Morgunblaðið - 30.11.1990, Side 37

Morgunblaðið - 30.11.1990, Side 37
'MORGUNBlWb 'fÖSTTÍdAGUIÍ !SÖ.' NÖ^EMÍkk1 iSfö Æ Islendingar hljóta verð- laun á BERGEN 90 ________Frímerki_______________ Jón Aðalsteinn Jónsson Dagana 15.-19. nóv. sl. var haldin svonefnd þjóðieg (national) frímerkjasýning í Björgvin í Noregi. Hér á eftir verður greint nokkuð frá sýningunni og þar að mestu stuðzt við umsögn umboðsmanns sýning- arinnar hér á landi, Ólafs Elíasson- ar, en hann var jafnframt einn af dómurum hennar. Segja má, að BERGEN 90 hafr verið óvenjuleg sýning að því leyti, að þeir voru fleiri íslenzkir frímerkj- asafnarar, sem tóku þátt í henni, en áður hefur þekkzt erlendis, eða alls tíu. Áttu þeir samtals 39 ramma af þeim 607, sem þar voru, og að. auki tvö verk í bókmenntadeild. Sýningin var haldin í Grieg-tón- listarhöllinni í Björgvin Er orðin hefð, þegar Norðmenn halda lands- sýningar sínar í Björgvin, að þeir bjóði frímerkjasöfnurum frá vina- bæjum bæjarins að taka þátt í þeim. Koma þeir frá Árósum í Danmörku, Ábæ í Finnlandi og Gautaborg í Svíþjóð. Að auki er svo söfnurum frá Færeyjum og íslandi boðin þátt- taka. Voru því frímerkjasöfh frá öllum Norðurlöndum á BERGEN 90. En af sjálfu sér leiðir, að norsk söfn voru í miklum meiri hluta á BERGEN 90. Verðlaun íslenzku safiiaranna skiptust þannig: Þorvaldur S. Jó- hannesson fékk gyllt silfur (ver- meil) fyrir íslenzka flugpóstsafii sitt frá 1928-48. Sömu verðlaun hlaut safn Sigurðar R. Pétursson af svo- nefndum Tveggja kónga frímerkj- um, sem út komu á árunum 1907-13. Umboðsmaður okkar á sýningunni hefur tjáð mér, að hér sé um mjög gott safn að ræða, enda bendir verðlaunastigið eindreg- ið til þess. Hefur enginn íslenzkur frímerkjasafnari áður gert Tveggja kónga merkin að sérsviði sínu, svo að ég muni. Páll H. Ásgeirsson hlaut stórt silfur fyrir flugsafn sitt frá 1945-60. Stórt silfur hlaut einnig safn Jóns Aðalsteins Jónssonar: Danmörk 1870-1912. Er þetta safn af svokölluðum dönskum tvílitum frímerkjum, sem notuð voru í Dan- mörku á áðurgreindum tima. Þessi frímerki eru afar vinsælt söfnunar- svið, ekki sízt meðal danskra safn- ara, enda varð upplag þeirra margra geysistórt, um það er lauk, og end- urprentanir margar með alis kyns afbrigðum um lit og annað. Silfur fékk Helgi Gunnlaugsson fyrir safn sitt af frímerkjum með mynd Kristj- áns konungs IX., sem út komu á árunum 1902-04. Þetta safri hefur ekki áður verið sýnt, en svið þess er að ég hygg engu síður áhuga- vert en Tveggja kónga merlganna, sem leystu merki Kristjáns IX. að miklu leyti af hólmi skömmu eftir lát hans 1906. — Þá fékk safii Þórs Þorsteins af svonefndum tollógild- ingum einnig silfur. Notkun þeirra er sérstakur kafli í póstsögu okkar, sem fæstir safnarar hafa gefíð mik- inn gaum fyrr en nú á allra síðustu árum. Silfrað brons fékk átthaga- safn Guðmundar Ingimundarsonar frá Vestmannaeyjum. Þetta safn er um margt hið merkasta, eins og ísl. safnarar kannast við, en hins vegar er svið þess mjög þröngt. Af þeim sökum býst ég við, að það, eins og mörg önnur átthagasöfn, geti átt nokkuð erfítt uppdráttar til verðlauna á sýningum og þá ekki sízt erlendis. — Guðni F. Gunnars- son sýndi hér í fyrsta sinni mótíf- safn, sem nefriist Knattspyma. Ifyr- ir það hlaut hann bronsverðiaun. — Sigurður H. Þorsteinsson sýndi átt- hagasafn úr Strandasýslu, og hlaut það bronsnál. Þá átti hann í bók- menntadeild verðlistann íslensk frí- merki og fékk fyrir hann stórt silf- ur. Enn fremur sýndi Rannveig Gísladóttir í bómenntadeild bók- fræðirit sitt um íslenzka póst- og frímerkjasögu, sem nokkuð var sagt frá í frímerkjaþætti 30. okt. sl. Fyr- ir það hlaut hún stórt silfur og að auki sérstakar hamingjuóskir dóm- nefndar. LIF gaf heiðursverðlaun á BERG- EN 90, útskorinn ask með merki sýningarinnar, gerðan af einum fé- laga okkar, Sveini Ólafssyni mynd- skera. Þessi verðlaun hlaut Daninn Preben Gravesen fyrir safn sitt „Dönsk fylgibréf 1851-1930“, en því voru dæmd stór gyllt silfurverð- laun. Samkv. umsögn Ólafs Elíassonar var BERGEN 90 í háum gæða- Úr sýningarsal BERGEN 90. flokki. Það má t.d. marka af því, að af 127 söfnum og ritum, sem dæmd voru til verðlauna, hlutu 64, eða réttur heimingur, stórt silfúr og þaðan af hærri verðlaun. Aðsókn að sýningunni var mjög góð allan tímann, en þar mun veðr- ið trúlega hafa stuðlað nokkuð að, því að lítt viðraði tii útiveru þessa sýningardaga. Þá var aðgangur ókeypis, og það hefur öruggiega einnig haft sín áhrif til aukinnar aðsóknar. Ólafur segir, að BERGEN 90 hafí á allan hátt heppnazt mjög vel og verið öllum þeim til sóma, sem að henni stóðu. FRÍMEKKI91 Þættinum hefur borizt tilkynning um það, að á vegum LÍF verði hald- in landssýning, FRÍMERKI 91, dag- ana 15.-17. febníar nk. í húsakynn- um þess í Síðumúla 17.gamefnd skipa Guðni F. Gunnarsson formað- ur, Jón Zalewzki, Kjartan Þórðar- son, Rúnar Þór Stefánsson og Sigf- ús Gunnarsson. Tilgangur þessarar landssýningar er fyrst og fremst sá að veita ýms- um frímerkjasöfnurum, sem vitað er að eiga frambærilegt sýningar- efni, en hafa af ýmsum ástæðum ekki tekið þátt í sýningum áður, tækifæri til að koma því hér á fram- færi. Þetta efni verður skoðað og metið af íslenzkum dómurum. Ef mat þeirra verður jákvætt, vinna sýpendur sér rétt til að taka þátt í NÓRDIU 91 á rtæsta sumri. Gert er ráð fyrir, að á þessari sýningu verði 60-70 rammar. Jafhframt veiður þetta tækifæri notað til að kynna NORDIU 91 í skólum á höftiðborgarsvæðinu. Á FRIMERKI 91 verður notuð ný gerð ramma eða hin sama og nota á á NORDIU 91. Þeim, sem munu vinna við NORDIU 91, gefst hér því gott tækifæri til að þjálfa sig í uppsetningu safna í þessa nýju ramma, en þeir koma frá Noregi. Umsóknarfrestur til þátttöku í FRÍMERKI 91 er til 20. desember nk., og munu umsóknareyðublöð liggja frammi í félögum og klúbbum LÍF. Einingabréf 2 eru eignarskattsfrjáls Einingabréf 2 eru ávöxluð í sjódi sem saman stendur af ríkisskuldabréfum og húsbréfum. Þar af leidandi Jiurfa eigendur Einingabréfa 2 ekki að gretða efgnarskatt af þeim. Ekkert innlausnargjald er af Eininga- bréfum 2 sé filkynnt um innlausn þeirra ineð 60 daga fyrlrvara. Sé ekki tilkynnt um inniausn er gjaldið 0,5%. Eigendur húsbréfa gela skipt hús- bréfum sínum hjá Kaupþingi og fengið í staðinn Einingabréf 2. Með því móti sleppa þeir við að fylgjast með útdrætli húsbréfanna fjórum sinnum á ári. Kaupir þú Einingabréf 2 fyrir áramót býrðu við öryggi, færðu mjög góða ávöxtun og síðast en ekkí síst nýlur þú eignarskatts- frelsis. Elnlngabréf 2 færðu meðal annars h|á Kaupþlngl hf. Kringlunni 5. Reykjavík - Kaupþingi Norðurlands hf.. Akureyri ■ Sparisjóöi Bolungarvíkur • Sparisjóði Hafnarfjarðar ■ Sparisjóðnum í Keflavík • Sparisjóði Kópavogs ■ Sparisjóðl Reykjavíkur og nágrennis ■ Sparisjóði Vestmannaeyja ■ Sparisjóði Vélstjóra og hjá Búnaðarbanka (slaiids 'M ‘^t,- KAUPÞING HF Kringlunni 5. simi 689080

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.