Morgunblaðið - 24.10.1990, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1990
CB FORHITARAR
MIÐSTÓÐVARHITARAR
og
NEYSLUVATNSHITARAR
Mest seldu FORHITARAR
landsins
r
LANDSSMIÐJAN HF.
Verslun: Sölvhólsgötu 13
Simi (91)20680
Tónlistar-bar
Vitastíg 3, sími 623137
Miðvikud. 24. okt. kl. 20-01
Kl. 21.30:
BLÚSKVÖLD
K.K.
Kristján Kristjánsson gítar,
söngur,
Ásgeri Óskársson trommur,
Eyþór Gunnarsson hljómborð,
Sigurður Flosason saxafón,
Þorleifur Guðjónsson bassi.
Það borgar sig að mæta
timanlega i kvöld!
Fimmtud. 25. okt. kl. 20-01
Kl. 21.30:
KÁNTRÝKVÖLD
SVEITIN og ný íslensk kántrý-
söngkona sem hefur gert það
gott í Sviþjóð
SIGRÚN SIGURÐARDÓTTIR
Kvöld sem margir hafa
beðið eftir!
Föstud. 26. okt. kl. 20-03
STONES-KVÖLD kl. 22:
SVEITIN MILLISANDA
byrjar á þægilegu órafmögnuðu
efni (a la Crosby, Stills, Nash,
Young) og upp úr miðnætti æsist
leikurinn og þá verða mörg af
þekkstustu lögum Rolling
Stones flutt.
Pottþétt föstudagskvöld:
Laugard. 27. okt.
ÍSLENSKUR TÓNLISTARDAGUR
I tilefni dagsins kl. 16-18: Hinn
óviðjafnanlegi VALGEIR GUÐ-
JÓNSSON, tónle:kar.
Kl. 21.30-03: BLÁIR ENGLAR,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
ÞORLEIFUR GUÐJÓNSSON
Komið tímanlega!
Sunnud. 28. okt. kl. 20-01
BLÁTTKVÖLD
VINIR DÓRA — blúskvöld eins
og þau gerast best!
Púlsinn - Lofar góðu!
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans!____________x
fclk í
fréttum
ILMEFNI
Omar Sharif
framleiðir ilmvatn
Nú hefur Omar Sharif, egypski hjartaknúsarinn góð-
kunni, steypt sér af fullum þunga í ilmvatns fram-
leiðsluna og fyrir skömmu var ilmurinn hans, „Omar
Sharif pour femme“, kynntur í íburðarmiklu hófi í Lund-
únum og fækkar óðum þeim Hollywood-leikurum sem
ekki hafa sullað saman ilmvatni í eigin nafni og grætt
á því á tá og fingri. Fregnir herma að ilmur Ómars sé
„blómlegur" án þess að það sé útskýrt nánar. Aftur á
móti er verðið á hreinu, í hófinu var 50 ml glas boðið á
35 pund. Ómar hefur auk þessa ekki setið auðum hönd-
um í kvikmyndabransanum, því nýlega lauk hann upp-
tökum á „The Rainbow Thief“ þar sem hann leikur á
Omar Sharif brosir sínu blíðasta.
móti Peter O’Toole, en þeir eru gamlir mátar og léku
meðal annars saman í hinni frægu mynd um Arabíu-Lár-
us.
Um 60 börn
Frjálsíþróttadeild Fjölnis í Graf-
arvogi og blómabúðin Blóma
hafið við Gullinbrú gengust fyrir
götuhlaupi í Grafarvoginum fyrr í
þessum mánuði og kepptu fjölmörg
börn og unglingar enda var leikur-
inn til þeirra gerður. Fylltu kepp-
HLAUP
í götuhlaupi
endur sjötta tuginn, enda mikil
bamahverfi á þessum slóðum.
Alls var keppt í sex flokkum og
urðu þessi hlutskörpust, hvert í
sinni grein: Ásdís Sigurðardóttir í
hnátuflokki, Þorsteinn Þorsteinsson
í hnokkaflokki, Elín Rut Guðnadótt-
Grafarvogi
ir í stelpnaflokki, Magnús Öm Guð-
mundsson í strákaflokki, Laufey
Stefánsdóttir í telpnaflokki og
Steinar Guðmundsson í piltaflokki.
Hlaupið var 1,5 km.
Hér eru samankomnir verðlaunahafarnir í götuhlaupinu í Grafarvogi.
Gitte á góðri stundu með móður
sinni.
OFRIÐUR
Gitte og nýi
eiginmaður-
inn flugust á
opinberlega
Leggjalanga kynbomban Gitte
Nielsen hin danska er jafnan
óheppin í ástum eins og marghefur
komið fram. Kunnasta dæmið er
mislukkað hjónaband hennar og
Sylvesters Stallone sem rann sitt
skeið á enda fyrir mörgum misser-
um, en síðan hefur Gitte reynt fyr-
ir sér með hinum og þessum, en
ekkert hefur gengið. Aftur á móti
hefur henni gengið bærilega í
skemmtanageiranum og sannast
þar orðtakið heppin í spilum, óhepp-
in í ástum og svo framvegis.
Nú hriktir sem sé í stoðum nýj-
asta. hjónabandsins með John
nokkrum Copeland sem tók við sem
maðurinn í lífi Gitte á eftir ruðn-
ingströllinu Mark Gastineau. Orð-
rómur var kominn á kreik um að
þau Gitte og John eyddu æ meiri
tíma í rifrildi og áflog og þótti
mönnUm það sannast er þau flu-
gust á opinberlega fyrir skömmu
fyrir utan næturklúbb. Rigndi
höggum og gífuryrðum úr báðum
áttum og varð að kveðja til lögregl-
una til að skilja hjónakornin. Voru
þau handtekin, tekin af þeim
skýrsla, en síðan sleppt og það fylg-
ir sögunni að Gitte hafi leitað á
náðir vina, að minnsta kosti það
sem eftir lifði þeirrar nætur.
Göngugarparnir á ísafirði.
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
UTIVERA
Vetrargönguferð ísfirðinga
ísafirð;
Heilsurækt og útivera á sífellt
meiri vinsældum að fagna
meðal íslendinga. í síðustu viku
var greint frá því í Vestfirska
fréttablaðinu á ísafirði að í undir-
búningi væri að koma á göngu-
ferðum um nágrennið og var
væntanlegum þátttakendum bent
á' að koma að kapellunni í Engid-
al klukkan tvö á laugardaginn.
ólium til mikillar undrunar mættu
þar nærri 40 manns á öllum aldri.
Var síðan gengið inn Engidalinn,
komið við hjá Sigurgeiri jónssyni
bónda í Engidal, sem síðan fór
fyrir hópnum að rafstöðinni innst
í dalnum. Skýrði Sigurgeir fyrir
göngufólki hvernig búsetu var
háttað í dalnum síðustu öldina og
gat fjölda örnefna.
í lok ferðarinnar var ákveðið
að fara álíka gönguferð hvern
fyrsta laugardag í mánuði í vet-
ur. Var þriggja manna göngu-
nefnd kosin til næstu ferðar sem
verður laugardaginn 3. nóvember.
- Úlfar