Morgunblaðið - 12.01.1991, Page 25

Morgunblaðið - 12.01.1991, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1991 25 Halldór Benediktsson frá Fjalli - Minning maður, sem kallað var, hjá þeim ágætu hjónum Jennýju og Bjarna Jónasyni, en hann er látinn fyrir nokrum árum, þegar þau voru bú- endur á Hvammi sem verið hefur tvíbýlisjörð um 60—70 ára skeið, eitt af höfuðbólum þessa larids og sýslumannssetur fyrri tíma. Ég kom á haustdögum 1933 eða fyrir 57 árum, þá aðeins 17 ára, og var hjá þeim í tvö og hálft ár. Ég minnist veru minnar þar sem eins besta hluta ungdómsára minna. Ég þroskaðist þarna af viti og vexti í skjóli þessa góða fólks. Börn þeirra þijú voru þá að vaxa öll innan við fermingu, Lillý, Nonni og Hanna, eins og þau voru kölluð. Öllu voru þau mér góð. Það var margt í heimili og hús- móðirin hafði í mörgu að snúast, sjaldan færri en tíu og oft fleira fólk fyrir utan gesti og gangandi sem var mikið í þá daga. Á hinu búinu var svipað margt þar sem þau ágætu hjón bjuggu, Theódóra Hallgrímsdóttir og Steingrímur Ingvarsson, ásamt fjórum börnum sínum og hjúum. Síðan voru foreldr- ar Jennýjar, Ingibjörg og Jón Bald- vinsson, ásamt fósturdóttur sinni, Ingu Níelsdóttur, í húsmennsku sem kallað var. Þarna var glaðværð og jgott samneyti. Eg minnist þess hvað var gott að leita til Jennýjar þegarvið krakk- arnir vildum eitthvað gera okkur til gamans. Hún var verndari okkar í leik og ærslum sem ungum er svo nauðsynlegt. Ef henni fannst úr hófi keyra sussaði hún á okkur og ég minnist þess aldrei að ekki væri hlýtt og það strax. Hún naut virð- ingar og trausts allra sveitunga sinna og annarra sem til þekktu. Ég læt ekki hjá líða að minnast eins atviks sem skipti mig sköpum. Eflaust var ég ódæll strákur en alltaf hlýddi ég Jennýju og reyndar þeim hjónum báðum því Bjarni var mér afar góður og kom inn hjá mér metnaði við leik og störf. „Stattu þig strákur," sagði hann stundum og þá'var brosið glettið. En ég var að fara í langa ferð vestur á land og þegar Jenný bjó mig til þessarar ferðar kom hún að morgni burtfar- ardags og vakti mig með þessum orðum: „Hérna eru ný pijónanærföt sem þú ferð í, annars færð þú ekki að fara þessa ferð.“ Mér þótti vont að vera í pijónaskyrtu en ég sá að húsmóður minni var svo mikil al- vara að ég vogaði mér ekki að óhlýðnast enda reyndist það hollráð því í þessari ferð villtist ég á Steingrímsijarðarheiði í einn og hálfan sólarhring og lenti í frosti og byl. Komst þó til byggða af sjálfsdáðum. Þá var ekki hlaupið til að leita að fólki fyrr en mátti til. Ekki er ég í nokkrum vafa um að pijónafötin urðu mér til lífs. Ég lét mér þetta að kenningu verða og síðan hef ég notið þessa klæðn- aðar og geri enn. Þannig voru verk þessarar konu sem starfaði í kyrr- þey og hugsaði um velferð allra sem í kringum hana voru og ekki síst til fæðis og klæðis. Blessuð sé minning hennar. Börnum hennar og öllu venslafólki votta ég samúð mína og virðingu. Leópold Jóhannesson Við minnumst Jennýjar frá mörg- um góðum stundum á Eyjólfsstöð- um. Heimili hennar var fallegt og hlýtt og gaf frá sér birtu og styrk. Hún var svo sáttfús og friðelskandi að maður naut þess að vera í ná- vist hennar. Jenný vann störf sín í kyrrþey og krafðist aldrei meira af öðrum en hún gat sjálf látið í té. Dætur okkar voru mörg sumur hjá henni og kölluðu þær Jenný ömmu. Yngsta dóttir okkar minnist þess oft þegar hún kom í búið hennar í graslautinni fögru í brekkunni fyrir ofan túnið og tók þátt í gleði henn- ar er hún sýndi henni kindur sínar, kýr og hesta, sem að sjálfsögðu voru leggir, kjálkar og skeijar. Þannig gladdi Jenný barnssálina og ýtti undir sköpunargleði hennar og starfslöngun. Við þökkum henni fyrir allar samverustundirnar sem minna okk- ur á Ijósið sem lýsir og vermir. Guð blessi minningu Jennýjar. Lilly, Guðlaugur og dætur. Til útlanda bayst mér sú fregn að frændi minn Halldór Benedikts- son, bóndi á Fjalli í Sæmundarhlíð í Skagafirði, væri kominn undir græna torfu. Hann lést á Héraðs- sjúkrahúsi Skagfirðinga á Sauðár- .króki hinn 29. október sl. eftir lang- varandi heilsuleysi. Hann fæddist þann 28. nóvember 1908 á Fjalli, sonur hjónanna Sigur- laugar Sigurðardóttur og Benedikts Sigurðssonar, sem bæði voru fædd á Stóra-Vatnsskarði en bjuggu allan sinn búskap á Fjalli. Benedikt mun hafa verið einhver mesti bassasöngv- ari norðanlands á sinni tíð, og þó víðar væri leitað. Hann söng í Bændakórnum undir stjórn Péturs Sigurðssonar tónskálds. En áður hafði Benedikt kennt þessum ná- frænda konu sinnar að spila á org- el. Sigurlaugu kynntist ég þegar ég kom að Fjaili 8 ára til sumardvalar. Þá var hún orðin ekkja og hafði til afnota eitt herbergi á litla bónda- bænum. Hún var hlédræg en hlý í viðmóti og ég hændist að henni; ég öfundaði strákana sem fengu að sofa inni hjá henni á sumrin! Halldór var á þessum tíma löngu tekinn við búinu ásamt konu sinni Þóru Þorkelsdóttur (f. 1918) frá Miðsitju í Blönduhlíð. Þau hjónin ættleiddu Margréti Sigurbjörgu (f. 1946). Hún er sjúkraliði og býr í Reykjavík. Margrét er gift Olafi Ól- afssyni vélstjóra og eiga þau þijú börn. Þá ólu þau Halldór og Þóra upp systurson Halldórs, Grétar Benediktsson (f. 1942), sem missti móður sína kornungur. Hún hét Margrét og var gift Benedikt Péturs- syni á Stóra-Vatnsskarði. Þau höfðu áður eignast soninn Benedikt sem nú er bóndi á Vatnsskarði. Grétar er bifvélavirki á Akureyri. Kona hans er Erna Bjarnadóttir banka- starfsmaður og eiga þau tvö börn. Það var gestkvæmt á heimili þeirra Halldórs og Þóru þessi sum- ur. Oft var þá þröngt á litla bænum því að nógur var mannskapurinn fyrir; auk heimilisfólksins var alltaf eitthvað af börnum á Fjalli til sum- ardvalar. En enginn setti þrengslin fyrir sig. Eftirminnilegastar eru heimsóknir dr. Jakobs, bróður Hall- dórs. Hann kom flest sumur og var dijúgur við heyskapinn. Oft var Grethe kona hans með í för. Bærinn stækkaði þegar þetta fólk, sem mann grunaði að gert hefði stóra hluti í útlöndum, var allt í einu kom- ið að Fj'alli. Sérstaklega var mikið um að vera kringum rúninginn á vorin og rétt- irnar á haustin. Þá varð þessi af- skekkti bær miðstöð heimsins. Þegar féð var komið inn í Fjallsrétt og búið að bölva hundum, mönnum og ám, var fallist í faðma og heilsast með kossi. Svo þegar hlé var gert á réttarstarfinu var farið h'eim að Fjalli og drukkið kaffi og borðaðar kökur sem Þóra hafði bakað í koks- vélinni, því ómissandi tæki á raf- magnslausum bæ. En „heimsins lif- andis ósköp“ varð hún Þóra fegin þegar rafmagnið loksins kom. Nokkrum árum áður hafði straumur verið leiddur í Blönduhlíð, æsku- byggð hennar. Kvöldið sem ljósin voru tendruð gekk Þóra „út á hóla“ til að sjá ljósadýrðina í Blöndu- hlíðinni. Halldór var líkur móður sinni, hægur í framgöngu en eftirminnileg- ur. Hann naut ekki skólagöngu sem heitið gæti, var að vísu einhveija mánuði á íþróttaskólanum í Haukad- al hjá Sígurði Greipssyni. En hann var vel lesinn og stálminnugur. Hann hafði gaman af að fræða okkur unga fólkið. Hann sagði vel frá, og glettn- in leyndi sér ekki í augunum þegar eitthvað skoplegt var í aðsigi. Áhugi Halldörs á menntun æskulýðsins birtist m.a. í því að hann var starfs- maður Varmahlíðarfélagsins um miðjan Ijórða áratug aldarinnar. Sá félagsskapur beitti sér fyrir að sett- ur yrði á stofn héraðsskóli í Varmahlíð. Draumurinn um skóla þar rættist að vísu ekki fyrr en löngu síðar, og þá var Halldór sem fyrr framarlega í fylkingu. Hann var formaður byggingarnefndar Varma- hlíðarskóla, þeirrar glæsilegu stofn- unar. Síðar var hann oddviti Seylu- hrepps og lét sér þá sem endranær málefni Varmahlíðar og viðgang mjög fyrir bijósti brenna. Hann var farsæll bóndi en bjó aldrei stórt. Gott lag hafði hann á skepnum og átti góða hesta. Skjóni Halldórs á Fj'alli setti svip á um- hverfi sitt eins og eigandinn. Halldór var laghentur og aðstoðaði oft ná- t STEFÁN HILMARSSON, fyrrverandi bankastjóri, er látinn. Sigrfður K.,Thors og fjölskylda. t HELGI HÓSEASSON prentari, lést 1. janúar sl. á Landspítalanum. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Vandamenn. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÉTUR INGIMUNDARSON, Sólvallagötu 43, lést 9. janúar. Áslaug Pétursdóttir, Jón Haukur Jóelsson, Ingimundur Pétursson, Magna Sigfúsdóttir og barnabörn. t Þökkum af hjarta auðsýnda samúð við andlát og útför ÓSKARS PÁLSSONAR, Dalalandi 2. Guð blessi ykkur öll. Þórunn Guðmundsdóttir og fjölskylda. granna sína við smíðar. Söðlasmiður var hann góður og mun hafa lært þá íþrótt af föður sínum. Lagni hans birtist reyndar á ýmsum sviðum. Oft bar það t.d. við að einhver nágrann- •inn kom ríðandi og bað um klipp- ingu. Eldhúsið breyttist þá óðara í rakarastofu. Söngur og tónlist voru Halldóri lífsfylling. Hann var einn af stofn- endum Karlakórsins Heimis og síðar heiðursfélagi, enda söng hann þar annan bassa í meira en hálfa öld. Þau Halldór og Þóra bjuggu á Fjalli fram til ársins 1980 að þau seldu jörðina og fluttu í Varmahlíð. Þau bjuggu í nokkur ár í Mánaþúfu, en þegar heilsan var brostin lá leiðin á ellideild sjúkrahússins á Sauðár- króki. Þóra lifir mann sinn. Mér er þakklæti í huga þegar ég minnist Halldórs og alls þess fólks sem ég kynntist á Fjalli. I kringum Halldór ríkti andi sem einkenndist af lífsglaðri nægjusemi en jafnframt virðingu fyrir því sem mátti teljast háleitt og mannbætandi. Ég votta samúð mína Þóru og öðrum aðstand- endum þessa öðlingsmanns. Baldur Hafstað Minning: Gísli S. Reimarsson Fæddur 31. mars 1949 Dáinn 1. janúar 1991 Mig langar í fáeinum orðum að minnast Gísla mágs míns. Ég kynnt- ist honum fyret þegar hann og syst- ir mín hófu búskap fyrir tæpum sex árum. Hann vargóður heim að sækja og alltaf boðinn og búinn að hjálpa ef hann var þess megnugur. Fáa þekki ég í dag sem búa yfir slíku jafnaðargeði og skapfestu sem mér fannst svo éinkennandi fyrir hann ef eitthvað bjátaði á en ég dáðist svo oft að því. En dulur var hann og flíkaði ekki tilfinningum sínum. Gísli og Systa, eins og hún er jafnan kölluð, eignuðust dreng 28. desemb- er 1986 sem heitir Gunnar og stúlku 5. mars 1989 seiii heitir Jóhanna. Þar með rættist sú langþráða ósk hans að koma upp nafni móður sinnar en Gísli reyndist börnum sínum hinn besti faðir. Frá fyrra hjónabandi átti Gísli - fyrir soninn Þorbjörn fæddan 1971. Fyrir tæp- lega ári ákváðu þau að stækka við sig og fluttu inn í stórt og gott ein- býlishús í Keflavík. Framtíðin virtist björt og ýmsir erfiðleikar að baki. En skyndilega er heimilisfaðirinn allur og engin orð fá tjáð slíkan at- burð. Elsku Ingibjörg systir, þú sem ert svo sterk. Megi algóður Guð styrkja þig og litlu börnin ykkar sem nú eiga um svo sárt að binda. Einnig son hans Þorbjörn, Reimar, systkini og fjöl- skyldur þeirra og aðra ættingja og vini. Þess biðjum við öll, foreldrar, systkini og fjölskyldur þeirra. Blessuð sé minning hans. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V.Briem) Sigga t Bróðir okkar og fósturbróðir, GARÐARJÓNSSON frá Hæsta Hvammi, Dýrafirði, Kleppsvegi 56, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu mánudaginn 14. janúar kl. 13.30. Sigríður Jónsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Þórður Jónsson, Ari Jónsson, Ragnheiður Jónsdóttir, Soffía Jónsdóttir, Sigurlaug Jónsdóttir, Guðrún H. Jónsdóttir, Ingunn Jónsdóttir, Þorsteinn Óskarsson, Inga Jónsdóttir. - t Þökkum öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og bróður, HELGA FRIÐRIKS SIGMARSSONAR matsmanns, Múlavegi 1, Seyðisfirði. Guð blessi ykkur öll á komandi árum. Jónina Þórisdóttir, börn, tengdasonur, barnabörn og systkini hins látna. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við apdlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUNNARS ÓLAFSSONAR, Haga, Selfossi. Sérstakar þakkir til starfsfólks sjúkrahúss Selfoss. Ragnheiður Hannesdóttir, Hannes Gunnarsson, Ása Bjarnadóttir, Magnús Gunnarsson, Guðrún Ingvarsdóttir, Ólafur R. Gunnarsson, Bergrún Sigurðardóttir, Sigurður K. Gunnarsson, Þórunn Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.