Morgunblaðið - 30.11.1990, Page 29

Morgunblaðið - 30.11.1990, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1990 29 John Major markar stefnu sína: Gagnrýndur fyrir að skipa enga konu í ráðherrastöðu London. Reuter, Daily Telegraph. MESTA fögnuðinum sem mætti nýkjörnum leiðtoga íhaldsflokksins og forsætisráðherra Bretlands, John Major, er nú að linna og grár hversdagsleikinn að taka við. Efnahagsvandinn er mikill, lægja þarf öldurnar eftir baráttuna um leiðtogasætið og fall Margaret Thatc- her. í gær var Major harðlega gagnrýndur fyrir að skipa enga konu í ráðherraembætti. Kjöri Majors er fremur vel tekið utan Bretlands og Francois Mitterrand Frakklandsforseti sagði í heillaóskaskeyti til forsætisráðherrans að hann vænti þess að þjóðirnar tvær héldu áfram „þróttmiklu og ómetanlegu samstarfi sínu.“ Einn af þingmönnum íhalds- flokksins, Teresa Gorman, var harð- orð í gær. „Fjöldi karla telur enn að konur geti aðeins verið barn- fóstrur eða ástmeyjar en ekki raun- verulegir starfsfélagar sem unnið geti við hlið þeirra,“ sagði Gorman. SkortUrinn á konum í nýrri óg breyttri ríkisstjórn íhaldsmanna þykir enn undarlegri fyrir þá sök að kona hefur verið í forystu fyrir flokknum í ellefu og hálft ár. Gor- man sagðist vera „öskureið" yfir því að engin kona væri í stjórninni og varaði við því að þetta gæti kostað flokkinn fylgi. Major mun nú fylkja ráðherrum sínum, sem eru alls 22," í bar- áttunni gegn verðbólgu en hann er eitilharður talsmaður þess að hvergi sé látið undan síga í þeim efnum. Sjálfstæð rannsóknarstofnun spáir því að verðbólga, sem nú mælist 10.9% á ársgrundvelli, verði komin í 4.9% í lok næsta árs. Opinberar hagtölur gefa til kynna að vextir lækki úr 14% í 12% en atvinnuleysi aukist nokkuð og verði tvær milljón- ir í ársbyijun 1992. Aukakosningar voru í gær í tveim skoskum kjördæmum, sem Verka- mannaflokkurinn ræður nú. That- cher hefur aldrei verið vinsæl. í Margaret Thatcher tók sér í gær sæti aftarlega á bekkjaröðum breska íhaldsflokksins á þingi, þar sem óbreyttir þingmenn sitja, eftir að hafa verið í forystu fyrir flokknum í 15 ár. Thatcher sést hægra megin á myndinni og hallar hún undir flatt meðan hún hlýðir á umræður. Skotlandi eða Norður-Englandi og vafa um að fall hennar myndi bæta John Workman, frambjóðandi stöðu flokksins þar. „Ég held að íhaldsflokksins í öðru kjördæ- brottför hennar hafi fært okkur manna, Paisley South, var ekki í 2.000 atkvæði í viðbót,“ sagði hann. . SKEMMTILEGAR OG ÞR0SKANDI BARNABÆKUR Á FRÁBÆRU VERDI! LEIKUR AÐ ORÐUM hvað eh KLUKKAN? ^Bókaflokkurinn LEIKUR AÐ ORÐUM: BÆKUR FYRIR LÍTIL BÖRN OG UPPALENDUR. HVAÐ ER KLUKKAN? - VILTU VERA MEÐ MÉR? eru harðspjaldabækur með framúrskarandi litríkum og skemmtilegum teikningum. Skemmtilegar bækur, skýrt og greinargott letur. Stefán Júlíusson þýddi. Verð hvorrar bókar er Stórt letur og litmyndir Bókaflokkurinn VILTU LESA MEÐ MÉR:^ ARILÆRIR AÐSYNDA, GULLBRÁ OG BIRNIRNIR ÞRÍR í þessum skemmtilegu bókum kemur mynd stundum í stað orðs. Þá er staldrað við og rétta orðið fundið. Leikur sem skerpir athygli og skilning. Stefán Júlíusson þýddi. Cflfl |#M Verð hvorrar bókarer ||ÖU Iml ■ 590 kr. WOOSOO WHSIA Stórt letur og litmyii ÆVINTÝRABÓKIN Ævintýrabókin í þýðingu Rúnu Gísiadóttur inniheldur 9 litrík ævintýri. Þau eru: Stígvélaði-kötturinn, Hans og Gréta, Frú Hulda, Hugrakki skraddarinn, Dvergurinn, Froskakóngurinn, Litlu systkinin, Kiðlingarnir sjö og Rauðhetta. Verð 690 kr. A 2 BABARBÆKUR BABAR FER í FERÐALAG - BABAR FER Á FÆTUR eru 2 nýjar harðspjaldabækur um uppáhaldsf ílinn Babar. Ekki mun það draga úr vinsældum hans að allt næsta ár verða vikulegir þættir um Babar og félaga í ríkissjónvarpinu. Þýðandi er ÞrándurThoroddsen. Verð hvorrar bókar er SETBERG 490 kr. HVÍTA HÚSIÐ / SÍA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.