Morgunblaðið - 12.01.1991, Qupperneq 7
Fokkervélin
Hjólabúnaður var
ekki tengdur aðvör-
unarkerfi vélarinnar
EINAR Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, segir að bilunar í
hljólabúnaði Fokker Friendship-flugvélar, sem snúa varð við
á flugvellinum á Höfn í Hornafirði á miðvikudag, hefði senni-
lega orðið vart þegar vélin var keyrð upp í flugtak. Farþegi
í flugvélinni gerði vart við óeðlilegan titring í öðru vænghjól-
inu er flugvélin var að aka út á flugbrautina til flugtaks og
var flugvélinni snúið við á brautinni. Sá hluti hjólabúnaðarins
sem bilaði var ekki tengdur aðvörunarljósum flugvélarinnar.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Einar að verið væri að rannsaka
bilunina. Hann sagði að haft hefði
verið samband við flugmálayfir-
völd hérlendis og Fokkerverksmiðj-
urnar hefðu fengið skýrslu um at-
vikið. Frá þeim færi víðtæk upplýs-
ingadreifíng og væntanlega yrði
öllum Fokkereigendum skýrt frá
því sem gerst hefði.
Einar sagði að Fokkeivélin hefði
verið undir reglulegu eftirliti og
benti á að boltinn, sem bilunin
fannst í, hefði síðast verið skoðað-
ur stuttu fyrir jól. Hann kvað ekki
vitað hve rannsókn málsins tæki
langan tima.
Fram kom að búnaðurinn sem
bilaði hefði ekki verið tengdur að-
vörunarljósum vélarinnar og sagði
Einar að svo væri um ýmsa aðra
hluta flugvéla.
Búnaðarbankinn:
Nafnvextir innlána hækka
BÚNAÐARBANKINN hækkaði í gær nafnvexti af sérkjara-
reikningum. Nafnvextir af Gullbók hækkuðu úr 8% í 10% og
vextir af Metbók úr 10.5% í 13%. Vextir annarra bankastofn-
ana breyttust ekki í gær.
Jón Adólf Guðjónsson, banka-
stjóri Búnaðarbankans, sagði að
með hækkuninni væri verið að leita
jafnvægis á milli óverðtryggra og
verðtryggðra kjara á innlánum.
Vextir umfram verðtryggingu á
Gullbók eru nú 3% en 5,75% á
Metbók.
Búnaðarbankinn hækkaði út-
lánsvexti 21. desember sl. en þá
voru engar breytingar gerðar á
vaxtakjörum sérkjarareikninga.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Heim frá Jórdaníu. Á myndinni eru frá vinstri: Somporn, barnfóstra frá Thailandi, Stefanía Reinhards-
dóttir Khaliteh ásamt syninum Arnari Qais sem er 16 mánaða, Thmara 8 ára dóttir Guðríðar, Guðríð-
ur Guðfinnsdóttir Baara og sonurinn Ahmad 6 ára.
íslendingar heim frá Persaflóa:
„Fólk er mjög hrætt“
- sagði StefaníaReinhardsdóttir Khal-
iteh ræðismaður íslands í Jórdaníu
Keflavík.
„FÓLK er almennt mjög hrætt og ég hef aldrei fundið fyrir ann-
arri eins spennu og daginn sem þeir James Baker utanríkisráð-
herra Bandarikjanna og Tareq Aziz utanríkisráðherra Iraks fun-
duðu í Genf. Fólk sat bókstaflega límt við útvarpstækin til að heyra
fréttir af honum um leið og þær bærust," sagði Stefanía Reinhards-
dóttir Khaliteh, ræðismaður íslands í Jórdaníu, sem kom til lands-
ins ásamt barni sínu seint á fimmtudagskvöldið vegna yfirvofandi
stríðsátaka við Persaflóa. Þrír aðrir íslendingar sem starfað hafa
við Persaflóa komu með sömu vél.
Stefanía sem er gift jórdönskum
rafmagnstæknifræðingi hefur ver-
ið búsett þar í landi í nær 11 ár.
Hún sagði að ástandið þar færi nú
hríðversnandi og nú væri svo kom-
ið að engin önnur flugfélög flygju
til landsins nema Konunglega jórd-
anska flugfélagið. „Öll flug frá
landinu eru yfirbókuð og ég mátti
kallast heppin að komast í burtu.
Maðurinn minn ákvað að vera enn
um sinn í landinu en hann er tilbú-
inn að fara ef ástandið versnar.
Það eru enn nokkrir íslendingar
við Persaflóa og ef flug stöðvast
frá Jórdaníu hafa verið gerðar ráð-
stafanir til að koma þeim í burtu
eftir öðrum leiðum.“
Guðríður Guðfinnsdóttir Baara
er gift jórdönskum flugmanni sem
starfar hjá Konunglega jórdanska
flugfélaginu og hefur hún eins og
Stefanía búið í Jórdaníu í nær 11
ár. Guðríður kom ásamt tveim
börnum sínum en eiginmaður henn-
ar ætlar að bíðá átekta um sinn.
Guðríður sagði að yfirvofandi stríð
og afleiðingar þess væru þegar
komnar fram í Jórdaníu, þar væri
búið að taka upp matarskömmtun
og atvinnuleysi væri í landinu.
„Aröbum finnst almennt að þeir
séu hafðir að blórabögglum í þessu
máli og séu látnir líða fyrir það.
Ég heyrði það á fólki að flestir trúa
því að það verði ekki stríð. En svo
eru aðrir sem telja að deilan verið
aldrei leyst nema með vopnavaldi."
BB
1
STORUTSALA
20 - 70% AFSLÁTTUR
Á EIÐISTORGI11
OPNUNARTIMI UM HELGINA:
í DAG FRÁ KL. 10 - 16 SUNNUDAG FRÁ KL. 13 -17