreifð byggð í landinu sé hagkvæm og fjárhags- lega skynsamleg. Hver eru hin raunverulegu rök fyrir að viðhalda dreifðri byggð í landinu? Hver eru hin fjárhagslegu rök? Flest rök mæla í raun á móti byggðastefnu. í fyrsta lagi þá kostar byggðastefn- an samfélagið óhemju fjármuni á hveiju ári, t.d. með illa nýttum íjár- festingum, í hafnargerð, vegagerð (Ólafsfjarðargöngin), flugvalla- gerð, skólabyggingum, heilsugæsl- ustöðvum, stjórnsýsluhúsum o.s. frv. í öðru lagi þá er byggðastefnan okkur dýr vegna styrkja til lands- byggðarinnar, jöfnunarsjóða, vegna niðurgreiddra lána, vegna styrkja Og fyrirgreiðslna í gegnum Byggða- stofnun, glatað hlutafé í fyrirtækj- um á landsbyggðinni, með styrkjum til landbúnaðarins í formi búvöru- samninga, niðurgreiðslna, o.s.frv. Mér er ekki kunnugt um, að gerð hafi verið heildarúttekt á þeim kostnaði, sem samfélagið verður Steinþór Ólafsson „Markaðsöflun mun ráða byggðamálum á íslandi og allar þving- unaraðgerðir munu leiða til efnahagslegs hruns.“ fyrir vegna byggðastefnunnar, sem þó er fyllilega tímabært að gera. Oft heyrist sú fullyrðing að lands- byggðamenn afli megin hluta gjald- eyristekna ríisins og því eigi þeir að fá meir úr sameiginlegum sjóð- um samfélagins en aðrir. Stað- reyndin er sú að búseta skiptir engu máli um hvert sjómenn fara til að sækja aflann, eins og sést best á kvótasölunum. Þess vegna væri hægt að gera öll fiskiskip út frá Reykjavíkr Núverandi kvótakerfi hefur raskað byggð í landinu miklu meir en flest annað, þ.e. með því að kaupa upp kvótann og þar með lífsviðurværið, í mö'rgum bæjum og þorpum. Kvótastefnan og byggða- stefnan stangast á. Sagan segir okkur, að það er ekki hægt að þvinga fram búsetu með valdboði, eins og komið hefur fram í austan- tjaldsríkjunum. Markaðsöflun mun ráða byggðamálum á íslandi og all'ar þvingunaraðgerðir munu leiða til efnahaglegs hruns, enda er byggðastefnan ótrúlega lík miðstýr- ingarkerfi austantjaldsríkjanna. Eina raunhæfa byggðastefnan er að auka tiltrú landsbyggðarfólks á tilveru sinni úti á landi og um leið verður landsbyggðarfólkið að vera raunsætt í mati á þeim aðstæð- um sem það lifir við, þ.e. fámennið. Það er staðreynd að 5% þjóðarinnar býr á landsvæðinu frá Langanesi til Skeiðarársands, sem er um 25% af landrými íslands. 5% er aðeins um 13.000 manns. í dag er mikið rætt um 3ja stjórn- sýslustigið, sem lausn á lands- byggðarflóttanum. 3ja stjórnsýslu- stigið stefnir að því að skipta landinu upp í lén eða fylki. Þetta getur reynst vel í milijónasamfélög- um. En er þetta raunhæft í okkar fámenna samfélagi? í umræðunni er ekki sagt hvern- ig á að skipta tekjum og gjöldum á milli fylkja og ríkis. Skatttekjur ríkisins fara hlutfallslega meir út til landsbyggðarinnar en til höfuð- borgarsvæðisins miðað við fólks- fjölda. Það er hvimleitt að þurfa að hlusta á stöðugar kvartanir og kröfur frá landsbyggðinni á ríkis- stjórnina um úthlutun á fyrirtækj- um og stofnunum, án þess að leggja fram skynsamleg fjárhags- leg rök fyrir kröfunum. Kröfurnar eru gerðar í rómantískri hugljómun um byggðastefnu. Grundvallaratriðið er samt þetta: íslendingar verða að hefja umræður um hvort byggðastefnan sé fram- kvæmanleg og fjárhagslega skyn- samleg. Jafnvel þótt grannþjóðirnar reki byggðastefnuna með sömu markmið og við, þá þýðir það ekki endilega að hún sé af hinu góða fyrir þjóðfélagið. All flest rök benda aftur á móti til þess að hún geti ekki annað en leitt íslensku þjóðina í veruleg efnahagsleg vandræði, jafnvel gjaldþrot. Islendingar verða að liætta við byggðastefnuna og láta íjárhagslegar forsendur stjórna byggð í landinu. Iíöfundur er sölumadur á fasteignasölu. Árni Jónsson, tannlæknir og læknir Hef opnað tannlækningastofu í Austur- bæjarapóteki, Háteigsvegi 1. Viðtalsbeiðnum er veitt móttaka í síma 626035. Hið opinbera og byggðaröskun eftir Pétur Bjarnason Keilisnes hefur verið valið undir álver. Sú ákvörðun er byggðaþróun- ariegt slys. Álverið mun skapa 1.800 ný störf á atvinnusvæðinu í og umhverfis Reykjavík, þar af munu 600 manns starfa í álverinu sjálfu. Til viðbótar koma svo tíma- bundin störf vegna byggingarfram- kvæmda. Áhrifin af þessari ákvörðun verða tvenns konar, þensla eykst á Reykjavíkursvæðinu, þar sem þenslan er mest fyrir. Atvinnu- ástand út um land mun daprast, og má síst við því. Gagnaðgerðir hins opinbera Yfirvöld hafa ráð til þess að milda áhrif þessa slyss, sem ákveð- ið hefur verið. Yfirvöld hafa allt frá fyrstu tíð ýtt óeðlilega mikið undir byggð í Reykjavík. Þannig er það regla að ef hægt er að koma því við að staðsetja opinberar stofnanir í Reykjavík, þá er það gert. Oháð því hvort einhver sérstök rök hníga að því eða ekki. Yfirvöld geta nú, alveg eins og þau áður hafa sett störf á vegum hins opinbera niður í Reykjavík, ákveðið að flytja þau út á land. Það er eðlilegt markmið að flytja 1.800 opinber störf út á land í fyrsta áfanga. Væri það gert myndu þenslu- áhrif álversins á Reykjavíkursvæð- inu mildast, og þar með myndu erfiðleikar þeirra vegna minnka. Hins vegar myndu ýmsir þéttbýlis- staðir út um land styrkjast og fá kjölfestu, sem tilfinnanlega hefur vantað. Flutningur ríkisstofnana Það er mikilvægt að vanda vel ákvarðanir varðandi flutning opin- berra starfa út á land. Verkið þarf að vinnast markvisst og markmiðin skýr. Margrét Tómasdóttir forstöð- umaður hjúkrunardeildar Háskól- ans á Akureyri upplýsti nýlega á fundi, að ef fjöldi lækna og hjúkr- unarfræðinga í opinberri þjónustu einnig höfuðborgarinnar gætu ekki fundið þarfara verkefni en að finna markmið og leiðir til þess að dreifa þeim störfum, sem þeir hafa vald yfir um landið. Þarf nokkuð nema vilja til þess? Höfundur er markaðsstjóri hjá Istess hf. Pétur Bjarnason „Yfirvöld geta nú, al- veg eins og þau áður hafa sett störf á vegum hins opinbera niður í Reykjavík, ákveðið að flytja þau út á land.“ væri hlutfallslega, miðað við íbúa- fjölda, sá sami á Akureyri og er í Reykjavík, þá þyrfti læknum að fjölga um 43 á Akureyri og hjúkr- unarfræðingum um 74. Afleidd störf af slíkri ijölgun sérmenntaðs fólks á Akureyri yrði 185. Sambæri- legar tölur fyrir Sauðárkrók væru 17 læknar og 30 hjúkrunarfræðing- ar, og fyrir Húsavík 16 læknar og 34 hjúkrunarfræðingar. Væri það ekki verðugt markmið í heilbrigðismálum að stefna á að stöðugildi lækna og hjúkrunarfræð- inga á helstu þéttbýlissvæðum landsins yrði svipað og í Reykjavík, með því að flytja verkefni á heil- brigðisgeiranum út á land? Verkefni Alþingis Þingmenn og þingmannakandid- atar landsbyggðarinnar og reyndar M^ M M M ►4 M ►4 M ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 M ►4 M ► 4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 M ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 M ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ► 4 ►4 ►4 ►4 M ► 4 M ►4 ►4 M ►4 M ►4 M ►4 ►4 M ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4.. tA.AAAAAAAAAAAAAikAA.AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA STORSYNINGIN DYRIÐ GENGUR LAUST RÍÓ TRÍÓ í 25 ÁR ásamt stórhljómsveit Gunnars Þórðarsonar Stórkostleg 18 manna sýning - Glæsilegur matseðill - Skemmtistaðurá heimsmælikvarða - 'öCltiO seýir: ,Þvílík skemmturt. “„ Við höfum ekki skemmt okkur e/ns velífleiri ár. “ „Stemningin var rosaleg. “ Borðapantanir í símum 77500 og 78900 Miðaverð kr. 3.900,-. Eftir kl. 23.30 kr. 700.- Snyrtllegur klæðnaður Hljómsveit Gunnars Þórðarsonar leikur fyrir dansi ásamt söngvurunum Helgu Möller og Eyjólfi Kristjánssyni HllfVAMII SÍMI77500 I MJCDD C k I*' 1 •74 ►4 M ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 M ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 ►4 M M ►4 M ►4 ►4 >►4 ►4 M W4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.