Morgunblaðið - 16.12.1990, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 16.12.1990, Blaðsíða 59
£áðaH)ós til auðugraUfs Sanaya Roroan jnngangur1 Raro Daw P.tRodegu'0* judilh Sun'M' K lykillad PERSÓNULíGUM STVRKOG andlegum þroska ÚTVARP/S JÓN VflRP s Í5*:\C ESEMBER lítOO 59— Gárur eftir FJínu Pálmadóttur Sagan bráðfyndna Nú á jólaföstunni fjalla fléstir þættir og dálkar fjölmiðla um bækur. Imyndunarafl og hugvit nýtist oft stórkostlega við að tengja við- fangsefni nýútkominni bók. Mað- ur er spurður hvað hann sé að lesa núna, og auðvitað er hann að lesa nýju bókina eftir sjálfan sig og hún er býsna góð. Sé stjóm- málamaður gerður þáttagerðar- stjóri kallar hann að sjálfsögðu á höfund bókarinnar um hann pabba sinn og talar um hana o.s.frv. Enda samkeppnin mikíl og hörð á þessari stuttu jólabóka- vertíð okkar. Þetta er raunar hið ágætasta mál, því í þessum fjöl- breyttu bókum er gott efnisúrval og ódýrt fjölmiðlaefni. Þótt ekki verði komist yfir að lesa og hlusta á það allt, þá reynir Gáruhöfundur sem aðrir að glugga i kynningar og gagnrýni til að átta sig á hvað er vænlegast til lestrar. Að líta a.m.k. í skrif jeirra gagn- rýnenda sem reynslan kennir að hafa svipað- an smekk. Því gagnrýni er auðvitað ekki annað en þekking, þjálfun og smekkur eins gagnrýnanda — að við- bættum kjarki hans tií að segja hvað honum raunverulega fmnst. Allstór hluti gagnrýninnar er að vísu lítið annað en enn einn kynn- ingarpistillinn. Allt getur þetta hjálpað við val á forgangsbókum til lestrar — því auðvitað gleypir enginn allt heila jólabókaflóðið. Mundi bara svelgjast á. Þessi aðferð er þó ekki einhlít. Á því fór gáruhöfundur flatt um daginn. Vakti upp vangaveltur um áhrif gagnrýni á bókakaupendur til gagns eða tjóns. Og ekki síður spurningu um eigin dómgreind. Bókin sem ákveðið var eftir lestur umfjöllunar að láta lönd og leið hefur nefnilega vakið áhuga flestra annarra og stefnir í að verða metsölubók. Situr Gáruhöf- undur þá líklega uppi með að hafa engan húmor eða að minnsta kosti skopskyn ur takt við íslenska þjóð. Svona er hrákfallasagan: í fyrsta ritdóminum um bók Bubba Morthens í Tímanum mátti lesa mikið lof og tekið dæmi um hve frásögnin væri skemmtileg. Þar stóð: „Þrátt fyrir alvöruna undir niðri eru þessar sögur marg- ar hveijar bráðskemmtiiegar, eins og til dæmis sú sem hér fer á eftir og segir frá atviki sem gerð- ist á hljómleikaferðalagi með Egó: Einu sinni stoppuðum við fyrir prófessor frá Frakklandi og kon- unni hans sem var doktor í ein- hverjum steinafræðum. Við bár- um allan farangurinn upp í rútuna fyrir þau og vorum afskaplega elskulegir. Svo var lagt af stað og okkur fannst þau svo hippaleg að við blönduðum í risapípu og buðum þeim. En þau bönduðu frá sér og sögðust aldrei hafa smakk- að svona lagað. „Stopp!“ æptum við. Dyrnar opnuðust með lágu hvæsi og við bentum á þær: „Get the fuck out of here“. Svo hentum við farangrinum út á eftir þeim — og brunuðum í burtu“. Ha-ha-ha, átti auðvitað að ber- ast frá lesanda. En aumingja Gáruhöfundi stökk ekki bros. Þetta hlýtur þó að vera óskaplega skemmtileg saga. Það fínnst Bubba sjálfum sýnilega, skrásetj- aranum Sílju Aðalsteinsdóttur, því annars væri hún ekki þama, og gagnrýnanda Tímans sem tekur hana sem dæmi um skemmtiieg- ' ustu söguna í bókinni. Síðan þessi fyrsta vísbending um bókina var lesin hafa margir kynnar og gagn- rýnendur hrósað henni á prenti og nógu margir kunnað að meta til þess að koma henni hátt á sölu- lista. Gáruhöfundur einn lá í því — og nokkur tilraunadýr sem sag- an var prufuð á. Sá armi skrifari situr uppi með að vera alveg húmorlaus. Sem er heldur dapur- leg niðurstaða. Ef hann hefur þá ekki eitthvert skrýtið skopskyn úr takti við þjóðina! Hvaða skopskyn hefur þá þjóð- in? Nú var leitað að gömlu Mannlífi frá í fyrra, þar sem gerð var úttekt á því hveijir væru 10 fyndnusto menn þjóðarinnar. Þeir finnst vesahng mínum bráðfyndn- ir — í hæfilegum skömmtum. Lyftist þar upp _um eitt stig í sjálfsskoðuninni. í Mannlífsgrein- inni kom fram að meirihluti að- spurðra kvaðst hlæja innilega tvisvar til þrisvar sinnum á dag, en örfáir reyndust þyngri. Þetta er því býsna gamansöm þjóð. Og þar sem tæplega helmingur kvaðst ekki hlæja að bröndurum, fer að þrengjast um efniviðinn til að hlæja svona mikið og svona oft að. Ætli skemmtisögur fari ekki eftir framboði og eftirspum, þar sem gæðin þynnast í miklu magni. Ekki þarf heldur svo lítið til að fylla alla léttu útvarpsþætt ina. I þessari könnun kom fram að auk þess sem 70% aðspurðra töldu íslenska þjóð gædda húmor (blaðið taldi að ekkert hreint íslenskt orð næði yfír fyrirbrigðið allt), þá sögðu þeir konur hlæja meira en karla, þær kunni betur að meta .íslenskan húmor. Þar dettur þessi kona enn meira úr takt við þjóðina.“ Brúnin lyftíst þó aftur þegar lesin voru ummæli aðsp.urðra um hvers konar húmor þetta væri sem íslendingar hefðu, því þá var farið að tilgreina svart- an húmor og durgslegan eða ill- kvittinn. Sagt að íslensk fyndni sé frekar hlægileg en fyndin, varla fyrirfinnist þeir sem hafí gaman af fínlegum og snjöllum orðaleikj um og þar fram eftir götunum. Og rúsínan í pylsuendanum að íslendingar hlæi aðallega að óför- um annarra. Þar fannst loks ein hver afsökun fyrir því að hafa ekki getað hlegið að sögunni hans Bubba. Hún er kannski bara svona þjóðleg? AÐALSTÖÐIN FM 90,9 / 103,2 8.00 Sálartetrið (Endartekinn þáttur). 10.00 Mitt hjartans mál. Endurteknir þættir ýmissa stjónenda. 12.00 Hádegi á helgidegi. Randuer Jensson. 13.00 Jólaakademía Aðalstöðvarinnar. Jólastemm- ing og undirbúningur. i þessum þætti fara dag- skrárgerðarmenn Aðalstððvarinnar á stjá og sjá til þess að ekkert vanti til jólanna. 16.00 Pað finnst mér. Umsjón Inger Anna Aikman. Þáttur um málefni líðandi stundar. 18.00 Sígildir tónar. Umsjón Jón Óttar Ragnarsson. 19.00 Aðal-tónar. Ljúfir tónar á sunnudagskvöldi. 21.00 Lífsspegill. i þessum þætti fjallar Ingólfur Guðbrandsson um atvik og endurminningar, til- finningar og trú. 22.00 Úr bókahillunni. Umsjón Guðríður Haralds- dóttir. Þáttur um bækur og bókmenntir, ritlíöf- unda og útgefendur, strauma og stefnur. Lesið verður úr nýjum bókum og fjallað um þær á ein- faldan og auðskiljanlegan hátt. 24.00 Næturdagskrá Aðalstöðvarinnar. Umsjón Randver Jensson. BYLGJAN FM 98,9 9.00 í bítiö. Upplýsingar um veður, færð og leikin óskalög. 12.00Hádegisfréttir frá fréttastofu Bylgjunnar og Stöðvar 2. Umsjón Elin Hirst. 12.10 Vikuskammtur. Ingi Hrafn Jónsson, Sigur- steinn Másson.og Karl Garðarsson rerfa mál lið- innar viku og fá til sin gesti í spjall. 13.00 Kristófer Helgason. Fylgst með þvi sem er að gerast i íþróttaheiminum og hlustendur tekn- ir tali. 17.00 Jólabókaflóðið. 17.17 Síðdegisfréttir. 19.00 Þráinn Brjánsson. Róleg tónlist og óskalög. 22.00 Heimir Karlsson og hin hliðin. 2.00 Þráinn Brjánsson á næturvaktinni. EFFEMM FM 95,7 10.00 Páll Sævar Guðjónsson. Litið í blöðin og spjallað við hlustendur. 13.00 Valgeir Vilhjálmsson. Saman á sunnudegi. Tónlist og uppákomur. 18.00 Jóhann Jóhannsson. 22.00 Rólegheit I helgarlok. Anna Björk Birgisdóttir og Ágúst Héðinsson. Róleg'tónlist. STJARNAN FM 102/104 10.00 Jóhannes B. Skúlason. 14.00 Á hvíta tjaldinu. Þáttur um allt það sem er að gerast í heimi kvikmyndanna. Umsjón Ómar Friðleifsson. Sjónvarpið: Stundin okkar Það er komin aðventa og allir krakkar, sem horft hafa á Q 00 Stundina okkar, vita hvað það þýðir. í dag verður kveikt — á þriðja aðventukertinu og sitthvað fleira verður í Stund- inni til að minna á komu jólahátíðarinnar. Svo verður auðvitað dreg- ið úr lausnum í Galdraspilinu og við fræðumst svolítið um þriðja málverkið í getrauninni. Krossinn heitir félagsskapur sem rekur öflugt félagsstarf, þar á meðal barnastarf, en krakkarnir í Krossinum hafa myndað með sér hinn áheyrilegasta kór. í Stundinni mun kórinn syngja fýrir okkur og þá fáum við að heyra hvað hægt er að gera vel þegar allir standa saman. í kjölfarið fylgir svo þýskt brúðuleikrit sem heitir Krummi og maðurinn en að leikritinu loknu verður haldið áfram að kynna „dýr í nærmynd" og að þessu sinni kynnumst við köttum af öllum mögu- legum stærðum og gerðum, feitum og mjómum, litlum og stórum. Umsjón hefur Helga Steffensen en stjóm upptöku annast Hákon Oddsson. 18.00 Arnar Albertsson. 22.00 Ólöf Marin Úlfarsdóttir. Stjörnutónlist. 2.00 Næturpopp. ÚTVARP RÓT FM 106,8 10.00 Sigildur sunnudagur. Klassisk tónlist i umsjá Rúnars Sveinssonar. 12.00 Tónlist. 13.00 Elds er þörf. Vinstrisósíalistar. 14.00 Af vettvangi baráttunnar. Gömlum og nýjum baráttumálum gerð skil. 16.00 Tónlist. 17.00 Erindi sem Haraldur Jóhannsson flytur. 17.30 Fréttir frá Sovétrikjunum í umsjá Mariu Þor- steinsdóttur. 18.00 Gulrót. Tónlistarþáttur i umsjá Guðlaugs Harðarsonar. 19.00 Tónlist. 21.00 Svaraðu rétt. Getraunaleikur fyrir hlustendur, með plötuverðlaunum. Umsjónarmaður Ágúst Magnússon. 23.00 Jaz2 og blús. Umsjón Kristján Kristjánsson. 24.00 Næturtónlist. UTRAS FM 104,8 18.00 MR 20.00 MH 22.00 FG BÆKUR I ANDA NYALDAR Miblaðar rableggingar fra Ijosverum aö handan. BsekuT seiu leibbeina, qlebja og hjáipa* Þær eru innbundnar og kosta kr. 2.490,- LIFÐU I GLEÐI (Living with joy) Rituö af Sanaya Roman :ást í öllum helstu aókaverslunum BOK EMMANUELS (Emmanuels Books) Rituð af Pat Rodegast 12.00 14.00 16.00 MS Kvennó. FB NYALDARBÆKUR Bolholti 6, símar 689278 og 689268 Rás 1: Flogaveiks ■■■■ Þátturinn I dagsins önn í dag og á morgun fjallar um floga- "IQ 05 veiki. Starfsemi deildar Landssamtaka áhugafólks um AO flbgaveiki á Norðurlandi eystra eru um þessar mundir 5 ára. í því tilefni verður rætt við Dómhildi Sigurðardóttur, fyrsta formann deildarinnar, og Geir Friðgeirsson, núverandi formann, um markmið landssamtakanna, fræðslustarf, fordóma og um það hvað flogaveiki sé. Einnig verður fjallað um viðbrögð við sjúkdómnum. Ung hjón munu segja frá reynslu sinni af flogaveiki, en bæði hafa þau átt við þannan sjúkdóm að stríða auk þess sem yngsta barn þeirra hefur haft tímabundin krampaköst. Umsjónarmaður þátt- anna er Guðrún Frímannsdóttir. Stöð 2: í frændgarði ■■■■ í frændgarði (The boy in the Bush), fýrsti hluti barna og nlO unglingamyndar í fjórum þáttum sem gerð er'eftir sögu ~ D.H. Lawrence og Mollie Skinner, er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld. Myndin segir frá Jack sem er ódæll í skóla. Hann er rekinn fyrir prakkarastrik og sendur á ástralskan bóndabæ. Jack á í ýmsum erfiðleikum í þessu nýja umhverfi og ekki bætir úr skák að honum er ekki tamt að fara hefðbundnar leiðir. Annar hluti er á dagskrá á Þorláksmessu. Rás 1: Gagn og gaman ■■■■ Þátturinn Gagn og gaman, sem er á dagskrá Rásar 1 í -| 20 dag, verður helgaður nýútkomnum barnabókum. Sagt verð- A v) ur frá helstu bókunum sem koma út fyrir jólin og lesið úr þeim. Umsjón hefur Kristín Helgadóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.