Morgunblaðið - 26.01.1991, Side 23
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1991
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1991
23
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
MatthíasJohannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið.
Ríkisendurskoðun
og Þormóður rammi
Pórir þingmenn úr Norður-
landskjördæmi vestra fóru
þess á leit við forseta sameinaðs
Alþingis, að hann beitti sér fyrir
rannsókn ríkisendurskoðunar á
sölu Ólafs Ragnárs Grímssonar
fjármálaráðherra á meirihluta
hlutabréfa í Þormóði ramma hf. í
Siglufirði. Eins og menn muna varð
mikill pólitískur hvellur út af þessu
máli skömmu áður en þingmenn
fóru í jólaleyfi og einkum gengu
brigslyrði á milli fjármálaráðherra
og Páls Péturssonar, formanns
þingflokks framsóknar.
Ríkisendurskoðun hefur nú skil-
að skýrslu sinni. Þar er annars
vegar fundið að aðferðinni sem
fjármálaráðherra beitti við sölu á
hlutabréfunum í Þormóði ramma
hf. og hins vegar sagt, að miðað
við forsendur ríkisendurskoðunar
teljist verðmæti alls hlutafjár í fé-
laginu á söludegi vera á bilinu 250
til 300 milljónir króna, við sölu
hlutabréfa ríkissjóðs hafi hins veg-
ar verðmæti þeirra verið metið á
150 milljónir króna. Tveir virtir
endurskoðendur, sem fjármálaráð-
herra fékk sér til ráðuneytis sögðu
í Morgunblaðinu í gær, að þetta
mat ríkisendurskoðunar væri ekki
í tengslum við raunveruleikann.
Þeir færa ákveðin efnisleg rök fyr-
ir sínum sjónarmiðum, sem eru
þess eðlis, að ríkisendurskoðun
hlýtur að svara þeim röksemdum
opinberlega. Ríkisendurskoðun
hefur ákaflega mikilvægu hlutverki
að gegna í ríkiskerfmu. Þýðing
þessarar stofnunar hefur aukist
eftir að hún var sett undir beina
stjórn Alþingis. Þeim mun mikil-
vægara er, að mat ríkisendurskoð-
unar á álitamálum, sem hún fær
til umfjöllunar sé svo vel rökstutt,
að erfítt sé að fínna á því snögga
bletti
Ágreiningur endurskoðendanna
sýnir að í þessu tilviki eins og oft-
ast ef ekki alltaf, þegar tekið er á
slíkum álitamálum, eru menn ekki
sammála. Hér er um mat að ræða,
sem byggist á gefnum forsendum.
Þegar þannig er í pottinn búið,
deila menn oft bæði um forsendum-
ar og matið. Um hitt er ekki deilt,
að ríkisendurskoðun hefur lögskip-
uðu hlutverki að gegna í stjórnkerf-
inu og ber ráðuneytum sem ein-
stökum ríkisstarfsmönnum að taka
mið af niðurstöðum hennar og hlíta
ákvörðunum hennar og úrskurðum,
ef því er að skipta. Undan þessari
skyldu fær meira að segja Ólafur
Ragnar Grímsson ekki vikist.
Hér skal ekki lagður dómur á
ólíkt mat endurskoðenda. Þar er
um sérfræðilegt álit að ræða. Auð-
veldara er að hafa á því skoðun,
hvort fjármálaráðherra hafi staðið
með eðlilegum hætti að sölu hluta-
bréfa ríkissjóðs í Þormóði ramma.
í niðurstöðum ríkisendurskoðunar
segir: „Þó svo að í lögum sé ekki
að fínna bein fyrirmæli eða reglur
um það hvernig standa skuli að
sölu hlutabréfa í eigu ríkissjóðs
sýnist sem almennra jafnræðissjón-
armiða hafí ekki verið gætt í nægi-
lega ríkum mæli við sölu hluta-
bréfa ríkisins í Þormóði ramma hf.
Þar kemur einkum til að hvorki
sala hlutabréfanna né þeir skilmál-
ar og skilyrði sem sett voru fyrir
sölunnf'voru auglýst opinberlega."
Þessi orð verða ekki misskilin.
Ríkisendurskoðun telur að fjár-
málaráðherra hafí ekki gætt jafn-
ræðisreglunnar, sem er helsta vöm
hins almenna borgara gegn geð-
þóttaákvörðunum valdsmanna. Er
þetta alls ekki í fyrsta sinn sem
Ólafur Ragnar Grímsson fær ámæli
fyrir að beita ráðherravaldi sínu
með þessum hætti.
Ríkisendurskoðun starfar nú í
umboði Alþingis. Þingmenn báðu
um skýrsluna sem hér um ræðir
og hljóta nú að ákveða, hvað þeir
gera á grundvelli hennar. Er þá
komið að þriðja meginatriðinu í
skýrslu ríkisendurskoðunar, þar
sem segir, að full þörf sýnist vera
á því að setja með formlegum
hætti samræmdar almennar reglur
um það hvernig staðið skuli að
sölu á eignum ríkisins með sama
hætti og settar hafi verið reglur
um hvernig staðið skuli að opinber-
um innkaupum. Þarna er vikið að
því, að nú hefur ráðherra í hendi
sér að setja skilyrði við sölu á eign-
um ríkisins sem henta betur einum
aðila en öðrum. í skjóli þess, að
ekki eru í gildi almennar reglur
getur ráðherra þannig einnig með
þessum hætti vegið að jafnræðis-
reglunni. Ættu þingmenn að bregð-
ast skjótt við og beita löggjafar-
valdi sínu á þann veg, að undan-
bragðalaust þurfí að fylgja sam-
ræmdum almennum reglum við
sölu á ríkiseignum. Þegar um hluta-
bréf í ríkisfyrirtækjum er að ræða
fer best á því, að verðbréfafyrir-
tækin í landinu annist slíka sölu
og leggi faglegt mat á þau tilboð,
sem berast. Með þeim hætti er
hægt að komast hjá því, að pólitísk
sjónarmið ráði ferðinni að nokkru
marki.
Pjármálastjórn Ólafs Ragnars
Grímssonar hefur sætt mikilli
gagnrýni úr ólkum áttum. Honum
hefur gjörsamlega mistekist í sam-
skiptum við háskólamenntaða ríkis-
starfsmenn. Honum hefur ekki tek-
ist að hemja hallann á ríkissjóði.
Hann hefur oftar en einu sinni
sætt ámæli fyrir meðferð sína á
ráðherravaldi. Þótt engin afstaða
sé tekin til ágreinings endurskoð-
enda um mat á eignum Þormóðs
ramma er skýrsla ríkisendurskoð-
unar enn ein staðfestingin á því,
að Ólafur Ragnar Grímsson sinnir
ráðherrastörfum með ámælisverð-
um hætti. Stuðningsmenn ríkis-
stjórnarinnar á Alþingi mega ekki
gleyma því, að Ólafur Ragnar
Grímsson starfar í sérstöku umboði
þeirra sem fjármálaráðherra.
Otvíræða viðurkernimgu
á sjálfstæði Litháens
eftir Þorstein Pálsson
Það var verulegur áfangasigur
þegar ríkisstjórnin féllst loksins á
það í vikunni að efna til viðræðna
við ríkisstjórn Litháens um að
áréttá viðurkenningu íslands á
sjálfstæði landsins með nótuskipt-
um og stofna á þann veg til stjórn-
málasambands. Mánuðum saman
hefur verið þrýst á ríkisstjórnina
í þessu efni en nú fyrst lét hún
undan.
Það veldur þó vonbrigðum að
ríkisstjómin stígur þetta skref
aðeins til hálfs. Engin ákvörðun
hefur verið tekin um skipti á sendi-
fulltrúum. Nauðsynlegt er þó að
það skref verði stigið til þess að
ákvörðun þessi hafí fullt gildi.
Afstaða Litháa skýr
Stjórnvöld Litháens hafa talið
það vera mikilvægustu aðgerðina
til stuðnings sjálfstæðisbaráttu
þeirra að Islendingar riðu á vaðið
og kæmu á formlegu stjórnmála-
sambandi. Fram til þessa hefur
ríkisstjómin daufheyrst við þess-
um óskum. Talsmenn hennar hafa
reynt að gera lítið úr tillögum
okkar sjálfstæðismanna í þessu
efni. Þeir hafa nú loks látið undan
að hluta, enda vilji þjóðarinnar
augljós.
Aðgerðir sem þessar af okkar
hálfu og annarra þjóða hefðu þurft
að koma miklu fyrr. Ef svo hefði
verið hefði staða Sovétstjómarinn-
ar til þess að beita hervaldi með
þeim hætti sem hún hefur gert
að undanförnu verið miklu
þrengri. En hvað sem því líður ber
að fagna því skrefi sem stigið
hefur verið.
Refsiaðgerðir lýðræðisríkja
Eftir ofbeldisaðgerðir undir
stjórn friðarverðlaunahafa Nóbels,
sem leiddu meðal annars til þess
að hópur fijálsra borgara lét lífið,
hafa fjölmargar þjóðir þegar
ákveðið að beita ráðstöfunum til
þess að þrengja að Sovétríkjunum.
Þannig hafa Evrópubandalagsrík-
in og Sjöveldin svonefndu ákveðið
að hætta efnahagsaðstoð. Það
hafa fleiri ríki gert og sum hætt
viðskiptaviðræðum.
Eðlilegt hefði verið að ísland
gripi til svipaðra ráðstafana. Við
sjálfstæðismenn höfum meðal
annars lagt áherslu á að rétt væri
að fyrirskipa fækkun í sovéska
sendiráðinu í Reykjavík og taka
ákvörðun um að hætta viðræðum
um nýjan almennan viðskipta-
samning.
Marklausar yfirlýsingar
Einstakir ráðherrar í ríkis-
stjóminni hafa í umræðum á Al-
þingi keppst við að yfirbjóða hver
annan í tillöguflutningi um að-
gerðir af þessu tagi gegn Sov-
étríkjurium. Þar hafa ráðherrar
Alþýðubandalagsins gengið feti
framar en aðrir.
Athyglisvert er að gamlir
kommar eins og Hjörleifur Gutt-
ormsson og Svavar Gestsson flytja
hveija ræðuna á fætur annarri til
þess að sýnast harðari gagnvart
Sovétríkjunum en aðrir, rétt eins
og þeir þurfi að þvo hendur sínar
af gömlum syndum. En þegar til
kastanna kemur tekur ríkisstjórn-
in enga slíka ákvörðun. Þegar hún
kemur saman á bak við luktar dyr
ríkisstjórnarherbergisins er hún
sammála um að raska ekki hags-
munum stjórnarherranna í Kreml.
Menntamálaráðherrann lagði til
með bægslagangi á Alþingi að
menningarsáttmálinn við Sov-
étríkin yrði felldur úr gildi. Þegar
á hólminn var komið reyndust
þetta vera marklaus orð og sýnd-
armennska ein. Það er eins og
ráðherrarnir líti á Alþingi sem
auglýsingastofu. Þar tala þeir eins
og þeir halda að fólkið vilji heyra
en þegar kemur að ríkisstjórnar-
borðinu þar sem valdið liggur
hreyfa þeir hvorki legg né lið.
Þrátt fyrir allt tal um nauðsyn
samstöðu þjóðarinnar um hvert
skref sem stigið er til stuðnings
Eystrasaltsþjóðunum þótti ríkis-
stjórninni ekki ástæða til að hafa
minnsta samráð við stjórnarand-
stöðuflokkana á Alþingi. Hún virð-
ist taká á þessum málum eins og
hveijum öðrum flokkspólitískum
innanlandsátökum. Það er miður.
EES-samningum að ljúka
Fréttir berast nú af því að samn-
ingaviðræðum EFTA-þjóðanna og
Evrópubandalagsins um stofnun
Þorsteinn Pálsson
„Þrátt fyrir allt tal um
nauðsyn samstöðu þjóð-
arinnar um hvert skref
sem stigið er til stuðn-
ings Eystrasaltsþjóðun-
um þótti ríkissljórninni
ekki ástæða til að hafa
minnsta samráð við
stj órnarandstöðuflokk-
ana á Alþingi.“
evrópsks efnahagssvæðis eigi að
ljúka í vor. Hér er um að ræða
langsamlega viðamestu alþjóða-
samninga um viðskipta- og efna-
hagssamstarf sem Islendingar
hafa nokkru sinni tekið þátt í.
Þó að nú hylli undir lok þessar-
ar samningsgerðai' hefur Alþingi
enn ekki fengið tækifæri til þess
að ræða einstök efnisatriði þessara
miklu samninga. Engu er líkara
en ríkisstjórnin vilji halda þeim
innandyra hjá sér í þeim tilgangi
að losna við opinberan ágreining
um einstaka þætti málsins.
Á hinn bóginn er það fagnaðar-
efni að breið samstaða virðist vera
um það að íslendingar verði aðilar
að evrópska efnahagssvæðinu þó
að það verði aðeins bráðabirgða-
lausn á tengslum flestra EFTA-
þjóðanna við Evrópubandalagið.
Við sjálfstæðismenn erum hlynntir
því að þessari samningsgerð verði
lokið með það að markmiði að ís-
lendingar verði þar aðilar.
Stigsmunur eða eðlismunur?
Til þess að losna við umræður
um ýmsa efnisþætti þessara viða-
miklu samninga virðist ríkisstjórn-
in ætla að snúa umræðunni upp i
deilur um það hvort stigsmunur
eða eðilismunur sé á aðild að evr-
ópska efnahagssvæðinu og Evr-
ópubandalaginu sjálfu. Augljóst
er að bæði framsóknarmenn og
alþýðubandalagsmenn óttast
ágreining innan flokka sinna. Þeir
eru því að reyna að telja stuðnings-
mönnum sínum trú um að evr-
ópska efnahagssvæðið sé eitthvað
annað en það er í raun og veru.
Þeir sem gerst þekkja vita að
það er stigsmunur en ekki eðlis-
munur á aðild að evrópska efna-
hagssvæðinu og Evrópubandalag-
inu. Fyrir okkur íslendinga skiptir
sá munur hins vegar miklu máli
því að fiskveiðimálin og sameigin-
leg fiskveiðistefna Evrópubanda-
lagsins er ekki hluti af evrópska
efnahagssvæðinu. Og miklu máli
skiptir að um það virðist vera
víðtæk samstaða að veija ótvíræð-
an yfirráðarétt okkar yfir fisk-
veiðilandhelginni, Þann rétt gefum
við aldrei eftir í samningum hvorki
við Evrópubandalagið né aðrar
þjóðir.
Aðildin að evrópska efnahags-
svæðinu felur á hinn bóginn í sér
að við gerumst aðilar að allri lög-
gjöf Evrópubandalagsins um innri
markað þess. Sú löggjöf sem á
einum degi verður að íslenskum
lögum er margfalt meiri að vöxt-
um en öll núgildandi löggjöf hér
á landi í blaðsíðum talið. Sérfræð-
ingar hafa látið það álit í ljós að
með þessari aðild séum vjð orðnir
þátttakendur í um það bil 70-80%
af starfsemi Evrópubandalagsins.
Ríkisstjórnin hefur þegar fallist
á að komið verði á fót sérstakri
stofnun innan EFTA til þess að
fjalla um framkvæmd á sam-
keppnisreglum. Slík stofnun á að
hafa samskonar hlutverk og um-
boð og framkvæmdastjórn Evr-
ópubandalagsins. Á því sviði hefur
því verið á það fallist að um verði
að ræða yfirþjóðlegt vald-á evr-
ópska efnahagssvæðinu. Þetta
hefur verið ákveðið til þess að
mæta óskum Evrópubandalagsins
um skilvirkni í allri framkvæmd
mála innan efnahagssvæðisins.
Þegar talsmenn Framsóknar-
flokksins eru að mála skrattann á
vegginn varðandi Evrópubanda-
lagið eru þeir að stórum hluta að
draga upp mynd af því sem þeir
sjálfir hafa nú forystu fyrir að
semja um. Áróðursbrögð af þessu
tagi eru ómálefnaleg og ófijó. Þau
stuðla að því að villa um fyrir fólki
þannig að það viti ekki um hvað
er verið að taka ákvarðanir í raun
og veru. Miklu nær væri að hefja
umræður á Alþingi um einstök
efnisatriði og mikilvægustu
pólitísku álitaefnin í svo umfangs-
mikilli löggjöf sem við erum að
gerast aðilar að. Eðlilegt er að
þjóðin kalli á ábyrga og um-'
fangsmikla umfjöllun og umræðu
af því tagi.
i
Deildaskipting Alþingis
eftir Þorvald Garðar
Kristjánsson
Hugmyndir um að leggja niður
deildaskiptingu Alþingis hafa
stundum skotið upp kollinum en
ekki orðið neitt úr. Um þessar
mundir bregður þessu fyrir. Færð-
ar eru fram þær helstu ástæður
að deildaskipting Alþingis séu leif-
ar þess skipulags sem Danir komu
á til að tryggja yfirráð sín yfir
landinu og ein málstofa tryggi
skilvirkari störf Alþingis en deiida-
skiptingin geri. Vert er að líta á
það sem hér er fram borið.
Það er söguleg staðreynd að
Danir höfðu á sinni tíð ráð íslend-
inga í hendi sér með stöðvunar-
valdi á Alþingi. Hinir konung-
kjömu þingmenn gegndu því hlut-
verki. En yfirráð Dana voru óháð
því hvort Álþingi væri í einni mál-
stofu eða í tveim deildum. Það er
því rangt að tengja sérstaklega
arfsögnina um hina konungkjörnu
þingmenn við deildaskiptinguna,
enda höfðu þeir komið strax til
þegar Alþingi var endurreist. Dan-
ir vildu halda sínum yfírráðum,
hvort sem Alþingi starfaði í einni
málstofu eða í tveim deildum.
Deildaskipting Alþingis er ekkert
sérstakt hugarfóstur Dana nema
síður sé, eins og sagan ber vott um.
Það voru Danir sem ákváðu að
Alþingi skyldi starfa í einni mál-
stofu þegar það var endurreist
1843. Enn sýndu Danir vilja sinn
í þessum efnum með stjórnskipun-
arfrumvarpi sínu sem lagt var fram
á Alþingi 1867, þar sem gert var
ráð fyrir einni málstofu. Það vom
Danir sem réðu því að Alþingi
starfaði í einni málstofu á þessum
tíma og lögðu áherslu á að svó
yrði framvegis.
En íslendingar vom andvígir
Dönum í þessum efnum sem fleir-
um. Þeir vildu deildaskipt Alþingi.
Þessi stefna ríkti á Alþingi og kom
fram í stjórnskipunarfrumvörpum
sem ítrekað voru samþykkt á þing-
unum 1867, 1869, 1871 og 1873,
en Danir virtu að vettugi. Og svo
vill til að fmmvarpið frá 1873 gerði
einmitt ráð fyrir þeirri skipan sem
er í dag, deildaskiptingu Alþingis
með öllum þingmönnum þjóðkjörn-
um, öllum kosnum samtímis og
með sama hætti og þingmenn
skiptu sér sjálfir milli deilda.
Þannig var það í samræmi við
sjónarmið íslendinga að tekin var
upp deildaskipting Alþingis þó að
til þess þyrfti að koma til sam-
þykki Dana með stjómarskránni
1874. Dönum var fastast í hendi
að tryggja yfírráð sín og þeir vissu
að það gátu þeir gert hvort sem
Alþingi var ein málstofa eða ekki
þó að þeir reyndust tregir til að
taka upp deildaskiptinguna. Þegar
á allt er litið er það þannig harla
haldlítil ástæða fyrir afnámi
deildaskiptingar að með því sé ver-
ið að afmá danskar leifar í stjórn-
skipun landsins. í raun er hlutun-
um snúið við. Það sæmir ekki að
beita slíkum sögufölsunum. Það
er veikur málstaður sem þarf á
slíku að halda.
En þá er fullyrðingin að ein
málstofa geri Alþingi skilvirkara
en deildaskiptingin. Er þá einkum
átt við að störfin verði fljótvirkari
þegar sloppið verði frá óþarfa
umstangi sem fylgi deildaskipting-
unni með því að fækka umræðum
og fækka þingnefndum.
Það sem alla jafna ræður mestu
um hraða á afgreiðslu mála á Al-
þingi er sá tími sem fer í umræður
um hvert mál. En málfrelsi þing-
manna verður að hafa i heiðri.
Þingsköp kveða samt á um tak-
mörk fyrir tímalengd umræðna.
Eftir því sem þing eru fjölmennari
þurfa þessi takmörk að vera
þrengri. í þessu sambandi er því
fámenni Alþingis kostur, sem ber
að nýta sem best með því að tak-
marka umræður sem minnst. Um-
ræður eru óhjákvæmilegar og
þingmenn þurfa að tjá sig, hvort
sem Alþingi er í einni málstofu eða
deildaskipt. Skilvirkni í þessu efni
er fólgin í því að sem flestir þing-
menn geti tjáð sig á þeim tíma sem
til umráða er. Ganga verður út frá
að þingmenn finni jafna þörf fyrir
að taka þátt í umræðum, hvor
skipunin sem höfð er á. En sá er
munurinn að deildaskipanin gerir
mögulegt að samtímis geti tveir
þingmenn verið í ræðustól, hvor í
sinni deild, en í einni málstofu tal-
ar ekki nema einn í einu. Má þá
fara nærri um þegar á heildina er
litið, hvor skipanin svarar með
fljótvirkari hætti þörf þingmanna
fyrir að tjá sig í umræðum. Svo
einfalt er það mál. Af þessu leiðir
að einni málstofu fylgja óhjá-
kvæmilega meiri takmarkanir á
málfrelsi þingmanna en nauðsyn
krefur á deildaskiptu þingi.
Þá er færð fram sú ástæða fyr-
ir afnámi deildaskiptingar Alþingis
að það geri störf þingnefnda skil-
virkari með því að nefndum verði
fækkað og nefndarmönnum fjölg-
að. Þessu er ætlað að flýta fyrir
nefndarstörfum. En ekki er það
sjálfgefið að stórar nefndir séu
fljótvirkari en litlar nefndir nema
siður sé. Annars fækkar nefndum
að sjálfsögðu ef Alþingi yrði breytt
í eina málstofu og það myndi leiða
í sjálfu sér til þess að hver þing-
maður starfi í færri nefndum og
því kann að geta fylgt aukin skil-
virkni í nefndarstörfum. En á hitt
ber að líta að engar nauður ber
til að taka upp eina málstofu til
að koma slíkum endurbótum á, því
að nefndarskipun Alþingis má
breyta á ýmsan hátt Itil aukinnar
skilvirkni án þess að koma þurfí
til að deildarskipting verði afnum-
in. Það þarf enga kollsteypu á skip-
an Alþingis til að bæta vinnubrögð
þess.
Gæta verður þess að í skilvirkni
felst ekki einungis flýtir, heldur
eigi síður gæði þess sem unnið er.
Af sjálfu sér leiðir að deildaskipt-
ing Álþingis stuðlar betur að vand-
aðri lagasetningu en ein málstofa,
því að betur sjá augu en auga.
Hins vegar segja nú þeir sem
leggja til afnám deildaskiptingar
að vandvirknin sé á kostnað hrað-
virkninnar og því of dýru verði
keypt. En allur er þessi málatilbún-
aður léttvægur fundinn þegar haft
er í huga að deildaskipun fylgir
ekki einungis meiri vandvirkni,
heldur og meiri hraðvirkni en fylg-
ir einni málstofu þegar á heildar-
störf þingsins er litið.
Þegar fokið er í flest skjól fyrir
formælendum einnar málstofu er
gripið gjarnan til þess ráðs að
benda á að þessa skipun hafi ein-
mitt Danir og Svíar tekið upp fyr-
ir 20-30 árum. Þetta er rétt, þó
að misjafnar sögur fari af ágæti
þessara tiltekta. Hins vegar er
þess að gæta að hér.er um einstæð-
ar undantekningar að ræða. Með
öllum öðrum þjóðum sem sambæri-
legar eru okkur íslendingum að
stjórnskipun, þjóðháttum og menn-
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
„Það væri mikið bráð-
ræði að hverfa nú frá
deildaskiptingu Alþing-
is og reyndar stjórn-
skipulegt slys. Þar með
er ekki sagt að engu
megi breyta um skipan
og starfshætti Alþing-
is.“
ingu, er að finna tvískiptar löggjaf-
arsamkomur í formi deildaskipt-
ingar með einum eða öðrum hætti.
Þessi skipun hvílir á 'mismunandi
sögulegum hefðum í hveiju landi
fyrir sig, en er alls staðar haldi
við af ástæðum sem i grundvallar-
atriðum eru þær sömu og liggja
að baki deildaskiptingu Alþingis.
Það er miðað við að þjóðþingin
megi sem best ná tilgangi sínum
sem löggjafi og vettvangur þjóð-
málaumræðu.
Frá þessu er ekki hvikað með
því að hverfa frá tvískiptingunni.
Meira að segja Bretar halda, við
sína lávarðadeild, svo fáránleg sem
skipan hennar má teljast. En
ástæðan er engin forild, heldur sú
að ekki megi hverfa frá tvískipt-
ingu þingsins hvað sem tautar.
Meðan ekki er fundið nýtt form
fyrir efri deild þingsins, halda þeir
þess vegna við sína fornu lávarða-
deild. Rökin fyrir þessu eru þau
að tvískipt þig stuðli að vandaðri
lagagerð og skapi skilyrði að
víðtækari þjóðmálaumræðu en ein
málstofa.
Það væri mikið bráðræði að
hverfa nú frá deildaskiptingu Al-
þingis og reyndar stjórnskipulegt
slys. Þar með er ekki sagt að engu
megi breyta um skipan og starfs-
hætti Álþingis. í því efni kemur
meðal annars til álita sjálft skipu-
lag og uppbygging deildaskipting-
arinnar og meðferð ágreinings
milli deildanna. Varast verður samt
umfram allt að láta nýjungagirni
glepja sér sýn. Varðar þá mestu
aðgætni og íhaldssemi við það sem
hefir sannað gildi sitt, ekki einung-
is hjá okkur íslendingum, heldur
og meðal annarra þjóða sem hafa
mestu reynsluna af þingræðinu.
Flas er ekki til fagnaðar og allra
sist í því sem varðar grundvallarat-
riði í stjórnskipun landsins. Það
sætir raunar furðu þetta upphlaup
nú á móti deildaskiptingunni, þar
sem veður uppi brengluð söguskoð-
un á ’áhrifum Dana á skipan Al-
þingis og misskilin skilvirkni i
störfum þess. Þetta sver sig frem-
ur í ætt við fálm en forsjá. ’Stíkur
hringlandi með æðstu stjórn ríkis-
ins er til þess fallinn að auka á
óvissu og lausung í stað þess að
efla festu og stöðugleika i stjómar-
háttum. Rekur nú nauður til slíks?
Höfundur er annnr af
nlþingismönnum
Sjálfstæðisflokksins fyrir
Vestfjarðakjördæmi ogfyrrum
forseti sameinaðs Alþingis.
Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson
Nemendur Grunnskóla Eskifjarðar í maraþonkennslu.
Eskifjörður:
Maraþonkennsla
í grunnskólanum
Eskifirði.
ELSTI bekkur Grunnskóla Eskifjarðar setti met í maraþon-
kennslu. Þau byrjuðu föstudaginn 18. jan. kl. 8.00 og því lauk 19.
jan. kl. 17.00 og þá var búið að kenna samfleytt í 33 klst. en eldra
metið var 32 klst.
Kennararnir sögðu að versti
tíminn hefði verið frá kl. 4.00 til
6.00 þá var erfitt að halda sér
vakandi. Það er verið að safna
áheitum fyrir skólaferðalag sem
fara á í vor hringinn í kringum
landið og til Vestmannaeyja.
- Benedikt.
Skáld frá Samalandi
fær bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs
NILS-ASLAK Valkeapaa, skáld
frá Samalandi, fæddur 1943,
fær bókmenntaverðlaun Norð-
urlandaráðs 1991 fyrir bók sína
Faðir minn, sólin. Bókin, sem
samanstendur af Ijóðum og
myndum, sækir heiti sitt í goð-
sögnina um Samana þar sem
þeim er lýst sem börnum sólar-
innar. í greinargerð dómnefnd-
ar Norðurlandaráðs sem komst
að niðurstöðu sinni á fundi í
Tromsö í Noregi í gær segir
m.a. að Valkeapáa fái verðlaun-
in fyrir að „tengja saman fortíð
og nútíð, heimildir og skáld-
skap á nýskapandi og áður
óþekktan hátt“. Enn fremur er
bent á að bókin tjái samíska
menningarsögu og lesandinn
fái innsýn í auðlegð samískrar
tungu.
Dagný Kristjánsdóttir lektor
sem sæti á í dómnefndinni fyrir
íslands hönd ásamt Sigurði A.
Magnússyni rithöfundi sagði í
samtali við Morgúnblaðið að Nils-
Aslak Valkeapáá væri ákaflega
vel að verðlaununum kominn.
„Segja má að þetta sé mjög norr-
æn verðlaunaveiting því að Sam-
arnir búa í Noregi, Svíþjóð og
Finnlandi, Valkeapáá í Finnlandi.
Samarnir tengja saman löndin
norðurfrá,“ sagði Dagný.
Hún var spurð að því hvort hér
væri ekki einkum um myndabók
að ræða.
„Bókin fær fyrst og fremst
verðlaunin fyrir bókmenntalegt
gildi, bókmenntagildi hennar er
ótvírætt,“ sagði Dagný og bætti
við að það væri margt fallegt við
bókina. „Myndirnar búa-til sam-
hengi fyrir þessa ljóðrænu texta
sem verður afar sterkt og ein-
stakt. Uppsetning ljóðanna í bók-
inni er mjög aðlaðandi og mikil
hreyfing á blaðsíðunum, höfundur-
Nils-Aslak Valkeapáá
inn notar svo margt annað en orð-
in.“
Jóhann Hjálmarsson hefur þýtt
ljóð eftir Nils-Aslak Valkeapáá og
er nokkur þeirra að finna í þýð-
ingasafni hans, í skolti Levíatans,
sem kom út 1988. Stutt ljóð úr
verðlaunabókinni birtist í Lesbók
Morgunblaðsins í fyrra í þýðingu
Jóhanns:
Og þegar allt er horfið
heyrist ekkert lenpr
ekkert
og það heyrist.
Verðlaunin sem eru 150.000 4'
danskar krónur verða afhent á 38.
þingi Norðurlandaráðs í Kaup-
mannahöfn 26. febrúar nk.
íslensku bækurnar sem til-
nefndar voru að þessu sinni voru
Hringsól eftir Álfrúnu Gunnlaugs-
dóttur og Bréfbátarigningin eftir
Gyrði Elíasson. *■