Morgunblaðið - 30.11.1990, Qupperneq 45
1
Kirkjudagur
Árbæjarkirkju
Árlegur kirkjudagur Árbæjarsafn-
aðar verður haldinn 1. sunnudag í
aðventu, hinn 2. desember nk. Er
það í 20. skiptið sem slíkur dagur
er haldinn í sókninni og hefur safnað-
arfólk jafnan fjölmennt til kirkju
sinnar þennan dag og sýnt hug sinn
til hennar í verki.
Dagskrá kirkjudagsins verður með
hefðbundnum hætti. Um morguninn
verður bamaguðsþjónusta og kirkju-
dagsguðsþjónusta kl. 14. Elín Osk
Óskarsdóttir syngur einsöng og
kirkjukór Árbæjarsóknar syngur
undir stjórn organistans. Sérstaklega
er vænst þátttöku fermingarbarna
og foreldra þeirra í guðsþjónustunni.
Vígður verður nýr hátíðamessu-
skrúði í athöfninni.
Eftir messu kl. 15 hefst kaffisala
Kvenfélags Árbæjarsóknar í safn-
aðarheimili kirkjunnar. Kirkjudags-
kaffi kvenfélagskvenna er óþarft að
kynna, svo rómuð hefur rausn þeirra
verið á umliðnum áram.
Aðventuhátíð safnaðarins verður
síðan sunnudaginn 9. desember kl.
20.30 í Árbæjarkirkju með fjöl-
breyttri dagskrá í tali og tónum.
Verður hún nánar auglýst síðar.
Safnaðarmenn í Árbæjarsókn eru
hvattir til að fjölmenna í Árbæjar-
kirkju á kirkjudaginn og helja að-
ventuundirbúninginn með því að eiga
saman helga stund í kirkjunni sinni
við upphaf jólaföstu.
Verið öll hjartanlega velkomin.
Guðmundur Þorsteinsson
Árbæjarkirkja
Kaffisala Kvenfélagsins
Hringsins á Hótel íslandi
Hringskonur hafa jafnan efnt til
jólafagnaðar fyrsta sunnudag í að-
ventu og verður svo einnig í ár á
Hótel íslandi á morgun kl. 14. Þar
verður selt kaffi og glæsilegt kaffí-
hlaðborð stendur til boða með
heimabökuðu meðlæti, einnig verð-
ur happdrætti með góðum vinning-
um, þar á meðal flugferð til útlanda.
Kvenfélagið Hringurinn hefur
unnið mikið og gott starf í þágu
barna á Islandi og verður það seint
þakkað. Þær settu sér snemma það
markmið að koma upp sérstökum
og sérhæfðum barnaspítala og var
Ijóst að þarfir sjúkra barna eru
aðrar en fullorðinna.
Þegar viðbygging Landspítalans
var á teikniborðinu upp úr 1950
lögðu þær fram fé til upphafsfram-
kvæmda með því skilyrði að barna-
deild væri ætlaður staður í nýbygg-
ingunni og heitir sú deild Landspít-
alans Barnaspítali Hringsins.
Allt frá upphafí hefur Kvenfélag-
ið Hringurinn verið stoð og stytta
Barnaspítalans. Hringskonur hafa
fýlgst með spítalanum og bókstaf-
ULLARPEYSUR í MIKLU ÚRVALI
LACOSTE
lega tekið hann í fóstur. Þær hafa
fært spítalanum stórgjafír og bætt
úr brýnni þörf fyrir ný tæki og
búnað en þarfir spítalans eru miklar
og vaxandi.
Börn fram til 15 ára aldurs eru
fjórðungur þjóðarinnar, þau eru
framtíð þessa lands. Hringskonur
vinna fyrir framtíðina, vinna fyrir
okkur öll. Okkur ber að styðja þess-
ar dugmiklu konur og þess vegna
vil ég hvetja alla til að líta inn á
Hótel ísland á sunnudaginn og sýna
með því stuðning við gott málefni
sem kemur okkur öllum við.
í undirbúningi er nú hönnun og
bygging nýs barnaspítala í tengsl-
um við Landspítalann. Þar verður
markið sett hátt og reynt að gera
hann eins vel úr garði og unnt er.
Hringskonur munu ábyggilega eiga
sinn þátt í þeirri framkvæmd.
Veitum Hringskonum lið með því
að mæta á Hótel íslandi á sunnu-
daginn, njóta góðra veitinga og
styrkja gott málefni.
Björn Júlíusson
barnalæknir.
1 Y T, zÉr
UTIUF
Glæsibæ, sími 82922.
,SAMO\
Tækin
sem stilla þig
inn á góða skapið
STILHREINT FERÐATÆKI
Útvarps og kasettutæki með fullkomnum vekjara.
Stafræn klukka, innbyggður hljóðnemi,
og margir fleiri kostir. Verð kr. 15.250,-
RM 7400
UTVARPSVEKJARI
með tveimur aðskildum hringingum,
stilltur á rafhlöðu sem tekur _
við ef rafmagnið slær út. Verð frá 2.830,
RP 8800
_ Verð frá 4.050,"
ELDHÚSTÆKHÐ VINSÆLA
Sterkt og gott tæki með þægilegum hljómi.
M 1740
FERÐATÆKI
Útvarp og kassettutæki með sterku útvarpi
og góðum hljómi. Verð kr 5.850,-
. t
M 7033
FERÐATÆKI Verð kr 7'800’'
Sterk, fáanlegt í þremur litum, innbyggður hljóðnemi og
stereo sem gefur því góðan hljóm.
VASADISKÓ
MGR78
í miklu litaúrvali og mörgum stærðum. — .
Verð frá 2.450,“
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 • Sími 680780
MORGUNBLAÐIÐ FÓSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1990