Morgunblaðið - 16.12.1990, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1990
33
Gítar og klavíkord
Ceisladiskar
Egill Fridleifsson
Flytjendur: Símon H. ívarsson,
gítar. Orthulf Prunner, klav-
íkord.
Höfundar: Ymsir.
Útgáfa: Skífan.
Út er kominn geisladiskur með
óvenjulegri hljóðfærasamsetningu,
þ.e. gítar og klavíkord. Það eru
þeir félagarnir Símon H. ívarsson
og Orthulf Prunner sem þarna stilla
saman strengi sína og koma áheyr-
endum aftur á óvart, en fyrir fáum
árum gáfu þeir út plötu með gítar
og orgel, sem einnig er mjög óvenju-
legt, kannski einsdæmi. Ég er ekki
viss um að allir viti hvað klavíkord
er, en það er lítið strengjahljóðfæri
með hljómborði og líkist helst semb-
al. Hljómur þess er ekki mikill en
fallegur og raunin er sú að þessi
tvö hljóðfæri, gítar og klavíkord,
eiga ágætlega saman. Bæði eiga
hljóðfærin sér langa sögu og má
geta þess að t.d. Bach og Mozart
höfðu dálæti á klavíkord. Klavíkord
er fáséð hljóðfæri á íslandi og man
ég í svipinn aðeins eftir einu, og
mun það vera í eigu Bókasafns
Hafnarfjarðar.
Ekki mun vera til tónlist sem
upprunalega er samin fyrir gítar
og klavíkord, an þeir félagar, Símon
og Orthulf, hafa umritað verk
ýmissa tónskálda fyrir hljóðfæri sín
með dálítið misjöfnum árangri að
mínu mati. Þau tónskáld sem við
sögu koma eru; Jón Nordal, Jón
Ásgeirsson, Áskell Másson, J.S.
Bach, L.v. Beethoven, I. Albeniz,
M.de Falla og L. Boccherini.
Tvö fyrstu Jögin þekkir hvert
mannsbarn á íslandi, „Hvert ör-
stutt spor“ eftir Jón Nordal og
„Maístjarnan" eftir Jón Ásgeirsson
og hljóma þessir góðkunningjar hér
í nýstárlegum búningi. Þriðja lagið
■ HJÁLPARHELLAN nefnist
bók sem Fjölvaútgáfan hefur gefið
út og fjallar um hollensku konuna
Miep Gies sem annaðist aðdrætti
fyrir Önnu Frank og fjölskyldu
hennar, þar sem þau voru í felum í
2 ár í bakhýsinu við Prinsengracht
í Amsterdam, eins og frægt er. I
kynningu útgefanda segir: „Örlög
litlu gyðingastúlkunnar em mönn-
um hugleikin. Hún lifði í felum á
háalofti bakhýsis undir hernámi
nasista. Innilokuð var hún að þrosk-
ast tii skilnings á tilverunni í skáld-
legum unaði og fegurð. Á kápu
bókarinnar segir að í henni birtist
það sem á vantaði lýsingar Önnu
Frank. Hún vissi ekki, hvað var að
gerast fyrir utan dyra, um skortinn
og skömmtunina. í bókinni er því
lýst hvernig hollenska konan Miep
lagði sig hvað eftir annað í lífsháska
til að útvega fólkinu matvæli og
aðrar nauðþurftir. Hún var sann-
kallaður hjálparengill þeirra." Bók-
in um Hjálparhelluna er færð í letur
af iison Leslie Gold, en Þorsteinn
Thorarensen íslenskaði hana.
Hún er 256 bls. og myndskreytt.
Hún er prentuð hjá G.Ben. Prent-
stofu.
nýjar
í pakka
kr. 1.750.-
er lítt þekkt „Kansóna“ eftir Áskel
Másson og mun upprunalega vera
kvikmyndatónlist, en „Kansónan"
vinnur á við kynningu. Þarna er
einnig að finna tvö lög eftir J. Dow-
land, sónötu eftir J.S. Bach, til-
brigði eftir Beethoven, en einnig
ástríðufulla spænska tónlist eftir
þá I. Albeniz og M. de Falla og þar
njóta þeir félagar sín best að mínu
áliti og er leikur þeirra með miklum
ágætum. Síðasta verkið er svo
„Introduction et Fandango“ eftir
L. Boccherini.
Hér er um óvenjulegan disk að
ræða og forvitnilegan, sém líklega
mun falla mörgum vel í geð enda
hljóðfærasamsetningin nýstárleg
og leikur þeirra Símonar H. Ivars-
sonar og Órthulfs Prunner vandáð-
ur.
lierra'
Jhúsiiði
ADftm*
Laugavegi 47 s. 29122 - 17575
Jakkaföt 19.900-35.800
St. jakkar 11.900-21.800
Buxur 4.900-8.800
Skyrtur 3-4.000
Blússur 9.800-17.900
Rúskinnsjakkar 14.900-22.900
Peysur 5.450-11.800
t
Ýmsar eignir eru undanþegnar eignaskatti,
t.d. innstœba á BAKHJARLI sparisjódsins.
BAKHJARL sparisjóðsins hentar þeim mjög vel sem vilja njóta
hagstæðustu ávöxtunarkjara hjá sparisjóðnum. BAKHJARL
ber háa vexti umfram verðtryggingu, nú 6.5%, og er aðeins
bundinn í 24 mánuði. Með BAKHJARLI opnast einnig
ýmsar leiðir hjá sparisjóðnum til hagsbóta fyrir þig og þína.
Jafnframt er vert að hafa í huga að talsverður munur
getur orðið á skattbyrði þeirra sem eiga um áramót
inneign á BAKHJARLI, og hinna sein eiga á sama tíma
álíka fjárhæð í verðbréfum og svipuðum eignum.
Athugaðu kostina sem fylgja því
að ávaxta fé þitt á BAKHJARLI sparisjóðsins.
Haföu sparisjóðinn að bakhjarli
i’
SPARISJÓÐURINN
SPARISJÓÐUR HAFNARFJARÐAR, SPARISJÓÐUR KÓPAVOGS,
SPARISJÓÐUR REYKJAVlKUR OG NÁGRENNIS, SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA.
1V :