Morgunblaðið - 23.01.1991, Page 35

Morgunblaðið - 23.01.1991, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANUAR 1991 35 Hjónaminninff: * Asdís Baldvinsdóttir Haraldur Jóhannesson Fædd 30. október 1902 Dáin 27. júlí 1989 Fæddur 1. júlí 1898 Dáinn 31. desember 1990 Nú hafa þau bæði kvatt þennan heim, með aðeins eins og hálfs árs millibili, elskulegir föðurforeldrar mínir Ásdís og Haraldur. Mér datt í hug niðurlag lítillar stöku sem Sigríður móðir ömmu-Dísu orti þeg- ar hún var ung, þegar ég fór að hugsa um hvað ég gæti sagt um þau í þessari grein, en stakan er svona: Fegurð marga um hauður og haf, himna Drottins okkur gaf. Fagrar listir - fagurt mál. Feprst alls er - göfug sál. En einmitt þetta „göfug sál“ er það sem lýsir því best hvernig þau voru. Þau voru og eru góðar sálir, sem nú hafa fengið sinn bústað á himnum eftir langt líf, sem bæði reyndist þeim hamingjuríkt en líka á köflum erfítt. Ung voru þau bæði er þau giftu sig á afmælisdegi ömmu 1920, og hófu búskap í Klambraseli í Reykja- hverfi, en þar var afi fæddur og uppalinn. Fæðingarstaður ömmu var ekki langt frá, en hún var fædd og uppalin á Reykjum í sömu sveit. Þau eignuðust fimm börn. Fyrstan Jóhannes, f. 16. apríl 1922. Þá Baldvin, f. 8. júlí 1924, en hann lést aðeins 9 ára gamall 5. júlí 1943 úr heilahimnubólgu. Sigurð, f. 30. janúar 1926, og Hauk, f. 17. sept- ember 1928, og loks kom dóttirin Kristín, f. 14. júní 1932. Jóhannes, Sigurður og Haukur kvæntust allir og hafa alltaf búið á Húsavík, en Kristín fluttist til Akureyrar þegar hún gifti sig og hefur búið þar síðan. Afi og amma eignuðust 19 barnabörn og í dag erum við afkom- endur þeirra 74. Árið 1925 fluttu afi og amma frá Klambraseli í Héðinsvík á Tjörnesi og bjuggu þar í eitt ár, en bjuggu svo í leiguhúsnæði á Húsavík, þar til þau byggðu húsið Bjarg við Garð- arsbraut árið 1939 og þar bjuggu Kveðja: Valhorg Haraldsdóttir Helga Haraldsdóttir Valborg Fædd 5. desember 1901 Dáin 20. september 1990 Helga Fædd 25. september 1941 Dáin 3. janúar 1991 Móðurástin mild og hlý, máttug jafnan hefir, yfir hafin hel og stríð, hjartans kærleik gefið. Þessar ljóðlínur komu mér í hug þegar mér barst fregin um lát aldr- aðrar vinkonu minnar, Valborgar Haraldsdóttur frá Kolfreyjustað. Hér verður ekki rakinn æviferill hennar, það hafa aðrir áður gert, en nú þegar dóttir hennar Helga hefur einnig fengið hvíldina, langar mig að senda örfá kveðjuorð. Nöfn þeirra mæðgna Valborgar og Helgu eru svo samofin í hugum okkar sem til þekktum að ekkert skilur þar á milli. Helga litla naut aldrei þess, sem flest börn njóta, að þroskast líkam- lega og lifa lífínu við leik og störf. Alla tíð var hún bundin stólnum sínum og gat á engan hátt hjálpað sér sjálf. En hið innra bjó hún yfír ótrúlegiim þroska, sem kom fram á svo margvíslegan hátt. Hún hafði yndi af að lesið væri fyrir hana, fylgdist með sjónvarpinu og gladdist yfír svo mörgu, sem fyr- ir hana var gert, jafnvel þó ekki væri nema að hlý hönd væri lögð á vanga hennar, þá var það henni gleðigjafí. Ég minnist þess að í sögu, sem ég eitt sinn las, þar sem lífí lítillar stúlku var líkt við vatnalilju, þetta undurfagra blóm, sem breiðir út blöðin móti birtu og sól. Þessi samlíking fínnst mér eiga svo vel við þegar Helga er kvödd. Allt sitt líf var hún heima í umsjá móður og systkina, sem gerðu allt til að létta henni lífið. Ekkert systkinanna mun þó hafa átt þar eins stóran þátt og systir hennar Þórey, sem bjó í sama húsi, Langagerði 22, og var móður þeirra ómetanleg hjálp gegn um ár- in. Síðustu vikurnar eða síðan móðir hennar dó hefur Helga dvalið á Borgarspítalanum meira og minna sjúk. Þar skiptust systur hennar á um að sitja hjá henni hvern dag þar til yfir lauk. Þess utan var einstak- lega vel um hana hugsað af starfs- fólki á deild A-7 og eru hlutaðeig- endum færðar alúðar þakkir að- standenda. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að þekkja og njóta vin- áttu Valborgar Haraldsdóttur, hún var elskuleg kona, sem gleymist ekki þeim sem kynntust henni. Hvernig hún annaðist barnið sitt fatlað sýnir betur en nokkuð annað það hugarfar og þann dugnað sem henni var gefinn. „Ég hefði aldrei litið glaðan dag ef ég hefði látið Helgu frá mér.“ Þessi orð lét hún falla þegar ég í síðasta sinn heimsótti hana á heim- ili hennar fyrir nokkrum mánuðum. Og hennar hjartans mál var, að ef hún færi á undan Helgu þá mundu systur hennar sjá til með henni. Og þessi von hennar rættist svo sannar- lega. Meiri umhyggju og kærleika en þær systur sýndu systur sinni þær vikur sem hún dvaldi á sjúkrahúsinu er vart hægt að láta í té. Á aðfangadag var hún það hress að hún gat farið heim til Rannveigar og þar naut hún í faðmi fjölskyldunn- ar birtu og gleði jólanna í hinsta sinn. Systkinunum frá Kolfreyjustað sendum við hlýjar samúðarkveðjur. Megi Guð blessa minningu elsku- legrar móður og systur. Aðalbjörg Magnúsdóttir þau það sem eftir var af þeirra búskap. Afi vann við hin ýmsu verkamannastörf, en lengst af hjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur. Sam- hliða vinnu sinni hafði hann 1 kú, kindur og hænur, sér til búdrýginda í fyrstu, en seinna meir til ánægju. Afi var góður fiðluleikari og lék oft á böllum í gamla daga. Amma var húsmóðir og sá um heimilið, og var þar í mörg horn að líta. Það var ávallt mjög gestkvæmt á Bjargi, því að marga áttu þau ættingja í sveitunum sem litu gjarnan inn að lokinni bæjarferð. Það var líka oft sem við barnabörnin komum á Bjarg til afa og ömmu, og má segja að þar hafí verið okkar samkomu- staður. Ogleymanlegir eru laufa- brauðsdagarnir, þar sem við mætt- um öll með okkar bretti og hnífa og skárum út kökur af hjartans list og ekki var hún amma að amast yfir því þótt nokkrar kökur eyði- legðust eða hveiti sullaðist út um stofuna hennar, það mátti alltaf gera meira deig, gleði barnanna var fyrir mestu. Það var líka gott eftir fjörugan leik að skreppa inn á Bjarg til ömmu-Dísu og fá sér kökur og mjólkurglas, því amma var oftast heima og átti alltaf nóg handa svöngu barnabarni og ekkert gerði til þótt nokkrir leikfélagar slægjust í hópinn, amma átti alltaf nóg handa öllum. Það má því segja að þau hafí haft tíma og rúm fyrir alla sem til þeirra komu. Vorið 1969 syrti í lofti þegar amma fékk heilablóðfall og lamað- ist að hluta og voru þá erfiðir tímar framundan. Amma dvaldi bæði á Reykjalundi og á sjúkrahúsum, en þann tíma sem hún gat dvalist heima, var aðdáunarvert að sjá hve vel afí hugsaði um hana og annað- ist. Það sýndi best þá sterku ást sem þau báru hvort til annars, hve vel þau stóðu saman í veikindum ömmu. Það kom svo að því að amma varð að leggjasat inn á elli- deildina á Sjúkrahúsi Húsavíkur því hún þurfti þá umönnun sem ekki var hægt að veita henni heima og + Innilegar þakkir til ykkar allra, er sýndu samúð og vinarhug við andlát og útför fósturmóður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KARÓLÍNU FRIÐRIKSDÓTTUR, Bólstaðahlíð 37, Reykjavík. Jóhanna Júlíusdóttir, Kristinn Sigurðsson, Guðmundur Júlíusson, Ester Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför föður okkar, tengdaföður og afa, GUNNARS MEKKINOSSONAR húsgagnabólstrara, fer fram í dag, miðvikudaginn 23. janúar kl. 13.30 frá Fossvogskirkju. Grétar Felixson, Vilborg J. Gunnarsdóttir, Björk G. Huzell, Dagmar Gunnarsdóttir, Gunnar Gunnarsson og barnabörn. Guðlaug Þórs Ingvadóttir, Tom Jablonsky, Leif Huzell, Sigurður A. Gunnarsson, þá fylgdi afí fljótlega á eftir henni því hann vildi vera nærri henni til að geta hugsað sem best um hana. Aldrei heyrði ég ömmu kvarta eða tala um að hún ætti erfítt eða henni liði illa, en það hlýtur að hafa reynt á sálarþrekið að vera bundin í hjóla- stól í 20 ár og vera upp á aðra komin með allt. Allt fram til hins síðasta fylgdust þau náið með okk- ur afkomendum sínum, þekktu okk- ur öll með nöfnum og gleymdu engu' sem þeim var sagt. Það má ekki gleyma að geta þess að það var ekki bara amma sem naut góðs af hjálpsemi og fórnfýsi afa. Allir sem dvöldust á ellideildinni nutu aðstoð- ar hans og hjálpar. Hann gaf allt sem hann gat af sér en krafðist einskis sjálfum sér til handa. Hann sagði að hann óskaði þess eins að lifa lengur en amma svo hún yrði ekki ein, en þegar hún væri farin þá væri hann líka tilbúinn. Og hon- um varð að ósk sinni. Með þessum fátæklegum orðurrr kveð ég elsku afa minn og ömmu að ,sinni og ég veit að þau eru nú hamingjusöm saman á ný. Ég þakka fyrir allt það góða í lífinu sem þau gáfu mér og bið Guð að blessa þau. Ásdís Sigurðardóttir, Hafnarfirði. Guðlaugur Einarsson, Blönduósi - Kveðjuorð Fæddur 6. febrúar 1951 Dáinn 29. nóvember 1990 „Hann Gulli, Gulli íslendingur — þú átt eftir að kynnast honum.“ Og viti menn, kvöld eitt í New York hringir síminn og þýð karl- mannsrödd heilsar mér á íslensku. Úr þessu varð tveggja tíma símtal og boð í pönnukökuveislu. Við mættum eftirvæntingarfullar á staðinn og þar er hann broshýr og hlýr, með íslenska fánann í barmin- um, karlakórinn Fóstbræður á fón- inum og syngur hástöfum með fal- legri barýtónrödd. Á borðinu er sá stærsti stafli af pönnukökum sem ég hef um ævina séð (síðan ég las bókina um litla svarta Sambó) og súkkulaði, sultur, rjómi, og sykur til meðlætis. Það var gaman að vera í heimsókn hjá Gulla. Næstu árin áttum við eftir að dansa saman gömludansana og vikivaka (hann saumaði á mig sauð- skinnskó úr plasti, sem dugar í Ameríkunni), syngja saman, spila saman, kveða rímur, setja upp leik- þátt úr íslensku baðstofulífi bæði á þorrablóti og í heimavist „alþjóð- lega hússins“, japla saman á dýr- mætum aðsendum harðfiskflökum og ræða lífsgátuna. Einn bjartan sumarmorgun vor- um við bæði stödd í Reykjavík og Gulli býður mér í mat. Eins og vænta mátti var það stórskemmti- legt kvöld og ég fór þaðan glaðari og ríkari en ég kom. Ekki vissi ég þá að við hefðum kvaðst hinsta sinni. Það er mikill missir að geta ekki hlakkað til fleiri samverustunda með Gulla. Það er sárt að hafa ekki getað verið honum innan hand- ar síðustu árin.'Lífið er svo undar- legt. í raun á maður aðeins augna- blik sem lifað er og minningarnar um lífsins ýmsu augnablik. Og þær eru fallegar minningarnar um Gulla, þennan skapandi, gjöfula og glaða mann. Guð blessi minningu hans. í þökk. Svava Bernharðsdóttir, Basel. + Kæru ættingjar og vinir! Einlægar þakkir fyrir samhug og vináttu við andlát og útför AÐALSTEINS HELGASONAR fyrrum bónda, Króksstöðum, Mjósundi 13, Hafnarfirði. Arnfríður Pálsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðír og afi, ÁGÚST FLYGENRING fyrrverandi forstjóri, Hringbraut 67, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum mánudaginn 21. janúar sl. Guðbjörg Flygenring, Ingólfur Flygenring, Ragnheiður Kristjánsdóttir, Magnús Flygenring, Hildur Guðfinnsdóttir, Þóra Flygenring, Sigurður Arnórsson, Unnur Flygenring, Gunnlaugur Bjarnason og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.