Morgunblaðið - 24.10.1990, Qupperneq 48
Atvinnurekstrartrygging
KEYRIR STÝRIKERFI
FRAMTÍÐARINNAR:
CMB/3
MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Fram tapaði fyrir Barcelona
Morgunblaðið/RAX
Framar töpuðu fyrir spænska stórveldinu Barcelona í gær í
Evrópukeppni bikarhafa í knattspyrnu á Laugardalsvelli, með
einu marki gegn tveimur. Framarar voru reyndar ekki langt
frá því að halda jöfnu en síðara mark Barcelona var umdeilt
og kom skömmu fyrir leikslok. Á myndinni fagna Framarar
jöfnunarmarki Ríkharðs Daðasonar. Frá vinstri: Kristján Jóns-
son, Ríkharður, Þorsteinn Þorsteinsson, Jón Erling Ragnarsson
og Pétur Arnþórsson. sjá frásögn á bls. 47.
SÍF kannar möguleika á
að kaupa fisk frá Alaska
TVEIR fulltrúar stjórnar SÍF I
hafa að undanförnu verið að
kanna þróun í fiskvinnslu i Al-
aska og á vesturströnd Banda- |
ríkjanna. Nú eiga sér stað mikl-
ar breytingar á þessum stöðum
og er framleiðsla ýmissa fisk-
tegunda að færast úr surimi og
annarri framleiðslu yfir í flök,
blokkir og saltfisk og Ieitar
þessi framleiðsla í auknum
mæli inn á evrópska markaðinn.
Meðal annars er nú innan
sljórnar SÍF rætt um möguleika
á kaupum á fiski frá Banda-
ríkjunum til söltunar hér og
síðan útflutnings.
Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri SIF, segir að þróun-
in vestan hafs sé mikið umhugsun-
arefni. Nú sé eftirspurn eftir öllum
fiskafurðum í Evrópu gífurleg og
verð hátt. Því leiti framleiðsla frá
Bandaríkjunum inn á evrópsku
markaðina og geti fyllt upp í tóma-
rúmið þar með tilheyrandi hættu
á lækkandi markaðsverði. Það
sama mætti í raun segja um frysti-
-iðnaðinn í Bandaríkjunum, en þar
væri eftirspurn nú langt umfram
framboð. Við yrðum að fylgjast
grannt með gangi mála, og meðal
annars gæta þess, að verð á afurð-
um okkar yrði ekki svo hátt, að
aðrir kæmu þar inn með ódýrari
afurðir.
„Við þurfum að huga áð ýmsu
i þessum efnum. Hugsanleg fisk-
kaup að vestan geta verið raun-
hæf, en. þessLniál eru enn. á um-
ræðustigi innan stjórnar SÍF. I
Staðan í Evrópu er nú orðin slík,
að okkur er kunnugt um marga
kaupendur, bæði á saltfiski og |
hráefni til söltunar, er meðal ann- I
ars hafa keypt héðan ferskan flatt-
an fisk, sem eru nú farnir að kaupa
fisk í Álaska. Þar fá þeir fiskinn |
ódýrari en hér og þá munu þeir
væntanlega sækja fiskinn þangað
fremur en á íslenzkan fiskmark-
að,“ sagði Magnús Gunnarsson.
Olíulekinn;
Tæringar-
varnir ekki
eðlilegar
Iðntæknistofnun telur að ekki
hafi verið viðhafðar eðlilegar tær-
ingarvarnir á rörum í neðan-
sjávarolíuleiðslu Olís hf. við Laug-
arnes og það séu ástæður olíulek-
ans sem þar varð í byrjun þessa
mánaðar.
Iðntæknistofnun telur málun sam-
skeyta röranna misheppnaða og þau
voru ekki galvahúðuð. Tæringin var
í og við öll suðusamskeyti og á stöku
blettum á rörunum. Orsakir eru tald-
ar ónæg hreinsun stályfirborðsins
fyrir grunnun, grunnur hafi ekki
verið borinn á fletina eða málningar-
lagið ekki verið nægjanlega þykkt.
Tæplega 100
ær flæddi
á skerjum
^ Innri-Múla.
Á MILLI 90 og 100 ær flæddi á
skerjum í Kjálkafirði aðfaranótt
sl. föstudags. Var þetta rúmur
helmingur af fjárstofni hjónanna
Valgerðar Ingvadóttur og Bjarna
Kristjánssonar á Auðshaugi.
Ærnar voru reknar frá sjónum
kvöldið áður, en í myrkrinu um nótt-
ina leituðu þær á nýjan leik niður í
fjöruna og flæddi þar á stórstraumi.
„Það er óvenjulegt að svo margar
ær flæði í einu. Þetta er stöðug
hætta og hefur sennilega verið frá
landnámi," sagði Bjarni. Hann sagð-
ist áður hafa misst ær með sama
hætti í Kjálkafirðinum. „Þetta gerð-
ist að næturlagi og ég átti von á því
að þær færu í fjöruna í myrkri. Þetta
er óneitanlega tilfinnanlegt tjón og
aðkoman ekki beinlínis skemmtilegt.
Ég veit ekki að hve miklu leyti ég
fæ þetta bætt.“ Hjónin á Auðs-
haugi eru nýbyrjuð búskap, þannig
að þetta er gífurlegt tjón fyrir þau.
SJÞ
Orkusala til Atlantsáls hf.:
Tormerki á miklum breyt-
ingum á samningsgrundveili
- segir Robert G. Miller aðstoðarframkvæmdastj óri
Alumax. Helmingi lægra orkuverð boðið í Venezuela
Charleston í Suður-Karólínu, frá Sigtryggi Sigtryggssyni blaðamanni Morgunblaðsins.
ROBERT G. Miller, aðstoðarframkvæmdastjóri bandaríska álfyr-
irtækisins Alumax, telur öll tormerki á því að gera miklar breyt-
ingar á þeim samningsgrundvelli um orkuverð, sem fyrir liggur
og gerð var um áfangabókun 4. október síðastliðinn, en Miller
var einn þeirra sem undirrituðu þá bókun af hálfu Atlantsálshóps-
ins. Hann segir málið ekki þola miklar tafir og að aðrir möguleik-
ar á álversbyggingu séu inni í myndinni, þar á meðal í Venezu-
ela, þar sem orkan býðst á helmingi lægra verði en á íslandi.
Miller tjáði íslenskum blaða-
mönnum þetta í gær, en fulltrúar
allra íslensku fjölmiðlanna eru
staddir í Charleston í Suður-
Karólínufylki í Bandaríkjunum, þar
sem þeir skoða nýjasta og full-
komnasta álver Alumax sem heitir
Mt. Holly.
Aðspurður um þá frétt Morgun-
blaðsins, að Landsvirkjun hefði
skipað þriggja manna nefnd, sem
eigi að yfirtaka samningsgerðina
um orkusölu til fyrirhugaðs álvers
á Keilisnesi, sagðist hann sjá öll
tormerki á að gera miklar breyting-
ar á samningunum. Ef það þurfi
að gerast, þá þurfí að ræða þær
breytingar í stjórnum allra fyrir-
tækjanna í Atlantsálshópnum, Alu-
max, Hoogovens og Grangers, og
það gæti tekið langan tíma. Samn-
ingar geti ekki dregist á langinn,
í mesta lagi nokkra mánuði, en
alls ekki í eitt ár, þar sem aðrir
möguleikar séu inni í myndinni hjá
álfyrirtækjunum.
Miller nefndi sem dæmi að fyrir
nokkrum dögum hefði komið sendi-
nefnd frá Venezuela og boðið þar
aðstöðu fyrir álver og orkuverð sem
er á bilinu 7 til 8 mills, sem er um
helmingi lægra heldur en talað er
um að borgað verði fyrir orkuna
til álvers á Keilisnesi. „Ég vona að
skipun þessarar nefndar Lands-
virkjunar sé skref í rétta átt, en
ég ítreka það að þetta má ekki
verða til þess að draga málið á
langinn," sagði Robert G. Miller.
Álverið sem íslensku blaðamenn-
irnir eru að skoða er mjög svipaðr-
ar gerðar og stærðar og álverið á
Keilisnesi á að vera. Það framleiðir
200 þúsund tonn af áli á ári og
allmargir íslendingar hafa skoðað
þetta álver að undanförnu, þar á
meðal Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra, samningamenn
ríkisins og íslenskir sérfræðingar í
umhverfismálum. Þetta er full-
komnasta álver Bandaríkjanna og
þykir standa sérstaklega framar-
lega í umhverfismálum.