Morgunblaðið - 23.01.1991, Síða 2

Morgunblaðið - 23.01.1991, Síða 2
i* it . c iiA'oWl <ii(iAJHVÍxJO>lOM MORGUNBLAÐID MIÐVÍKÚDAGUR 23. JANÚAR 1991 Bruninn í Skíðaskálanum: Brunavarnir voru orðn- ar miklu betri en þegar skýrslan var gerð - segir eigandi Skíðaskálans um svarta skýrslu Brunamálastofnunar BRUNAMALSTOFNUN gerði athugun á brunavörnum í Skíða- skálanum í Hveradölum fyrir ári síðan og gaf skálanum einkunn- ina óviðunandi. Að sögn Bergsteins Gizurarson- ar, brunamálastjóra, sendir stofn- unin skýrslur um úttektir sínar á brunavörnum til viðkomandi slökkviliðsstjóra og sveitastjóra. Lögum samkvæmt er frumkvæðið um brunavamir í höndum slökkvi- liðsstjóra viðkomandi staðar. Bersteinn sagði lögin um þessi mál ekki nógu skýr. Hann sagði til dæmis eðlilegt að áður en gefin væri út rekstrarleyfi við veitinga- húsa og annara staða væri eðlilegt að Brunamálastofnun eða slökkvi- liðsstjóri á staðnum gæfí út vottorð um að brunavarnir væru fullnægj- andi. Nafn mannsins sem lést í Njarðvíkurhöfn Sjómaðurinn, sem lést af slys- förum um borð í báti í Njarðvík- urhöfn á mánudag, hét Einar S. Sigurðsson, Leynisbraut 12, Grindavík. Einar var 41 árs að aldri. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú böm. ______. ______ Kosningar í Dagsbrún: Stjórnin opn- ar kosninga- skrifstofu FRAMBOÐSLISTI sljórnar og trúnaðarráðs Dagsbrúnar, A-list- inn, hefur opnað kosningaskrif- stofu í Alþýðuhúsinu við Hverfis- götu fyrir sljórnarkosningarnar 25.-27. janúar. Kosningastjóri hefur verið ráðinn og er það Þröstur Ólafsson, starfsmaður utanríkisráðherra og fyrrver- andi framkvæmdasljóri Dags- brúnar. Þeir sem standa að mótframboð- inu gegn núverandi stjóm Dags- brúnar opnuðu fyrir skömmu kosn- ingaskrifstofu á Vesturgötu 52. Kosningastjóri og framkvæmda- stjóri þeirra er Þórir Karl Jónasson. í dag ki. 17 fer fram sameiginleg- ur kosningafundur framboðslist- anna í Bíóborginni. Carl Johansen, eigandi Skíða- skálans, sagðist leiður að heyra brunamálastjóra lýsa því yfir að ekkert hafi verið gert í brunavörn- um Skíðaskálans. Hann segist hafa gert mikið frá því Brunamálastofn- un gerði skýrslu sína, til að auka brunavamir. Hann sagði að síðan hann fékk skýrsluna hefði ekkert heyrst frá Brunamálastofnun og enginn frá þeim komið til að athuga hvað gert hafí verið. „Það er heldur ekki rétt sem sagt hefur verið að ekkert vatn hafi verið hér. Það er til nóg vatn þarna. fyið erum með 64 tonna vatnstahk og auk þess vatnsból sem stendur um 400 metra frá húsinu. I því eru fleiri þúsund lítrar af vatni. Slökkviliðið hefur greinilega ekki kynnt sér aðstæður," sagði Carl. Allar fasteignatryggingar utan Reykjavíkur em reknar af Vátrygg- ingafélagi íslands í verktöku fyrir Samvinnutryggingar og Bruna- bótafélag íslands. Axel Gíslason, forstjóri VÍS, segir að almenna regl- an í tryggingum sé að iðgjöldin séu í samræmi við þá áhættu sem verið er að tryggja. Hann sagði að trygg- ingarfélög hefðu heimild til að gera athugasemdir við brunavamir og láta viðkomandi greiða hærra ið- gjald og jafnvel væri hugsanlegt að neita tryggingu. Hann sagði einnig að þar sem brunavamir væra til fyrirmyndar'væri tekið tillit til þess með lægri iðgjöldum. Axel sagði að sambandið við B^unamálastofnun mætti og þyrfti að vera meira. „I því fellst enginn áfellisdómur á branamálastofnun, því það þarf tvo til. Á síðasta ári hófum við samstarf við brunamála- stofnun og fleiri opinberar stofnan- ir um auknar forvamir. Ljóst er af þessum stóra og tíðu branatjónum á undanfömum áram að herða þarf róðurinn í þessu sambandi, og það munum við gera.,“ sagði Áxel. Læknadeilan: Fundi frestað S AMNIN G AFUNDI samninga- nefnda sjúkrahúslækna og við- semjenda þeirra var frestað seint í gærkvöldi og er stefnt að öðrum fundi síðdegis á morgun. Að sögn Guðlaugs Þorvaldsson- ar, ríkissáttasemjara, hefur þokast nokkuð í samningaátt, en engu að síður væra enn nokkrir hnútar sem þyrfti að leysa. Morgunblaðið/Sverrir Jóhann Einvarðsson, formaður utanrikismálanefndar Alþingis og Friðrik Ólafsson skrifstofustjóri Alþing- is tóku á móti Zingeris í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærkvöldi. Litháen verður sjálf- stætt ríki eins og Island - segir formaður utanríkismáianefndar Litháen EMANUELIS Zingeris, formaður utanríkismálanefndar þings Lithá- ens, kom til landsins með flugvél frá Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Zingeris er í óopinberri heimsókn, en mun ræða við íslenzka sljórn- málamenn um samskipti íslands og Litháens. Zingéris sagðist við komuna til Keflavíkur telja að samskipti Lithá- ens og íslands væru nú þegar beztu samskipti Eystrasaltsríkjanna við Vesturlönd. Hins vegar vænti hann enn frekári árangurs. „Ég mun ræða samskipti íslands og Litháens almennt, þar á meðal diplómatísk samskipti. Við höfum til dæmis áhuga á formlegum sam- skiptum þjóðþinga landanna," sagði Zingeris. Aðspurður um líklega þróun mála í Litháen sagði hann án þess að hika: „Litháen verður sjálfstætt ríki eins og ísland. Mjög fáir Litháar trúa því að öðravísi muni fara. Hemaðar- legt ofbeldi Sovétríkjanna mun að- eins flýta þeirri þróun. Því fleiri sem verða undir sovézkum skriðdrekum, því fleiri sem falla fyrir málstað okkar, þeim mun síður verður snúið við á braut okkar til sjálfstæðis." Áætlað er að Zingeris muni í dag eiga fund með forsetum Alþingis og utanríkismálanefnd. Á morgun mun hann hitta að máli Þorstein Pálsson, formann Sjálfstæðisflokksins, og ef til vill aðra formenn stjómmála- flokka. Þá mun hann ræða við Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra, Ólaf G. Einarsson, formann íslandsdeildar Norðurlandaráðs, og Pál Pétursson, forseta Norðurlanda- ráðs. „Við munum ræða út frá sjónar- homi Zingeris ástandið í Eystra- saltslöndunum, einkum í hans heimaríki," sagði Jóhann Einvarðs- son formaður utanríkismálanefndar í samtali við Morgunblaðið. „Að sjálfsögðu verður farið yfir það hvað við og hann teljum að íslendingar geti gert til að verða að gagni í baráttu Litháa. Það verður öragg- lega minnzt á skipti á embættis- mönnum eða diplómatísk samskipti. Það verður áreiðanlega rætt hvaða praktísk vandamál era í kring um þann möguleika. Það er að sjálf- sögðu ríkisstjómin, sem tekur ákvarðanir um slíkt, ef teknar verða,“ sagði Jóhann. Dalasýsla: Friðjón Þórðarson skipaður sýslumaður ÓLIÞ. Guðbjartsson dómsmálaráðherra hefur veitt Friðjóni Þórð- arsyni, alþingismanni og fyrrverandi dómsmálaráðherra, emb- ætti sýslumanns í Dalasýslu. Pétur Þorsteinsson hefur látið af þvi starfi vegna aldurs. Sex umsækjendur voru um stöðuna og óskuðu fjórir, þar á meðal Friðjón, nafnleyndar en aðrir umsækj- endur voru Georg Kr. Lárusson, settur borgardómari, og Guð- mundur Björnsson, fulltrúi sýslumanns í Barðastrandarsýslu. „Mér datt það bara í hug að það væri nokkuð gott, svona þeg- ar ég væri að hætta þing- mennsku, að fara í þetta starf meðan dagur væri á lofti,“ sagði Friðjón í samtali við Morgunblað- ið, aðspurður hvers vegna hann hefði sótt um starfið. Friðjón hef- ur áður verið sýsiumaður í Dala- sýslu, gegndi því embætti árin 1955 til 1965. Friðjón sagðist ekki eiga von á að nýja starfið myndi valda mik- illi röskun á högum sínum, hann hefði átt tvö heimili áratugum saman sem þingmaður, annað í Reykjavík ert hitt heima í kjör- dæmi. Friðjón var þingmaður Dalamanna 1957-1959 og hefur átt sæti á Alþingi fyrir Vestur- landskjördæmi s^mfleytt frá 1967. Friðjón verður 68 ára eftir nokkra daga, en opinberir emb- ættismenn láta vanalega af störf- Friðjón Þórðarson. um um sjötugt. „Sjötugsaldurinn setur öllum takmörk en ég vona að ég geti orðið að einhveiju liði þennan tíma, sem eftir er fram að sjötugu,“ sagði Friðjón. Feðgar úr Mývatnssveit í hrakiiiiignm á hálendinu Björk, Mývatnssveit. TVEIR Mývetningar, þeir Sigurbjörn Sörensson og Hörður Sigur- bjarnarson, fóru suður á hálendið í síðustu viku til að lesa af álagsmöstrum Landsvirkjunar og Rafmagnsveitna rikisins. Þessi möstur standa vestur af Herðubreið og við Gæsavötn. Þeir voru á jeppa með tvo vélsleða á vagni. Ekið var á jeppanum sem leið liggur að Herðubreið, þá voru sleðamir teknir af vagninum. Um kvöldið var siðan lesið af möstrunum við Herðubreið. Síðan var ekið á sleðun- um í skálann við Drekagil og gist þar. Gekk sú ferð vel. Að morgni 15. janúar lögðu þeir af stað áleiðis að Gæsavötnum. Syðst í Öskju skall á suðvestan ofsaveður og blindhríð. Urðu þeir því að snúa við. Norðari Dyngju- fjalla var betra ferðaveður og héldu þeir síðan vestur með fjöllunum að norðan og suður Dyngjufjalladal. Syðst í dalnum skall á suðvestan fárviðri. Veðurofsinn var slíkur að ekki var hægt að ráða við sleðana. Var því ekki annað að gera fyrir þá en snúa við og halda undan veðr- inu til byggða. Fimmtudaginn 17. janúar var enn á ný lagt af stað og fóru þeir með sama búnað og fyrr. Ekið var á jeppanum suður fyrir Mýri í Bárðardal, þar var sest á sleðana og haldið að möstrum vítt og breitt á Sprengisandi. Því verki var lokið um kl. 16, þá vora þeir staddir norðan Fjórðungsvatns. Veður var þá orðið vont, suðvestan hvassviðri og snjókoma. Eftir um klukkutíma akstur bilaði annar sleðinn og var hann þá tekinn í tog. Fljótlega skall á öskubylur frá gosinu í Heklu sem hófst um kl. 17 þann dag. Gosaskan settist fljótlega í kúplingu sleðans með þeim afleiðingum að hann varð einnig óvirkur. Þegar svo var kom- ið var ekki annað til ráða en skilja báða sleðana eftir og reyna að ganga áleiðis til byggða. Þeir voru þá staddir við Ytrimosa á Sprengi- sandi. Eftir um þriggja klukkutíma gang tókst þeim loks að ná talstöðv- arsambandi við björgunarsveitina Garðar á Húsavík fyrir hreina tilvilj- un. Höfðu Garðarsmenn síðan sam- band við bændur á Mýri í Bárðar- dal. Brugðu þeir skjótt við til leitar á tveimur vélsleðum. Sú ferð gekk að óskum að öðra leyti en því, að gosaskan settist einnig í kúplingu á öðram sleða Mýrarmanna og olli það nokkrum töfum. Komið var i Mýri kl. 4 um nóttina, húsmóðirin þar, Guðrún Sveinbjörnsdóttir, var á fótum og beið með hlaðið veislu- borð, Sunnudaginn 20. janúar voru sleðarnir sóttir í björtu og fögru veðri suður á Sprengisand á jeppa. Þess má geta að lokum að enn er eftir að lesa af möstrum við Gæsa- vötn. Kristján

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.