Morgunblaðið - 23.01.1991, Qupperneq 36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 1991
36
-
fclk i
fréttum
HOLLYWOOD
Cybill fer ferða sinna
grá fyrir jámum
éf
Leikkonan Cybill Shepard ætlar
ekki að láta einhverja glæpa
menn eða hugsjúklinga koma sér í
opna skjöldu. Borið hefur á því hin
seinni ár að frægar Hollywood-
stjörnur hafa orðið fyrir einelti hug-
sjúkra aðdáenda og hefur slíkt
gengið svo langt að í fleiri en einu
tilviki hafa umræddir „aðdáendur“
myrt eða misþyrmt goðum sínum.
Cybill segir að hún hafi fengið
sinn skammt af slíkri áreitni en
sloppið þó tiltölulega vel miðað við
marga aðra. Samt er hún óttaslegin
vegna þessa og segir starfsbræður
sína og systur almennt vera það
einnig. Bæði vegna þessa ólánsama
fólks og vegna hættunnar á áreitni
þjófa og ræningja á götum úti hef-
ur Cybill ákveðið að vopnast. Hún
fer nú ekki leiðar sinnar öðru vísi
en að skammbyssa sé í farteskinu.
Hun geymir hana í handtöskunni
og hefur sótt notkunar námskeið.
Það skiptir ekki máli þó að hún
ætli sér ekki annað en út í sjoppuna,
Cybill er nú grá fyrir járnum.
á horninu að kaupa sígarettur.
Byssan er tekin með.
ÞJONUSTA
„ Viltu rétta mér
kúnnagleraugun, góðau
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Ólavía Guðmundsdóttir aðstoðar Sigurþór Sæmundsson.
ILANDSBANKANUM á Hvols-
velli geta fjarsýnir viðskiptavinir
bankans fengið lánuð gleraugu þeg-
• ar þeir skrifa ávísanir og þess hátt-
ar, hafi þeir gleymt sínum gleraug-
um heima.
„Mig rak í rogastans um daginn
vþegar ég átti leið í bankann, þá
vatt vörpulegur bóndi sér að af-
greiðslustúlkunni og bað hana um
að rétta sér gleraugun. Ég hélt hún
ætti að fara í bijóstvasann hjá bónd-
anum en þá teygði hún sig undir
borðið og rétti honum forláta gler-
augu,“ sagði Friðrik Sigurðsson
hótelstjóri á Hótel Hvolsvelli.
Þegar fréttaritari innti Hrein
Hermannsson, útibússtjóra Lands-
bankans, eftir þessu kvað hann
þetta hafa verið lengi til siðs í bank-
anum því margir ,sem væru farnir
■ að tapa sjón gleymdu gjarnan gler-
Honda191
Civic
3ja dyra
16 ventia
Verð frá 767 þúsund.
GREIÐSLUSKILMÁLAR
FYRIR ALLA.
W HONDA
VATNACÖRÐUM 24, RV(K„ SÍMI 689900
augunum sínum heima. „Við köllum
þessi gleraugu kúnnagleraugu og
sjálfur nota ég þau gjarnan ef ég
gleymi mínum heima. En það hefur
líka komið fyrir að viðskiptavinur
fór með gleraugun mín heim en ég
hafði skilið þau eftir á afgreiðslu-
borðinu. Daginn eftir fékk ég þau
send í pósti.“
- S.Ó.K.
GEGI% 8TREITII
íhugunartækni Maharishi, INNHVERF IHUGUN,
er örugg aðferð gegn streitu. Hún veitir endur-
nærandi hvíld og stuðlar að heilbrigði.
Kynningarfyrirlestrar verða haldnir:
í kvöld, miðvikudag, kl. 20.30 i Gerðubergi,
Breiðholti.
Á morgun, fimmtudag, kl. 20.30 á Laugavegi 24
(3. hæð).
Aðgangur er ókeypis.
Íslenska íhugunarfélagið.
Ræstingastjórar
Félag ræstingastjóra, í samvinnu við Iðntækni-
stofnun íslands, býður grunnnámskeið 1 fyrir
ræstingastjóra og aðra verkstjórnendur, sem
hafa yfirumsjón með þrifum og ræstingum.
Á námskeiðinu erfjallað um verkstjórn og mann-
leg samskipti, leiðsögn nýliða og rétta líkams-
beitingu við ræstingar.
Námskeiðið hentar vel sem undirbúningur fyrir
ræstingastjórastarf.
Námskeiðið er 30 kennslustundir, haldið hjá Iðn-
tæknistofnun íslands 29. jan. - 1. feb. 1991.
Upplýsingar og skráning í símum 91-687000 og
91-687440.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lísbet l.t.v. ræðir við mæðgurnar Valgerði Matthíasdóttur og Elínu
Ólafsdóttur.
MYNDLIST
Leirlistakona
með nýja hlið
Lísbet Sveinsdóttir opnaði mál
verkasýningu í Galíerí Nýhöfn
um síðustu helgi. Lísbet hefur
lengst af getið sér orð fyrir leirlist
sína, en sýnir nú á sér nýja hlið.
Tvö síðustu árin hefur Lísbet dvalið
í Portúgal og myndirnar sem til
sýnis eru, eru afrakstur þeiirar
dvalar.
Þetta er þriðja einkasýning Lísbet-
ar, en hún hefur einnig tekið þátt
í nokkrum samsýningum bæði hér
heima og erlendis. Nokkur verka
hennar eru í opinberri eigu, svo sem
Skandinaviska enskildabanken og
Reykjavíkurborg. Morgunblaðið var
meðal gesta á opnun Lísbetar og
myndaði gesti og gangandi svo sem
sjá má.
Stefán frá Möðrudal lét sig ekki vanta og fór mikið fyrir honum
að vanda.
COSPER
-Það er þá ekki bara penmgarnir mínir.sem hann er
að eltast við.