Morgunblaðið - 02.02.1991, Blaðsíða 24
MORÖukBLÁÍÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1991
24
Reuter
Hert öryggiseftirlit í Prag
Tveir hermenn tékkneska innanríkisráðuneytisins fylgjast með sendiráði
Bandaríkjanna í Prag í gær þegar öryggiseftirlit var hert í borginni vegna
hugsanlegra hiyðjuverka. Hermenn eru einnig við sendiráð Bretlands,
Frakklands og Israels í borginni.
Quayle útilokar ekki
beitingu kjamorkuvopna
Segir að ekki standi til að verðlauna Saddam með ráð-
stefnu um málefni Austurlanda nær
London. Reuter.
DAN Quayle, varaforseti Banda-
ríkjanna, sagðist í gær búast við
því að Saddam Hussein beitti
efnavopnum einhvern tíma í
Persaflóastríðinu. Hann sagði að
ef það yrði myndu bandamenn
svara fyrir sig með „með yfir-
þyrmandi“ hætti. Hann útilokaði
ekki beitingu kjarnorkuvopna.
Quayle átti viðræður við Tom
King, varnarmálaráðherra Bret-
lands, í gær. Áður átti breska út-
varpið BBC við hann viðtal. Quayle
var spurður hvort hann teldi að að
Saddam myndi beita efnavopnum.
„Ef til vill mun hann gera það.
Hann hefur notað þau áður. Hann
hefur sagt að hann muni nota þau.“
Quayle sagði að Saddam gæti hlað-
ið hefðbundin stórskotaliðsvopn eit-
urhleðslum. „Við teljum að einhvern
tíma þegar honum finnst það henta
muni hann nota efnavopnin,“ sagði
Quayle. Hann vildi ekki útiloka að
svarað yrði með kjarnorkuvopnum
en gaf til kynna að gríðarlega þung
sókn með hefðbundnum vopnum
væri líklegri. „Ef Saddam beitir í
raun efnavopnum ... þá er eitt úr-
ræðið að bera hann ofurliði með
hefðbundnum vopnum og ekki
kjarnorkuvopnum," sagði Quayle.
„En ég ætla ekki að útiloka neina
möguleika að svo stöddu.“
Quayle sagðist telja að stríðið
gegn Irak tæki nokkrar vikur eða
mánuði en ekki ár. Hann neitaði
því að markmið Bandaríkjamanna
væri að steypa Saddam. Quayle
Reuter
John Major forsætisráðherra Bretlands og Dan Quayle varaforseti
Bandaríkjanna ræddust við í London í fyrradag.
sagði að vissulega yrði tímabilið
eftir að stríðinu lyki erfiðara viður-
eignar ef Saddam yrði áfram við
völd en markmiðið væri samt fyrst
og fremst að hrekja hann frá Kú-
veit. Þegar hann var spurður hvort
hann teldi ráðstefnu um málefni
Austurlanda nær koma til greina
eftir stríðið til að ræða vandamál
Palestínumanna sagðist hann telja
að slíkt væri vilji Saddams og ekki
stæði til að verðlauna hann. Þó
útilokaði hann ekki slíka ráðstefnu
með öllu.
Quayle sagði við fréttamenn eftir
viðræður við Tom King að banda-
mönnum lægi ekkert á að heij'a
landhernað gegn Irökum. Árás Ir-
aka á Khafji breytti engu þar um.
„Hernaðaráætlunin nú er að halda
lofthernaði áfram, halda áfram að
skjóta á hernaðarleg skotmörk og
ég held ég megi segja að fram til
þessa hafi þessi áætlun borið árang-
ur.“ King tók undir þetta og sagði
að herforingjarnir yrðu að fá að
velja þann tíma sem landhernaður-
inn ætti að byija á og ekki ætti að
þrýsta á þá um að byija áður en
þeir væru tilbúnir.
Innrás bandamanna í Kúveit talin óhjákvæmileg:
Vandlega skipulögð aðgerð
sem reynast mun áhættusöm
Lundúnurn. The Daily Telegraph.
LOFTÁRÁSIR bandamanna í upphafi Persaflóastyijaldarinnar voru
snöggar og þungar og virðast hafa komið írökum í opna skjöldu.
Sömu aðferð verður vafalítið beitt á næsta stigi átakanna, innrás
bandamanna í Kúveit, sem flestir virðast nú telja óhjákvæmilega.
Fremstir í flokki verða sveitir bandarískra landgönguliða sem nú
eru í viðbragðsstöðu á Persaflóa og bíða þess að ráðast gegn innrás-
arliði íraka í Kúveit. Innrás af hafi er alltaf sérlega hættuleg hern-
aðaraðgerð líkt og sagan sýnir og gera má ráð fyrir öflugri mót-
spymu Iraka sem undirbúið hafa varnir sínar vandlega undanfarna
fimm mánuði.
Herstjóm bandamanna í Saudi-
Arabíu hefur varist allra fregna
af viðbúnaði innrásarliðsins og
sama gildir raunar einnig um að-
gerðir flotans á Persaflóa. Ekki
liggur fyrir hversu mörgum innrás-
arprömmum og -skipum banda-
menn hafa yfir að ráða en fyrir
liggur að á þessu stigi styijaldar-
innar verður, líkt og á hinum fyrri,
beitt nýjum búnaði. Þannig var
nýjasta svifnökkva Bandaríkja-
flota, USS Tortuga stefnttil „leyni-
legs ákvörðunarstaðar" strax í des-
embermánuði, skömmu eftir að
honum hafði verið hleypt af stokk-
unum.
Brotist gegnum varnarlínu
Iraka
Alls eru um 65.000 bandarískir
landgönguliðar á átakasvæðinu.
Flestir eru þeir á landi, við landa-
mæri Kúveit og Saudi-Arabíu og.
hafa raunar þegar átt í bardögum
við íraska innrásarliðið eins og
fram hefur komið. Hlutverk þessa
liðsafla, sem telur um 45.000 menn
og ræður yfír fullkomnum skrið-
drekum af gerðinni M-60, verður
að bijótast í gegnum vamarlínu
íraka við landamærin. Þegar þeim
áfanga er náð mun liðið halda til
norðurs meðfram ströndinni og ná
saman við innrásarliðið sem þá
ætti að hafa náð einhverri fótfestu.
Á Persaflóa eru nú a.m.k. 'tíu
stór liðsflutningaskip ásamt til-
heyrandi verndar- og birgðaskip-
um. Bretar hafa lagt til nokkrar
freigátur og loftvamaskip auk liðs- ’
flutningaskipanna Sir Galhad og
Sir Percivale. Að auki eru þar einn-
ig til taks a.m.k. fimm breskir
tundurduflaslæðarar, sem gegna
munu mikilvægi hlutverki þegar
innrásinní í Kúveit verður hrundið
af stað. Hvert liðsflutningaskip
Bandaríkjamanna, sem em af gerð-
inni Tarawa-3, ber um 1.700 menn
auk skriðdreka vopna og land-
göngupramma. Á dekkinu eru
einnig þyrlur af gerðinni Sea Stalli-
on og Harrier-orrustuþotur. Nýj-
ustu skipin, sem eru af gerðinni
Whidbey Island, geta borið svif-
nökkva, sem ná allt að 40 hnúta
hraða, með stóran skriðdreka inn-
anborðs. Sagt er að nökkvar þessir
geti komist óskadaðir yfír jarð-
sprengjusvæði.
Loft- og stórskotaliðsárásir
Innrásin mun vafalítið hefjast
með stórfelldum árásum banda-
rískra herskipa á strönd Kúveit.
Herskipin geta skotið 16 þumlunga
iil
Reuter*
Bandarískir landgönguliðar við æfingar nærri landamærum Kú-
veit og Saudi-Arabíu.
hleðslum, sem hver um sig er álíka
þung og smábifreið. Bandaríkja-
menn ráða einnig yfir sprengju-
hleðslum, sem springa í lofti og
dreifa smærri hleðslum yfir stöðvar
óvinarins. Árásarþyrlur og
Harrier-orrustuþotur munu síðan
gera loftárásir á stórskotaliðssveit-
ir, niðurgrafna skriðdreka og
stjómstöðvar óvinarins.
Yfirhershöfðingi landgöngu-
sveitanna, Walter Boomer, hefur
vafalítið þegar ákveðið hvar á
ströndinni fyrstu sveitimar halda í
land. Hann mun einkum hafa í
huga svæði þar sem er dýpi er
hæfilegt fyrir innrásarprammana
og sandurinn nægilega þéttur fyrir
bryndrekana. Hann hefur vafalítið
einnig leitað að stöðum þar sem
flatlendi tekur við af ströndinni til
að innrásarliðið geti sem fyrst náð
saman við þann hluta heraflans
sem kemur frá Saudi-Arabíu. Um
þetta er írösku herforingjunum
vitaskuld fullkunnugt þannig að
líklegt má heita að ýmsum blekk-
ingum verði beitt áður en sjálf inn-
rásin hefst til að unnt verði að
koma írökum á óvart.
Megináherslan verður lögð á að
koma innrásarliðinu sem fyrst af
sjálfri ströndinni og það versta sem
gerst getur, frá sjónarhóli banda-
manna, er að fyrstu innrásarsveit-
irnar komist ekkert áleiðis sökum
skothríðar herdeilda óvinarins. í
tilfellum sem þessum gerir hefð-
bundin herfræði ráð fyrir því að
fyrstu hermennirnir hafi þegar
hafið árás á landstöðvar óvinarins
þegar næsta „bylgja" innrásarliðs-
ins kemur að ströndinni. Þegar
bandamenn gerðu innrásina í Nor-
mandí á árum síðari heimsstyijald-
innar tókst bresku hersveitunum
einmitt þetta en Bandaríkjamenn
lentu í erfíðleikum á ströndinni og
urðu því fyrir miklu mannfalli þeg-
ar á fyrstu stigum innrásarinnar.
Samræmdur land- og
lofthemaður
Normann Schwarzkopf, yfir-
maður herstjómar bandamanna,
hefur að því er sagt er mótað áætl-
un sem gerir ráð fyrr því að tíu
þúsund landgönguliðar taki þátt í
fyrstu innrásinni af hafi. Þeir munu
aka í land á bryndrekum er nefn-
ast Armtráck og koma sér fyrir á
ströndinni. Þyrlur verða einnig not-
aðar til að koma liðsafla í land á
bak við varnarlínu íraka. Þessi hluti
liðsaflans verður fremur létt vopn-
aður en honum er ætlað að greiða
fyrir næsta stigi innrásarinnar þeg-
ar þess verður freistað að koma
þungum bryndrekum á land og
heraflanum stefnt í átt til Kúveit-
borgar. Á sama tíma verða stór-
skotaliðsvopn og skotfæri flutt í
land með stórum þyrlum. Tomcat-
orustuþotur munu síðan veija inn-
rásarliðið gegn árásum úr lofti auk
þess sem þeim verður ætlað að
koma í veg fyrir að íraski flugher-
inn geti beitt Exocet-flugskeytum
gegn herskipum á flóanum. Ólík-
legt er talið að íraski flugherinn
komist í skotfæri við herskipin en
menn hafa hins vegar af því nokkr-
ar áhyggjur að strandvamarsveitir
íraka nái að halda uppi eldflauga-
árásum og geti einnig beitt
Exocet-flaugum sem breytt hefur
verið og skotið er af vörubílspalli.
Fjölmargar íraskar herdeildir
eru nú í viðbragðsstöðu við strönd
Kúveit og bíða innrásarinnar. Þótt
talsmenn herstjórnar bandamanna
hafi margoft sagt að árásin verði
ekki hafin fyrr en tekist hafi að
greiða landher íraka mörg högg
og þung með loftárásum eru flestir
þeirrar skoðunar að Kúveit verði
ekki frelsað úr klóm Saddams Hus-
seins nema með mannskæðum
landbardögum. Sérfræðingar spá
því að varnarsveitir íraka við
strönd Kúveit verði fremur auðveld
bráð en engu að síður er ljóst að
bandarísku landgönguliðarnir
munu taka á sig þyngstu höggin á
fyrstu klukkustundum innrásarinn-
ar.