Morgunblaðið - 30.11.1990, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 30.11.1990, Blaðsíða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1990 „ Gei -eg gert af þ/í þó ra-fmagn sr-eikn- Ihguank komi á afinaeUsdagínn þinn ?" Með morgunkaffmu Ég... Ég... þig ef þú segir enn einu sinni góðan daginn vinur þegar ég geng fram hjá þér ...! HÖGNI HREKKVISI _E^— ,,£G SB UM HI2ESS/MC3UNA. • ' Þessir hringdu ... Gott kjöt Húsmóðir hringdi: „Ég vil hæla kjöti sem ég keyti og tilreitt var af kjötversluninni Höfn á Selfossi. Þetta var léttreykt, rauðvínslegið lambalæri og mikil gæðavara. Eini gallinn var að þegar bagginn var skorinn niður vildu sneiðarnar detta í sundur og litu þá ekki nógu vel út. Ég hafði samband við fram- leiðandann og efast ég ekki um að ráðin verður bót á þessu.“ Renningur Rauður renningur tapaðist 22. nóvember af svölum við Vestur- götu 7. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 29196. Geisladiskar Vegna misskilnings voru fjórir geisladiskar ásamt ritgerð settir inn í Citrogenbifreið aðfaranótt sunnudags. Vinsamlegast hringið í síma 78698. Armband Gullarmband tapaðist 4. nóv- ember, í Fóstbræðraheimilinu eða á Melunum. Finnandi er vinsam- legst beðinn að hringja í síma 10486. Gullnæla Gullnæla með steini og öryggislæsingu týndist á leiðinni frá heilsugæslustöð Hlíðasvæðis, Drápuhlíð 14., að strætisvagna- stöðinni á mótum Miklubrautar og Lönguhlíðar, þriðjudaginn 20. nóvember. Vinsamlegast afhend- ist á Lögreglustöðina eða Hjalta- bakka24,1 hlæðt.h. Fundarlaun. Gefið upp verð Lesandi hringdi: „I ritdómum um bækur erlend- is tíðkast að gefið er upp verð bókana ásamt blaðsíðúfjölda, og jafnframt er tekið fram hvort bókin sé bundin eða óbundin. Þessa starfshætti ættu þeir sem fjalla um bækur í íslenskum blöð- um einnig að taka upp og bæta þannig þjónustu sína við almenn- ing.“ Gleraugu Gleraugu eru í óskilum í versl- uninni Báru, Hverfisgötu 50, og getur eigandinn vitjað þeirra þar. Víkverji skrifar Víkveiji dagsins hefur verið að lesa ævisögu Franz Liszts, sem Jóh. Gunnar Ólafsson íslenzk- aði og bókaútgáfan Óðinn gaf út í Reykjavík 1946. í bókinni notar þýðandinn orðið hljómleikur í ein- tölu í stað hljómleikar í fleirtölu. „Hugsanir hans hvörfluðu til hljóm- leiksins í Ödenborg", og á öðrum stað segir: „Og hinir duglegu for- eldrar hans fengu því áorkað að hljómleikur var haldinn." Og þá segir: „Á hljómleiknum spilaði Hans es-dúr slaghörpuþátt Liszts." Víkveiji veltir því fyrir sér hvort fellur betur að íslenzku máli að nota orðin hljómleikur og tónleikur o.s.frv. Til dæmis mætti hugsa sér að nota tónleikur um einn sinfóníu- tónleik en sinfóníutónleika ef um tónleikaröð er að ræða. Reyndar hefur Helgi Hálfdanar- son notað þetta orð en ekki í sömu merkingu. í Lé konungi stendur: „Fjarlægur hljómleikur heyrðist.“ Og Helgi segir á öðrum stað: „Kem- ur með hljómleik og söng.“ Og einn- ig talar hann um „mildan hljómleik- inn“. í Orðabók Menningarsjóðs er orðið hljómleikur í eintölu gefið með spumingamerki, sem í skýringum er sagt vera vont mál, orð eða mérking sem forðast beri í íslenzku. Víkveiji sættir sig við að þetta sé ekki málvenja en erfiðara þykir honum að kyngja því að þetta geti talizt rangt mál eða vont. x 'xx Víkveiji ætlar að staldra aðeins lengur vjð tónlist og taka undir orð Jóns Ásgeirssonar tónlist- argagnrýnanda Morgunblaðsins í siðustu viku, þar sem hann talar um bláa tónleikaröð sinfóníuhljóm- sveitarinnar, þar sem flytja skal eingöngu nútímatónlist. „Sú tilhög- un að „sortera" tónlist eftir stíl er ekki líkleg til árangurs, því þá þarf fólk að velja og hafna í stað þess að velja um allt eða ekkert.“ Á öðrum stað hefur Jón spurt og hefur Víkveiji hvergi séð svar við þeirri spurningu: „Fróðlegt væri að vita um ástæðuna fyrir breyttum tónleikatíma Sinfóníunnar frá því sem verið hefur í áratugi. Hveija spurðu forráðamenn hljómsveitar- innar ráða? Spurðu þeir verzlunar- fólk, sem vinnur við afgreiðslu til klukkan 18 eða 19? Spurðu þeir verkamanninn, sem í bezta falli er kominn heim eftir erfíðan vinnudag klukkan 18 eða 19, var einstæða móðirin spurð, sem að afloknum vinnudegi þarf að koma barni sínu fyrir til þess að komast á tónleikana klukkan 20? Eða húsmóðirin, sem ennþá er svo gamaldags að vilja sjá um soðninguna ofan í eiginmann og börn? Hveijir voru spurðir?“ xxx Ekki verður betur séð en slökkvi- liðið í Reykjavík hafí unnið mikið afrek þegar það slökkti eldinn í Landsímahúsinu sl. laugardag. Eldur logaði í öllu þaki hússins og hann var byijaður að teygja sig niður á neðri hæðir þegar slökkvilið- inu tókst að ráða niðurlögum hans á undraskömmum tíma. Þetta er uppreisn æru fyrir slökkviliðið, sem lá undir ámæli eftir brunann í Rétt- arhálsi um árið. Þá voru viðbrögð Pósts og síma ekki síður snögg. Síma- og fjar- skiptasambandi var komið í lag á skömmum tíma eftir brunann. Og endurbygging þaksins tók mettíma. Meira að segja var bytjað að panta efni í þakið á meðan enn rauk úr því! Líklega eru engir nema íslend- ingar jafn fljótir að afgreiða hlutina þegar mikið liggur við. x x x Ifréttum Stöðvar 2 nýlega talaði fréttamaður um „útbreiðslu landhelginnar"!!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.