Morgunblaðið - 26.01.1991, Page 44
ttrgtmÞlafrifr
VOLVO
Besti vinur sjómannsins!
LAUGARDAGUR 26. JANUAR 1991
VERÐ I LAUSASOLU 100 KR.
Islendingar gerast
hluthafar í lakkrís-
verksmiðju í Kína
NOKKRIR íslendingar hafa tekið saman höndum og fjárfest í sælgæt-
isverksmiðju í Kína. Verksmiðjan á að framleiða lakkrís fyrir alþjóða-
markað og er lakkrísinn gerður eftir íslenskri uppskrift. Guðmundur
Viðar Friðriksson, forsvarsmaður fyrirtækisins, segir áætlað að fram-
leiðsla hefjist í maí í vor og að farið verði að framleiða á fullum af-
köstum i september. Hann segir að erlendur markaður sé þegar tryggð-
ur fyrir alla framleiðsluna, 2.400 tonn á ári.
Fyrirtækið heitir Scandinavian-
Guangzhou Candy Co. Ltd. og er
að jöfnu í eigu íslendinga og
kínversks sælgætisframleiðanda.
Guðmundur Viðar segir að Kínvetjar
^■Kiafi lagt til húsnæðið og að íslend-
ingar leggi til hönnun endurbygg-
ingar þess, uppskriftir og fleira.
Heildarfjárfestingin er um 1,2 millj-
ónir dollara, eða um 66 milljónir
íslenskra króna.
Guðmundur Viðar segir að um
V •
Margir þing-
menn vilja
*til Litháens
ÁKVEÐIÐ verður á mánudag-
inn hvaða alþingismenn fara á
vegum Alþingis til Litháens
næstkomandi fimmtudag. Sam-
kvæmt ákvörðun forseta Al-
þingis verða þrír í nefndinni,
en mun fleiri munu sækjast eft-
ir því að komast með.
Forsetar Alþingis ákváðu á
fimmtudag að verða við þeirri
beiðni utanríkismálanefndar að
senda nefnd til Litháens. Ákveðið
var að í nefndinni yrðu þrír þing-‘
menn; einn fulltrúi stjórnarflokk-
anna, einn fulltrúi stjórnarand-
stöðunnar og einn af forsetum
þingsins og er miðað við að nefnd-
in fari næstkomandi fimmtudag.
Verkefni hennar verður að ræða
við þingmenn í landinu og koma
á formlegum samskiptum milli
þinganna, til dæmis með því að
skiptast á heimsóknum.
350 manns muni vinna í verksmiðj-
unni, þar af íslenskur framkvæmda-
stjóri, Bjarni Halldórsson, og
íslenskur tæknimaður. Varan verður
seld undir ýmsum vörumerkjum, eft-
ir því hver kaupandinn er og á hvaða
markaði, en ávallt verður þess getið
á umbúðum að um íslenska upp-
skrift og framleiðsluaðferðir sé að
ræða.
Guðmundur Viðar segir undirbún-
inginn hafa staðið síðan síðsumars
í fyrra og að allan tímann hefðu
þeir félagar notið mikillar aðstoðar
kínverska viðskiptafulltrúans hér á
landi, Chu Yiyou.
Verksmiðjuhúsin verða endurinn-
réttuð og er hönnun þeirra í höndum
Verkfræðistofu Sigurðar Thorodd-
sen hf. og Hrafnkels Thorlaciusar
arkitekts. Fjárrnálaráðgjafi við verk-
efnið er Stefán Jóhannsson.
Nú er útsölutíminn,-líka hjá bókaútgefendum, sem halda bókamark-
aði undir nöfnum eins og „bókaveizla, „stórbókamarkaður og „nýárs-'
bónus fyrir fjölskylduna". Og þegar þeim sleppir hefst árlegur bóka-
markaður Félags íslenskra bókaútgefenda. En eins og myndin, sem
tekin var í gær á „risabókamarkaði“ Eymundsson á Eiðistorgi, sýn-
ir, þá er bókin ennþá vinur barnsins.
Vogar:
Fiskveiða-
sjóður kaupir
eignir þrota-
bús Vogalax á
100 milljónir
Vogiim.
FISKVEIÐASJÓÐI voru slegnar
fasteignir hafbeitarstöðvarinnar
Vogalax í Vogum á 95 milljónir
króna á uppboði er fram fór á
fimmtudaginn. í gær voru svo
Fiskveiðasjóði síðan slegin laxa-
seiði Vogalax á 4,5 milljónir
króna. Laxaseiðin eru argangur
1989 og tilvonandi gönguseiði
vorið 1991, og um það bil 500
lítrar augnhrogna og kviðpoka-
seiða sem eru árgangur 1990.
Fiskveiðasjóði hafa einnig verið
slegnar landspildur úr landi Hábæj-
ar og Nýjabæjar á uppboði, en þess-
ar spildur voru eign Vogalax. Ólaf-
ur Stefánsson, lögfræðingur Fisk-
veiðasjóðs, sagði í samtali við
fréttaritara Morgunblaðsins að
Fiskveiðasjóður myndi reka stöðina
áfram. 'Eftir er í eigu þrotabús
Vogalax lax í hafi.
E.G.
Álafoss í síiimiingTim beint
við lýðveldið Rússland
Akureyri.
FLEST bendir til þess að samningar takist um sölu á framleiðslu-
vörum Álafoss til lýðveldisins Rússlands, en lokið er gerð allra
þátta samningsins, s.s. um vörutegundir, verð, afhendingartíina
og fleira. Gengið hefur verið frá ríkisábyrgð eystra og þar eru
menn tilbúnir að opna bankaábyrgðir vegna sölusamningsins, en
fyrirkomulag samningsins er með þeim hætti að Álafoss veitir
Rússum fjármögnunarlán til 18 mánaða. Frá þeim málum hefur
ekki verið að fullu gengið, en það mun skýrast í lok næstu viku
hvort fyrirtækinu tekst að fá umrætt lán vegna samningsins, en
hann er til tveggja ára.
Ólafur Ólafsson forstjóri Álafoss
hf. sagði að menn væru bjartsýnir
á að af samningnum yrði, en enn
ætti eftir að ganga endanlega frá
honum. Hann sagði að um væri
að ræða tímamótasamning, þar
sem nú er í fyrsta skipti samið
beint við lýðveldi innan Sovétríkj-
anna, en áður hefðu samningar
verið gerðir við innkaupastofnun
Seyðisfjörður:
Samningur um kaup á togaran-
um Hjörleifi fyrir 125 milljónir
Bolfiskvinnsla hefst 1 næstu viku eftir 16 mánaða hlé
DVERGASTEINN hf. á Seyðisfirði hefur skrifað undir samning um
kaup á togaranum Hjörleifi RE af Granda hf. fyrir 125 milljónir
króna. Samningurinn er með fyrirvara um veð og greiðslur, að sögn
Sigurbjarnar Svavarssonar útgerðarstjóra Granda lif. Hann segir
að togarinn verði afhentur Dvergsleini hf. í næsta mánuði takist
fyrirtækinu að uppfylla þessa skilmála. Hjörleifi RE fylgir 450 tonna
aflakvóti í þorskígildum. Þessi kvóti er 63ja milljóna króna virði,
miðað við 140 krónur fyrir kílóið. Samkvæmt því greiðir Dverga-
steinn hf. 62 milljónir fyrir skipið sjálft en það er 18 ára gamalt.
„Það þarf að gera breytingu á
kaupsamningnum en allar líkur eru
á að skrifað verði Undir endanlegan
kaupsamning næstkomandi mánu-
dag, sem þýddi það að við yrðum
komnir með skipið hingað heim um
miðjan næsta mánuð,“ segir Svan-
björn Stefánsson framkvæmda-
stjóri Dvergasteins hf.
„Við byrjum að vinna bolfisk í
miðri næstu viku, þegar Gullver
landar hjá okkur. Það er talað um
að Gullver landi að minnsta kosti
eitt þúsund tonnum af bolfiski hjá
okkur á næsta ári en hér á Seyðis-
firði hefur engin bolfiskvinnsla ver-
ið síðastliðna 16 mánuði. Seyðis-
fjarðartogararnir tveir, Gullver og
Otto Wathne, hafa siglt með afla
sinn, sett í gáma og selt á fiskmark-
aði í Reykjavík," segir Svanbjörn.
Bæjarsjóður Seyðisfjarðar á 15
milljónir króna í Dvergasteini hf.,
Gullberg hf. 15 milljónir, hafnar-
sjóður 5 milljónir, verkalýðsfélög 5
milljónir og einstaklingar rúmar 2
milljónir. „Við erum búnir að fá
loforð fyrir þessum 42 milljónum
en erum að gera okkur vonir um
að vera komnir með um 70 milljóna
króna hlutafé 28. febrúar."
Dvergasteinn hf. á smábátinn
Völustein, sem er með 110 tonna
kvóta, og Gullberg hf. á smábátinn
Vingþór, sem er með svipaðan
kvóta og Völusteinn. Þessi bátar
hafa verið á línuveiðum en ætlunin
er að selja þá og færa kvótann af
þeim yfir á Hjörleif RE.
„Við erum einnig búnir að kaupa
um 200 tonna kvóta í þorskígildum
af bátum hér á Seyðisfirði og erum
mjög líklega með hendurnar á 100
tonna kvóta í viðbót. í Færeyjum
og Noregi efu skip á útsölu, þannig
að hægt ætti að vera að nota Hjör-
leil’ RE sem greiðslu upp í slíkt
skip. Einnig er trúlega hægt að fá
13-14 milljónir fyrir að úrelda Hjör-
leif. Það gengur ekki fyrir okkur
að vera einungis nteð báta og sagan
sýnir að bátaútgerð gengur ekki á
norðanverðum Austfjörðum. Hér
hefur til dæmis verið mikil ótíð
undanfarið og ekki gefið neitt til
að róa,“ segir Svanbjörn.
eða sovéska samvinnusambandið.
„Þessi samningur er ákaflega mik-
ilvægur fyrir okkur og hann er
merkilegur að því leyti að nú hefj-
um við sölu beint til einstaks lýð-
veldis,“ sagði Ólafur, en hann tók
fram að mikil óvissa ríkti með hinn
hefðbundna samning við Sovétrík-
in.
Mikil umskipti hafa orðið hvað
varðar verkefnastöðu Álafoss hf.
á Akureyri, en þar er nú mikil
vinna. Á sama tíma í fyrra var
starfsfólk verksmiðjunnar atvinnu-
laust vegna verkefnaskorts í um
tvo mánuði. Verði af umræddum
samningi, eins og allar líkur eru
á, þarf verksmiðjan að ráða til sín
starfsfólk til viðbótar því sem fyrir
er, allt að 45 manns. Ólafur sagði
að við samningagerðina hefði
áhersla verið lögð á sölu fatnaðar
sem'krefðist mikils vinnuafls, m.a.
jakka, en minni áhersla lögð á til
að mynda trefla. í lok næstu viku
skýrist endanlega hvort af samn-
ingi þessum verður og fljótlega upp
úr því verður auglýst eftir starfs-
fólki, komi ekkert upp á varðandi
samninginn.
Kristín Hjálmarsdóttir formaður
Iðju, félags verksmiðjufólks, sagð-
ist fagna auknum verkefnum hjá
Álafossi og kvaðst vona að samn-
ingurinn kæmist í höfn. Hún sagði
að urn 40 manns í félaginu væru
á atvinnuleysisskrá, en ástandið
væri þó mun skárra en á sama
tíma á síðasta ári þegar að jafnaði
voru um 60 manns úr félaginu á
skránni að viðbættu Álafossfólkinu
sem tímabundið kom inn á skrána.