Morgunblaðið - 02.02.1991, Síða 29
MORGtíNBl.AÐlf) TjU.GARDAGUH 2. PEÐRÍHAR 1'991
Höfundar ljóðanna 25. Þeir eru í stafrófsröð.-Björg Björnsdóttir, Björgvin E. Björgvinsson, Gerður Kristný, Guðríður Lillý Guðbjörns-
dóttir, Guðrún Margrét Tryggvadóttir, Jón Stefánsson, Jón Özur Snorrason, Kristján Þórður Hrafnsson, Margrét Lóa Jónsdóttir,
Melkorka Tekla Ólafsdóttir, Olöf Kristín Pétursdóttir, Sigrún Þorvarðardóttir, Sigurður Sverrir Stephensen, Sindri Freysson, Stein-
ar Guðmundsson, Svanhildur Eiríksdóttir, Vilborg Davíðsdóttir, Þorbjörg Hróarsdóttir, Þórdís Guðjónsdóttir og Ösp Viggósdóttir.
Stúdentaráð:
25 verðlaunaljóð gefin út
VERÐLAUN AAFHENDIN G í
ljóðasamkeppni háskólastúd-
enta veturinn 1990-1991 fór
fram í Garðsbúð, fundarsal
Stúdentaráðs í Gamla Garði, í
gær. 213 ljóð bárust í keppnina
og fengu 24 ljóð auk verðlauna-
ljóðs sérstaka viðurkenningu.
Stúdentaráð hefur gefið ljóðin
út í bók sem heitir eftir einu
ljóðanna Þessi ást, Þessi ást.
Sæmundur Norðfjörð, heim-
spekinemi og umsjónarmaður
ljóðasamkeppninnar ávarpaði við-
stadda og lýsti yfir ánægju sinni
með fjölda þátttakenda í keppn-
inni. Hann sagði að starf dóm-
nefndarinnar, skáldanna Matt-
híasar Johannessen, Steinunnar
Sigurðardóttur og Sigurðar Páls-
sonar, hefði verið erfitt vegna
þess hve mörg góð ljóð bárust í
keppnina en lagði áherslu á að
ljóðin 25 verðskulduðu öll sæti
sitt í ljóðasafninu.
Eftir ávarp Sæmundar tók
Þórdís Guðjónsdóttir, sem samdi
verðlaunaljóðið, við viðurkenn-
ingu dómnefndar úr hendi Matt-
hísar Johannessen og sagði að
verðlaunin væri án efa henni jafn
mikilvæg og „alvöruskáld“ bók-
menntaverðlaun Norðurlandar-
áðs. Þá voru afhendar viðurkenn-
ingar fyrir önnur ljóð í bókinni.
I samtali við Morgunblaðið
sagði Þórdís, höfundur verðlauna-
ljóðsins, að hún væri bæði glöð
og stolt yfir viðurkenningunni.
Hún kvað hana hafa komið á óvart
en sagði að innst inni hefði blun-
dað með henni sá draumur þegar
hún skiiaði Ijóðinu í keppnina að
það yrði valið í bókina. I samtal-
inu kom fram að viðurkenningin
væri henni hvatning til að halda
áfram að yrkja en hún sagði að
ekki væri von á ljóðabók frá sér
á næstunni. Á þessari önn mun
hún þó semja að minnsta kosti
eitt ljóð á viku og skila kennara
sínum í námskeiðinu Ritlist sem
Þórdís Guðjónsdóttir tekur við viðurkenningu úr hendi Matthías-
ar Johannessen. Fyrir aftan standa Sigurjón Þorvaldur Árna-
son, formaður stúdentaráðs, Sæmundur Norðfjörð, umsjónarmað-
ur keppninnar og Steinunn Sigurðardóttir.
kennt er í íslenskudeildinni.
Verðlaunaljóðið, Lindamosa,
sagði Þórdís vera náttúrumynd.
„Kannski vísar það líka til innri
veruleika mannsins," sagði Þórdís
og bætti við að sum skáld vildu
sem minnst um ljóðin sín segja.
„Mitt er að yrkja, þitt að skilja,“
hafði Þórdís eftir einu þeirra.
Ljóð eftir Þórdísi hafa áður
birst í Mími, tímariti íslenskunema
og Lesbók Morgunblaðisins.
2&
Bensínsparnaður:
Oíufélög
ráðleggja
viðskipta-
vinum
SKELJUNGUR hf. og Olíufé-
lagið hf. hafa gefið út leiðbein-
ingabæklinga um hvernig spara
megi bensín. Bæklingarnir
liggja frammi á bensínstöðvum
félaganna. Þetta er liður í sam-
ræmdu átaki stjórnvalda og
fleiri aðila til eldsneytisspam-
aðar vegna óvissuástands fyrir
botni Persaflóans.
í bæklingunum eru taldir upp
tugir atriða sem áhrif geta haft á
eldsneytisnotkun bifreiða og gefn-
ar leiðbeiningar um hvað eri að
hafa í huga til að eyðslan verði
ekki óþarflega mikil. Þá er í öðrum
bæklingnum er.tafla sem sýnir hve
miklu bensíni bíllinn eyðir á hveija
100 kílómetra miðað við ekna
vegalengd og bensínlítra sem fóru
á tankinn til að fylla hann.
Leiðrétting
í FRÉTT Morgunblaðsins sl.
fimmtudag um auglýsingaskilti
Kviksýnar hf. á þaki Nýja bíós var
rangt farið með nafn framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins og hann sagður
vera Samúel Ólafsson. Hið rétt er
að Bjarni Friðriksson er fram-
kvæmdastjóri þess en hönnuður
fyrirtækisins og sá er hafður var
eftir fréttinni er Samúel Þórarins-
son. Þess má geta að fyrirtækið
býður jafnframt upp á birtingu af-
mæliskveðja og annarra skyldra
skilaboða jafnt sem auglýsinga.
Léttmeti á þorra
Þorrinn er nú genginn í garð og þá er um að gera fyrir okkur að vera búin að ná af okkur
þeim kilóum, sem við bættum á okkur um jólin. Svo er líka miklu betra fyrir líkama og sál
að borða stundum léttmeti sem í leiðinni minnkar mittismálið. Mesta ánægja margra er
að borða Uúffengan og vel fram borinn mat. Þetta getum við látið eftir okkur án þessað
fitna. Við megum ekki kaupa „bara eitthvað fljótlegt" án þess að hugsa og segja um leið: „Eg má
ekki vera að því að búa til góðan mat.“ Sannleikurinn er sá, að við erum ekkert lengur að búa til
góðan mat en lélegan, við þurf-
um bara að hugsa svolítið, en
það ættum við flest að hafa
tíma til að gera. Nú fæst alls
konar grænmeti, margar teg-
undir af góðu fitulitlu kjöti og
svo auðvitað heimsins besti
fiskur. Og nú er verð á kjúkl-
ingum lágt. Kjúklingar eru fitu-
litlir og mjög auðmeltanlegir.
Að vísu er fita í húðinni og
undir henni, en við getum farið
að eins og Indveijar gera oft-
ast, tekið haminn af. Kjúkling-
inn skulum við hafa soðinn, og
með honum sjóðum við tómata
og lauk. Þetta er hollur, drjúg-
ur og nyög góður réttur og
ekki fitandi. Hrísgijón berum
við með og ef við viljuin hafa
meira við og höfum tíma til,
er tilvalið að baka bananabrauð
og bera með.
Indverskur kjúklingaréttur
1 meðalstór kjúklingur
1 tsk. salt
4 dl vatn
’A tsk salt í vatnið
1 msk. matarolía
2 stórir laukar
2 hvítlauksgeirar
2 tsk. rifín engiferrót (má sleppa)
1 tsk. blandað kjúklingakrydd
1 lítil dós hrein jógúrt, 180 g
‘A hálfdós niðursoðnir tómatar
1. Sundurhlutið kjúklinginn,
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKEUSSON
bringurnar sér og lærin sér. Klipp-
ið hrygginn frá. Takið síðan ham-
inn af og fleygið. Þerrið kjötstykk-
in vel. Nuddið salti vel inn í kjötið.
2. Leggið hrygginn, hálsinn og
innyflin í 3 dl af mildu saltvatni
og sjóðið í 20 mínútur.
3. Setjið matarolíu á pönnu og
smyijið henni jafnt um pönnuna,
hitið þar til rýkur úr henni og
steikið kjötbitana á öllum hliðum.
Takið pönnuna af hellunni.
4. Takið allt nýtilegt kjöt af
beinum og setjið út í soðið í pottin-
um.
5. Afhýðið lauk og hvítlauk,
skerið í litla bita og setjið út í
soðið. Rífið engiferrótina og setjið
saman við. Sjóðið við háan hita í
5—7 mínútur, en þá á mikill hluti
soðsins að hafa gufað upp.
6. Setjið laukblönduna í kvörn
eða meijið gegnum sigti. Setjið
krydd út í og setjið aftur í pottinn.
7. Hrærið jógúrtina hægt út í.
8. Setjið tómatana og soðið af
þeim út í sósuna. Látið sjóða, setj-
ið síðan yfir kjötbitana á pönn-
unni, leggið hlemminn á pönnuna
og látið sjóða við hægan hita í
20-30 mínútur.
Bananabrauð
5 dl hveiti
1 tsk. fínt þurrger
'A tsk. salt
1 tsk. sykur
'A msk. matarolía
1 dl léttmjólk
1 dl vel heitt vatn úr krananum
2 bananar
1. Setjið hveiti, þurrger, salt
og sykur í skál.
2. Setjið matarolíu út í.
3. Blandið saman heitu vatni
og kaldri léttmjólk. Þetta á að
vera fingurvolgt. Hrærið út í.
Látið standa á volgum stað í
20—30 mínútur.
4. Skiptið deiginu í 8 bita. Fletj-
ið hvem bita út með kökukefli.
5. Takið hýðið af banönunum.
Skerið síðan hvern banana í
tvennt langsum og kljúfið síðan
báða bitana, þannig að þið fáið 4
bita úr hveijum banana.
6. Leggið bananabita á hvem
deigbút, lokið deiginu utan um.
7. Leggið á bökunarpappír á
bökunarplötu. Látið lyfta sér í
20-30 mínútur.
8. Hitið bakaraofn í 210°C,
blástursofn í 190°C, setjið brauð-
ið í miðjan ofan og bakið í u.þ.b.
15 mínútur.