Morgunblaðið - 23.01.1991, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 23.01.1991, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 1991 Alþingi væntir aðgerða Umræður um skýrslu utanríkisráðherra um ástandið í Eystrasaltslöndunum ákvarðanir sem yrði að taka næstu daga. Jóhann greindi einnig frá því að samstaða væri um að kanna með hvaða hætti væri unnt að senda sendinefnd til þessara ríkja. Jóhann þakkaði utanríkisráðherra fyrir að hafa farið þessa för, sem hefði ver- ið mjög brýn og reynst hin þarfasta. JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra gerði sameinuðu þingi í gær grein fyrir för sinni til Eystrasaltsríkjanna og ástandi mála í þessum ríkjum. í umræðum voru þingmenn með einni undantekn- ingu einhuga um að gera allt sem mögulegt væri til stuðnings sjálf- stæðis Eystrasaltsríkjanna. í upphafi ræðu sinnar rakti Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis- ráðherra nokkuð forsögu ferðar sinnar. Landsbergis forseti Lithá- ens hefði leitað til íslendinga því þeir hefðu umfram flesta haft frum- kvæði um að styðja málstað Eystra- saltsríkjanna. í ferð sinni mun utanríkisráð- herra hafa rætt við marga ef ekki flesta forystumenn Eystrasaltsríkj- anna að forseta Eistlands undan- skildum sem var nýfarinn áleiðis til Moskvu. Jón Baldvin lýsti í mynd- rænu máli hvernig ástandið hefði komið honum fyrir sjónir. Tugþús- undir vopnlausra borgara stóðu vörð um helstu stofnanir, víða höfðu víggirðingar verið reistar, eða öllu heldur farartálmar til að varna skriðdrekum og hertólum innrásar- hersins aðgang. En um leið hefði ástandið borið vitni um nokkurs konar þjóðhátíð; augljóst hefði verið að fimmtíu ára kúgunartilraun hefði mistekist. Þjóðmenning og frelsisandi Eystrasaltsþjóðanna lifði sem aldrei fyrr. Utanríkisráðherra greindi frá því mati forystumanna í Eystrasaits- Stuttar þingfréttir: Upplýst Reykjanesbraut Jóhann Einvarðsson (F-Rn) hefur lagt fram tillögu til þings- ályktunar um að: „Alþingi álykti að fela ríkisstjórninni að láta gera kostnaðar- og fram- kvæmdaáætlun við að setja upp lýsingu við Reykjanesbraut milli Hafnarfjarðar og Narðvík- ur og leggja haná fyrir Alþingi eigi síðar en við næstu endur- skoðun vegaáætlunar." í greinargerð með tillögunni er m.a. bent á að slysatíðni á Reykjanesbraut sé mikil og flest slysin mjög alvarleg. Það er skoðun Jóhanns Einvarðs- sonar að fullkomin lýsing við veginn sé fijótvirkasta og ódýr- asta lausnin í sjónmáli til að draga úr slysatíðni. Samkvæmt upplýsingum sem flutnings- maður hefur aflað sér má áætla að kostnaðurinn við þetta verk frá Hafnarfirði að Innri- Njarðvík sé 80-90 milljónir króna. Hækkun skattleysismarka Guðmundur H. Garðarsson (S-Rv) er flutningsmaður þingsályktunartillögu um að: „Alþingi ályktar að fela fjár- málaráðherra að hefja undir- búning að breytingu á lögum um tekjuskatt með þeim hætti að mánaðartekjur einstaklings, 100.000 kr. eða lægri, verið skattfijálsar.“ I dag eru skatt- leysismörk um 57 þúsund krón- ur. Guðmundur segir að þegar staðgreiðslukerfi skatta var tekið upp, hafi einn megintii- gangur verið að létta skatt- byrði lág- og millitekjufólks. Því miður hafi reynslan orðið önnur. Skattaprósentan hafi verið hækkuð og skattleysis- mörk ekki tekið eðlilegum breytingum með tilliti til verð- bólguþróunar síðastiiðin þrjú ár. Flutningsmaður leggur til að með tiliiti til fjárlagaársins kæmu þessar skattbreytingar til framkvæmda frá og með 1. janúar 1992. Gefist þá svigrúm til að mæta viðeigandi tekju- breytingu hins opinbera'' með niðurskurði eða öðrum hætti vegna fjárlaga 1992. ríkjunum að unnið væri eftir kerfis- bundinni áætlun við að kæfa bar- áttu þeirra. Menn í innsta hring hefðu ákveðið að láta til skarar skríða. Sérstaklega voru nefnd for- setaembætti Sovétríkjanna, vamar- málaráðuneytið, innanríkisráðu- neytið og öryggis- og leynilögreglan KGB. Að lengra hefði enn ekki ver- ið gengið, að aðgerðirnar hefðu þó ekki borið meiri árangur en raun bæri vitni, væri að þakka einarðri afstöðu fólksins, viðbrögðum og viðurkenningu Borisar Jéltsíns for- seta rússneska lýðveldisins. Barátt- an núna væri ekki einungis barátta þriggja smáþjóða fyrir sjálfstæði. Þetta væri barátta lýðræðisafla við leifar hins gamla kerfís. Einnig hefðu viðbrögð erlendis orðið harka- legri en ráðamenn í Kreml hefðu vænst. Hvað á að gera? Utanríkisráðherra sagði að for- ystumenn í Eystrasaltsríkjunum hvettu vesturlandabúa til að hætta að moka fé í tómar hirslur mið- stjórnarvalds alríkisins í Moskvu, heldur beina því til einstakra iýð- velda þar sem það kæmi að gagni. Utanríkisráðherra velti fyrir sér hugsanlegum viðbrögðum og að- gerðum Islendinga. Efla yrði sam- skipti þjóðþinga. Allt yrði að gera til knýja Sovétvaldið til að standa við skuldbindingar þær sem undir- ritaðar hefðu verið, á Parísarráð- stefnunni, hjá Sameinuðu þjóðunum pg víðar. Beðið hefði verið um að Islendingar beittu sér á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, fyrir því að málefni Eystrasaltslandanna yrðu tekin til umfjöllunar í öryggisráðinu og á allsheijarþinginu, og einnig fyrir því að haldin yrði alþjóðleg ráðstefna um málefni þessara landa. Viðurkenning á sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna og beint stjórn- málasamband eru meðal þeirra at- riða sem nefnd hafa verið. Utanrík- isráðherra ítrekaði enn einu sinni að viðurkenning okkar frá þriðja áratugnum á sjálfstæði þessara ríkja væri enn í fullu gildi. Hvað snerti stjórnmálasamband væru framkvæmdaörðugleikar. Eistland og Lettland hefðu gefíð markmiðs- yfirlýsingar um að þau stefndu að endurreisn sjáifstæðra lýðvelda. Litháen hefur hins vegar þegar lýst sjálfstæði. Hvað varðaði hugsanlegt stjórn- málasamband við Litháen efaðist enginn um vilja íslendinga en erfíð- leikarnir væru umtalsverðir, m.a. að Litháar hefðu ekki full völd á eigin landsvæði. Sovétvaldið gæti fangelsað sendiherra á landamær- unum, eða þá að hann yrði að fara til Litháen með vegabréfsáritun sovéska alríkisins sem væri óað- gengilegt fyrir Litháen. Það sjónar- mið hefur komið fram að stjórn- málasamband gæti reynst nokkurs konar öryggisatriði ef hættuástand skapaðist. Landsbergis hefur farið fram á að stjórnmálasamband verði upp tekið. Jón Baldvin sagðist hafa sagt að hann myndi í ljósi breyttra aðstæðna beita sér fyrir því að af- staða okkar yrði endurskoðuð og allra leiða yrði leitað sem færar kynnu að reynast til að verða við þessari osk. Rússneska lýðveldið hefði gert samning um að viður- kenna þessi ríki, að vísu ekki Lithá- en ennþá en Jón Baldvin treysti því að sú yrði reyndin. Rússneska lýð- veldið boðaði einhvers konar dipló- matísk samskipti við Litháen. Þjóð- þing Tékkóslóvakíu, Póllands og Ungverjalands hefðu sent fastafull- trúa til þjóðþingsins í Litháen. E.t.v. gæti það orðið fyrsta skrefíð. Margar aðgerðir hefðu verið Jón Baldvin Hannibalsson nefndar í umræðum, forsætisráð- herra Eistlands mun hafa hvatt okkur til að þróa betur tillögur um að bjóða fram Reykjavík eða ein- hverja aðra norræna höfuðborg sem viðræðustað. Hins vegar var Jón Baldvin andvígur því að kalla sendi- herra íslands heim frá Moskvu því nú væri lífsnauðsyn að hafa þar erindreka. Að iokum lýsti utanríkis- ráðherra yfír stolti sínu þegar hann varð þess var að borin væri meiri virðing fyrir Alþingi íslendinga en ýmsum stærri og máttugri stofnun- um. Verkintali Þorsteinn Pálsson (S-Sl) taldi heimsókn utanríkisráðherra hafa verið hina mikilsverðustu; haft verulega pólitíska þýðingu; orðið sjálfstæðisbaráttu þessara þjóða til styrktar. Þorsteinn taldi póiitískt stöðumat utanríkisráðherra mjög mikilvægt, innan ríkisstjórnarinnar. Svo virtist að forsætisráðherra og utanríkisráðherra mætu pólitískar aðstæður með mismunandi hætti. Forsætisráðherrann hefði ekki talið gerlegt að þiggja formlegt heimboð en utanríkisráðherrann hefði orðið við kallinu. Þorsteinn sagði að umræðurnar um málefni Eystrasaltsríkjanna yrðu að vera annað og meira en fréttaskýringar og almennar yfir- lýsingar. Tími væri til kominn að fylgja orðum eftir með verkum og ná fram samstöðu um raunveruleg- ar aðgerðir. Þorsteinn hvatti m.a. til þess að við fylgdum því fastar eftir að málefni Eystrasaltsríkjanna yrðu tekin fyrir á vettvangi Samein- uðu þjóðanna. Ræðumaður hvatti mjög til þess að stjórnmálasamband yrði upp tekið og minnti á tillögu sjálfstæðismanna þar um. Hann óttaðist að afstaða manna hefði nokkuð mótast af því hverjir hefðu flutt þessa tillögu. Hann taldi eðli- legt ef vilji væri nú fyrir hendi að ná samstöðu í utanríkismálanefnd um að stjórnmálasambandi yrði á komið. Þorsteinn taldi þau rök ekki fullnægjandi að ríkisstjórn Litháens réði ekki yfir landi; það gerði lögleg ríkisstjórn Kúveit ekki heldur. Þorsteinn ræddi nokkuð aðrar hugmyndir sem viðraðar hafa verið. Sjaldan hefði verið meira tilefni en nú til að fækka starfsmönnum í sendiráði Sovétríkjanna. Svavar Gestsson menntamálaráðherra hefði rætt um að slíta menningar- samningi við Sovétríkin. Þorsteinn sagði menntamálaráðherra hafa það í sínu vaidi að stöðva fram- kvæmd þessa samnings. Þorsteinn vildi að menntamálaráðherra skýrði sitt mál betur. Þorsteinn saknaði Svavars Gestssonar sem var fjar- staddur. í lok ræðu sinnar iagði Þorsteinn ríka áherslu á að sem best sam- staða tækist um virkar aðgerðir og þetta mál ætti að vera hafið yfir flokkapólitík. Hjörleifur Guttormsson (Ab-Al) sagði að í undangengnum umræðum hefðu margar hugmynd- ir fram komið. Ríkisstjórnin hefði úr nægum hugmyndum að moða. Mestu máli skipti að láta hendur standa fram úr ermum hið fyrsta til að styðja sjálfstæðisbaráttu þess- ara þjóða. Kristín... Einarsdóttir (SK-Sl) var nokkuð ánægð með heimsókn og framgöngu utanríkis- ráðherra. Hún sagði að Islendingar yrðu að leita allra leiða til að styðja þjóðir Eystrasaltsríkjanna og sporna gegn ofbeldinu. Ofbeldi Ieysti aldrei vandamál. Jóhann Ein- varðsson (F-Rn) formaður utanrík- ismálanefndar fagnaði samstöðunni eins og aðrir. Hann greindi frá því að formaður utanríkismálanefndar litháíska þingsins myndi dvelja hér næstu tvo daga og ræða við ut- anríkismálanefnd og utanríkisráð- herra. Myndu báðar þessar heim- sóknir hjálpa til að taka þær Múslimar með kjarnorkuvopn Ólafur Þ. Þórðarson (F-Rn) minnti þingmenn á að Gorbatsjov hefði fært Sovétríkin af braut hern- aðaruppbyggingar til lýðræðisþró- unar og afvopnunar. Á öðrum stað í ræðu hans kom fram að það hlytu að vera mikil umskipti ef slíkur maður, friðarverðlaunahafi Nóbels, væri orðinn „gangster og glæpa- hundur". Ólafur taldi það hættuleg- an leik að hætta að styðja Gorb- atsjov. Það væru hagsmunir hins vestræna heims að Sovétríkin héldu velli sem ríki og lýðræðisþróunin þar héldi áfram með sem minnstum blóðsúthellingum. Ef lýðveldin, þ.m.t. Rússland, segðu sig úr Sov- étríkunum og kæmust upp með það, hvernig myndi kjarnorku- sprengjunum verða skipt? Væri ekki trúlegt að múhameðstrúarríki sem mynduðust í suðri fengju sinn hluta af eldflaugunum og kjarn- orkusjrrengjunum? Væri það þetta sem Islendingar vildu? Ólafi sýndist mál standa þannig að Landsbergis forseti Litháens vildi fara miklu hraðar en skynsam- legt væri. Eistland og Lettland færu ekki svo geyst. Hefðu vit á að bíða, vissu að tíminn ynni með þeim. Ræðumaður varaði við því að við kyntum elda innanlandsófrið- ar í Sovétríkjunum, hann óttaðist að þá yrði það herinn sem stæði að lokum með völdin. Ólafur Þ. Þórðarson benti á að mörg vandamál heimsins væru erfíð og óleyst og afskiptum annarra væri ekki alltaf vel tekið. Til dæm- is þegar De Gaulle ýtti undir að- skilnaðarhrejrfíngar Quebec í Kanada. Ólafur taldi íslendinga gera best með því að tala máli frið- ar í samskiptum manna í millum. Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra þakkaði fyrir um- ræðuna og lagði m.a. áherslu á að málið yrði ekki gert að pólitísku bitbeini flokka í millum. Utanríkis- ráðherrann tók undir að orðum yrðu að fylgja athafnir og boðaði að fyrstu tillögur um aðgerðir yrðu lagðar fram á næsta fundi ríkis- stjómarinnar. MMflCI Tillaga til þingsályktunar: Óhlutdrægni Ríkisút- varpsins verði könnuð skipulagðar athuganir sjálfstæðra kunnáttumanna, tillagan miðaði að því að bæta úr þessu kæruleysi sem starfi Ríkisútvarpsins hefði verið sýnt. Einnig mætti líta til þess að í sumum tilvikum hefðu fréttamenn verið bornir ómaklegum sökum og væri því rétt að þeir fengju notið sannmælis. Lögð var áhersla á að könnunin taki fyrst og fremst til frétta og annars efnis sein helst tengist stjórnmálum og þeir sem fengnir verði til að vinna verkið hafi til þess kunnáttu og vinni það af óhlut- drægni. Nauðsynlegt er að könnun- inni verði hraðað og helstu niður- stöður lagðar fyrir Alþingi fyrir árslok 1991. Ekki tóku fleiri þing- menn en Stefán Valgeirsson til máls. Tillaga til þingsályktunar um „könnun á óhlutdrægni Ríkisútvarps- ins, hljóðvarps og sjónvarps, í fréttaflutningi og gerð þátta um veru- lega pólitísk málefni" var á 43. fundi sameinaðs þings í gær af- greidd til síðari umræðu og félagsmálanefnar. Tillagan hljóðar svo: „Alþingi ályktar að fela menntamálaráð- herra að láta kanna af þekkinu og hlutleysi hvernig Ríkisútvarpinu hefur tekist að fylgja ákvæðum 15. gr. útvarpslaga nr. 68/1985, sérs- taklega þeim sem kveða á um fyllstu óhlutdrægni í frásögn, túlk- un og dagskrárgerð." Flutnings- menn eru: Stefán Valgeirssori (SFJ-Ne), Ólafur Þ. Þórðarson (F-Vf), Margrét Frímannsdóttir (Ab-Sl), Karvel Pálmason (A-Vf), Eggert Haukdal (S-Sl) og Þórhildur Þorleifsdóttir (SK-Rv). Fyrsti flutningsmaður, Stefán Valgeirsson, hafði framsögu fyrir tillögunni á 42. fundi sameinaðs þings. Hann sagði m.a. Ríkisútvarp- ið vera öflugasta fjölmiðil þjóðar- innar og útvarpslögin settu ákveðin fyrirmæli við gerð og flutning frétta og annars dagskrárefnis, þ. á m. fyllstu óhlutdrægni í frásögn, túlk- un og dagskrárgerð. Stundum hefðu komið fram athugasemdir en svör forsvarsmanna Ríkisútvarps- ins hefðu verið mismunandi en tæp- ast væri unnt að gera ráð fyrir því að þau væru óhlutdræg í öllum greinum. Stefán dró ekki dul á að honum og fleirum þætti oft skorta á að fyllsta hlutleysis væri gætt. Flutningsmaður lagði áherslu á að mikilsverður þáttur fjölmiðlanna í þjóðlífinu hefði farið á mis við

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.