Morgunblaðið - 26.01.1991, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 26.01.1991, Blaðsíða 15
Gengið og utanríkisviðskiptin Eðlilegra fyrirkomulag gengis- ákvörðunar er að markaðslögmálin fái að njóta sín þannig að framboð og eftirspurn gjaldeyris hafi eitt- hvað að segja um formlegt gengi krónunnar. Við slíkar aðstæður væri meira jafnvægi á utanríkisvið- skiptum þjóðarinnar en undanfarna áratugi. Sé litið aftur til ársins 1960 hefur verið halli á viðskiptum við útlönd í 24 ár af því 31 ári sem nú er liðið eða rösklega þrjú ár af hveijum fjórum. Þannig hafa er- lendar skuldir þjóðarinnar vaxið hratt í hlutfalli við landsframleiðslu og nema nú meira en helmingi hennar. Hvar liggja hættumörkin? Sala veiðileyfa Reyndar er næsta víst að réðu markaðslögmálin formlegu gengi krónunnar væru sveiflur í hag- vexti, verðbólgu og raungengi eitt- hvað minni en þó ekki úr sögunni að öðru óbreyttu. Þetta er einfald- lega vegna þess að framboð gjald- eyris og eftirspum eru mjög háð tekjum til sjós. Ef markaðslögmálin réðu formlegu gengi krónunnar mætti hins vegar búast við lægra raungengi og betri samkeppnis- stöðu en ella. Öflugri jöfnun á af- komu útgerðar en felst í Verðjöfn- unarsjóði sjávarútvegsins myndi á hinn bóginn leiða til meiri stöðug- leika. Hér er átt við stöðugleika í samkeppnisstöðu, hagvexti og verð- lagi. Slíku marki má ná með sölu veiðileyfa þar sem markaðsöflin ráða kaupum og sölu. Verðmyndun veiðileyfa Hvernig má það vera að sala veiðileyfa deyfi skaðlegar sveiflur? Skýring þessa felst í tveimur atrið- um, annars vegar í verðmyndun veiðileyfa og hins vegar í ráðstöfun sölutekna þeirra vegna. Þegar vel árar til sjós er afli á sóknareiningu mikill. Við slíkar aðstæður er mark- aðsverð aflakvóta tiltölulega hátt, að öðru óbreyttu. Hið gagnstæða á við þegar afiabrögð eru léleg — þá er verð aflakvóta lágt. Fyrir þessu er þegar komin reynsla. Þannig verða veiðileyfakaup tiltölulega stór kostnaðarliður útgerðar þegar vel árar til sjós en minnka í aflasam- drætti. Með sölu veiðileyfa er því dregið úr offjárfestingu og eyðslu gjaldeyris þegar aflabrögð eru góð. Þannig er dregið úr þenslu eftir- spurnar. Jafnframt er dregið úr yfirboðum útgerðar á innlendum aðföngum og þannig slegið á óða- vöxt kostnaðar og verðbólgu. Ráðstöfun sölutekna Hvað með tekjur af veiðileyfa- sölu? Ráðstöfun þeirra hefur vissu- lega áhrif á þann árangur sem næst með sölu veiðileyfa. Þetta má sjá á því að núverandi kerfi ókeyp- is úthlutunar aflakvóta jafngildir því, að ríkið selji veiðileyfin og end- urgreiði kaupendum andvirði þeirra þegar í stað. Þetta á við ef litið er fram hjá kostnaði við viðskiptin og því að slík ókeypis úthlutun fer fram samkvæmt úthlutunarkerfi stjórn- málamanna. Þessi ókeypis úthlutun er hagkvæm leið fyrir stjómmála- menn í atkvæðaleit og hún er hag- kvæm þeim sem kvótann hlýtur — ókeypis — en hún er skaðleg at- vinnulífínu í landinu og aimenningi. Verðugir kapítalistar Við ókeypis úthlutun veiðileyfa verða bæði almenningur og sam- Gott fyrír meltínguna íslensk framleíðsla Dreifíng: Faxafell hf. símí 51775 MORGÚNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1991 15 keppnisgreinar af arði auðlindar- innar. Þessir aðilar eru fórnarlömb sveiflna, versnandi samkeppnis- stöðu og skuldasöfnunar sem á rætur að rekja til of hárrar gengis- skráningar. Hagkvæmasta úthlut- un sölutekna af veiðileyfum — arðs auðlindarinnar — er að veita þeim beint til almennings, með jöfnum reglubundnum greiðslum. Með því móti mun almenningur velja verð- uga kapítalista til framþróunar at- vinnulífs. Þetta mun almenningur gera með eyðslu sinni og sparnaði i stað þess að til verði kapítalistar — óverðskuldað — sumir valdir samkvæmt ákvörðun stjórnmála- manna. 1 Raungengi er mælikvarði á raunveruleg- an framleioslukostnað hér á landi í saman- burði við framleiðslukostnað erlendis, mælt í sömu mynt. —1 llöfundur er hugfræðingur. Janúartilboð Þorramalur Urvals norðlenskur þorramatur fyrir hópa. Upplýsingar gefur Jón Þorsteinn í síma 17260. Hk Kúrekaskór barna Stærðir: 28-35 Litur: Brúnn Verð: 2.590,- aáSKÖVERpil Bnuat NQATÚN Laugaveg 95 S. 624590 V- i Líf í lit með Hárlitunarkeppni Hótei íslandi, sunnudaginn 27. janúar. Húsiðopnarkl.20. Komið og sjáið litrika keppni, þar sem íslenskt hársnyrtifólk sýnir listir sínar í hárlitun. Heiðursgestur og yfirdómari: Cristian Forster

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.