Morgunblaðið - 02.02.1991, Side 14
14______________MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRUAR 1991_
Greinargerð frá Lúðvík
Jósepssyni um vaxtamál
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi greinargerð frá
Lúðvík Jósepssyni.
Það er eflaust að bera í bakka-
fullan lækinn að bæta enn í það
umræðuflóð sem verið hefir um háa
vexti og vaxtahækkanir.
Ég kemst þó ekki hjá því vegna
setu minnar í einu af þeim banka-
ráðum, sem að þessum vaxtahækk-
unum stendur.
íslandsbanki reið á vaðið með
verulegri vaxtahækkun frá 1. nóv-
ember á liðnu ári. Verðbólga hafði
farið lækkandi á sl. ári og bankarn-
ir bjuggu við mjög hagstæða vexti.
Én Islandsbanki vildi meira og
ætlaði greinilega að ýta vaxta-
hækkunarskriðunni af stað.
Aðrir bankar hikuðu nokkuð við
en svo kom að því, að Búnaðar-
bankinn gafst upp og hækkaði
einnig útlánsvexti.
Þrátt fyrir tillögur um hækkun
vaxta Landsbankans tókst að halda
honum kyrrum þar til um áramót.
Þá varð að gefa eftir með 1% hækk-
un útlánsvaxta.
Hörð viðbrögð urðu við vaxta-
hækkunarstefnu bankanna. Fræg-
ust urðu viðbrögð Guðmundar J.
Guðmundssonar og ýmissa verka-
lýðsforingja.
Þá snerist forsætisráðherra,
Steingrímur Hermannsson, snarp-
lega á móti og benti réttilega á,
að engin tilefni væru til vaxta-
hækkana, við aðstæður í þjóðfélag-
inu.
Þeir sem fylgdust með umræðum
um vaxtahækkunarmálin í bankar-
áðum, á Alþingi og í blöðum, hlutu
að veita því athygli, að stjómarand-
staðan, sérstaklega fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins, voru mikliráhuga-
menn um að hækka vexti. í sífellu
var klifið á því að verðbólgan væri
meiri en ríkisstjórn vildi vera iáta
og af þeim ástæðum ættu vextir
að hækka. Einnig var sagt að ríkis-
stjórnin ssekti svo stíft eftir inn-
lendum lánum að óhjákvæmilegt
væri að hækka vexti af markaðsá-
stæðum.
Ýmsu var borið við, eins og því,
að nauðsynlegt væri að hækka
vexti á óverðtryggðum lánum til
samræmis við háa vexti á vísitölu-
bundnum lánum.
Nú vil ég strax taka það fram
til að skýra afstöðu mína til þess-
ara vaxtamála, að ég hef verið
mjög andvígur hækkun vaxta og
reynt að beita mér gegn þeirri
miklu ásókn sem verið hefir til sí-
felldra vaxtahækkana.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og
Kvennalista hafa hinsvegar jafnan
mælt með vaxtahækkun, þegar
málið hefir verið rætt í bankaráði
Landsbankans.
Ég tel viðbrögð Guðmundar J.
Guðmundssonar og forsætisráð-
herrans, Steingríms Hermannsson-
ar, hafi verið rétt og eðlileg. Vext-
ir hafa verið óheyrilega háir allt
árið 1990 miðað við þá verðlagsþró-
un sem verið hefir.
Rekstrarleg afkoma bankans
hefir líka verið betri á árinu 1990
en um langt tímabil áður. Þegar
ég segi „rekstrarleg afkoma" þá á
ég auðvitað við tekjur og gjöld, sem
tilheyra rekstrar-árinu. Meiriháttar
útlánatöp, eða önnur áföll, verða
að skoðast sérstaklega.
Tii þess að skýra afstöðu mína
til þessara vaxtahækkunarmála vil
ég taka upp orðrétt eftirfarandi
greinargerð úr nýlega útkomnu
hefti af ritinu „Vísbending" sem
gefin er út af ráðgjöf Kaupþings
hf. og einnig vitna ég til nóvember-
heftis Hagtalna mánaðarins, sem
Seðlabankinn gefur út.
í Vísbendingu frá 3. janúar 1991
segir:
„Raunvextir óverðtryggðra
skuldabréfa hækkuðu á árinu 1990
að meðaltali um 2,8% frá fyrra
ári, úr 6,5% í 9,3%. Aðeins árið
1988 voru þessir vextir hærri. Árs-
vextir vísitölubundinna lána hækk-
uðu að meðaltali um 0,2%, úr 7,8%
i 8,0%. Þetta eru hæstu vextir
frá því almenn vísitölubinding
var tekin upp árið 1979, ef undan
er skilið árið 1988. Raunvaxtaþró-
un á árinu 1990 bendir til þess að
bankarnir hafi ekki náð að láta
vaxtalækkanir fylgja takti
hjöðnunar verðbólgu. Raunvextir
óverðtryggðra lána voru að meðal-
tali 1,3% hærri en vísitölubundinna
lána“.
Þeir sem þetta lesa sjá auðvitað,
að fyrirslátturinn um að nauðsyn-
legt væri „að hækka vexti á óverð-
tiyggðum lánum til samræmis við
vexti verðtiyggðra lána“, var gjör-
samlega tilefnislaus.
Vextir óverðtryggðra lána höfðu
hækkað meira en verðtryggðra.
Vextir beggja lánaformanna höfðu
hins vegar hækkað á raunvaxta-
grundvelli.
I nóvemberhefti rits Seðlabank-
ans kemur þetta skýrt fram. Þar
er sagt að á þriðja ársfjórðungi
ársins 1990 hafi vaxtahækkun
óverðtryggðra lána verið 12,3%
miðað við 5,3% verðbólgu.
Hækkun útlánsvaxta Lands-
bankans, sem samþykkt var 30.
janúar sL, jafngildir því að útláns-
vextir á ársgrundvelli verðtryggðra
og óverðtryggðra lána verði 15 'h
til 16%.
Meðaltal vaxtamunar á innláns-
og útlánsvöxtum verður þá 8,4%
til 8,7%.
Þetta er auðvitað óhæfilega mik-
ill vaxtamunur, á sama tíma og
gert er ráð fyrir að almennir launa-
menn búi við óbreyttan kaupmátt
í bezta falli. Að meðaltalsvextir
skuli vera, umfram fulla verðtrygg-
ingu, 8% árið 1990 við ríkjandi
þjóðarsátt er hneyksli. Allir ættu
að sjá, að það er ósanngjarnt að
launafólk sé sett á 0 á sama tíma
sem þeir sem lána út peninga fá
8% í raunvexti.
Það bætir að litlu þessa mynd,
þó að hægt sé að sýna fram á, að
Landsbankinn hafi verið sköm-
minni skárri í vaxtaokrinu, en hin-
ir bankarnir. Þáttur íslandsbanka
er verstur, þar er okrið mest. Sjálf-
stæðisflokkurinn, Alþýðuflokk-
urinn og Kvennalistinn bera
ábyrgð á þessari síðustu vaxta-
hækkun. Eg og Kristinn Finn-
bogason, fulltrúar Alþýðubanda-
lags og Framsóknar, greiddum
atkvæði gegn þessari hækkún.
Með þessari grein hefi ég gert
stutta grein fyrir afstöðu minni til
þess vaxta-okurs, sem ég tel að
hér eigi sér stað.
SOL UR SORTA
HELSTU STYRJALDIR 1988-1989
Fallnir og hrakfir á flótta frá upphafi áfaka
STOMA BilEIIAM) +
(N-lRLAND)
+ rajMr'NIA
MAROKKÓ/VESTUR SAI +
TYRKLAND +
: IBANON +
JSRACL +
GVATEMALA +
EL SALVADOR +
NlKARAGVA +.
PANAMA-USÁ +
KOLUMBlA +
PERU +
+ IRAK
IRAN +
SÚOAN +
TSJAO + EPÍOPlA +
SÓMALlA +
ÚGANDA +
ANGOLA +
SUÐUR AFRlKA/NAMIBlA +
+ AFGANISTAN
+ INDLAND-PAKISTAN + KÍNA
+ BANGLAOESS W *
ND.AND+ BUHMA+ + LÁOS + FILIPSEYJAR
+ VIETNAÚ
+ KAMBODlA
SRI LANKA + ' ii#
INDONESlA/AUSTUR TIMOFÍ +
+ MOSAMflr.
SUÐUR AFRlKA +
MI6- og Suöur-Amerika Fallnlr
Kólumbia >7.S00
El Salvador 63.250
Gvatemala 45.500
Nikaragva 30.000
Panama-USA 1.000
Perú \ 8 000
Evrópa
Rúmenia 1.000
Stóra Bretland (N-frtand) 2.700
208.100
158.700
479.700
Afrika
Angóla
Tajad
Eþlópia
Eþiópia-Sómalía
Marokkó/Vestur Sahara
Mósambik
Sómalia
Suður Alrlka
Suóur Afrlka/Namibia
Súdan
Oganda
Fallnlr
>60.000
28.000
>100.000
>40.000
10.000
107.000
50.000
4.750
12.800
291.000
106 000
Flóttamenn
1.076.000
187.400
1.735 900
165.000
1.354.000
458 600
3 594.900
7.000
2.435.100
312.800
MI6 Austurlönd
Iran
irak
Iran-irak
Striö Israela og Araba/Hernumdu svæóin
Líbanon
Tyrkland
Suður-Asía
Afganistan
Bangladess
Indland
Indland-Pakislan
Búrma
Sri Lanka
Fallnir
17.000
110.000
>535.000
10.200
131.000
1.500
1.000.000
1.000
16.000
11.500
19.000
14.000
7.934.500
50.000
65.000
Austur-Asia
Fallnlr
Kambódia 2.000.000
Kina-Vfelnam 31.000
Indónesla/Austur Timor 200.000
Laos 40.000
Filipseyjar 37.100
Á þessu korti Rauða krossins eru merktar inn helstu styijaldir 1988-1989 og fjöldi þeirra sem hafa fallið eða þurft að flýja heimili sín.
105 styrjaldir hafa geisað víða
um heiminn frá árinu 1945
FRÁ lokum síðari heimsstyrjaldar hafa geisað 105 styrjaldir, sem
krafist hafa meira en 1000 mannslífa hver. Fyrir tveimur árum
voru 36 þessara hildarleikja enn í gangi og aðeins þeir höfðu
kostað 5 milljónir mannslifa. Af þeim féllu 4,4 milljónir í innan-
landsátökum, eða hátt í níutíu af hundraði. Fórnarlömb allra
þessara átaka eru 32 milljónir manna.
Þetta kemur fram í bók, sem við alheimsátak Alþjóða rauða
.Uppsalaháskóli gaf út í tengslum krossins til hjálpar stríðshijáðum.
Hér á landi hefur átakið fengið
slagorðið „Sól úr sorta“. í bókinni
kemur einnig fram, að þeir sem
látið hafa lífið í stríði síðan 1945
hafi ekki fallið fyrir kjarnavopn-
um, heldur ódýrum og einföldum
vopnum. Yfirgnæfandi meirihluti
styijalda hafi verið háðar í þriðja
heiminum og þróunarlöndin séu
nú í vaxandi mæli á höttunum
eftir háþróuðum vopnum, sem
mörg séu vafasöm frá mannúðar-
sjónarmiði, svo sem leysigeislar
sem blinda eða flugskeyti, sem
skotið er utan sjónmáls við skot-
markið.
----------------
Listasafn Sigxiijóns;
Bókmennta-
dagskráá
sunnudag
BÓKMENNTADAGSKRÁ verð-
ur næstkomandi sunnudag 3.
febrúar í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar á Laugarnesi.
Lesið verður úr íslenskum þýð-
ingum á nokkrum öndvegisverkum,
sem gefin voru út fyrir síðustu jól
og verða að þessu sinni kynnt skáld-
verk eftir höfunda sem ekki hafa
verjð þýddir áður á íslensku.
Árni Bergmann mun lesa úr þýð-
ingu sinni á Undirleikaranum eftir
Nínu Berberovu. Viðar Eggertsson
les úr bókinni Utz eftir Bruce Chat-
win, sem Unnur Jökulsdóttir og
Þorbjörn Magnússon hafa þýtt. Ólöf
Eldjárn mun lesa úr eigin þýðingu
á bókinni Heimur feigrar stéttar
eftir suður-afrísku skáldkonuna
Nadine Gordimer. Margrét Áka-
dóttir les úr Blóðbrúðkaupi eftir
Yann Queffélec í þýðingu Guðrúnar
Finnbogadóttur, en þessi saga hefur
hlotið hin virtu Concourt-verðlaun.
Að lokum les Sigurður A. Magnús-
son úr þýðingu sinni á skáldsög-
unni Dreggjar dagsins eftir Kazuo
Ishiguro, en bókin hlaut eftirsótt-
ustu bókmenntaverðlaun Breta,
Booker-verðlaunin, árið 1989 og
hefur farið sigurför um allan heim.
Dagskráin hefst kl. 15.00 stund-
víslega og stendur í um það bil
klukkustund.
(Fréttatilkynning)
------M-t-------
■ ÍSLANDSNEFND Lett-
erstedtska sjóðsins hefur ákveðið
að veita ferðastyrki á árinu 1991
til íslenskra fræði- og vísinda-
manna, sem ferðast vilja til Norður-
landa á árinu í rannsóknarskyni.
Tekið skal fram að ekki er um eigin-
lega námsferðastyrki að ræða held-
ur koma þeir einir til greina sem
lokið hafa námi en hyggja á frek-
ari rannsóknir eða þekkingarleit á
sínu sviði. Umsóknir skal senda til
Islandsnefndar Letterstedtska
sjóðsins, c/o Þór Magnússon,
pósthólf 1489, 121 Reykjavík,
fyrir febrúarlok 1991. Veitir hann
einnig nánari upplýsingar.
(Fréttatilkynning)