Morgunblaðið - 26.01.1991, Side 20

Morgunblaðið - 26.01.1991, Side 20
2^- reei haukai .as ji'joaqmaouaj ojuajuhuouoi MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1991 Sovéska fréttastofan Interfax: * Irakar taldir eiga 100 Exocet-flaugar London. The Daily Telegraph. VOPNIÐ, sem olli Bretum mestum vanda í stríðinu 1982 gegn Arg- entínumönnum vegna Falklandseyja, var Ecocet-flaugin sem smíðuð er í Frakklandi. Argentínumönnum tókst að sökkva tundurspillinum Sheffield og valda miklu tjóni á nokkrum öðrum herskipum. Sérfræð- ingar álíta að írakar ráði yfir um 100 slíkum flaugum, hugsanlega fleiri. Yfirmenn íraska hersins skotnir ^ Moskvu. Reuter. OHÁÐA sovéska fréttastofan Interfax hafði í gær eftir heimildar- mönnum í sovéska varnarmálaráðuneytinu að Saddam Hussein Iraksforseti hefði látið skjóta yfirmenn í íraska flughernum og loftvarnarsveitum hans eftir hrakfarir í Persaflóastríðinu. Tals- menn íraska sendiráðsins í Moskvu neituðu fréttinni þegar í stað °g sögðu hana aðeins vera hluta af sálfræðihernaði þeim er írak- ar nú væru beittir. Varnarmálaráðuneyti Sovétríkjanna og Banda- ríkjanna vildu hvorugt staðfesta fréttina en neituðu henni ekki heldur. Irakar beittu Exocet-flaugum mjög gegn írönskum skipum á Persa- flóa í stríðinu gegn írönum sem háð var 1980-1988. í maí 1987 skaut Mirage-þota íraska flughersins Exocet-flaug af misgáningi á banda- rísku freigátuna Stark sem var á vakki á Persaflóa og létust þá 37 skipveijar. Samkvæmt fréttum frá Saudi-Arabíu var a.m.k. ein af þrem íröskum þotum, sem reyndu að ráð- ast á bresk herskip á Persaflóa á flmmtudag, vopnuð AM-39 Exocet- flaugum. Saudi-arabískir flugmenn skutu tvær vélanna niður og hin þriðja flúði. Erfitt er að fullyrða nokkuð um fjölda írösku Exoeet-flauganna en Irakar voru meðal bestu viðskipta- vina frönsku Aerospatiale-verksmiðj- anna sem hófu að selja Exocet-flaug- ar af áðurnefndri gerð, sem ætluð er til árása úr lofti á skip, árið 1980. Orrustuþotumar, sem skjóta flaug- unum, fljúga svo lágt að þær verða vart greindar í ratsj4 andstæðing- anna. Alls hefur Aerospatiale selt um 2.000 flaugar af áðurnefndri gerð um allan heim. Hver eldflaug ber um 700 kg af hefðbundnu sprengi- Hætt að sýna stríðsfanga í Irak um sinn Nikosíu, París. Reuter. IRAKAR sögðust í gær ætla að hætta sýningum á stríðsföngum úr fjölþjóðahernum við Persa- flóa í sjónvarpi þar til „tíma- bært“ ýrði að hefja þær á ný. Útvarpið í Bagdad hafði þetta eftir talsmanni íraska upplýsinga- málaráðuneytisins. Sjónvarpið’ hefði þegar sýnt stríðsfangana nóg að sinni. „Talsmaðurinn lofaði þegnum landsins, arabísku þjóð- inni og heimsbyggðinni að sjón- varpið hæfi sýningar á stríðsföng- unum þegar það yrði tímabært," bætti útvarpið við. Skömmu áður hafði íraska sjón- varpið sýnt viðtöl við þijá banda- ríska flugmenn, sem teknir voru til fanga eftir að þotur þeirra höfðu verið skotnar niður. Áverkar sáust á mönnunum og þeir töluðu eins og þeir væru hálfsofandi. Banda- menn segja að sýningarnar bijóti í bága við Genfarsáttmálann frá. 1948 um meðferð stríðsfanga. Michel Rocard, forsætisráðherra Frakklands, hvatti Qölmiðla lands- ins til að sýna ekki myndir af frönskum flugmönnum sem kynnu að verða teknir til fanga í írak. „Slíkar myndir eru til skammar og óþolandi auðmýking fyrir fang- ana og fjölskyldur þeirra,“ sagði í bréfi forsætisráðherrans til fjöl- miðlanna. Engar franskar herflug- vélar hafa verið skotnar niður til þessa. efni, er skotið úr liðlega 60 km fjar- lægð frá skotmarkinu og flýgur með aðstoð ratsjár í um tveggja metra hæð yfir sjónum. Mjög erfitt er að uppgötva flaugina og hún er fádæma markviss. Einkum er reynt að miða flauginni á þann skipsins þar sem talið er að stjómstöð þess sé að finna. Interfax hafði eftir „vel upplýst-' um heimildarmanni innan hersins“ að Saddam hefði fyrirskipað aftök- urnar eftir að fjölþjóðaherliðið hefði gert óvæntar loftárásir á írak 17. janúar sl., sem komið hefðu íraska hernum í opna skjöldu. „Ástæðan fyrir aftökunum var sú að 26 Scud-eldflaúgar, af 100 sem írakar höfðu tiltækar, voru eyðilagðar og 300 af 700 flugvél- um,“ sagði í skýrslu fréttaritara Interfax, sem fjallar um utanríkis- mál, en fréttastofan hefur góð sambönd innan sovéskra ráðu- neyta. I skýrslu Interfax sagði: „Eins og Interfax fékk upplýsingar um í sovéska varnarmálaráðuneytinu, með tilvísun í örugga heimildar- menn, voru yfirmenn í flughernum og í flugvarnarsveitum skotnir að fyrirmælum Saddams Husseins.“ Einn ritstjóra Interfax tjáði Aeufers-fréttastofunni að aftök- umar hefðu farið fram fyrir nokkr- um dögum, eftir fyrstu árásir fjöl- þjóðahersins á írak. „Við höfum fengið staðfestingu þessa frá all- nokkrum heimildarmönnum,“ sagði hann. Sir David Craig, yfirhershöfð- ingi í breska flughernum og full- trúi vamarmálaráðuneytisins í breska herráðinu, gat ekki stað- fest skýrslu Interfax en sagðist halda að Saddam kæmi fram af mikjlli hörku við þá yfirmenn hers- ins sem ekki uppfylltu þær kröfur sem til þeirra væru gerðar. „Ég hef ekki séð líkin,“ sagði Craig, þegar hann var spurður um skýrslu Interfax á blaðamanna- fundi í London. en bætti síðan við: „Á síðustu vikum hef ég séð skýrslur sem greina frá því að Saddam Hussein hafi gripið til hastarlegra aðgerða gegn yfir- mönnum íraska hersins, sem ekki hafa verið honum sammála eða honum líkaði ekki alls kostar við.“ Loftárásír bandamanna og reynslan af Sex-daga-stríðinu Lundúnum. The Daily Telegraph. SÚ ÁHERSLA sem bandamenn hafa lagt á að uppræta flugher íraka strax á fyrstu stigum Persaflóastyrjaldarinnar og vamar- viðbúnaður Saddams forseta sýnir að áhrifa Sex-daga-stríðsins gætir enn í nútíma herfræði. Á fyrsta degi stríðsins árið 1967 gerðu ísraelar „forvamarárásir" (á ensku nefnast slíkar árásir „pre- emptive strikes") á flugvelli araba- ríkjanna sem sameinast höfðu gegn þeim og tókst að lama flugheri þeirra. Á nokkrum klukkustundum var helmingur flughers Egypta, um 300 flugvélar, eyðilagður. Þeim flugvélum sem ísraelum tókst ekki að granda var komið undan í of- boði og þær fluttar til flugvalla fjarri sjálfu átakasvæðinu. Þá þeg- ar var orðið of seint að koma nokkr- um vömum við. Israelar gerðu linnulausar loftárásir á flugvelli arabaríkjanna, líkt og bandamenn gera nú í írak. Alls grönduðu flug- sveitir ísraela um 450 flugvélum í Sex-daga-stríðinu og af þeim voru um 400 eyðilagðar á jörðu niðri. Þegar Israelar höfðu tryggt sér algjöra yfirburði í lofti gátu þeir haldið uppi stöðugum loftárásum á landheri arabaríkjanna og á þann hátt tókst þeim að vinna fullnaðar- sigur á svo skömmum tíma. Þotunum komið undan Herstjórn bandamanna hefur beitt svipaðri aðferð og ísraelar forðum á fyrstu dögum Persaflóa- styrjaldarinnar. Eitt mikilvægasta hernaðarskotmarkið í írak var talið vera flugvöllur sem gengur undir heitinu H3 meðal bandamanna. Áður en loftárásirnar hófust höfðu flestar þotumar sem þar voru verið fluttar til flugvalla í norðurhluta landsins. Þar erú þær enn, í um það bil 300 sérhönnuðum og styrkt- um flugskýlum, sem mjög erfítt er að uppræta. Sovéskir herforingjar hafa fullyrt að fjölmargar mis- heppnaðar loftárásir hafi verið gerðar á skýli þessi, sem eru bresk hönnun. Israelar segja að enn hafi aðeins tekist að eyða um 15% af flugher íraka, sem telur alls um 700 þotur og flugvélar. Talsmenn herstjómar bandamanna hafa sagt að sökum óhagstæðs veðurs hafí ekki verið unnt að leggja tæmandi mat á það tjón sem unnið hefur verið á flugvöllum Iraka. Flugskýli þessi, sem nefnast HAS (Hardened Aircraft Shelters), eru reist á risastórum stálbogum. Steypan er hert og rúmur metri á þykkt en skýlið sjálft er grafið ofan í eyðimerkursaitdinn. Opnunarbún- Reuter Þota af gerðinni ,,Jaguar“. Þessar þotur geta borið sprengjur sem hugsanlega gætu éyðilagt flugskýli íraka en þær eru ekki hannað- ar til naúurárása. aður stálhurðanna, sem em 18 tommur að þykkt, er sjálfstýrður og mjög hraðvirkur. Framan við hurðimar er síðan sprengjuheldur veggur. Breskur sérfræðingur, sem fylgst hefur með smíði svipaðra flugskýla í Óman, segir að í hveiju skýli séu vistir og skotfæri þannig að hermennimir sem þar em geti þolað langvarandi einangmn. Hann Sprengjuheld flugskýli íraka An,.,t.n«yiaMm þykku lagi of sandi. 60 cm þykkar og 40 1,2 m þykk sér- lonna þungar slálhurðir. Slálskel sfyrkt steinsteypa. Reuter Vatnsgryfja til þess að koma í veg fyrir eyði leggingu at völdum íkveikjuárásar. telur ólíklegt að ein sprengja megni að eyðileggja flugskýlið nema hugsanlega að unnt reynist að beina henni að stálhurðunum og sprengja á þær gat. Áhættusamar árásir Breskum Tornado-þotum hefur einkum verið beitt til árása á flug- velli íraka og eini vopnabúnaðurinn sem þær ráða yfir sem hugsanlega gæti komið að gangi er Paveway- sprengjan svonefnda. Þetta er leysistýrð sprengja en nokkuð er- fitt og áhættusamt er að beita henni. Tvær þotur þarf til að varpa hverri sprengju. Fyrri þotan skil- greinir skotmarkið og þann hluta þess þar sem sprengjan á að falla. Síðari þotan varpar síðan sjálfri sprengjunni. Margir sérfræðingar hafa hins vegar enga trú á því að Paveway-sprengjan dugi.-Þeir telja ’að Durandal-sprengjan, sem brýtur sér leið inn í skotmarkið áður en hún springur og þýska sprengjan MW-1, sem hýsir mörg hundmð litlar sprengjuhleðslur, gætu hugs- anlega komið að gagni. Þeir benda hins vegar á að einungis Jaguar- þotur geti borið Durandal-sprengj- una en þær eru ekki hannaðar til næturárása og að það muni reyn- ast viðkvæmt mál að búa bresku Tornado-þoturnar þýskum vopn- um.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.