Morgunblaðið - 23.01.1991, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 1991
17
Nýr vara-
ríkisskatt-
stjóri
SKÚLI Eggert Þórðarson var
skipaður vararíkisskattstjóri frá
1. desember sl. Ævar ísberg lét
að eigin ósk af störfum vararíkis-
skattstjóra sem hann hefur gegnt
frá 1967 en hann starfar áfram
hjá embættinu að sérstökum
verkefnum.
Skúli Eggert er 37 ára lögfræð-
ingur. Hann starfaði hjá skattstjóra
Reykjanesumdæmis 1981-83. Síðan
hefur hann starfað hjá embætti
ríkisskattsstjóra, fyrst í rannsókna-
deild, síðar sem rekstrarstjóri ríkis-
skattstjóra frá 1986 og forstöðu-
maður staðgreiðsludeildar frá
stofnun hennar 1. maí 1987. Skúli
Eggert er áfram yfirmaður stað-
greiðsludeildar, sem með breyttu
Skúli Eggert Þórðarson
skipulagi embættisins heitir nú
tekjuskattsdeild og undir hana fell-
ur, auk staðgreiðslunnar, öll álagn-
ing opinberra gjalda.
Eiginkona Skúla er Dagmar Elín
Sigurðardóttir og eiga þau tvö börn.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Steingrímur Sigfússon samgönguráðherra klippir á borða og opnar
Tungufljótsbrú formlega. Með honutn á myndinni eru systkinin Fann-
ar Olafsson og Björt Ölafsdóttir,
T ungnflj ótsbrú tek-
in formlega í notkun
Selfossi.
NYJA brúin yftr Tungufljót í Bisk-
upstungum var tekin formlega í
notkun 19. janúar. Steingrímur
Sigfússon santgönguráðherra
klippti á borða við annan brúar-
endann og lýsti brúna formlega
tekna í notkun.
Nýja Tungufljótsbrúin er skammt
frá bænum Felli og liggur við Norðu-
renda Pollengis og frá henni er
skammt yfir í Bræðratunguhverfi.
Verði byggð brú á Hvítá við Hvítár-
bakka verður mjög stutt yfir að Flúð-
um og um leið komin hringtenging
vega í uppsveitum Árnessýslu.
Nýja Tungufljótsbrúin er 90 metra
löng stálbitabrú með einum
millistöpli. Brúarsmiður var Jón
Gíslason og hönnuður Baldvin Ein-
arsson. Gamla'brúin yfir Tungufljót
var byggð 1929 og því komin til ára
sinna. Vegur í Bræðratungu var ekki
lagður fyrr en 1940.
Það_ voru systkinin Fannar og
Björt Ólafsbörn frá Torfastöðum sem
aðstoðuðu samgönguráðherra við að
klippa á borðann við opnun brúarinn-
ar og fengu hvort sinn bútinn úr
borðanum til eignar. Eftir að klippt
hafði verið á borðann gengu gestir
yfir brúna með Steingrím Sigfússon
og Gísla Einarsson oddvita í broddi
fylkingar. Við hinn brúarendann
heilsaði þeim Sveinn Skúlason í
Bræðratungu og að athöfninni lok-
inni við brúna var boðið til kaffisam-
sætis í Aratungu.
— Sig. Jóns.
Ágúst Flygenring fram-
kvæmdastjóri látinn
Ágúst Flygenring, fram-
kvæmdastjóri í Hafnarfirði, lést
á mánudag, 68 ára að aldri.
Ágúst fæddist í Hafnarfirði þann
15. janúar árið 1923, sonur Ingólfs
Flygenring alþingismanns og fram-
kvæmdastjóra þar og konu hans,
Kirstínar Pálsdóttur Flygenring.
Ágúst lauk prófi frá Verslunarskóla
íslands árið 1943. Árið 1945 réðst
hann sem skrifstofumaður til íshúss
Hafnarfjarðar og var framkvæmda-
stjóri þess frá 1966-1985, þegar
rekstrinum var hætt. Hann sat í
stjórn Landssambands íslenskra
útvegsmanna frá 1962-1981 og í
stjórn Sölumiðstöðvar hraðffysti-
húsanna frá 1974-1984, þar af sem
formaður stjórnarinnar 1982-1984.
Þá sat hánn í stjórn Lífeyrissjóðs
Hlífar og Framtíðarinnar frá 1972
til 1990 og í stjórn Sparisjóðs Hafn-
arfjarðar frá 1983 til dauðadags.
Ágúst átti einnig sæti í stjórn Sam-
ábyrgðar íslands á fiskiskipum og
í fleiri stjórnarnefndum á vegum
sjávarútvegsins.
Eftirlifandi eiginkona Ágústs er
Guðbjörg Magnúsdóttir. Þau eign-
uðust fjögur börn.
Árbæjarskóli:
Fikt með eldspýtur
var orsök brunans
ÞRIR unglingar í Árbæjarskóla hafa viðurkennt að hafa fiktað með
eldspýtur á mánudag og orðið þess óvart valdandi að kviknaði í rusla-
tunnu á gangi skólans.
Viktor A. Guðlaugsson, skólastjóri Ofsagt var í frétt Morgunblaðsins
Árbæjarskóla, sagði að eftir nokkra í gær að þurft hefði að rýma allan
eftirgrennslan hefðu þrír ungling- skólann og gefa nemendum frí. Þess-
spiltar gengist við því að hafa verið ar upplýsingar fékk blaðið hjá lög-
að fikta með arineldspýtur. Þeir reglu. Viktor A. Guðlaugsson sagði
hefðu kveikt á einni, blásið á hana að rýma hefði þurft þær þrjár
tii að slökkva logann og hent henni kennslustofur, sem voru á ganginum
í ruslafötuna. Augljóslega hefði þá þar sem eldurinn kom upp. Nemend-
ekki verið dautt á henni og hún því ur þeirra bekkjadeilda hefðu fengið
kveikt í rusli í tunnunni. „Eg er feg- að fara heim, enda stutt eftir af
inn að þetta upplýstist og létti þegar skóladegi þeirra. Þá hefðu kennslu-
ég komst að því að um óviljaverk stofurnar ekki verið notaðar eftir
var að ræða, þó fiktið í drengjunum hádegi, þar sem verið var að þrífa
sé auðvitað ekki réttlætanlegt,“ sót af veggjum.
sagði Viktor.
Sjómannafélag Reykjavíkur:
Honda ’91
Accord
Sedan
2,0 EX
Samningur togara-
sjómanna staðfestur fYR,R ALU
STJÓRN og trúnaðarmannaráð
Sjómannafélags Reykjavíkur hef-
ur samþykkt að staðfesta kjara-
samninginn á milli Sjómannasam-
bands Islands og Landssambands
íslenskra útvegsmanna fyrir und-
irmenn á stóru togurunum, með
áorðnum breytingum en báta-
kjarasamningurinn hefur þegar
verið samþykktur.
1 ályktun stjórnar og trúnaðar-
mannaráðsins segir að eðlilega hafi
verið staðið að talningu atkvæða
vegna bátakjarasamninganna og
samninga á togurum en uppbygging
þeirra sé ólík og því óeðlilegt að at-
kvæði greidd sitt hvorum samningn-
um hafi verið talin sameiginlega. Þar
sem svo hafi verið komið að bátakj-
arasamningarnir voru samþykktir en
ekki samningar fyrir togarana flóra
sem gerir eru út frá Reykjavík og
að samningurinn gildir aðeins til 15.
september, ákvað stjórn Sjómannafé-
lagsins að staðfesta samninginn.
0HONDA
VATNAGÖRÐUM 24 RVÍK., SÍMI 689900
Innilegustu þakkir til allra, sem lyftu mér á
tíunda tuginn með viötölum, skeytum, gjöfum
og heimsóknum.
Eiríkur Stefánsson,
Dalbraut 18, Reykjavík.
WWW'WW'WSF
SPARIÐ - SETJIÐ SAiAN SJÁLF
B
jöminn býður upp á gott og
fjölbreytt úrval efniviðar til
smíði á eldhús- og baðinnréttingum
og fataskápiim.
Fagmenn okkar sníða efnið
eftir þínum þörfum.
Þú setur innréttinguna saman
sjálf(ur) og sparar þannig
peninga.
Komdu með þína hugmynd til
okkar - fagmenn aðstoða þig
við að útfæra hana.
BJORNINN
BORGARTÚNI28 S. 6215 66
AMt fráwé ÓHmfv/váss