Morgunblaðið - 02.02.1991, Page 4
6
ieei HA'jsfiMí s »noA(iH/írj/^
-■MORGtíNfiLAÐIÐ LA tíGARDAGtí R -2.-FÍ.
Fjárfestingar útlendinga í íslensku atvinnulífi:
Útlendingar eiga yfir tíu
millj. í um 20 fyrirtækjum
ERLENDIR aðilar eiga meira en
10 milljónir króna í um 20
íslenskum fyrirtækjum. 73,5% af
heildareignum erlendra aðila í
íslenskum fyrirtækjum eru _ í
formi eignarhlutar í ISAL, Is-
lenska Járnblendifélaginu og
Kísiliðjunni. Eignarhlutur út-
lendinga í þeim félögum er met-
inn á um 5,8 milljarða króna af
um 7,8 milljarða heildareign út-
lendinga í íslensku atvinnulífi,
miðað við 1. janúar 1990. Af þeim
tveimur milljörðum sem eftir
standa eiga 7 erlendir aðilar
rúmlega 1,7 milljarða, en um 265
milljón króna eign, 4% af heildar-
eign útlendinga í íslensku atvinn-
ulífi, skiptist á um 50 erlenda
einstaklinga og fyrirtæki. 9 fyr-
irtæki eru með 96% af allri er-
lendri eignaraðild að íslenskum
fyrirtækjum.
Þetta kemur fram í greinargerð
sem fylgir frumvarpi til laga um
fjárfestingu erlendra aðila í at-
vinnurekstri, sem lagt hefur veirð
fram á Alþingi.
í árslok 1989 var eigið fé ÍSal
metið rúmir 4 milljarðar króna og
var það allt í eigu Swiss Alumi-
nium. Norska stórfyrirtækið Elkem
á tæpan milljarð í íslenska járn-
blendifélaginu og japanska sam-
steypan Sumitoma á um 485 millj-
ónir króna í sama fyrirtæki. 48,5%
hlutur bandaríska fyrirtækisins
Manville í Kísiliðjunni á Myvatni
er metinn á 306 milljónir króna.
Meðal helstu eigna erlendra aðila
í fyrirtækjum hér á landi má nefna
að eigið fé IBM á íslandi, sem var
464 milljónir króna í árslok 1989,
er að öllu leyti í eigu I.B.M. Corp.
48,3% eign Shell Petol Company í
Olíufélaginu Skeljungi var talin um
360 milljón króna virði í árslok
1989 en auk þess átti Shell Asiatic
Petrol 9,9% í Skeljungi og var sá
hluti metinn til um 74 milljóna
króna.
30% eignarhlutur Texaco í Dan-
mörku í OLÍS var metinn á 300
milljónir króna. 45,5% eignarhlutur
kanadíska fyrirtækisins Great Icel-
andic Water Hold. í íslensku Berg-
vatni hf, var metinn á um 104 millj-
ónir króna og 92,5% hlutur danska
fyrirtækisins E. Phil og sön í ístak
var talinn 140 milljón króna virði.
Þá á sænska fyrirtækið Ansvar
Omsesidigt 90;2% hlutafjár í trygg-
ingafélaginu Abyrgð hf og var sú
eign metin á tæplega 284 milljónir
króna í árslok 1989.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 2. FEBRÚAR
YFIRLIT i GÆR: Skammt suður af Hvarfi er mjög djúp og vaxandi-
lægð sem þokast norðaustur. í nótt hlýnar en aftur kólnar á morgun.
SPÁ: Vestan- og norðvestankaldi með éljum vestan- og suðvestan-
lands en úrkomulaust annarstaðar.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Vestan- og norðvestanátt, fremur hæg.
Él á Suðvestur- og Vesturlandi en úrkomulaust að mestu annars
staðar. Frost 1—2 stig.
HORFUR Á MÁNUDAG: Sunnanátt, allhvöss austan til á landinuen
mun hægari vestan lands. Snjó- eða slydduvél sunnan- og austan-
lands en úrkomulítið annars staðar. Hiti um frostmark.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
ÚSk Skýjað
a Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* *
•j 0 Hitastig:
10 gráðurá Celsius
Skúrir
= Þoka
— Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
[~^ Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 0 léttskýjað
Reykjavik 0 snjóél
Bergen 0 alskýjað
Helsinki +1 alskýjað
Kaupmannahöfn •f-1 léttskýjað
Narssarssuaq 7 skafrenningur
Nuuk +20 skafrennlngur
Osló +S skýjað
Stokkhólmur •5*4 haglél á sfð. klst.
Þórshöfn s skúr
Algarve 14 rigning
Amsterdam +3 kornsnjór
Barcelona 9 lágþokublettir
Berlín +6 heiðskírt
Chicago r6 léttskýjað
Feneyjar 1 heiðskírt
Frankfurt +1 heiðskfrt
Glasgow 3 mlstur
Hamborg 3 heiðskfrt
Las Palmas 19 léttskýjað
London 4 rigning
Los Angeles 10 aiskýjað
Lúxemborg +fi þokumóða
Madrld 3 rigning
Malaga 11 rigning
Mallorca 13 hálfskýjað
Montreal +17 léttskýjað
New York 4 heiðsklrt
Orlando 16 rigning
Parls 0 þokumóða
Róm vantar
Vín +fl heiðskfrt
Washlngton vantar
Winnipeg +14 skýjað
DHOM
iR-1991---
Tríó Saludo: Peter Ingo, Arto Rintamaki, Hákan Streng.
Helsinkidagar;
Finnskir tónlist-
armenn á Islandi
TVÆR hljómsveitir frá Finn-
landi, jasshljómsveitin UMO og
tríó Saludo, halda tónleika í
Reykjavík í tilefni af Helsinki-
dögum í borginni dagana 4.-9.
febrúar. Helsinkidagarnir eru
haldnir í tengslum við sýninguna
HELSINKI-MANNLÍF OG SAGA
á Kjarvalsstöðum 4. til 24. febrú-
ar.
Fyrstu tónleikar UMO verða mið-
vikudaginn 6. febrúar kl. 20.00 í
Háskólabíói (sal 2) og verður þeim
útvarpað í beinni útsendingu. Áðrir
tónleikar UMO verða fimmtudaginn
7. febrúar í Púlsinum við Vitastíg
frá kl. 22:00 til 23:30. Síðustu tón-
leikarnir verða haldnir í FÍH-saln-
um föstudaginn 8. febrúar kl. 20:00
og verður þeim einnig útvarpað í
beinni útsendingu.
Tríó Saludo kemur fram á nokkr-
um stöðum í Reykjavík. Meðal ann-
ars á Helsinki-sýningunni á Kjarv-
alsstöðum 4. febrúar kl. 17:00.
Næstu daga þar á eftir leikur tríóið
á Helsinkiviku sem hefst á Hótel
Loftleiðum 7. febrúar en kemur auk
þess fram í Púlsinum 8. febrúar og
á Kjarvalsstöðum 9. febrúar.
Steintak hf. gjaldþrota:
Skuldir meira
en 200 milljónir
umfram eignir
STEINTAK hf var í gær úrskurð-
að gjaldþrota, að ósk stjórnar
félagsins. I bráðabirgðauppgjöri
fyrstu níu mánaða ársins, sem
lagt var fram með gjaldþrota-
beiðninni, virðast skuldir um-
fram eignir vera rúmar 200 millj-
ónir króna, að sögn Elvars Arnar
Unnsteinssonar, hdl, sem ásamt
Magnúsi H. Magnússyni hdl, hef-
ur verið ráðinn bústjóri þrota-
búsins. Að sögn hans er Ijóst að
staða félagsins hefur ekki batnað
frá því uppgjöri.
Við gjaldþrotið hafði Steintak hf,
enga starfsemi með höndum. Hluta-
félagið Völundarverk hafði yfirtekið
umfangsmiklar byggingafram-
kvæmdir félagsins við Klapparstíg
og Skúlagötu og eignast þar vélar
og tæki gegn yfirtöku þorra skulda
vegna þeirrar framkvæmdar en
hlutafélagið Ráðverk hafði með
samþykki Istaks og Reykjavíkur-
borgar, yfirtekið skuldbindingar
Steintaks gagnvart byggingu Ráð-
húss Reykjavíkur, þar_ sem var
Steintak undirverktaki ístaks. El-
var Örn Unnsteinsson sagði að bú-
stjórar mundu yfirfara samninga
milli Steintaks við Ráðverk og Völ-
undarverk í því skyni að sannreyna
að samræmi hefði verið milli endur-
gjalds og þess sem Steintak l_ét í té.
Helstu kröfuhafar eru íslands-
banki, Gjaldheimtan, Tollstjóri og
Lífeyrissjóður byggingamanna.
Kaupendur þeirra íbúða sem
Steintak hafði í byggingu á Völund-
arlóðinni, á mótum Skúlagötu og
Klapparstígs, munu nú ásamt Völ-
undarverki eiga í samningaviðræð-
um um hvernig háttað verði fram-
haldi framkvæmda, en af kröfuhöf-
um mun íslandsbanki þar eiga lang-
mestra hagsmuna að gæta.