Morgunblaðið - 24.10.1990, Qupperneq 45
~
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1990
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Skammarlegt sljórnleysi
Til Velvakanda.
Ég brá mér til ijúpna hinn 15.
eins og svo margir, en kom vonsvik-
inn og svekktur til baka um miðjan
dag. Ekki var það vegna þess að
ég hefði ekki séð fugl, nei ó nei,
það var miklu frekar vegna þess
að örtröðin af jeppum á fjallvegum
hér austur af var svo óhugnanleg,
og mannmergðin upp um allar hlíð-
ar og ása slík að ég sá með eigin
augum í hvaða vitleysu þessi veiði-
mál okkar eru komin. Þetta á fyrst
og fremst við um ijúpnaveiðina.
Gæsadrápið er sér-kapítuli sem síð-
ar verður vikið að. A undanförnum
árum hefír byssumönnum fjölgað
svo ört að segja má að nálega sé
til haglabyssa á hveiju heimili og
svo eru torfæruökutæki við hvers
manns dyr. Rjúpnastofninn hefir
ekki náð sér hin síðari ár vegna
gegndarlausrar veiði, þ. á m. inni á
hálendinu í varplöndum ijúpunnar.
Hjálpast þar að gráðugir veiðimenn,
sem selja tjúpurnar, og svo minkur
og veiðibjallan. Að það skuli vera
„business" að skjóta ijúpur og selja
þær á okurverði, er ekki gott mál.
Það er slæmt þegar fégráðugir kjöt-
salar vaða um landið og eira engu,
vaða inná heimalönd bænda og
brúka munn ef um er vandað. A
afréttarlöndum eiga bændur skil-
yrðislaust að vera sá aðili sem
stjórn hefir á veiðunum, þó undir
yfirstjórn veiðimálastjórnar. Það
verður að takmarka þann fjölda
fugla sem veiða má hveiju sinni.
Veiðileyfi ætti að hljóða upp á 10
ijúpur og strangt eftirlit og viðurlög
við brotum. Linkind og aulaeftirlit
dugar ekki, málin eru komin í svo
mikið öngþveiti að taka verður á
þeim með alvöru og hörku ef með
þarf. Veiðileyfi ættu að vera tak-
mörkuð á hinum ýmsu svæðum
landsins, þ.e. að ekki séu of margir
menn á sama landsvæði við veiðar.
Eins og búið er að úthúða bændum
að undanförnu, væri það ekki nema
sjálfsagt að þeir fengju að hafa ein-
hver hlunnindi af veiðileyfasölu.
Hluta af því yrði þó að veija til
opinbers eftirlits. Nú vaða menn
hiklaust inn til öræfanna löngu fyr-
ir veiðitímann og skjóta þar án þess
að nokkur heyri eða sjái. Vitanlega
er þetta stjórnlaus vitleysa sem
ekki getur endað nema þannig að
ijúpnastofninn verður strádrepinn
eins og geirfuglinn. Að elta tjúpna-
hópana á vélsleðum eða torfæru-
hjólum og bílum, upp um ijöll og
fírnindi, er óhæfa. Má segja að
mikið skuli vera að ekki séu ungarn-
ir drepnir í hreiðrunum. Opinberir
aðilar verða að taka þessi mál föst-
um tökum og koma skikki á vitleys-
una. Rjúpnaveiði ætti að vera
ámóta hlunnindi og annað, t.d. lax-
veiði, silungsveiði á afréttum, hrein-
dýraveiði á afréttum o.s.frv. Það
er engin hemja hvað ijúpnaveiði-
menn leyfa sér að gera, en þeir
vita að það er tekið á flestu hér
með hinum frægu „silkihönskum“
og því er flest hér orðið meira og
minna stjórnlaust.
Fjallamaður
Agnarsmá
endurgreiðsla
Til Velvakanda.
Ég var líftryggður á fyrsta árinu,
árið 1916, en á þeim tíma voru ekki
til líftryggingar hér á landi svo
tryggt var hjá dönsku tryggingafé-
lagi. Greiddar voru 25 krónur, eða
jafnvirði fimm haustlamba á þeim
tíma. Tryggingin var upp á 2.000
krónur.
Ég greiddi af tryggingunni í 60
ár en við sextugsaldurinn er upphæð-
in greidd út. Það er það kúnstuga í
málinu, ég fékk greiddar 20 krónur
því þá var búið að klípa tvö núil aft-
an af krónunni. Og þetta voru ekki
einu sinni danskar krónur, eins og
tryggingin hafði þó upphaflega verið
greidd með. Mér finnst rétt að þetta
komi fram, því fólk verður að athuga
hvað það er að gera þegar það kaup-
ir sér tryggingar. Það er vart hægt
að þverfóta í forstofunni hjá sér fyr-
ir alis kyns tryggingaseðlum.
Steingrímur Sigurðsson
1 Heilræði
Hjólreiðar eru skemmtilegar,
en þær geta líka verið hættu-
legar. Hjólreiðamenn verða að
fylgja öllum umferðarreglum
og sýna sérstaka gætni. Þannig
geta þeir komið í veg fyrir al-
varleg slys.
■i m m
Tvm
BESTU KAUPIN
í TÖLVUBÚNAÐI
m.a. að mati virtustu tölvublaða heims.
MAGAZINE
EDITÖR5
IHOICE
Skjáir: Líttu við og sjáðu af hverju m.a. PC
MAGAZINE taldi bestu kaupin vera í
tölvuskjáum frá TVM... Myndgæðin í
Super Sync 3A litaskjánum frá TVM eru
einfaldlega betri.
Tölvur: Afkastageta EX-286 PLUS tölvunnar er
ótrúleg (Landmark 26, 7Mhz)..hún er
einfaldlega öflugri.
Diskar: AT-BUS hörðu diskarnir eru betri..og
á lægra verði.
Segulbönd: COREtape segulbandsstöðvar + CORE-
fast hugbúnaður...tvöfaldir sigurvegar-
ar..bestu kaup...PC-MAGAZINE.
HAFÐU SAMBANDf VERÐIÐ ER LÆGRA EN Þltí GRUNAR
Tölvusalan hf.
Suðurlandsbraut 20 — Sími 91- 8 37 77
LAUSBLAÐA-
MÖPPUR
frá Múlalundi...
... þær duga sem besta bók.
Múlalundur
SÍMI: 62 84 50
5
=>
3
£
I
=3
z
z
5
o
z
LOVISA CHRISTIANSEN
og stuðningsmenn hennar
hafa opnað
KOSNINGASKRIFSTOFU
á Reykjavíkurvegi 60,
Hafnarfirði
Opið kl. 15.00-21.00 virka daga
og kl. 10.00-17.00 um helgar
Símar: 51116 - 51228 - 650256.
Kaffi á könnunni.
Sjáumst
-díJ
Sálfræðistöðin
Námskeió
Sjálfsþekking - Sjálfsöryggi
Á námskeiðinu kynnast þátttakendur:
• Hvaða persónulegan stíl þeir hafa í samskiptum
• Hvernig má greina og skilja samskipti
• Hvernig ráða má við gagnrýni .
• Hvernig finna má lausnir í árekstrum
• Hvernig læra má samskipti sem auka sjálfsöryggi
Leiðbeinendur
eru
sálfræðingarnir
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal.
■■■■■■ Innritun og nanan upplysingar
V/SA® í símum Sáltræðistöðvarinnar: E
62 3075 00 2 11 10 II. 11-12. EunocAno
FALKON
fashian.fycmen
Ný
sending
af herrajökkum $
og hinum vinsælu i
dönsku herrabuxum, %
m.a, í yfirstærðum.
Ath.: Greitt er fyrir við-
skiptavini í bifreiða-
geymslu Vesturgötu 7
f
I
1
I
f
I
\
t
I
i
GElSiB
H