Morgunblaðið - 24.10.1990, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1990
39
Alfreð Gíslason
læknir - Minning
Méð fáeinum orðum langar mig
að minnast Alfreðs Gíslasonar
læknis sem lést 13. þ.m.
Veturinn 1963 réðu fjórir ungir
læknanemar sig að Elliheimilinu
Grund til að aðstoða lækni heimilis-
ins við störf sín. Læknisstofa var
opin á morgnana og skiptum við
með okkur aðstoðarstörfunum.
Þetta var annað árið okkar í
læknisfræði og við lítt fróð um
sjúklinga og sjúkdóma þeirra enda
slíkt ekki kennt í fyrsta hluta náms-
ins þá. Það var því bæði lærdóms-
ríkt og spennandi fyrir áhugasama
busa sem enn voru bundnir við bók-
lestur að komast í beina snertingu
við raunveruleg læknisstörf. Sú
reynsla sem við fengum þarna var
mjög fjölbreytileg og þrátt fyrir það
að þeir sem leituðu læknis væru
allir komnir nokkuð á efri ár gaf
hún glögga mynd af erilsömu starfi
heimilislæknisins.
í reynsluleysi mínu þá fannst
mér handleiðsla Alfreðs Gíslasonar
öllu máli skipta og enn betur sé ég
það nú hve mikils virði hún var
okkur byijendum en Alfreð var
læknir elliheimilisins um margra
ára skeið.
Alfreð var hæglátur, dagfars-
prúður maður með góðlátlega kímn-
igáfu. Hann hafði mótaðar skoðanir
og sat reyndar á Alþingi á þeim
tíma og ræddi þjóðmál sem önnur
yfír morgunkaffínu þó hann Ieitaði
ekki eftir ágreiningi. Hann sýndi
sjúklingum sínum hlýju og vinsemd
og ævinlega fyllstu virðingu. Það
var sama hve manneskjan var elli-
hrum eða hvernig hún var á sig
komin, ávallt sýndi hann sama við-
mót. Það virtist honum eðlislægt
og sprottið af samkennd og skiln-
ingi á mannlegum örlögum. Um
leið og hann kenndi okkur að skoða
sjúklingana, greina sjúkdómsein-
kennin og beita meðferð sagði hann
frá merkri lífssögu margrar gamall-
Aðalgeir Valgeirs-
son - Kveðjuorð
Fæddur 5. september 1990
Dáinn 18. október 1990
Guð í náðar nafni þínu
nú til hvíldar legg ég mig.
Hvíl þú nú í hjarta mínu,
helga það svo elsk’ ég þig.
Góði Faðir gættu mín.
Gefí blessuð mildin þín,
að í friði sætt ég sofi
síðan þig, er vakna, lofi.
(Bænabók útg. '47 sb. nr. 548)
Aðalgeir, systursonur okkar, var
fimmta bam foreldra sinna Aðal-
bjargar S. Einarsdóttur og Valgeirs
Guðmundssonar á Akranesi, fal-
legur, bjartur hnokki, heilbrigður
og efnilegur. Með yndislegt bros
sitt og íhugult augnaráðið, og með
tilveru sinni allri hið örstutta ævi-
skeið var hann sannkallaður gleði-
gjafi. En í einu vetfangi var honum
kippt í burtu, hann sofnaði vært
að kveldi og vaknaði ekki meir.
Flestir taka velgengni, lífi og
heilsu sem sjálfsögðu, en nú höfum
við aðstandendur Aðalgeirs litla á
óvæginn hátt verið minnt á að
„mennimir ætla en Guð ræður“.
Við spyijum um tilganginn með
þessu öllu, en við því er ekkert svar.
Elsku Aðalbjörg, Valgeir, Einar,
Guðmundur, Bergþóra og Valgerð-
ur, megið þið öðlast styrk á sorgar-
stundu.
En er tárin heitu hrynja,
harmi lostnu bijóstin stynja.
Huggun fær sú vissa veitt,
að ei verður heilög höndin
hans er ástar tengdi böndin,
stoð að veita stutt né þreytt.
(Bænabók útg. ’47 sb. 379, 2)
Við kveðjum lítinn frænda, hann
veri Guði falinn.
Auður og Freyja
Fæddur 25. október 1922
Dáinn 15. október 1990
Haukur hóf störf hjá innheimtu-
deild borgarsjóðs Reykjavíkur á
árinu 1971 og starfaði þar óslitið
síðan, þar til hann sagði upp störf-
um á sl. sumri, sökum þess sjúk-
dóms, er varð honum að aldurtila.
Að loknu námi úr Verslunarskóla
íslands starfaði Haukur hjá ýmsum
fyrirtækjum, og gat sér ætíð gott
orð, enda vom honum ætíð falin
ábyrgðarstörf.
Haukur reyndist í starfi hjá
Reykjavíkurborg sem annarsstaðar
mjög áreiðanlegur og lagði allt kapp
á að störf hans mættu vera óaðfinn-
anleg.
Haukur var félagslyndur, kátur
og glaðlyndur alla jafna og tókst
alltaf að koma auga á hinar skop-
legu hliðar á tilverunni, svo einkar
ánægjulegt var að eiga hann sem
starfsfélaga. Hann átti þó sínar al-
vörustundir í lífinu eins og aðrir
dauðlegir menn, sem hann flíkaði
lítt. Konu sína Dóm Líndal missti
Haukur árið 1989 eftir langa og
erfíða sjúkdómslegu hennar og
saknaði Haukur hennar mjög.
Við starfsfélagar Hauks söknum
hans sem ágæts félaga og góðs
drengs, ssem svo snöggt hvarf úr
hópnum.
Óllum aðstandendum sendum við
alúðar samúðarkveðjur.
Starfsfólk á Borgarskrifstofum
ar konu eða manns, af nærfærni
og samúð.
Við lærðum þ'ví ekki einungis
handbrögðin og æfðum augun við
sjúkdómsgreininguna eða lögðum
læknismeðferð á minnið heldur
kenndi Alfreð okkur einnig með
fordæmi sínu hvernig koma á fram
við hveija manneskju af kurteisi
og hlýju.
Fyrir þetta verðmæta veganesti
vil ég nú þakka af einlægni og
sendi ættingjum og ástvinum Al-
freðs Gíslasonar innilegar samúðar-
kveðjur.
Blessuð sé minning hans.
Guðrún Agnarsdóttir
Birting af-
mælis- ogminn-
ingargreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargrein-
ar til birtingar endurgjalds-
laust. Tekið er við greinum
á ritstjórn blaðsins á 2. hæð
í Aðalstræti 6, Reylqavík
og á skrifstofu blaðsins í
Hafnarstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
Haukur Helgason
fulltrúi - Minning
BLOM
SEGJA AILT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
bWémmdl
Opið alla daga frá kl. 9-21.
Sími 689070.
ERFISDRYKKJUR
Tökum að okkur að sjá um erfisdrykkjur, stórar og
smáar, í glænýjum og notalegum sal, Asbyrgi.
Upplýsingarí síma 91-687111.
tiOTEL ]g>LAND
Breiðablik, nýja húsið fyrir aldraða.
Neskaupstaður:
Morgunbladid/Agúst Blöndal
*
Ibúðir aldraðra afhentar
Nesk.aupstað.
NÝLEGA voru teknar formlega
í notkun hér 9 íbúðir fyrir aldr-
aða í Breiðabliki, sjö þeirra voru
byggðar á vegum Neskaupstaðar
en sín hvor ibúðin á vegum Norð-
fjarðarhrepps og Mjóafjarðar-
hrepps.
Við afhendingu íbúðanna fluttu
ávörp Stefán Þorleifsson formaður
byggingarnefndar hússins, Ásgeir
Magnússon bæjarstjóri og sóknar-
presturinn, séra Svavar Stefánsson,
flutti bæn. Lúðvík Árnason bygg-
ingarmeistari á Stöðvarfirði sá um
uppsteypu hússins en ýmsir verk-
takar hér um aðrar framkvæmdir.
Nú er í Breiðabliki 21 íbúð fyrir
aldraða. Talsverður fjöidi fólks var
við athöfnina.
- Ágúst
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
SIGURBJARTUR VILHJÁLMSSON
húsasmíðameistari,
Skúlaskeiði 10,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 25. októ-
ber kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á hjúkrunarheimilið Sól-
vang, Hafnarfirði.
Þuríður Magnúsdóttir,
Sigrún Sigurbjartsdóttir, Halldór Hjartarson,
Ragnheiður Sigurbjartsdóttir, Ingólfur Halldór Ámundason
og barnabörn.
t
Þökkum samúð og hlýhug vegna fráfalls
SIGRÍÐAR SIGURBJARNADÓTTUR
Ásta Sigurbjarnadóttir,
Soffía Sigurbjarna,
Edda Herbertsdóttir og fjölskylda.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
sonar okkar, dóttursonar og frænda,
PÉTURS VALDIMARS SÆVARSSONAR,
Perth, Ástralíu.
Maggý Valdimarsdóttir, Grétar Jónsson,
Elísabet Árnadóttir, Valdimar Jónsson,
Guðný Valdimarsdóttir.
t
Þökkum af alhug öllum þeim, sem vottuðu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður, tengda-
föður, afa og langafa okkar
PÁLS LÍNBERGS EMILSSONAR,
Löngumýri 32,
Akureyri.
Þórhildur Skarphéðinsdóttir,
Jónína Pálsdóttir, Ásta Pálsdóttir,
Rósa Pálsdóttir, Arnór Þorgeirsson,
Páll Þ.Ó. Hillers, Guðmurfdur Garðarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
INDRIÐA HALLDÓRSSONAR,
múrara.
Guð blessi ykkur öll.
Ólöf Ketilbjarnar,
Kolbrún Dóra Indriðadóttir, Guðmundur Guðveigsson,
barnabörn og barnabarnabörn.