Morgunblaðið - 16.12.1990, Blaðsíða 14
fíl
14
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16: DESEMBER 1990
/
texti og myndir: Jóhanna Kristjónsdóttir
Það var töluverður
ys og þys á Saddam
Hussein-flugvelli á
sunnudagsmorguninn
síðasta þegar við Gísli
Sigurðsson héldum til
Amman með flugvél
íraska flugfélagsins.
Hópur „gesta“ beið
brottfarar þó svo að
formleg fararleyfi
væru þá ekki tilbúin
fyrir alla.
Leiguvélar til Rómar og
Frankfurt áttu að leggja
af stað jafnskjótt og skjöl
og gögn allra hefðu bo-
rist frá sérstakri skrif-
stofu í Bagdad sem hefur
sett lokastimpil á leyfín
eftir að Saddam Hussein
hefur lagt blessun sína yfir þau.
Þó lygilegt sé hefur forsetinn skoð-
að hverja umsókn fyrir sig þar sem
óskað er brottfararleyfis fyrir gest-
ina hans. Stundum hefur hann
fengið hugdettur að tilteknir menn
fái að fara en ekki aðrir og stundum
hefur hann stöðvað - að því er
best verður séð að tilefnislausu -
umsóknir sem hafa meðmæli Saadi
Mehti Saleh þingforseta en það
hefur ekki gerst oft.
í vélinni sem við fórum með voru
aðeins tveir gestir, einn Breti auk
Gísla Sigurðssonar. Nokkrir Japan-
ar höfðu haldið á braut kvöldið
áður en þeir voru komnir með leyfi
áður en Saddam gaf sína skyndi-
legu yfirlýsingu kl. sex á fimmtu-
da^gskvöldið um að hann ætlaði að
.leyfa öllum gestum að fara. Þá lá
strax í augum uppi að alls kyns
skriffinnska og formsatriði tækju
nokkra daga enda var að ganga í
garð helgi þar sem föstudagur er
frídagur í múhammeðstrúarlönd-
um.
Þrátt fyrir frídag var efnt til
skyndifundar íraska þingsins á
föstudeginum. Þar skyldi rætt hvort
„réttkjörnir" 250 þingmenn féllust
á tillögu Saddams Hussein. Að
sjálfsögðu er þingið bara til mála-
mynda en eftir að Saleh þingforseti
hafði kynnt fulltrúum efni tillög-
unnar og flutt þennan venjulega
hástemmda ræðustúf um einstaka
mannkosti Saddams Hussein,
gæsku hans og göfugt hjartalag
auk vitsmuna sem fæstir hefðu jafn
mikið og hann var efnt til „umræðn-
anna“. Þær stóðu örstutta stund
og síðan var gengið tii atkvæða.
Þá komu fimmtán hendur á loft sem ð
vildu ekki fallast á að gestirnir
fengju að fara. Sumir blaðamenn-
irnir urðu undrandi en Saleh þing-
forseti var hinn ánægðasti og beindi
sérstaklega orðum til erlendu blaða-
mannanna að með þessu gætu þeir
sannfærst um að lýðræði og frelsi
hvers og eins réði hér ríkjum.
Gísli á svölum bústaðar sænska sendiherrans í Bagdad.
íraska vélin er komin í loftið.
Dagana sem ég var í Bagdad var haldið mörg hundruð manna friðar-
þing á vegum fjölda kirkjudeilda.
Á Saddam Hussein-flugvelli, það hillir undir við séum að fara. Til
vinstri er 2. ritari sænska sendiráðsins, Thorkel Starnlöv, sem sá til
að allt gengi snurðulaust.
Latif A1 Jassim upplýsingaráðherra var kátur þegar hann sagði blaða-
mönnum frá ákvörðun Saddams um að leggja tillögu fyrir þingið
um að „gestirnir" mættu fara.