Morgunblaðið - 30.11.1990, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1990
-------------------:------------v
HITASTILLT
MORATERM blöndunar-
tæki með sjálT/irkri hita-
stillingu og öryggis-
hnapp, sem takmarkar
hitastig við 38 C.
Mora sænsk gæðavara
fyrir íslenskar aðstæður.
Fást í byggingavöruverslunum.
(®)
^ meiri ánægja^
IÞESSARI
FYRIRSÖGN
UM BÓKINA
„AHA! EKKI
ER ALLT SEM
SÝNISF ERU
150RÐ
1ÞE55AFI FYRIRSOáAO-
VMBÓKMA (&)
„AiCfid EK&
eracot
SEKsrtr&r"
eru ±s . fi'á
Á myndinni eru 14 orð í setningunni.
Þess vegna hlýtur hún aö vera (ísönn.
Þar af leiöandi hlýtur andstæöa hennar
aö vera sönn.
—--------*•------------------
Iþ£SSART .fHURSoVyj ,
OMBÓmm. >i\'
Eöa hvað? Þessi setning hefur
nákvæmlega 15 orö. Hvaö er til ráöa?
Rökleysur, þversagnir og andstæður
eru efniviöurinn í bók Martins Gardners,
Aha! Ekki er allt sem sýnisf.
Lengi vel hafa þessar sömu
þversagnirvaldiö mönnum miklum
heilabrotum. I bókinni eru sett upp fræg
dæmi um slíkar þversagnir og útskýrö
í íslenskri þýöingu Benedikts Jóhannessonar.
Stærðfræöi hefur oft veriö óskiljanlegt
torf i hugum margra, en hér gefur aö lita
nýja og óvenjulega hlið á þeirri grein.
Sannarlegur ánægjuauki i hversdagsumræöuna
á aöeins 1.300,- krónur. Gefið út af
Talnakönnun, Síöumúla 1, simi 91-68 86 44.
^ Fæst í bókabúöum.
TALNAKÖNNUNHF.
Síöumúla 1, sími 91-68 86 44
Dómkirkjan í Reykjavík.
Aðventukvöld
í Dómkirkj-
unni
NÚ ER aðventan að ganga í garð,
og er fyrsti sunnudagur í að-
ventu á morgun. A aðventunni
koma menn saman til þess að búa
huga og sál undir komu jólanna
og fæðingu frelsarans.
Aðventan er mikilvægur tími
hugleiðingar um hina stærstu gjöf,
sem mannkyni var gefin, þegar
frelsari heimsins fæddist í Betle-
hem. Af því tilefni koma menn sam-
an í kirkjum sínum á aðventunni
og stilla saman hugina.
Á morgun verður aðventusam-
koma í Dómkirkjunni og héfst hún
klukkan 20.30. Það er Kirkjunefnd
kvenna Dó/nkirkjunnar, sem stend-
ur fyrir aðventukvöldinu eins og
undanfarna áratugi.
Ræðumaður kvöldsins verður
Hulda Jensdóttir, fyrrverandi for-
stöðukona Fæðingarheimilis
Reykjavíkur. Sigríður Gröndal
óperusöngkona syngur einsöng.
Kór Austurbæjarskóla syngur undir
stjórn Péturs Hafþórs Jónssonar.
Marteinn H. Friðriksson leikur á
orgel Dómkirkjunnar og stjórnar
auk þess söng Dómkórsins. Dóm-
kirkjuprestarnir flytja ávarp og
lokaorð og einnig verður almennur
söngur.
Við hvetjum fólk til að fjölmenna
í Dómkirkjuna annað kvöld og eiga
með okkar góða stund, nú þegar
aðventan gengur í garð með sínum
björtu fyrirheitum til allra manna.
Hjalti Guðmundsson
Aðventusam-
koma í Breið-
holtskirkju
HIÐ árlega aðventukvöld Breið-
holtssafnaðar verður að þessu
sinni haldið í Breiðholtskirkju á
morgun, fyrsta sunnudag í að-
ventu, kl. 20.30.
Að venju verður fjölbreytt dag-
skrá: Kór Breiðholtskirkju og
barnakór kirkjunnar syngja að-
ventu- og jólasöngva undir stjórn
Daníels Jónassonar, Ámýjar Al-
bertsdóttur og Önnu Björnsdóttur.
Signý Sæmundsdóttir syngur ein-
söng. Lesin verður jólafrásaga,
fermingarbörn flytja stutta dagskrá
og frú Vigdís Einarsdóttir flytur
hugleiðingu. Kvöldið verður svo
endað með stuttri helgistund við
kertaljós.
Á eftir verður safnaðarheimilið
til sýnis og Kvenfélag Breiðhoits
mun selja veitingar vægu verði, til
fjáröflunar vegna þeirra fram-
kvæmda sem nú standa yfir.
Eru sóknarbúar hvattir til að fjöl-
menna við þessa athöfn og hefja
þannig jólaundirbúninginn með
góðri stund í húsi Drottins.
St. Gísli Jónasson
Fríkirkjan í Reykjavík.
Aðventusam-
komaí
Fríkirkjunni
FYRSTI sunnudagur í aðventu
höfðar sérstakiega til Fríkirkju-
safnaðarins í Reykjavík. Auk
þess að vera þar, sem í flestum
kristnum söfnuðum öðrum, hald-
inn hátíðlegur sem fyrsti dagur
nýs kirkjuárs, er þess minnst að
fyrsta guðsþjónusta safnaðarins
var haldin þennan sama dag.
Það var fyrsta sunnudag í að-
ventu árið 1899, að söfnuðurinn
boðaði til sinnar fyrstu guðsþjón-
ustu í Góðtemplarahúsinu í Reykja-
vík.
Á morgun er boðið til guðsþjón-
ustu í Fríkirkjunni í Reykjavík.
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta
verður kl. 11.00.1 guðsþjónustunni
hjálpast öll börnin að við að tendra
fyrsta aðventuljósið á kransinumí
kórnum. Gestgjafi í söguhominu
verður Iðunn Steinsdóttir, rithöf-
undur og kennari.
Almenn guðsþjónusta verður kl.
14.00 og að henni • lokinni býður
kvenfélag safnaðarins kirkjugest-
um til hátíðarkaffis. í guðsþjón-
ustunni og yfír kaffibollunum verð-
ur mikill söngur. Auk kórs kirkjunn-
ar verður RARIK-kórinn á báðum
stöðum. Einnig verður einsöngur,
Guðrún Ingimarsdóttir, Hanna
Dóra Sturludóttir og Þuríður Sig-
urðardóttir syngja.
Til þessarar samvemstundar eru
allir boðnir velkomnir.
Ceeil Haraldsson.
Kirkjuhátíð í
Bústaðakirkju
Fyrsta sunnudag í aðventu er
kirkjudagur í Bústaðakirkju. Þann
dag árið 1971 var kirkjan vígð.
Þeirra tímamóta í starfí safnaðarins
hefur síðan verið minnst með veg-
legum hætti ár hvert.
Nú ber 1. sunnudag í aðventu
upp á 2. desember næstkomandi.
Enda þótt 19 ár séu frá vígslu
Bústaðakirkju verður enn haldin
vígsluhátíð. Nýtt glæsilegt pípuorg-
el verður vígt til þjónustu fyrir söfn-
uðinn. Orgelið er 31 rödd smíðað
af danska fyrirtækinu Frobenius
o g Sönner, einkarglæsilegt og ríku-
lega búið hljóðfæri. Með tilkomu
þessa orgels má segja að verið sé
að ljúka byggingu kirkjunnar.
Að vanda verður barnaguðsþjón-
usta klukkan 11.00 árdegis. Klukk-
an 14.00 verður hátíðarguðsþjón-
usta. Þar mun biskupínn yfir ís-
landi, herra Ólafur Skúlason, vígja
hið nýja orgel og prédika við guðs-
þjónustuna. Er það vel, að sá prest-
ur er í aldarfjórðung þjónaði Bú-
staðasöfnuði skuli sem biskup geta
sótt söfnuðinn heim á þessum tíma-
mótum. í guðsþjónustunni syngur
einsöng Ingibjörg Marteinsdóttir.
Eftir guðsþjónustuna verður
kaffisala Kvenfélags Bústaðakirkju
í safnaðarheimilinu. Kvenfélags-
konur hafa ávallt lagt fram mikið
starf í þágu kirkjunnar og er þessi
dagur árlegur fjáröflunardagur
þeirra. Konur í sókninni hafa ávallt
lagt lið með því að gefa kökur til
þessarar kaffisölu. Tekið verður á
móti kökum í safnaðarheimilinu á
laugardag milli kl. 11.00 og 13.00
og á sunnudag frá klukkan 11.00.
Allur ágóði af kaffisölunni rennur
í orgelsjóð kirkjunnar.
Um kvöldið verður aðventuhátíð
í kirkjunni og hefst hún klukkan
20.30. Fjölbreytt tónlist verður flutt
og eru einsöngvarar: Ingveldur
Hjaltested, Kristín Sigtryggsdóttir,
Ingveldur Ólafsdóttir, Stefanía Val-
geirsdóttir, Erna Guðmundsdóttir
og Eiríkur Hreinn Helgason. í lok
samverunnar verða ljósin tendruð.
Organisti kirkjunnar, Guðni Þ.
Guðmundsson, stjórnar kórum
kirkjunnar áamt Ernu Guðmunds-
dóttur. Barnakór, bjöllukór og
kirkjukór koma þar fram með veg-
lega tónlistardagskrá bæði í há-
tíðarguðsþjónustunni og á aðventu-
hátíðinni.
Sóknarbörn Bústaðakirkju og
velunnarar hennar hafa ætíð fjöl-
mennt á 1. sunnudegi í aðventu til
kirkju. Enn kallar kirkjan og býður
samfylgd til móts við hátíð ljóss og
friðar. Með blessunaróskum.
Pálmi Matthíasson
sóknarprestur.
Langholtskirkja.
Aðventuhátíð
í Langholts-
kirkju
KIRKJUDAGUR Langholtssafn-
aðar er sunnudaginn 2. desemb-
er, fyrsta sunnudag í aðventu
upphafs nýs kirkjuárs. Verður
þess minnst með guðsþjónustu,
tónleikum og sérstakri kvöld-
hátíð á fyrsta aðventukvöldi.
í frétt frá sóknarnefnd Lang-
holtssafnaðar segir m.a., að hátíðin
hefjist klukkan 11 með guðsþjón-
ustu barnanna, Óskastundinni, í
umsjá Þórs Haukssonar guðfræð-
ings og Jóns Stefánssonar, organ-
ista. Hátíðarguðþjónusta hefst svo
kl. 14.00. Séra Sigurður Haukur
Guðjónsson predikar og þjónar fyrir
altari. Lesarar ritningagreina verða
Ragnheiður Finnsdóttir og Ólafur
Örn Ámason. Kór Langholtskirkju
syngur undir stjórn Jóns Stefáns-
sonar.
Lúðrasveitin Svanur heldur tón-
leika sem hefjast kl. 17.00. Stjórn-
andi er Robert Darling og einleik-
ari er Berard Wilkison.
Lokahátíðin verður í kirkjunni
kl. 20.00 að kvöldi hins fyrsta
sunnudags í aðventunni. Hefst hún
með ávarpi Sigríðar Jóhannsdóttur,
formanns sóknarnefndar, sem
stjórnar hátíðarsamkomunni. Því
næst verður Lusíuleikur barna úr
Óskastundinni undir stjórn Þórs
Haukssonar guðfræðings. Ræðu-
maður kvöldsins verður biskupinn
yfir íslandi, herra Ólafur Skúlason.
Ólöf Kolbrún Harðardóttir óperu-
söngkona syngur einsöng og
Margrét Guðmundsdóttir leikkona
flytur ljóð. Kór Langholtskirkju
syngúr undir stjórn Jóns Stefáns-
sonar organista. Samkomunni í
kirkjunni lýkur með helgistund í
'umsjá séra Sigurðar Hauks Guð-
jónssonar.
Að hátíðinni í kirkjunni lokinni
býður kvenfélagið veislukaffi til
sölu í safnaðarheimilinu.
Neskirkja
Aðventuhátíð
í Neskirkju
Eins og gjarnan í upphafí að-
ventu er meira haft umleikis í helgi-
haldi sunnudagsins en að jafnaði.
Svo er einnig að þessu sinni.
Við byijum hátíðisdaginn með
barnastarfinu að vanda, sem hefst
með föndri og leik með litlu börnun-
um kl. 10. Bamasamkoman byijar
svo kl. 11 í kirkjunni, þar sem
fræðst er, sungið, fluttur helgileikur
og sitthvað fleira.
Klukkan tvö er fjölskylduguðs-
þjónusta, sem væntanleg ferming-
arbörn sjá um að mestu leyti, í
lestri, bæn og boðun. Öll bera þau
ljós til kirkju og kveikt er á aðventu-
kransinum.
Klukkan 5 hefst síðan aðventu-
samkoma í kirkjunni með fjöl-
breyttu efni. Kirkjukór Neskirkju
og barnakór Melaskóla syngja,
Helgi Seljan félagsmálafulltrúi Or-
yrkjabandalagsins flytur hugleið-
ingu, Edda Heiðrún Backman les
upp, Guðrún Birgisdóttir og Martial
Nardaeu flytja flautudúett. Auk
þess verður almennur söngur og
organisti kirkjunnar leikur á hljóð-
færið.
Ekki er að efa að margir leggja
leið í kirkju sína þennan dag, svo
sem venja hefur verið á liðnum
árum. Reynslan sýnir að gjöful er
stundin og vel varið sem leiðir hug-
ann að því sem heyrir til kristninn-
ar boðun í orði og söngvum á jóla-
föstu:
Þig nálgast góður gestur
þinn Guð og vinur bestur.
Guðmundur Óskar Ólafsson
Áskirkja
Aðventukvöld
í Askirkju
Fyrsta sunnudag í aðventu, 2.
desember, verður aðventusamkoma
í Áskirkju kl. 20.30.
Ræðu flytur Kristján J. Gunnars-
son fv. fræðslustjóri. Esther Helga
Guðmundsdóttir syngur einsöng og
nemendur hennar úr Nýja kórskól-
anum syngja aðventu- og jóla-
söngva ásamt kirkjukór Áspresta-
kalls en söngstjóri hans er Kristján
Sigtryggsson. Ennfremur verður
almennur söngur og samkomunni
lýkur með ávarpi sóknarprests og
bæn. Eftir samkomuna mun kirkju-
gestum boðið uppá súkkulaði og
smákökur í safnaðarheimili kirkj-
unnar.
Ibúum dvalarheimila og annarra
stærstu bygginga sóknarinnar
stendur til boða akstur til og frá
kirkjunni í tengslum við samkom-
una.
, Undanfarin ár hafa þessar sam-
komur í upphafi aðventu verið vel
sóttar og reynst mörgum dýrmætur
undirbúningur undir komu jólanna.
Er það von mín að sú verði einnig
raunin nú.
Komu aðventunnar mun og fagn-
að í guðsþjónustum sunnudagsins
í Áskirkju, en barnaguðsþjónusta
er kl. 11 og guðsþjónusta kl. 14.
Árni Bergur Sigurbjörnsson